Morgunblaðið - 13.03.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAR2 1986---------------------------------------------7*
Sjö sjómenn eiga Markús-
arnetinu líf sitt að launa
„Nýju hylkin mun meðfærilegri,“ segir Pétur Th. Péturs-
son framkvæmdastjóri Björgunarnetsins Markúsar hf.
„ÞAÐ ERU tvö ár síðan ný hylki utan um Markúsametin
voru kynnt fyrst, sem eru mun auðveldari í meðförum
en þau gömlu. Nú þarf aðeins eitt handtak til að losa
hylki frá vegg og annað til að opna lokið. Eldri gerðin
er með skrúfuðu loki, sem lengri tíma tekur að ná af.
Það var eldri gerðin sem var um borð í rækjuveiðiskip-
inu ms Guðmundi Einarssyni og því getur vel verið að
lokið hafi verið til einhvers trafala. Það breytir hinu
þó ekki að sjöundi maðurinn hefur nú bæst í hóp þeirra
sem eiga Markúsarnetinu lífbjörg að þakka. Og það
þrátt fyrir að netið sé iðulega ekki notað fyrr en önnur
ráð þrýtur," sagði Pétur Th. Pétursson framkvæmda-
stjóri Björgunarnetsins Markúsar hf.
Eins og frá var greint í Morgun-
blaðinu á þriðjudaginn hrökk skip-
vetji um borð í Guðmundi Einars-
syni útbyrðis þegar skipið var á
rækjuveiðum norð-vestur af Kol-
beinsey sl. föstudagskvöld, vegna
bilunar í kraftblökk, sem notuð
var við töku vörpunnar. Félagar
hans köstuðu til hans björgunar-
hring og spottum, en hvorugt
dugði. Var þá brugðið á það ráð
að henda til hans björgunametinu
Markúsi og tókst skipveijanum
að flækja sig nægilega vei í því
til að hægt væri að draga hann
um borð.
Skipstjórinn á Guðmundi Ein-
arssyni, Stefán Þór Ingason, full-
yrti í samtali við Morgunblaðið á
þriðjudaginn að björgunametið
hefði bjargað lífi skipveijans. En
hann sagði jafnframt að skrúfaða
lokið á hólknum sem geymir
björgunametið hafí orðið þeim til
trafala og beindi þeim tilmælum
til framleiðenda að þeir hönnuðu
lokið þannig að hægt væri að ná
því af með einu handtaki.
„Tilmæli skipstjórans eru full-
komlega eðlileg, því hann hefur
ekki vitað um tilvist nýju gerðar-
innar," sagði Pétur. „Og þau til-
mæli hans, sem hann beindi til
sjómanna, að þeir staðsettu Mark-
úsametið á heppilegum stað í
skipinu og æfðu sig í notkun þess,
er tímabær. Það er mjög mikil-
vægt að staðsetja hylkin á að-
gengilegum stöðum í skipinu, svo
ekki fari óþarfa tími í að komast
að þeim. Ennfremur er mjög áríð-
andi að sjómenn æfi sig í björgun
með netinu, því þótt það sé tiltölu-
lega einfalt í notkun getur reynsla
af því skipt sköpum. Þegar óhöpp
af þessu tagi eiga sér stað hafa
menn ekki tíma til að hugsa,"
sagði Pétur.
Hönnuður Markúsametsins,
Markús B. Þorgeirsson, sem nú
er látinn, kynnti það fyrst árið
1981. Siglingamálastofnun gerði
það að skilyrði um síðustu áramót
að slík net væm um borð í öllum
jrfirbyggðum skipum. Að sögn
Péturs höfðu þó yfír 300 skip
komið sér upp Markúsameti fyrir
áramótin. „Það sýnir að menn
hafa trú á þessu björgunartæki,"
sagði Pétur. Hann sagði að hægt
væri að fullyrða að netin hefðu
bjargað a.m.k. sjö mannslífum.
„Fjórir menn björguðust af þýska
flutningaskipinu Kampen, sem
fórst suður af Vestmannaeyjum í
nóvember 1983, þegar bæði hafði
mistekist að taka þá upp með
björgunarhring og línu. Árið 1984
féll maður í höfnina í Eyjum og
var bjargað í net. í október í fyrra
fór skipveiji á loðnubátnum Gfgj-
unni útbyrðis þegar verið var að
taka inn nótina. Eins og endranær
var byijað á því að kasta til hans
hring og línu, en félagar hans
náðu honum ekki upp fyrr en
þeir gripu til netsins," sagði Pétur
Th. Pétursson að lokum.
Morgunblaðið/Bjami
Pétur Th. Pétursson framkvæmdastjóri Björgunarnetsins Markús-
ar hf. stendur við gömlu og nýju útgáfumar af hylkjunum utan
um björgunametin. Pétur sýnir hvernig hægt er að kippa nýja
hylkinu upp með einu handtaki. Lokið er smellt á og enga stund
tekur að kippa því af. Við hylkið er tengd öryggislína, sem á að
tryggja að hylkið týnist ekki þótt það losni frá í sjógangi. „Það
er nauðsynlegt að hylkin séu staðsett útivið, helst við stýrishúsið,
svo hægt sé að grípa til þeirra strax ef þörf krefur,“ sagði Pétur.
I
1
i
i
i
I
t
Volvo’86 Volvo’86 Volvo’86
340 DL 240DL 740 GL
Áður: 563.000,
Verð nú:
Áður: 747.000
Verð nú:
Áður: 926.000\-
Verð nú:
399.000,- 561.000,- 699.000,-
I
0
O
m-
mvMtmABm
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
I