Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Komið og sjáið hvernig hægt er að tengja
það við skrifborð og skapa góða vinnuað-
stöðu.
Tölvuborð
framtíðarinnar
GÍSLI J. JOHNSEN
n i
NÝBÝLAVEG116. PO. BOX397.202 KÓPAVOGUR. SÍMI641222.
Við opnun sýningarinnar í gær sýndu slökkviliðsmenn notkun slökkvitækja.
Byggingaþj ónustan:
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bróf askólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaðri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-brófaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-brófaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan íflugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku.
□ Töhruforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almenntnóm
□ Bifvólavirkjun
□ Nytjalist
O Stjórnun
tyrirtækja
□ Garóyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaða
□ Blaöamennska
□ Kælitœkni og
loftræsting
Nafn:.......................................................
Heimilisfang:........ ................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street,Sutton,SurreySM11PR, England.
Atak gert í þjófa- og
brunavamarmálum
ALLMARGIR aðUar hafa ákveð-
ið að gera átak í bruna- og þjófa-
varnarmálum.
Brunamálastofnun ríkisins,
Brunavarðafélag Reykjavíkur, Eld-
vamaeftirlit Reykjavíkur, Lands-
samband slökkviliðsmanna, Lög-
reglustjórinn í Reykjavík, Siglinga-
málastofnun ríkisins og Slökkvistöð
Reykjavíkur hafa tekið höndum
saman ásamt Byggingaþjónustunni
að gera átak í þessum málum munu
frá og með 13. mars hafa fulltrúa
sína í Byggingaþjónustunni, til þess
að veita almenningi hlutlausar
upplýsingar og ráðgjöf.
Samtímis verður sérsýning í
húsakynnum Byggingaþjónustunn-
ar við Hallveigarstíg á margvísleg-
um tækjum og búnaði til bmna-
og þjófavama. Þar munu rúmlega
20 helstu fyrirtæki landsins á þessu
sviði sýna vörur sínar og veita
upplýsingar um þær.
Byggingaþjónustan er opin alla
virka daga kl. 10—18 og verður
jafnframt opin um helgar kl. 14—18
á meðan sýningin stendur, en henni
lýkur í vikunni eftir páska. Bygg-
ingaþjónustan verður þó lokuð
bænadagana og páskahelgina.
Vigri seldi í Bremerhaven
VIGRI RE seldi á þriðjjudag 176,4 lenzkra fiskiskipa erlendis em ekki
Iestir, mest karfa, í Bremerhaven. fyrirhugaðar í þessari viku, en 5
Heildarverð var 8.223.200 krónur, skip munu landa afla sínum í
meðalverð 46,62. Fleiri landanir ís- Þýzkaiandi í næstu viku.
:shannon:
:datastor:
Allt á sínum stað
meö :shannon:
:datastor:
: dátastob :
skjalaskáp
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
vlökomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
StiflHHOH skjalaskápur hefur „allt á sinum staö".
Útsokjstaöir:
REYKJAVlK Penninn Hallannula KEFLAVlK Bókatxjó Kellavlkur AKRANES. Bókaversl Andrés
Nielsson HF ISAFJÖROUR. Bókaverslun Jónasar Tómassonar AKUREYRI. Bókaval. boka- og
rltfangaverslun HÚSAVlK. Bókaverslun Póranns Slelánssonar ESKIFJÖRÐUR Elis Guðnason.
verslun. VESTMANNAEYJAR. Bókabúóin. EGILSSTAÐIR. Bókabúðin Hlöóum
ölAfUR OlSlASOM % CO. Mf.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
Heima er best
að góð heimaþjónusta er ódýrari
en stofnanaþjónusta og dregur stór-
lega úr vistun fólks á stofnun. Aðrar
þjóðir telja sig ekki hafa efni á að
bregða út af þessari reglu.
Nú greiða sveitarfélögin heima-
þjónustu en ríkið stofnanavistun.
Sveitarfélögin geta valið dýrari
kostinn og sent fólk á stofnanir
ef t.d. „illa árar“. Röng forgangs-
röðun mótast því eins og oft áður
af vanhugsaðri lagasetningu.
III. Aróður fyrir stofnanavist-
un.
Á sama tíma og við „hrekjum"
eldra fólk út af vinnumarkaðinum
er rekinn stanslaus áróður fyrir
stofnanavistun þeirra. Menn eiga
„að tryggja sér pláss" og margir
trúa því að þessi stefna sé rétt.
IV. Langur vinnutími aðstand-
enda.
Staðreynd er að menn vinna hér
mun lengri starfsdag en almennt
er í nágrannalöndunum. Hlutfall
útivinnandi húsmæðra er nú um
80% (Hóprannsókn Hjartavemdar).
Afleiðingin er að samskiptum fólks
fækkar.
V. Auðvelt að reisa stofnanir
þó að lög kveði á um annað!
Hver og einn virðist geta hafið
byggingu dvalarheimilis fyrir aldr-
aða án þess að stjómvöld sem eiga
að láta sér annt um andlega heilsu
þegnanna og greiða reikninginn
kanni nægilega hvort þörf sé fyrir
bygginguna. Þegar stofnun er ftill-
búin er óskað eftir rekstrarleyfi.
Oft er þá fyrst leitað til heilbrigðis-
yfírvalda. Yfirleitt em þessar stofn-
anir vel búnar og þess vegna stend-
ur ekki á rekstrarleyfí og daggjöld-
in kom síðan með póstinum.
Við höfum ekki efni á
„sjálfvirkri aukningu“
á stofnanavistrými.
Afleiðingar stofnanavistunar.
Enginn má skilja orð mín sem
gagnrýni á starfsfólkið sem starfar
á stofnunum því að hjúkrun og
umhyggja þeirra er mikil. Ósérhlífni
þeirra og hlýja í garð vistmanna
er oft með eindæmum af óskyldu
fólki að vera.
En að öllu jöfnu hefur stofnana-
vistun ekki góð áhrif á fólk. Maður-
inn þarfnast annars og meira en
húsaskjóls og næringar. Hann
þarfnast einnig verðugs viðfangs-
efnis og samskipta við ættingja og
vini. Á stofnun eru viðfangsefnin
oft einhæf og fátt finnst þar er
verður fólki til hvatningar. Sjálfs-
bjargarviðleitni dvínar og deyfðin
ræður oft ríkjum. Biðin eftir ætt-
ingjum og vinum verður oft löng.
Þörf fyrir svefnlyf og róandi lyf
eykst til muna. Aðgerðarleysið
veldur því að fólk eldist fyrr og
heilsufari hrakar.
Vistun sæmilega rólfærs fólks,
eldra sem yngra, á dvalar- eða
meðferðarheimilum er ekki leng-
ur tillilýðileg frá læknisfræði-
legu sjónarmiði. Undantekningar
eru til frá þessari reglu en þær má
rekja til félagslegra vandamála. En
undantekningin hefur orðið að
reglu. Má vera að hér sé fundin
orsök þess að meðalævi hefur lítið
lengst á síðustu árum.
Lokaorö
Hér hafa verið raktar nokkrar
orsakir stofnanaþróunar á íslandi.
Nokkuð mótsagnakennt er að þrátt
fyrir mikinn stofnanakost skortir
pláss fyrir það fólk sem helst hefur
þörf fyrir vistun, þ.e. hjúkruna-
rsjúklinga. Flest bendir til þess að
orsakir séu m.a. þessan
1) Menn veigri sér við að reka slíkar
deildir vegna kostnaðar.
2) Hjúkrunarfræðingar hafi ekki
lengur ráð á að starfa við hjúkrun.
Efla ber heimaþjónustu á
kostnað dvalarheimilaþjónustu.
Nauðsynlegt er að breyta um
stefnu. Heimilin eru burðarás sam-
félagsins, m.a. þess vegna verða
stjómmálamenn og aðilar vinnu-
markaðarins að gera öldruðu fólki
efnahagslega kleift að halda heimili
sem lengt og þegar halla tekur
undan fæti að efla stuðning við
heimaþjónustu á kostnað stofnana-
þjónustu.
Höfundur er landlæknir.