Morgunblaðið - 13.03.1986, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Alþingi í gær:
Atta varaþingrnenn
Tveir varaþingmenn tóku sæti
á Alþingi í gær, Jóhanna Leó-
poldsdóttir (Abl.-Vl.) í stað Skúla
Alexanderssonar og Siggeir
Björnsson (S.-Sl.) f stað Þorsteins
Pálssonar. Átta varaþingmenn
sátu á Alþingi í gær.
Auk þeirra tveggja sem að fram-
an greinir vóru eftirtaldir varaþing-
menn á Alþingi í gæn Guðmundur
H. Garðarsson (S.-Rvk.) í Qarveru
Ragnhildar Helgadóttur, Guðrún
Tryggvadóttir (F.-Al.) í fjarveru
Halldórs Ásgrímssonar, Sverrir
Sveinsson (F.-Nv.) í flarveru Páls
Péturssonar, Jón Sveinsson (F.-Vl.)
fyrir Alexander Stefánsson,
Tryggvi Gunnarsson (S.-Al.) fyrir
Albert Guðmundsson:
Lausnin
ertil
Albert Guðmundsson, iðn-
aðarráðherra, tók þátt í
umræðu um lánamál hús-
byggjenda í fyrirspurnatíma
Sameinaðs þings í gær. Hann
komst svo að orði:
„Þetta er kannski með
stærstu vandamálum þjóðarinn-
ar. Ég vil segja í fáum orðum
að þetta misgengi á verðlagn-
ingu peninga milli verðtrygging-
ar og verðgildis orkunnar sem
býr í lántakandanum sjálfum
verður ekki leiðrétt nema orkan,
sem ég minntist á, í lántakand-
anum, verði virt til jafns við
verðlagningu peninganna sem
fólkið fær að láni. Lán sem tekið
var 1980 að upphæð 150 þúsund
krónur og aldrei hefur fallið í
vanskil stóð á gjalddaga 1985 í
tæpum 500 þúsund krónum. Hér
kemur ráðgjafarþjónusta ekki
til bjargar þótt hún finni kannski
leið til frestunar á gjaldþroti.
Eins og er vinnur fólk ekki fyrir
eðlilegri lánsfjárþörf. Hér er
verk að vinna. Lausnin er til.
Spurningin er: Hvenær viður-
kennum við hana og hvenær
verður sú rétta leið valin?"
Sverri Hermannsson og Magnús
Reynir Guðmundsson (F.-Vf.) í stað
Steingríms Hermannssonar.
Framangreindir varaþingmenn
víkja úr sæti fyrir aðalmönnum í
byrjun næstu viku, utan Jóhanna
og Siggeir. Hinsvegar tekur Vigfús
Jónsson (S.-Ne.) sæti á Alþingi nk.
mánudag í Qarveru Bjöms Dag-
bjartssonar.
Alvara íaugum
Þeir eru þungir á brún, þingmennirnir, sem hér sjást ieggja eyru við máli samþingmanns, sem
sýnilega hefur náð athygli félaga sinna. Standandi: Halldór Blöndal og Hjörleifur Guttormsson.
Sitjandi: Helgi Sefjan ogSkúIi Alexandersson.
Bjórinn til þingnefndar:
Þjóðin eigi síðasta orðið
- segir flutningsmaður bjórfrumvarps
Þingmannafrumvarp um heimild til bruggunar, innflutnings
og sölu 4-5% bjórs í útsölum ÁTVR, ef staðfest verður við þjóð-
aratkvæði, kom til fyrstu umræðu í efri deild Alþingis og var
vísað til allsheijarnefndar þingdeildarinnar, að lokinni stuttri
umræðu. Aðeins tveir þingmenn tóku til máls í umræðunni.
Björn Dagbjartsson (S.-Nv) mælti fyrir frumvarpinu sem hann flytur
ásamt Stefáni Benediktssyni raun að afgreiða málið með þessum
(Bj.-Rvk). Hann sagði markmiðið
með flutningi frumvarpsins vera
það að freista þess að Alþingi af-
greiði þetta mál fyrir sitt leyti en
þjóðin öll fái þó jafnframt tækifæri
til þess að staðfesta niðurstöðu eða
hafna henni.
Framsögumaður tók fram að
ákvæðið um þjóðaratkvæði væri
ekki höfuðatriði, að mati flutnings-
manna. Það hafi verið sett hér
vegna þess að líkur hafí staðið til
að þingdeildin gæti sætzt á þá til-
hætti frá Alþingi.
Þetta mál er gamall kunningi,
sagði Bjöm, og þaulrætt oftsinnis.
Málawextir væru þingmönnum í
fersku minni frá umfjöllun á síðustu
vikum næstliðins þings, þó þær
hafi ekki verið þingheimi til mikils
sóma, vægast sagt. Af þeim sökum,
hve málið hafi verið mikið rætt á
síðasta þingi, væri óþarfi að fjölyrða
um það nú. ítrekuð umfjöllun þings-
ins og tiltæk gögn gerðu það kleift
fyrir það að taka afstöðu til málsins
á þessu þingi, ef vilji stæði til, þó
áliðið væri þingtímans.
Davíð Aðalsteinsson (F.-Vl.)
minnti m.a. á að efri deild hafí
samþykkt þjóðaratkvæði um þetta
mál á gengnu þingi. Þá hafl hins-
vegar verið gert ráð fyrir þvi að
þjóðaratkvæðið yrði leiðbeinandi -
og málið gengi aftur til þingsins til
endanlegrar ákvörðunar. Nú er
hinsvegar gert ráð fyrir þvf málið
fái endanlega afgreiðslu við þjóðar-
atkvæði. Á þessu tvennu er mikill
munur, sagði þingmaðurinn.
Þingmaðurinn kvað engin ný rök
hafa komið fram í máli framsögu-
manns. Þögn hafí ríkt hjá þjóðinni
um bjórmálið undanfarið. Hún hafl
sennilega talið, eftir málalyktir á
síðasta þingi, að þetta mál ætti að
liggja kyrrt það sem eftir lifði þessa
kjörtímabils.
Málið gekk, sem fyrr segir, til
allsherjamefndar efri deildar. For-
maður þeirrar nefndar er Jón Krist-
jánsson (F.-Al.).
Fyrirspurnir:
Tekjur af nauðungarsölum
RlÞlflG
Fyrirspurnir frá þingmönnum
halda áfram að streyma til ein-
stakra ráðherra. Hér verður
nokkurra getið:
Tekjur af nauðungarsölum.
Svavar Gestsson (Abl.-Rvk) spyr
dómsmálaráðherra, hveiju tekjur
fógetaembætta af nauðungarsölum
og hótunum um nauðungarsölur
hafl numið í höfuðborginni og
stærstu kaupstöðum landsins
1983-1985. Ennfremur um greiðsl-
ur af sama tagi til viðkomandi
embættismanna.
Ferðaþjónusta. Kristín Hall-
dórsdóttir (Kl.-Rn) spyr mennta-
Eiður Guðnason:
Hæggeng þingnefnd
Eiður Guðnason (A.-Vl.)
kvaddi sér hljóðs um þingsköp
í efri deild Alþingis í gær. Hann
sagði menntamálanefnd þing-
deildarinnar aðeins hafa haldið
þrjá fundi það sem af væri
þingtímans. Nefndin hafi ekki
komið sainan til fundar á nýju
ári. Þrem máium hafi verið vís-
að til nefndarinnar 17. febrúar
sl. en hún hafi ekki enn tekið
þau til meðferðar. Átaldi þing-
maðurinn vinnulag af þessu
tagi.
Haraldur Ólafsson (F.-Rvk.),
formaður nefndarinnar, var ekki
viðstaddur þá þessi umvöndunar-
orð Eiðs Guðnasonar vóru mælt.
Salome Þorkelsdóttir, forseti þing-
deildarinnar, minnti á ákvæði
nýrra þingskapa, þessefnis, að
forsetum beri að hafa eftirlit með
störfum þingnefnda. Hún myndi
því taka orð þingmannsins til taf-
arlausrar athugunar.
Kiftur Guðnason
málaráðherra: 1) Hvaða nám er nú
í boði yrir þá sem starfa í ferðaþjón-
ustu? 2) Er einhverra breytinga að
vænta í þeim efnum?
Hringrot í kartöflum. Stefán
Valgeirsson (F.-Ne) spyr landbún-
aðarráðherra: 1) Hafa verið gerðar
ráðstafanir til að hindra útbreiðslu
á hringroti í kartöflum? 2) Hefur
verið leitað álits sérfræðinga um
hvaða leiðir séu vænlegastar til að
útrýma þessum sjúkdómi?
Áætlun um hafnarfram-
kvæmdir. Magnús Reynir Guð-
mundsson (F.-Vf.) spyr samgöngu-
ráðherra: l)Hvenær má vænta þess
að ný fjögurra ára áætlun um hafn-
arframkvæmdir verði lögð fram?
2) Hefur farið fram úttekt á þjón-
ustumöguleikum íslenzkra hafna
með hliðsjón af nýrri og breyttri
flutningatækni (gámaflutningum)?
3) Hve stór hluti af fjárveitingum
hafna á fjárlögum þessa árs gengur
til greiðslu skulda?
Flugrekstur Landhelgisgæzlu.
Skúli Alexandersson (Abl.-Vl.) og
fleiri þingmenn spyija dómsmála-
ráðherra margra spuminga um
flugrekstur gæzlunnar, m.a., hve
háa leigu Flugleiðir greiði fyrir
Fokker Friendship-vélina TF-SYN?
Er leigan breytileg eftir árstíma?
Þá er spurt um söluverð þyrlu
Landhelgisgæzlunnar TF-GRO og
kaupverð Aerospatiale Eurcil-þyrlu
frá Frakklandi.
Frumvarp að sveitarstj órnarlögum:
Mál í tímaklemmu
Stjómarfrumvarp til sveitar-
stjórnarlaga, sem var tíl þriðju
umræðu í fyrri þingdeild (neðri
deild) í gær, virðist vera komið
í klemmu eða tímaþröng. Nokkr-
ir stjóraarliðar úr stijálbýliskjör-
dæmum telja annmarka á frum-
varpinu, einkum að því er varðar
sýslunefndir (sem frumvarpið
gerir ráð fyrir að víki fyrir hér-
aðsnefndum) og stöðu minni
sveitarfélaga, sem þeir te(ja
þrengt að. Það er hinsvegar
mikilvægt að frumvarpið, eða
hlutar þess (þ.e. ákvörðun kjör-
dags og aldursmarks í sveitar-
stjóraarkosningum), verði af-
greiddir sem allra fyrst og ekki
seinna en fyrir páska, vegna
undirfoúnings sveitarstjóraar-
kosninga væntanlega í maímán-
uði næstkomandi.
Það eru þingmennimir Friðjón
Þórðarson (S.-Vl.), Ólafur Þórðar-
son (F.-Vf.) og Pálmi Jónsson
(S.-Nv.) sem halda uppi andófí úr
hópi stjómarliða. Karvel Pálmason
(A.-Vf.) leggur til að frumvarpið
verði geymt og tekið til gagngerðr-
ar endurskoðunar að öðm leyti en
því, að samþykkt verði ákvæði um
kjördag og aldursmark til kjörgeng-
is og kosningaréttar (18 ár).