Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 21

Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 21
" MORGUNBLAÐH), FIMMTUDAGUR13. MARZ 1986 21 Samvinna við erlend fyrirtæki Þá skal á annað atriði minnst sem hér getur skipt miklu máli. Ef frí- verslunarsamningur yrði gerður við Bandríkin gætu skapast möguleikar á því að erlend fyrirtæki verði reiðu- búin til þess að setja upp fyrirtæki hér á landi í samvinnu við íslenska aðila. Slík fyrirtæki mundu fram- leiða vöru sem ætti þá greiðan aðgang að markaði bæði í Evrópu (vegna EFTA- og EBE-samninga okkar) og í Bandaríkjunum. Hér er um mjög áhugaverða iðnaðarkosti að ræða en slík fyrirtækjasamvinna (Joint ventures") mundi bæði skapa aukna atvinnu hér á landi og stuðla að innflutningi á flár- magni ogtækniþekkingu. Loks skal þess getið að fríversl- unarsamningur við Bandaríkin mundi mjög treysta og efla við- skiptatengsl og efnahagssamvinnu landanna tveggja. Um langan aldur hafa íslendingar átt náið og gott samstarf við Bandaríkin í stjóm- málum og vamarmálum. Slíkt skref, sem hér er um að ræða, mundi enn treysta sambandið við þessa forastuþjóð þar sem mikil- vægustu markaðir okkar era. Væri það-tvímælalaust íslensku þjóðinni í hag og í samræmi við þau sjónar- mið sem efst era á baugi í sam- starfi vestrænna vinaþjóða. Fríverslunarsamningar Bandaríkjanna og annarraþjóða Árið 1983 vora gerðir einhliða fríverslunarsamningar af hálfu Bandaríkjanna við nokkur eyríki í Karíbahafinu og ríki í Mið-Ameríku. Er markmiðið með þessum samn- ingum að örva útflutning til Banda- ríkjanna frá þessum löndum og bæta með því efnahag þeirra, Qölga atvinnutækifæram og bæta greiðslujöfnuð. Er hér um að ræða einhliða samning við þessi lönd til 12 ára. Þá hafa Bandaríkin gert fríversl- unarsamning við ísrael sem undir- ritaður var 22. apríl 1985. Hann kveður á um lækkun og síðar niður- fellingu tolla á mörgum vöraflokk- um sem ísraelsmenn flytja út til Bandaríkjanna. Kanadamenn hafa að undan- fömu sýnt mikinn áhuga á því að fríverslunarsamningur verði gerður milli þeirra og Bandaríkjamanna. Hefur Mulroney, forsætisráðherra Kanada, beitt sér mjög fyrir form- legum viðræðum við Bandaríkja- stjóm um málið. Samkvæmt upp- lýsingum frá sendiráði íslands í Washington er búist við því að gengið verði til formlegra viðræðna af hálfu Bandaríkjamanna við Kanadamenn í apríl á þessu ári að fengnu samþykki Bandaríkjaþings um slíkar viðræður. Könnunarvið- ræður um fríverslunarsamning hóf- ust í febrúarmánuði sl. Við aðrar þjóðir hafa Bandaríkin ekki enn gert fríverslunarsamninga en full ástæða er til þess að íslend- ingar kanni slíka samningagerð, eins og fram var tekið i upphafi þessarar greinar, vegna þeirra augljósu viðskiptahagsmuna íslend • inga sem þar era í húfi. Höfundur er einn afþingmönnum Sjálfstæðisflokks fyrir Reykjsnes- kjördæmi. í dag opnum við á nýjum stað að Skipholti 50c, gegnt Tónabíói. Við munum áfram keppast við að veita sem besta þjónustu og bjóðum eldri viðskipta- vini sérstaklega velkomna á nýja staðinn. Snyrtifr- æðingurinn María Kristmanns hefur nú gengið til liðs við okkur og mun því stofan hér eftir heita Hárgreiðslu- og snyrtistofan Safír. Veríð velkomin Hárgreiðslu- og snyitistofan VIÐ FLYTJUM OKKCIR UM SET OG FACJM MVTT SÍMAMÚMER: 68-85-80 Rolex Oyster Quartz er verðmœíasta Rolex úr sem fœst á íslandi. Pað er handunnið úr 18 karata gulli og skurðlceknastáli. Urið kostar 101.885 krónur út úr búð. | Síríus Gullið | er verðmesta rjómasúkkulaði sem steypt er | hjá Nóa Síríus. ö Uppskriftin er gamalreynd, hráefnin fyrsta flokks og Gullið fœst bœði sem hreint rjómasúkkulaði og með hnetum, rúsínum, rice crispies eða hnetum og rúsínum. Gullið kostar innan við 60 krónur út úr búð. Veldu íslenskt... JMOÐ^MDHdílS ef það er betra!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.