Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 28

Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 Rændí flugvél og flúði vestur Vestur-Beriín, 12. mars. AP. PÓLSKUR flugmaður lenti á þriðjudag i leyfisleysi á Tempel- hof-flugvelli i Vestur-Berlín. Kvaðst hann hafa flúið vestur yfir þar sem pólsk yfirvöld hefðu neitað sér um vegabréf, að þvi er lögreglan segir. Flugmaðurinn flaug YAK 12A- vél, sem er eins hreyfíls og fram- leidd í Sovétríkjunum. {tilkynningu frá lögreglunni sagði að maðurinn væri 32 ára gamall atvinnuflug- maður. Hann hefði falið sig nærri litlum flugvelli í Slésíu í suðvestur- hluta Póllands og beðið þar til flug- vél lenti. Þegar hann sá að enginn stóð nærri vélinni sætti hann lagi og tók hana traustataki. Ekki er vitað hvort maðurinn ætlar að sækja um pólitískt hæli. ( - Italía: Hefur eignast börn til að losna við að afplána refsidóm Á von á fjórtánda barni sínu Róm, 11. mars. AP. SIGAUNAKONA, sem dæmd var fyrir rán i bænum Precara við Adríahaf fyrir 10 árum, hefur notað einstaka aðferð til að losna við að dveljast innan fangelsis- múranna. Hún hefur verið bams- hafandi. Elisa Spinelli, en svo heitir kon- an, á 13 bömum sínum, auk þess sem er á leiðinni, það að þakka, að úttekt fangelsisdómsins hefur sífelldlega verið frestað, að því er fram kom í ítalska sjónvarpinu um síðustu helgi. Það er bannað samkæmt ítölsk- um lögum að setja vanfæra konu í fangelsi, og nú fyrir helgina varð dómarinn í Precara enn einu sinni að fresta afþlánuninni, þegar full- víst varð, að frú Spinelli fór ekki einsömul, heldur vænti 14. bams síns, að sögn dagblaðsins II Messag- ero í Róm. Þröngá þingi Hver blettur á flugvélastæðum bandaríska flugmóðurskipsins Saratoga er nýttur vel. Mörgum f lugvélum þarf að koma þar fyrir og ein lausnin er að hafa hjörulið á vængjum flugvélanna, svo leggja megi þá saman. Myndin var tekin á dögunum í æfingaferð Saratoga, sem siglir nú á Miðjarðarhafi. Frú Spinelli, sem er 42 ára að aldri, sagði í viðtali við sjónvarpið, að hún hefði hlotið dóminn fyrir rimmu, sem hún hefði lent í, er hún stai mat ofan í bömin sín. „Við áttum enga peninga, og það var ekki til matarbiti í kotinu," sagði hún í viðtalinu, umkringd bömunum 13, bamabami og eiginmanni í íbúðarholu flölskyldunnar. „Bömin vom sársvöng, svo að ég stal hænu.“ En eigandi hænunnar stóð frúna að verki, og það kom til handalög- máls. Yfirvöld ákærðu hana fyrir ofbeldisrán. Frá því að hún var ákærð og síð- an dæmd skömmu síðar, hefur hún eignast bam svo tii á hverju ári, og er bamahópurinn nú á aldrinum frá 2ja til 21 árs, sagði II Messag- ero. Sovésk aðstoð við Nicarasfua Washinirton. 12. mars. AP. Washington, 12. mars. AP. STARFSMENN bandarísku leyniþjónustunnar CIA segja að Sovétmenn ætli að veita Nic- araguabúum 260 milljónir doll- ara í efnahagsaðstoð á þessu árí. Ekki er hægt að fá þessa upphæð staðfesta, en hún er hærrí en Bandaríkjamenn láta renna til nokkurs bandamanns í þessum heimshluta. Ronaid Reagan hefur lagt til við þingið að samþykkja að veita 100 milljónum dollara í aðstoð til skæm- liðanna, sem beijast gegn stjóm Nicaragua og þekktir em undir nafninu „Contrar". Auk Sovétmanna greiða Austur- Þjóðveijar 35 milljónir dollara og Kúbumenn 20 milljónir dollara í aðstoð til Sandinistastjómarinnar í Nicaragua, að því er haft er eftir ónafngreindum starfsmönnum CIA. Fjárframlög Sovétmanna til Nic- aragua eru þó aðeins smáræði miðað við það fé, sem rennur til Kúbumanna. Talið er að Kúbumenn hafí fengið íjóra milljarða dollara á hveiju ári um nokkurt skeið. Eiturlyf José Alvaro Baldizon Aviles, fyrrum rannsóknarlögreglumaður í innanríkisráðuneyti Nicaragua, sagði fyrir þingnefnd á þriðjudag að Sandinistastjómin hefði um langt skeið átt þátt í að smygla suður-amerísku kókaíni til Banda- ríkjanna. Hann sagði að Tomas Borge, innanríkisráðherra, stjóm- aði smyglinu ásamt yfirmanni lög- reglunnar í Nicaragua. Vegna fj ölda áskorana Frá kl. 8—10 öll smábrauð með Frá kl. 17—18 öll brauð með 50% afslætti 50% afslætti NÝSMURÐAR SAMLOKUR, RÚNSTYKKI, LANGLOKUR OG HEITAR SAMLOKUR. Bakaríið Kringlan Dalshrauni 13, sími 53744.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.