Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 • Lokaðir.olíu- kældir og sjálfsmyrj- andi • Vatnsþétting- IP 66 • Fyllsta gang- öryggi, lítið viðhald = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER Flísar flísaefni verkfæri Komiðl sýningarsal okkar og skoðíð möguleikanaá notkun Höganás flísa í húsið. Veljið síðan Högahás fyrirmynd annarraflísa = HÉÐINN = SELJAVEGf 2, REYKJAVIK V^terkurog hagkvæmur auglýsingamiöill! Fríverslunarsamn- # ingur við Bandaríkin eftir Gunnar G. Schram Þau mistök urðu í blaðinu í gær að grein Gunnars G. Schram alþingismanns um skatta- ogg tollalækkanir birtist undir rangri fyrir- sögn. Fyrirsögnin átti að vera: SKATTAR OG TOLL- ARLÆKKAÐIRUM MILLJARÐ KRÓNA. - Hér á eftir ferð grein Gunnars um fríverslunarsamninginn við Bandaríkin. — Blaðið biðst afsökunar á þessum mistökum. / Fyrir skömmu bar ég fram á Alþingi tillögu um að ríkisstjómin he§i könnun á gerð fríverslunar- samnings við Bandaríkin með hlið- sjón af því hver yrði viðskiptalegur hagur af slíkum samningi fyrir ís- lenska atvinnuvegi og útflutnings- starfsemi. Fríverslunarsamningur við Bandaríkin myndi opna okkur ís- lendingum nýja markaði í auðug- asta landi veraldar og gæti, ef vel tekst til, orðið til verulegra hags- bóta fyrir útflutningsatvinnuveg- ina, ekki síst iðnaðinn. Mikilvægasta viðskiptasvæðið f Bandaríkjunum er að fínna mikilvægasta markaðinn fyrir ís- lenskar útflutningsafurðir. Ekkert eitt ríki kaupir jafnmikið af fram- leiðslu okkar og Bandaríkin en þangað fóm 29% útflutningsins árið 1984. Nú er hér fyrst og fremst um að ræða útflutning á ýmiss konar sjávarafurðum. En það er álit þeirra sem gerst þekkja til að á komandi áram verði unnt að stórauka út- flutning íslenskra iðnaðarvara til Bandaríkjanna en þar fæst einna hæst verð fyrír slíkar vörar. Mikil- væg forsenda þess er þó að tollar á slíkum vöram fáist þar lækkaðir. Ef slíkt tækist gæti það orðið mikil Gunnar G. Schram ,;Um langan aldur hafa Islendingar átt náið og gott samstarf við Bandaríkin í stjórn- málum og varnarmál- um. Slíkt skref, sem hér er um að ræða, mundi enn treysta sambandið við þessa forustuþjóð þar sem mikilvægustu markaðir okkar eru.“ lyftistöng fyrir íslensk iðnfyrirtæki sem ættu þá auðveldara með að vinna þar nýja markaði fyrir fram- leiðsluvörar sínar. Er hér því um að ræða mjög mikilvægt hagsmuna- mál fyrir íslenskan iðnað og vöxt hans og viðgang í framtíðinni. í stóram dráttum má segja að ávinningurinn af gerð fríverslunar- samnings við Bandaríkin yrði eftir- farandi: 1. Tollar á íslenskum framleiðslu- vöram yrðu lækkaðir og felldir niður. Sú upphæð nam 129 millj. kr. árið 1984. 2. Samkeppnisaðstaða íslenskra útflytjenda á bandaríska mark- aðnum mundi mjög batna gagn- vart öðram þjóðum. 3. Bandarískar vörar mundu lækka í verði hér á landi. 4. Möguleikar mundu skapast á samvinnu erlendra og íslenskra fyrirtækja til framleiðslu hér á landi til útflutnings, bæði til Bandaríkjanna og Evrópu (EFTA- og EBE-landanna). 5. Viðskiptatengsl og efnahags- samvinna Islands og Bandaríkj- anna mundi vaxa í veralegum mæli. Árið 1984 var útflutningsverð- mæti vöra, sem flutt var frá íslandi til Bandaríkjanna, 6686 millj. kr. eða um 211 millj. dollara. Hér var um 107 vörategundir að ræða og var tollur sá, sem af þeim var greiddur, 129 millj. ísl. kr. Innflutn- ingur frá Bandaríkjunum nam á sama ári 1806 millj. ísl. kr. Tollar af honum vora 323 millj. kr. Hætta á fisktollum Sjávarafurðir era stærsti hluti útflutningsins til Bandaríkjanna en af þeim era einnig greiddir lægstu tollamir. Rúmlega þriðjungur af útflutningi sjávarafurða er tollfijáls í Bandaríkjunum. Annars eru lágir tollar af honum, t.d. um 2 sent á pund af frystum flökum. Miklu hærri toilar era á unnum fískafurð- um og hefur það hindrað útflutning þeirra. Alls voru árið 1984 greiddar 57 millj. kr. í tolla af íslenskum sjávarafurðum sem til Bandaríkj- anna vora fluttar en verðmæti þeirra var 5657 millj. kr. Má ætla að á þessu ári verði tollamir a.m.k. 70-80 millj. kr. Hér er þó á það að líta að í Bandaríkjunum er nú vaxandi þrýstingur á að lagður verði inn- flutningstollur á frystan físk frá austurströnd Kanada. Þegar hefur verið lagður tollur á ferskan físk sem kemur frá Kanada og er hann 6,85%. Munu bandarísk stjómvöld taka ákvörðun um það síðast í marsmánuði hvort tollur verður einnig lagður á frystan físk frá Kanada. Augljós hætta er á því að kröfur komi fram um að slíkir tollar verði lagðir á sjávarafurðir í Banda- ríkjunum frá fleiri samkeppnisaðil- um en Kanada og gæti það haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir ís- lenskan sjávarútveg. Fríverslunar- samningur íslands og Bandaríkj- anna mundi hins vegar bæta stöðu okkar í þessum efnum. Landbúnaðarafurðir vora fluttar út til Bandaríkjanna árið 1984 fyrir 41 millj. kr. á þáverandi gengi. Af þessum útflutningi vora greiddar 3 milj. kr. í tolla eða 7%. Hæstur er innflutningstollurinn á ostum eða 9,1% af verðmæti, en lægri á öðram vörutegundum. Það er ljóst að ef draumar manna í landbúnaði eiga að rætast um stóraukinn útflutning íslenskra landbúnaðarafurða til Bandaríkjanna yrði fríverslunar- samningur mikilvægur í því efni. Nýir markaðir fyrir iðnaðinn Hæstu tollamir era greiddir af íslenskum iðnaðarvöram sem flutt- ar era út til Bandaríkjanna. Er þar um að ræða næststærsta útflutn- ingsflokkinn, en hann nam 525 millj. kr. árið 1984. Jafnframt er þetta sú framleiðsla sem mestar vonir era bundnar við að unnt verði að auka útflutning á til Bandaríkj- anna í framtíðinni. Af iðnaðarvör- um vora árið 1984 greiddar 68 millj. kr. í tolla við innflutning til Bandaríkjannaeða 11,4%. Þar sem tollar af iðnaðarvöram era mun hærri en af öðram vörateg- undum sem við flytjum út til Banda- ríkjanna er full ástæða til þess að leggja sérstaka áherslu á lækkun tolla á þessum vöram ef upp verða teknar viðræður um fríverslunar- samning milli landanna. Að mati Verslunarráðs íslands og samtaka iðnrekenda draga þessir háu tollar til muna úr samkeppnismöguleikum íslenskrar iðnaðarvöra á Banda- ríkjamarkaði en einmitt þar er að vænta aukinnar fjölbreytni í út- flutningi í framtíðinni. Má í þessu sambandi nefna að um þessar mundir á íslenski ullariðnaðurinn í veralegum erfiðleikum en Banda- ríkin hafa verið besti markaðurinn í þeim efnum. Tollalækkanir á ullar- vöram mundu verða mikil hagsbót fyrir þá iðngrein sem tvímælalaust á enn mikla möguleika fyrir sér. Stofnfundur Félags aldraðra undirbúinn: Tuttugu þúsund íbúar á höfuð- borgarsvæðinu sextíu ára og eldri LAUGARDAGINN 15. mars verður haldinn stofnfundur Félags eldri borgara í Reykja- vík og nágrenni. Undirbúning- ur að stofnun félagsins hefur verið unninn af fólki tilnefndu af aðildarfélögum Alþýðusam- bands íslands í Reykjavík og Hafnarfirði, frá Starfsmanna- félagi Reykjavíurborgar auk fólks úr sérstökum áhuga- mannahópi um þessi mál. Fé- laginu er ætlað að gseta hags- muna eldri borgaranna i hvi- vetna. Á fundi með undirbúnings- nefndinni kom m.a. fram að lagt er til að inngönguskilyrði í félagið verði bundið við aldur, félagar verða að vera 60 ára eða 60 ára á árínu, makar félagsmannna hafí þó rétt á inngöngu í félagið þó þeir séu yngri. Styrktarfélagar geta allir orðið, einstaklingar, fé- lög og fyrirtæki. Talið er að um 20.000 manns séu 60 ára og eldri í Reykjavík og nágrenni, lífaldur manna lengist í sífellu og sögðu Morgunblaðið/Emilla Undirbúningsnefnd að stofnun Félags aldraðra, frá vinstri Hrafn Magnússon, Guðríður Elíásdóttir, Snorri Jónsson, Haraldur Hannesson, Bergsveinn Sigurðsson, og Jón Hjálmarsson. félagar í undirbúningsnefndinni nauðsynlegt að búa fólk undir efri árin með nokkram fyrirvara og því æskilegt að það gerist fé- lagar áður en það hættir vinnu sökum aldurs. Meðal hlutverka félagsins er að vinna að efnahags- legu öryggi aldraðra, vinna að úrbótum í húsnæðismálum þeirra, koma á vinnumiðlun aldraðra, skipuleggja tómstundastarf, stuðla að líkamsþjálfun og útivist eldra fólks, leitast við að hafa áhrif á lagasetningu og ákvarðan- ir sem varða hagsmuni þessa hóps. Þá sögðu félagar f undir- búningsnefndinni það verðugt verkefni að vinna að úrbótum í lífeyrismálum og koma á upplýs- ingastarfsemi um ýmiss réttindi og skyldur sem eldra fólk vissi oft á tíðum lítið um. Lögð var áhersla á þær breytingar sem orðið hafa á undanfömum áram, nú vinna um 80% kvenna utan heimilis og því í fáum tilfellum hægt að hýsa fullorðna foreldra eða ættmenni á heimilum. Félag- inu er einnig ætlað að draga úr einmanaleika sem efri ár hafa oft í för með sér, og sögðu félagar í undirbúningsnefndinni að þeir vonuðu að fjölmennur hópur kæmi á stofnfundinn sem haldinn verður í Súlnasal Hótel Sögu kl. 13.30 nk. laugardag, því með sameigin- legu átaki væri auðveldara að gæta hagsmuna eldri borgaranna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.