Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 18

Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 + Hafnarfjörður: Borgarafundur um bæjarmálin í kvöld BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar hefur ákveðið að efna til borg- arafundar um málefni bæjarins. Fundurinn verður haldinn í kvöld, fimmtudagskvöld, i fé- lagsheimilisálmu íþróttahússins við Strandgötu og hefst hann klukkan 20.30. Framsaga verður um stöðu bæj- arins og framkvæmdir á þessu ári. Einnig verða kynntar skipulagstil- lögur, sem nú er unnið að. Að lokn- um framsöguerindum sitja bæjar- fulltrúar fyrir svörum ásamt bæjar- stjóra og skipulagsfulltrúa. 100.000 tonn en ekki 100 MEINLEG villa var i baksíðu- frétt Morgunblaðsins í gær um verðfall á loðnulýsi og biðst Morgunblaðið velvirðingar á henni. í fréttinni stóð: „Þegar best lét var lýsisútflutningur íslendinga um 100 tonn á ári af þeim 6—700 tonnum sem seljast á heimsmark- aði.“ Þama átti að sjálfsögðu að standa 100.000 tonn af þeim 6—700.000 tonnum o.s.frv. Er ekki að efa, að glöggir lesend- ur Morgunblaðsins hafa gert sér grein fyrir því, að 100 tonn af lýsi eru lítill afrakstur af miHjón tonna loðnuafla. Gabriel HÖGGDEVFAR I MIKLU ÚRVALI 7 Stressaður? Stressuð? Það gœti munað um M® MagnaMin Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777 Standa útlend hryðju- verkasamtök að baki morðinu á Olof Palme? Forsíða tyrkneska blaðsíns HUrriyet. Þar er tilbúna myndin af morðingjanum frá sænsku lögreglunni borin saman við mynd af gert án þess það eigi að vekja „SVÍÞJÓÐ verður að taka af okkur hryðjuverkastimpilinn. PKK þolir ekki, að sænsk sljóm- völd berjist gegn Kúrdistan. Þolinmæði okkar stendur i tvo mánuði ennþá en ekki lengur. Eftir það munum við lfta á Svi- þjóð sem óvin.“ Það var háttsettur maður í PKK { Sviþjóð, lögfræðingurinn Huseyl Yildirim, sem í ágúst sl. lét þessi hótunarorð frá sér fara. Þessi ógn- vekjandi hótun hefur ri§ast upp fyrir mönnum nú vegna morðsins á Olof Palme, forsætisráðhera Sví- þjóðar og orðið til þess að beina athygli sænsku lögreglunnar að þessum samtökum { leit hennar að morðingjanum. PKK, er skammstöfun á heiti svonefnds Verkamannaflokks Kúrdistans, en flokkur þessi eða samtök eru marx-leninsk og hafa lengst af starfað með leynd. Margir telja þó samtökin vera hrein hryðju- verkasamtök. Það hefur aukið nryög á tor- tryggnina gagnvart PKK nú, að fyrir hendi er leyniskjal frá því í september 1984, sem sænska ör- yggislögreglan (Sápo) sendi rfkis- stjóminni um, að PKK væri að undirbúa hefndaraðgerðir gegn Olof Palme. Ekki dregur það úr, að PKK hefur, svo fullvíst þykir, látið myrða tvo af fyrrverandi meðlimum sfnum f Svíþjóð. Enginn skyldi þvf furða sig á þvf, að Sápo skuli nú hafa byijað umfangsmikla einum af félögum PKK. rannsókn á starfsemi PKK f landinu. f tengslum við morðið á Olof Palme hefur sænska lögreglan jafn- framt hafið mikla rannsókn á starf- semi allra annarra hryðjuverksam- taka, sem hugsanlega gætu komið við sögu. Það er sagt, að þetta sé grunsemdir í garð þessara samtaka. En það vekur athygli, að það eru eingöngu PKK, sem látið hafa f ljós megna óánægju með þessa rann- sókn. Árekstrar milli PKK og sænskra yfirvalda hófust fyrir alvöru vorið Orgeltónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Níundu tónleikar með orgelverk- um eftir Bach voru haldnir sl. mánudag í kirkju Ffladelfiu safn- aðarins í Reykjavík. Orgelleikari var Ámi Amibjamarson. Tónleik- amir vora í raun þrískiptir og hófust á smá orgelverkum, sem eignuð hafa verið Johann Sebast- ían Bach, en munu trúlega vera eftir nemendur meistarans. Þessi raglingur með verk Bachs, sem á síðustu tuttugu til þrjátíu áram hefur verið reynt að leiðrétta, er talinn tilkominn vegna starfa afritara sem var mjög fjölmennur hópur og hirtu þeir lítt um að geta höfunda. Meðal þeirra verka, sem óvisst er um, era nokkrar stakar prelúdíur og svo átta prelúdíur og fúgur eða fúgettur, sem taldar era eftir Krebs. Sum þessara verka era mjög vinsæl, enda leikandi létt í gerð og vora þau vel leikin af Áma Arinbjam- arsyni. Annar þáttur tónleikanna, vora sálforleikir úr orgelbækling- um (Orgelbiichlein) og aðrir sálm- forleikir. Allt var þetta skýrlega leikið eftir Áma, en heldur vora þessar sérstæðu tónsmíðar meist- arans einlitar í tónblæ. Ekki veit undirritaður hvort kenna megi orgelinu um, eða að Ámi hafi kosið að hafa „registeringuna" látlausa eða samræmda að þessu leiti. þriðjí þáttur tónleikanna var svo önnur sónatan (nr. tvö sam- kvæmt tónverkaskránni) og Tocc- atan og fúgan í F-dúr. Bæði verk- in era erfíð og voru þau á köflum vel leikin. Ámi Arinbjamarson er góður og öraggur orgelleikari og í leik hans má merkja festu, jafn- vel skapfestu, sem ef til vill er granvölluð á virðingu hans fyrir þeirri tónlist sem hann er að leika og þar má trúlega finna ástæðuna fyrir því að hann velur að flytja tónverk meistarans á látlausan en staðfastan máta. Pennavinir Frá Hollandi skrifar 28 ára kona sem vill skrifast á við íslenzkar konur. Hún á tvo fslenzka hesta, hund og §óra ketti. Áhugamálin era hestar og náttúralíf, ferðalög, matseld, garðyrkjao.fl.: Judith Schippers, Schinveldpad 10, 6845 DM Amhem, Holland. Þrítugur karlmaður frá Indónesíu, sem býr rétt við miðbaug jarðar, vill eignast pennavini á íslandi: L. Robin, Panjaitan 34, Manado 95122, Indonesia. Þrettán ára enskur piltur með áhuga á skíðum, seglbrettasigling- um, flugi o.fl. Faðir hans starfar hjá brezka flughemum: Mark Hurrell, Manor House, Dauntseys school, Littleton Pannel, NR Devizes, Wiltshire SN10 4HE, England.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.