Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 38
38
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Guðmundur Fylkisson lðgreglumaður, sem heiðraður var fyrir að
bjarga barni úr eldsvoða á ísafirði nýlega, við 1. bifreið Slökkviliðs
ísafjarðar, en búnaður hennar gerði það mögulegt að hefja strax
hinar árangursríku björgunaraðgerðir.
ísafjörður:
Guðmundur Fylkisson
lögreglumaður heiðraður
íaafirði, 10. mars.
LÖGREGLUMAÐURINN ungi Guðmundur Fylkisson var heiðraður
af Lögreglufélagi Vestfjarða í athöfn á Hótel ísafirði sl. laugardag,
fyrir frækilega framgöngu í brunanum á Engjavegi 33 viku áður.
Óskar Sigurðsson rannsóknar-
lögreglumaður á ísafirði og stjórn-
armaður í Lögreglufélagi Vest-
fjarða færði Guðmundi viðurkenn-
ingarskjöld við athöfnina.
I ræðu sem hann hélt við það
tækifæri gat hann þess að full
ástæða væri til að geta annarra sem
að björgunaraðgerðunum unnu s.s.
ungmennanna 5, sem uppgötvuðu
eldinn, slökkviliðsmannanna
tveggja, sem fyrst komu á vettvang,
og hinna reykkafaranna flögurra,
sem leituðu bamanna í eldinum,
þótt ákveðið hafi verið að heiðra
Guðmund Fylkisson sérstaklega.
Óskar Sigurðsson lagði áherslu
á í ræðu sinni hversu mikilvægt
væri að sólarhringsvakt væri á
slökkvistöðinni, því ólíklegt væri að
slík röð heppilegra tilviljana sem
áttu sér stað í brunanum á Engja-
vegi um síðustu helgi gæti endur-
tekið sig. En þá voru tveir starfs-
menn slökkviliðsins fyrir tilviljun
staddir á slökkvistöðinni, en þar er
engin næturvakt. FVéttaritari
Morgunblaðsins á ísafírði ræddi
stuttlega við Guðmund Fylkisson í
dag. Hann sagðist hafa byrjað í
lögreglunni 1. október sl. en áður
starfaði hann um tíma hjá Slökkvi-
liði ísafjarðar. þar fór hann á nám-
skeið sem slökkviliðsmaður af
Keflavíkurflugvelli hélt hér vestra
í fyrravor í notkun eldköfunar-
búnaðar. Hann sagði að samvinna
og þjálfun hefðu ráðið mestu um
hve vel tókst til. Hann sagðist hafa
komið að brennandi húsinu í sömu
tíð og Flosi Jónsson slökkviliðsmað-
ur á svokölluðum fyrsta bíl slökkvi-
liðsins, en hann er búinn háþrýsti-
slöngum, reykköfunarbúnaði og
öðru sem að jafnaði er mikilvægast
við fyrstu aðgerðir. Á meðan Guð-
mundur klæddi sig í reykköfunar-
búnaðinn rúllaði Flosi út háþrýsti-
slöngu, svo Guðmundur gat vaðið
beint inní brennandi húsið með há-
þrýstislönguna í hendinni. Hann
vissi ekki í hvaða herbergi bömin
voru svo hann varð að leita þeirra.
Annar slökkviliðsmaður, sem býr
þama nærri, Tryggvi Sigtryggsson,
kom aðvífandi og var kominn
skömmu sfðar inn að leita, en þeir
fundu síðan sitt bamið hvor um
svipað leyti, en þar sem álitið var
að fleiri væru eftir inni lét Tryggvi
bamið í hendur Jóni Ólafí Sigurðs-
syni sem einnig var kominn inn, en
hélt sjálfur áfram leitinni.
Guðmundur sagði að lokum, að
hann hefði verið mjög ánægður með
stjómun hins nýja slökkviliðsstjóra,
Þorbjamar Sveinssonar, en þetta
var hans fyrsta útkall.
Hann vildi að lokum þakka
starfsfélögum sínum í Lögreglufé-
lagi Vestfjarða fyrir viðurkenning-
una og þann góða hug sem þar
stendur að baki, og sagði að það
væri alltaf ánægjulegt að geta
komið samborgurum sínum til
hjálpar, þó að forsjónin hafí kannski
átt jafnmikinn þátt í að svo vel fór
við þessi björgunarstörf. Þess má
að lokum geta að örfáum stundum
eftir að Guðmundur Fylkisson, sem
er aðeins tvítugur að aldri, veitti
viðurkenningunni viðtöku varð
hann með snarræði sínu fyrstur á
vettvang með brunabíl í bmna á
Mjógötu 7a, eins og komið hefur
fram í annarri frétt Morgunblaðs-
ins.
Þess má að lokum geta að nokk-
IjAsmynd/Ulfar Agústsson
Skjöldurinn sem Óskar Sigurðs-
son stjómarmaður í Lögreglufé-
lagi Vestfjarða afhenti Guð-
mundi Fylkissyni við athöfn á
Hótel ísafirði si. laugardag.
uð magnað slökkviliðsblóð rennur
sennilega í æðum Guðmundar, því
faðir hans, Fylkir Ágústsson, hefur
verið í Slökkviliði ísafjarðar frá tví-
tugsaldri eða í yfír 20 ár og faðir
hans, Ágúst Guðmundsson bygg-
ingameistari, var í liðinu í áratugi,
þar af í nokkur ár sem slökkviliðs-
stjóri.
Úlfar
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Reykjaneskjördæmi
Aðalfundur Kjördœmisráðs Sjálfstœðis-
flokksins / Reykjaneskjördœmi verður
haldinn í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoll i
Gerðabœ laugardaginn 22. mars 1986 og
hefst kl. 10.30 stundvíslega.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Stjórnmálaviðhorfin. Framsögumaður:
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins.
3. Sveitarstjómarkosningarnar.
Hádegismatur verður snæddur á fundarstað.
Stjórnin.
Bessastaðahreppur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Bessastaðahrepps verður haldinn að
Bjarnastöðum i kvöld 13. mars kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosningaundirbúningur.
önnurmál.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfél. Kjalnesinga
heldur fund mánudaginn 17. mars í Fólkvangi kl. 20.30.
Dagskrá:
Komandi sveitarstjórnarkosningar.
HFIMDALI.UR
Eiturhressir
og allir aðrir
Nú höldum við ræðunámskeið fyrir byrjendur, verður það i neðri
deild Valhallar, þriðjudaginn 18. mars og fimmtudaginn 20. mars
frá kl. 20.00-23.00 bæöi kvöldin. Námskeiðið er öllum opið og hvetj-
um við fólk við að vera ófeimið við að koma. Þátttökugjald er ekk-
ert. Nánari upplýsingar í síma 82900.
Heimdallur.
HFIMDALUJR
F U • S
Heimsókn í Rangárþing
Farið verður í dagsferö í Rangárvallasýslu laugardaginn 15. mars
nk. Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 9.00 árdegis og hádegisverður
snæddur á Hvolsvelli. Stórbýlið Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum verður
heimsótt og byggðasafniö í Skógum skoðað.
Þátttaka tilkynnist í síma 82900. Félagsmenn hvattir til að fjölmenna.
Stjórn Heimdallar.
Kópavogur — Kópavogur
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda Kópavogi
heldur félagsfund mánudaginn 17. mars
1986 kl. 20.30 í Hamraborg 1, 3. hæð.
Gestur fundarins verður Þórunn Gests-
dóttir formaður Landssambands sjálfstæð-
iskvenna. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
HEIMDALLUR
Skólanefnd
Kosningabarátta
Fundur verður i skólanefnd Heimdallar fimmtudagskvöldið 13. mars
kl. 20.00.
Fundarefni: Kosningabaráttan.
Skólafólk sem er áhugasamt um þátttöku í kosningabaráttunni er
hvatt til aö mæta. Einnig er mikilvægt að allir miðnefndarmenn láti
sjá sig.
Nefndin.
Egilsstaðir
Sjálfstæðismenn á Egilsstöðum lýsa eftir framboðum til prófkjörs
vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Tilkynningar berist Jónasi
Jóhannssyni, Brávöllum 9, simi 1465, fyrir kl. 18.00,16. mars nk.
Sjálfstæðisfélagið Egilsstöðum.
Patreksfjörður — prófkjör
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Patreksfiröi, vegna sveitarstjórnar-
kosninga 31. maí, verður haldiö laugardaginn 15. mars nk. i Félags-
heimili Patreksfjaröar. Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 18.00.
Rétt til þátttöku i prófkjörinu hafa allir 18 ára og eldri:
a) flokksbundnir sjálfstæðismenn,
b) þeir sem sækja um inngöngu i sjálfstæöisfélagiö Skjöld fyrir lok
kjörfundar,
c) þeir sem undirrita stuðningsyfirlýsingu.
Við hvetjum alla sjálfstæðismenn og stuöningsmenn þeirra til að
taka þátt í prófkjörinu.
Kjörnefnd.
Stjórnin.