Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 22

Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 22
22_____________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13.MARZ 1986_ Hvað er fj amám? eftir Ásgeir Friðgeirsson Frá í haust hafa verið talsverðar umræður í blöðum hér á landi um flamám og fjarkennslu. Hafa þar kvatt sér hljóðs jafnt áhugamenn sem fagmenn. Umræðan hefur fyrst og fremst snúist um ágæti og hagkvæmni náms með þessum hætti og þá þörf sem skapast hefur fyrir þetta námsform. (Sbr. R. Fleckenstein: Morgunblaðið 20.12.’85.) Kvennaframboðskonur gáfu frá sér í haust yfirlýsingu um nauðsyn þess að hagnýta með skipulögðum hætti sjónvarp og hljóðvarp til uppfræðslu og fyrrum ráðherra mennta- og fjármála, Ragnar Am- alds, lagði í haust fram frumvarp á Alþingi um opinn háskóla að breskri fyrirmynd. í umræðunni um frumvarp þetta kom fram stuðning- ur þingmanna úr öllum flokkum og er það augljóst merki þess að hér sé á ferðinni hið mesta framfara- mál. í þessari grein hyggst ég reyna að svara spumingunum „Hvað er Qamám og hvemig fer það fram?“ I upphafí greini ég frá þeim náms- og samskiptaleiðum sem eru fjar- skólanum sæmilega færar en síðan lýsi ég í stuttu máli hvemig Opni háskólinn skipuleggur og hagnýtir þessar leiðir. Ég fjalla síðan sér- staklega um sjónvarps- og hljóð- varpskennslu og líklega eru þessir miðlar einna efst í huga þeirra er hugleiða fjarnám. Umfjöllunin er fýrst og fremst kennslufræðileg en einnig má greina þekkingar- og táknfræðilega þræði. Að lokum segi ég fáein orð um aðrar leiðir en greiðfærur sjónvarps og hljóðvarps. Hvað er fjarskóli? í Qarskóla fer fram fjamám og íjarkennsla. í grundvallaratriðum er Qamám ekkert svo frábrugðið venjulegu eða hefðbundnu námi. Fjamám byggist að miklu leiti á lestri nemandans og glímu hans við verkefni af ýmsu tagi. Það sem gerir ijarnámið frábrugðið er af- staða nemandans gagnvart kenn- ara og öðrum nemendum og form samskiptanna sem fram fara milli þessara aðila. Nemandinn þarf ekki að sækja tíma eða setjast á skólabekk í eigin- legri merkingu þessara hugtaka. í fjarnámi á nemandinn að geta að mestu leiti stundað námið heima fyrir og er því upplýsingum miðlað milli nemanda og skóla með marg- víslegum hætti. Leiðir samskipt- anna eru sumar hverjar hefðbundn- ar en aðrar eru nýjar af nálinni. Þær helstu eru: — útsendingar í hljóðvarpi og sjónvarpi — heimsend- ingar mynd- og hljóðbanda — út- sendingar sjónvarps á rituðum og/eða grafískum upplýsingum — heimsendingar á efni fyrir gagnvirk myndbönd — birting greina eða tilkynninga í blöðum eða tímaritum — póstsendingar bréfa, bæklinga og bóka — símasamband — viðtöl eða fundir með leiðsagnakennurum og námsráðgjöfum — nemenda- fundir — stutt námskeið. Eins og sjá má eru sumar þessara samskiptaleiða einstefnur og aðrar tvístefnur og nýtast þær því sem slíkar. Opni háskólinn í Bretlandi er frá- brugðinn öðrum háskólum þar í landi um tvennt. í fyrsta lagi hefur hann engin inntökuskilyrði en þrátt fyrir það eru próf frá honum jafn- gild öðrum breskum háskólapróf- um. í öðru lagi er Opni háskólinn fjarskóli og sem slíkur er hann trú- lega sá þróaðasti í heiminum í dag, en nú býr skólinn yfír 18 ára reynslu á sviði fjamáms. Til að koma í veg fyrir misskiln- ing þá er rétt að geta þess að fjar- nám á ekki einungis við háskóla- nám. Allskonar nám getur farið fram með þessum hætti — endur- menntun hverskonar, iðn-, fram- halds- og grunnskólanám og nám- skeið margskonar. Nám í Opna háskólanum byggir á §órum meginþáttum. í fyrsta lagi eru tilteknar greinar eða bækur lesnar. í öðru lagi er horft eða hlustað á út- eða heimsent efni. í þriðja lagi er sambandi haldið við kennara m.a. með símtölum, bréfa- skiptum og fundum. I íjórða lagi fer fram námsmat og verkefni eru unnin, ýmist skriflega (ritgerðir, próf og sjálfsmat sem er unnið heima og póstsent) eða verklega (t.d. tilraunir og tölvuþjálfun sem fram fer ýmist heima eða á nær- liggjandi stöðum þar sem Opni há- skólinn á inni). Það er mat manna hjá Opna háskólanum að fjölbreytni náms- leiða og jafnræði meginþáttanna ijögurra sé nauðsynlegt ijarkennsl- unni. Áður en við lítum nánar á þá staðhæfíngu er rétt að fjalla um hinar einstöku leiðir í fjamámi. Útsendingar í hljóð- varpi og sjónvarpi Strax í upphafí er rétt að gera greinarmun á formlegri og óform- legri menntun. Að þessu sinni get- um við sagt að munurinn sé svipað- ur og á kennslu og fræðslu. Ríkisút- varpið, bæði hljóðvarp og sjónvarp, hefur alla tíð lagt mikla áherslu á fræðslu í dagskrárgerð sinni og oft hefur það lagt metnað sinn í að vera menntandi. Gott dæmi þess er Málstefna Ríkisútvarpsins frá í haust en þar segir m.a. að allt málfar í rfkisútvarpinu eigi að vera til fyrirmyndar. Einnig má nefna einstaka þætti eins og t.d. þætti um ferðamál, umferðarmál eða Ásgeir Friðgeirsson „I grundvallaratriðum er fjarnám ekkert frá- brugðið venjulegu eða hefðbundnu námi. Fjar- nám byggist að miklu leiti á lestri nemandans og glímu hans við verk- efni af ýmsu tagi.“ daglegt mál. Þetta framlag ber að hafa í huga og virða en þegar er talað um íjamám í hljóðvarpi og sjónvarpi er einnig átt við formlegt nám eða beina kennslu, en þar er hljóðvarps- og sjónvarpskennsla skilgreindur hluti af skipulögðu námi, sem að líkindum er þroskandi, fræðandi og göfgandi eins og margir fræðsluþættimir em en leið- ir einnig til prófa og réttinda. Það er mikilvægt að greina í sundur formlegt og óformlegt nám, en það er ekki síður mikilvægt að greina á hvem hátt hvort formið þjóni öðru þ.e. að t.d. kennsluþáttur í hljóðvarpi sé þannig úr garði gerður að hann svali öðrum en þeim sem eru í skipulögðu námi og þá sömuleiðis að fræðsluþættir geti þjónað nemendunum. Kennsluefnið er bæði hægt að senda út á sérstökum kennslurásum eða á rásum þeirra stöðva sem fyrir em. Það gefur auga leið að nám af þessu tagi krefur nemendur einungis um aðgang að sjón- eða hljóðvörpum og að þeir hafí tíma aflögu á meðan á útsendingum stendur. Kennsla af þessu tagi hentar vel í stijálbýlu landi eins og íslandi þar sem dreifíkerfíð er til staðar. Heimsendingar mynd- og hljóðbanda í stað útsendinga er hægt að heimsenda kennsluefnið á hljóð- eða myndböndum til einstaka nemanda eða nemendahópa. Þessi kostur hefur það helst framyfir útsending- ar að nemandinn sjálfur ræður námshraðanum. Hann getur stöðv- að bandið, endurtekið, farið hægt og hratt, aftur á bak og áfram, allt eftir sínum eigin þörfum. Vegna þess hefur það orðið raunin t.d. í Bretlandi, að heimsent efni er fram- leitt öðmvísi. Efnið er samanþjapp- aðra, spumingum er oftar varpað fram, kaflaskil em tíðari en á kafla- skilum er ætlast til að bandið sé stöðvað og námsefnið riQað upp. Raunar er engin ástæða til að ein- skorða heimsent efni við sérstaka eða sérsniðna þætti. Það er heil- margt í dagskrám hljóðvarps og sjónvarps sem reynst getur mjög gagnlegt fyrir nemendur að líta eða hlusta á og því væri æskilegt að íjarskóiinn gæti boðið upp á slíkt efni til heimsendinga. Heimsendingar hljóðbanda hafa mjög mikið mtt sér til rúms í Ijar- skólum Evrópu og N-Ameríku og einmitt vegna þess hversu vel það hentar nemendum auk þess sem það er ódýrari kosturinn ef nemend- ur í hveijum einstaka námsáfanga em fáir. í Opna háskólanum í Bretlandi em útsendingar hljóð- varps nú sáralitlar því í flestu tilliti koma heimsendingamar miklu bet- ur út. Menn þar áætla að í byijun næsta áratugar muni útsendingar kennsluþátta í sjónvarpi vera marg- falt færri en nú gerist en að heim- sendingar myndbanda muni stór- aukast jafnhliða aukinni mynd- bandstækjaeign heimilanna. Hvenær hentar sjónvarp og hvenær hljóðvarp? Ástæða er til að fjalla um sér- kenni þessara miðla, hljóðvarps og sjónvarps, og þá sérstaklega í ljósi þess hvers konar nám og hvemig námsmarkmiðum er best að vinna að í hljóðvarpi annars vegar og sjón- varpi hins vegar. Sjónvarp hentar vel við kennslu og þjálfun handbragða og líkam- legra hreyfínga eða þegar markmið námsins em fæmi og leikni á ein- hveiju sjáanlegu sviði. Einnig fer vel á að sjónvarpa kennslu þegar áhersla er á tengslum eða hreyfíng- um hluta í rúmi og er mér þá efst í huga viðfangsefni eins og hegðun manna og dýra, eðlis- og efnafræði- lögmál og hlutverk einstakra þátta í flóknu samspili, eins og t.d. sagan fæst oft við, sjónvarpsþættir um söguleg efni em mjög áhrifaríkir miðað við aðrar leiðir í sögukennslu, en yfírleitt sæta slíkir þættir mikilli gagnrýni og þá oftast vegna vals á heimildum og efnistaka. Fyrir því er yfírleitt sú ástæða að i sjónvarpi em strangari takmarkanir á tíma og lengd en í nokkmm öðmm miðli. Athuganir á hvemig börn og unglingar skynja, læra og leggja á minnið sjónvarpaðri atburðarás og atburðarás miðlaðri með öðmm hætti, gefur til kynna að hugur þeirra skynjar og nemur af sjón- varpi með svipuðum hætti og ef þau sjálf hefðu verið raunvemlegir áhorfendur að raunvemlegum at- burði. Þessar niðurstöður segja mér að sjónvarpið geti aukið endurkast raunvemleikans á skólann, en það er sönn gagnrýni á alla skóla að tengsl þeirra við lífíð sjálft, atvinnu- lífíð, samfélagið, heimilið eða hvaða afbrigði raunvemleikans sem við kjósum að nefna, em veik. M.a. vegna mikillar og meðvitaðrar notk- unar á sjónvarpi í fjarskólanum, ættu tengsl hans við raunvemleik- ann að geta verið nokkuð traust. Áðumefnd athugun leiddi einnig í ljós að frásagnir, lesnar eða heyrð- ar em ekki skynjaðar eða lagðar á minnið sem hluti af persónulegri reynslu. Hins vegar er túlkun á efni þannig miðluðu, mun persónu- legri eða eins og unnendur þjóð- sagna vita best, að fátt hreyfir hraustlegar við ímyndunarafli hvers og eins en góð frásögn. Þá er ég kominn að því sem mætti nefna styrkur hljóðvarps sem kennslumiðils. I öllum skólum er lögð áhersla á mælt mál og má að sjálfsögðu beita ýmsum aðferðum við nám af því tagi. Það er hins vegar mín vissa að upplestur í hljóðvarpi eða hljóð- bönd er fáfarin en góð og ódýr leið að námsmarkmiðum tengdum máli, málnotkun og bókmenntum. Upp- lestur gefur orðum huglægari blæ og merkingu en önnur miðlun. Hversu oft skynjar maður t.d. ekki ljóð á nýjan hátt við áheym. í samanburði við sjónvarp er hljóð- varp markvissari miðill á ákveðnum sviðum máls og málnotkunar, því skjár sjónvarpsins er hlaðinn tákn- um sem skerpa tiltekna merkingu en dreifa um leið athyglinni og útmá hina fjölbreytilegu merkingaflóru hinna einstöku orða. Með öðram orðum þá er við upplestur hinni persónulegu túlkun gert hátt undir höfði og ef að í námi er áhersla á slíku, þá er hljóðvarp eða hljóðband ákjósanlegur miðill. Eins og ég hef minnst á að fram- an þá hefur Ríkisútvarpið — hljóð- varp langa og góða reynslu af gerð þátta um vort ástkæra mál og era þessir þættir afþragðs dæmi um hversu sá miðill hentar vel til kennslu og fræðslu á þessu sviði. Sambærilegir þættir vora í vetur í sjónvarpinu og era þeir þættir vís- 4 Reykjavík: Gjöf til líknar- starfs í Reykjavík- urprófastsdæmi Á SAFNRÁÐSFUNDI í Reylqa- vikurprófastsdæmi, sem haldinn var 16. febrúar sl., var lesið upp bréf sem Gísli Sigurbjörnsson forstjóri skrifaði f.h. stjórnar Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar í Reylqavík. í bréfi þessu er prófastsdæminu fært fyrirheiti um framlag í Starfs- sjóð safnaðarhjálparinnar í Reykjavíkurprófastsdæmi og það skilyrði eitt sett, að þeir söfnuðir sem æskja framlags, helgi einn dag safnaðarhjálpinni heima fyrir og hafi uppi fjáröfl- un til hennar. Safnaðarráðið Frá vinstri; herra Pétur Sigurgeirsson biskup, sr. Ólafur Skúlason dómprófastur og Gísli Sigurbjöms- son, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grandar, sem afhenti tveggja milljóna króna gjöf til sjóðs fyrir safnaðarhjálp í Reylqavíkurprófastsdæmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.