Morgunblaðið - 13.03.1986, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.03.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1986 35 Samtök um jafnrétti milli landshluta: Lagt til atlögu við miðstýringnna — segir Olafur Þórðarson um stjórnarskrá samtak- anna, sem hann hyggst leggja fram á Alþingi # Akureyri, 12. marz. ÓLAFUR Þ. Þórðarson, alþingis- maður Framsóknarflokks, fékk í morgun formlega afhent drög að stjóraarskrá, sem Samtök um jafnrétti mUli landshluta hafa látið semja - og hyggst Ólafur leggja drögin fram sem frum- varp á alþingi innan tíðar. Það var Pétur Valdimarsson, formaður Samtakanna, sem afhenti Ólafi drögin í morgun á blaða- mannafundi hér á Akureyri. Sam- tökin sendu öllum alþingismönnum drögin á sínum tíma til skoðunar og væntu viðbragða frá þeim - en þau urðu engin nema hvað Ólafur skrifaði samtökunum bréf í janúar- mánuði og óskaði eftir því að fá að leggja drögin fram í sínu nafni á alþingi. „Bréfið yljaði okkur um hjartarætur því þá sáum við að einhver alþingismanna hafði iesið og kynnt sér drögin," sagði Pétur Valdimarsson í morgun. Stjómarskrámefnd Samtaka um jafnrétti milli landshluta hefur unnið að því undanfarin þijú ár að útbúa drög að nýrri stjómarskrá. Ólafur sagði að þessi drög fjölluðu um stjómarskrána í heild - ekki aðeins um kosningalögin. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að leggja drögin fram er sú að það þarf að taka á stjómarskránni aliri. Ekki bara kosningaiögunum - ég hef alltaf mótmælt því að það eina sem skipti máli sé hvemig alþingismenn séu kjömir í þing. í þessum drögum er lagt til atlögu við miðstýringuna sem verið hefur allt of mikil. Hér er verið að leggja til valddreifingu,“ sagði Ólafur. Hann tók skýrt fram að ekki væri verið að vega að höfuð- borgarsvæðinu á neinn hátt með tillögunum. „Það er ekki sök Reyk- víkinga að þróunin hefur orðið svona - heldur fulltrúa landsbyggð- arinnar. Það er ekki verið að búa til fjandskap þama á milli en ég er hræddur um að margir hafi litið þannig á málið.“ Samtök um jafnrétti milli lands- hluta eru „þverpólitfsk" eins og forráðamenn þeirra orða það. Þeir sögðu í gær að undanfarin ár hefðu stjómmálamenn rætt allt of mikið um stjómarskrárbreytingar með því hugarfari hvort „sinn“ flokkur kæmi vel eða illa frá breytingunni. „Stjómarskrá verður ekki breytt með tilliti til þessa eða hins flokks- ins,“ sagði Ami Steinar Jóhanns- son, einn forráðamanna Samtak- anna, í morgun. I drögunum er m.a. gert ráð fyrir því að landinu verði skipt í fimm fylki og í hveiju fylki verði sérstakt fylkisþing. Gert er ráð fyrir því að alþingismenn verði 46, 31 í efri deild og er gengið út frá því að á bak við hvem þingmann standi því sem næst jafn margir kjósendur í öllum fylkjum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Pétur Valdimarsson, formaður Samtaka um jafnréttí milli lands- hluta, afhendir Ólafi Þ. Þórðarsyni, alþingismanni, drög samtakanna að nýrri stjóraarskrá, en Ólafur hefur ákveðið að leggja þau fram á alþingi. Kópavogur: Tvö efstu sætin óbreytt hjá Alþýðuflokknum ENGAR breytíngar urðu á tveim- ur efstu sætum í prófkjöri Al- þýðuflokksins í Kópavogi, sem haldið var um helgina vegna bæjar- og sveitarstjóraarkosn- inganna f vor. Prófkjörið var opið öllum nema flokksbundnum í öðram flokkum og tóku 409 mannsþáttíþvi. 229 atkvæði í fjórða sæti, 331 atkvæði samtals og Sigríður Ein- arsdóttir kennari 312 atkvæði í fimmta sæti. Alþýðuflokkurinn á tvo fulltrúa í núverandi bæjarstjóm, þau Guð- mund Oddsson og Rannveigu Guð- mundsdóttur. Kirlian- ljósmyndun Guðni Rúnar Agnarsson skrifaði samtalið við Ævar Jóhannesson um Kirlian-ljósmyndun, sem birt- ist i blaðinu i gær, en nafn hans féll því miður niður. Ljósmynd- ina tók Vala Haraldsdóttir. í fyrsta sæti varð Guðmundur Oddsson skólastjóri með 273 at- kvæði í það sæti og 374 atkvæði samtals. Rannveig Guðmundsdóttir húsmóðir varð í öðm sæti með 312 atkvæði en 392 atkvæði samtals, Hulda Finnbogadóttir umboðsmað- ur í þriðja sæti með 235 atkvæði og samtals 366 atkvæði, Kristinn Ó. Magnússon verkfræðingur hlaut Sigmar Jóhannsson i Sólheimum i Sæmundarhlið með úrvalskúna Freyju númer 28, sem mjólkaði 9.059 kllo 1 fyrra. Morgunblaðið/Kári Metkýrin Freyja í Sólheimum: Hefur mjólkað 60 þúsund kíló um ævina — að verðmæti hálf önnur milljón kr. „ÞETTA er geysigóð kýr og hefur alltaf mjólkað vel. Hún er lengi að bæta við sig eftir burð,“ sagði Sigmar Jóhanns- son, bóndi i Sólheimum i Sæ- mundarhlið í Skagafirði, að- spurður um metkúna Freyju númer 28, sem mjólkaði mest allra kúa á síðasta ári, eða 9.059 kfló, eins og fram kom i Morg- unblaðinu á þriðjudag. Sigmar sagði að Freyja fengi enga sérstaka meðhöndlun. Hún væri stór og mikil og gæti því étið mikið fóður. Þá væri hún heilsu- hraust og af góðum ættum. Freyja mjólkar eins og tvær meðalkýr og heldur betur. Hún er fædd 17. mars 1975 og frá því hún bar fyrst, 19. júní 1977, hefur hún mjólkað nákvæmlega 59.650 kíló. Verðmæti þess er hálf önnur milljón kr. miðað við grund- vallarverðið í dag. Freyja hefur því verið Sigmari betri en engin þessi ár. Ekki vildi Sigmar viðurkenna að svona kýr væru óþurftargripir á samdráttartímum f mjólkur- framleiðslunni. Betra væri að hafa góðar kýr og þá frekar færri ef því væri að skipta. Það skilaði meiru til bóndans. Það væri hins vegar eins gott að ekki væru allar kýr landsins eins og Freyja, því þá þyrfti að fækka þeim allsnar- lega. Sigmar sagðist þurfa að draga framleiðsluna saman um 17% frá framleiðslu síðasta árs vegna mjólkurkvótans, eða um 20 þús- und lítra. Hann sagðist hafa áttað sig á stöðu mála strax I haust þegar búvörusamningar ríkis og bænda voru undirritaðir og brugð- ist við f samræmi við það. Skerð- ingin dreifðist því á allt árið og kæmi ekki eins illa niður og hjá þeim sem ekkert hefðu gert og fengju alla skerðinguna á seinni helming ársins. „Kann engin töfra- brögð til að ná þessu“ — segir Sturlaugnr á Efri-Brunná, „besti kúabóndi ársins 1985“ Morgunblaðið/Matthlas Eggertsson Sturlaugur Eyjólfsson og Bírna Lárusdóttír á Efri-Brunná með dætrum sínum, frá vinstri: Sólveig, Biraa, Helga, Sturlaugur og Sigríður. Fyrir framan liggur svo hundurinn Jobbi. „NEI, ég tel mig ekki kunna nein töfrabrögð til að ná þessu út úr kúnuin," sagði „bestí kúa- bóndi ársins 1985“, Sturlaugur Eyjólfsson, bóndi á Efri- Brunná i Saurbæ í Dölum, þegar hann var spurður hvaða töfrabrögðum hann beittí til að fá kýraar til að mjólka meira en nokkrum öðrum bónda hef- ur áður tekist. Kýmar á Efri-Brunná mjólkuðu 6.207 kg að meðaltali á árinu 1985_(miðað við árskýr), sem er nýtt íslandsmet, samkvæmt upp- lýsingum frá Búnaðarfélagi Is- lands sem birtust í Morgunblaðinu á þriðjudag. Nytin í kúnum hans Sturlaugs hefur aukist smám saman. Á árinu 1973 var innlögð mjólk eftir árskú 2.977 lítrar, og hefur hún því meira en tvöfaldast á þessum 12 árum sem sfðan eru liðin. Sagt hefur verið um Sturlaug og fleiri góða kúabændur að þeir væru í sérstöku andlegu sambandi við kýmar. Ekki vildi Sturlaugur viðurkenna þetta, en sagðist kunna vel við þær. Kýmar væru rólyndar skynsemisskepnur. Hann sagði að mikilvægt væri að fóðra kýmar vel og hugsa vel um þær allt árið. Gott væri að hafa reglu á öllum hlutum, meðal annars mjöltum. Hann nefndi einnig árangursríkt ræktunarstarf, með kynbótum og hörðu úrvali. Annars sagðist Sturlaugur ekki vita hvort það væri sérstaklega eftirsóknarvert að vera með svona bú á þessum síðustu og verstu niðurskurðartímum. Hann sagðist þurfa að draga framleiðsluna saman svipað og aðrir, eða um 13% frá fyrra ári, sem samsvaraði nærri tveggja mánaða fram- leiðslu. Það væri afleitt að fá að vita samdráttinn eins seint og raun varð á og lítið hægt að gera til að mæta samdrættinum á þessu verðlagsári. Sagðist hann hafa slátrað tveim kúm strax, dregið úr fóðurbætisgjöfinni og byijað að gefa kálfunum mjólk í stað aðkeypts kálfafóðurs. Sagði Sturlaugur að þrátt fyrir allt væri betra að hafa góðar kýr og því myndi hann fækka þeim næsta haust til að mæta samdrættinum, frekar en að draga mikið úr nyt- inni. v X
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.