Morgunblaðið - 13.03.1986, Síða 39
39
_________________________ MORGUNBLABIÐ.FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1986
Úr annál ársins 1985
eftir Jens í Kaldalóni
Bæjum, Snæfjallahreppi.
Þegar við lítum í fljótu bragði
yfir annál ársins 1985, kemur
margt í hugann sem vert væri að
minnast, en verður engan veginn
gerð hér tæmandi skil, en minnst
á nokkur atriði, sem á daga þessa
árs hefur drifíð.
Kemur þá fyrst í hugann, að
mesta sæmd þjóðarinnar á þessu
ári voru einmuna og háleitar við-
tökur hennar, í öllum viðbrögðum
og viðtökum við Pétur Reyni Ingv-
arsson, göngukappann mikla, er
fyrstur allra íslendinga lagði í þá
einstöku gönguferð sína kringum
allt landið, og sigraði í þeirri ferð
sinni með þeim einstaka sóma að
lengi mun í minnum haft. Þama
sýndi sig hvað hinn ódrepandi
kjarkur, viljafesta og fómfýsi fyrir
góðu málefhi getur áorkað og hinar
geislablikandi viðtökur, sem maður-
inn naut hvarvetna um landið, sýnir
svo ekki verður um villst, hversu
einlægt og kærleiksríkt hjartalag
þjóðin ber í bijósti sér, til þeirra
sem minnimáttar taldir eru, en sem
þó oft ða telja megast til þjóðar-
hetja, þegar tekið er mið af efnum
þeirra og ástæðum.
Hinar stórkostlegu sæmdar við-
tökur sem Pétur Reynir fékk svo
hjá Reykvíkingum í lok göngunnar,
varð þeim borgarbúum svo til sóma,
að aldrei mun gleymast, því svo
sannarlega kórónuðu þeir svo allan
fagnaðinn að þakkir og hughrif
göngugarpsins fullkomnuðust svo í
hinni dýpstu kærleiksgleði til fólks-
ins, að af engra vörum hefir jafn
djúpstæð þakkarkennd stunið, en
er hann segist bara ekki vita hvað
hann eigi að segja.
En sólin var ekki lengi í paradís
hamingjunnar því mesta smán sem
þjóðin gerði sér, þó ekki megi þar
þjóðina um saka alla sem slíka, var
gerð er varðskip var sent á hálfátt-
rætt gamalmenni útaf Akrane-
stöngum, einum á báttrillu sinni við
drátt nokkurra bútungs titta, sem
þó ekki gekk nærri því eins langt
til eyðingar fískistofnanna við Is-
land eins og þó drepin hefði verið
ein mýfluga við Mývatn á sólbjört-
um sumardegi þegar mýið er þar
þéttast. Þama var í svo naktri
einfeldni sinni verið að sýna vald
sitt á hinum snauðasta smælingja
í því formi að geta borið hönd fyrir
höfuð sér, og að sekta svo þessa
saklausu sjálfsbjargarsál fyrir lög-
brotaverknað, jafnvel þótt svo
mætti til sannsvegar telja var ekki
ólíkt og að láta köttinn leika sér
að músinni.
Annað smánarmál var svo aug-
lýst fyrir augum allra landsins
bama, þegar dómur var á ísafirði
kveðinn upp yfír einum 10 eða 11
Isfirðingum í rafvirkjafyrirtækinu
Póllinn hf., Vestfirska fréttablaðinu
o.fl. útaf smáþreifíngum til út-
varpstilrauna í BSRB verkfallinu
1984. Þegar í þessu einstæða verk-
falli að allt fréttakerfí þjóðarinnar
var svo lamað og hinar hroðaleg-
ustu gróusögur gengu óheftar um
allar jarðir, án þess að nokkur lif-
andi maður fengi nokkra greinar-
gerð um hvað rétt væri og rangt
og því síður nokkrar fréttir fengju
af hinu daglega lífí, að nokkrir
framtakssamir áhuga- og tækni-
menn þama í Pólnum hf. og Vestf.
fréttablaðsins, tóku á honum stóra
sínum, meira til prófunar tækni
sinnar, þekkingar og kunnáttu en
til að bijóta lög og reglur útvarps-
ins, enda engan áhuga í bijósti sér
bera til þeirra hluta og enda aldrei
til þeirra hluta hugsað í því formi
að bijóta lög landsins á hinn
minnsta máta. En svo sem hér um
slóðir blasti við sjónum manna, var
um svo alvarlegt neyðarástand að
ræða í öllu formi frétta og daglegra
samskipta í einum umfangsmesta
árstíma tilveru okkar, um háslátur-
tíð haustsins, smalamennskur og
aðdrætti alla, að það gerir sér ekki
utanaðkomandi fólk grein fyrir
hvað hér var í raun um að ræða.
Það eina sem um var að ræða til
bjargar, og leysti stundum úr sár-
ustu vandræðum, voru þó FR far-
stöðvarnar, sem helst áttu að reitast
útúr bæjunum hjá okkur af þeim
fagurfágaða lýð, eða hitt þó heldur,
sem þessum málum réðu.
Nei, það hefði svo sannarlega
mátt verðlauna þá menn er hér um
ræðir, og þungan dóm hlutu, alger-
lega að óverðskulduðu eins og á
stóð, fyrir framtak sitt, tæknikunn-
áttu og áhuga um nauðsynlegustu
fréttaþjónustu í neyðartilfelli, þegar
allir fréttamiðlar þjóðarinnar og
síminn til okkar voru á einu bretti
dauðadæmdir og úr öllu gildi sínu
teknir, að komnir vorum við aftur
í þjóðveldistíma í því formi, að senda
yrðum boðbera eða sérstaka sendi-
menn með skilaboð eða bréfsnepil
á milli landshluta. En þetta ein-
stæða framtak ísfírðinganna sýnir
ekki síður þann veglega neista
tækni og kunnáttu einstakra aðila,
til bjargar í válegum tilfellum, í
raun og veru sem geta gerst á sár-
ustu neyðarstundum í tilveru okkar
allra, en að dæma slíkar hendur,
huga þeirra og dáð alla til bættra
sakskipta í jafn afdrifaríku tilfelli
og hér var um að ræða, er svo
mikil þjóðarsmán, að lengi má
minnast, og ekki þá síst þegar þess
er gætt, að öll þau óhappaverk sem
framin voru í þessu verkfalli önnur,
voru undir stólinn sett í samninga-
lokin og að engu gerð, og þá ekki
síður sem og hitt, að þetta fyrirtæki
pakkaði öllum þeim tólum og tækj-
um orðalaust niður í kistur sínar
um leið og frammá það var farið,
en aðeins slitrur úr tveim dögum
að þessi, svo að manni fannst tækni
notuð.
Svo er þessi gerð öll rík í huga
mér, að mér var, af þeirri reynslu,
sem ég fékk af þessum vandræðum
öllum, manna ljósast hvar skórinn
kreppti sárast að, þar sem segja
mátti að stæði í þeirri eldlínu allra
þeirra dýrmætu samskipta sem völ
var á í þessu tilfelli, með eina
FR-stöð til samskipta hér um Djúp-
ið, enda fékk hann dánumannstitil
sem höfðingjauppbót hjá forsprökk-
um fullveldisins að vera kallaður
Karlandskotinn í Djúpinu, og hótað
að taka af mér FR-stöðina. En svo
var hinn framsýni hugarfarsþáttur
FR félagsmanna ríkum hugsjónum
gæddur, fyrir nokkrum árum, að
leggja af mörkum FR-stöð hér á
þessum stað, sem einskonar mið-
stöð hér í Djúpi, þar sem hér reynd-
ust öll skilyrði til þess best fallin,
að miðla boðum um Djúpbyggðir
allar, enda komið í ljós að ótalin
eru þau atriði, og djúpstæð nokkur,
sem dijúgum hefur til kosta orðið
í þeirri viðleitni þeirra FR-manna
að skipuleggja á sem bestan hátt
það öryggi sem þessar stöðvar veitt
geta.
En það á fleira í fórum sínum
árið 1985, sem annáisvert mætti
hér upp telja, því segja má að hinir
stórbrotnustu þættir í íslandssög-
unni hafí einmitt á því herrans ári
okkar dagsins Ijós séð í ótal formi
og fyrirbærum, sem hér ekki verða
tíunduð í neinu formlegu mælikeri.
Hitt er þó víst, að ekki verður
komist hjá að minnast á hið stór-
brotnasta okurmál, sem yfírskyggt
hefur allt það sem til ranginda má
telja hér á jörð. Stór fyrirtæki á
hausinn dottið mitt í öllu góðærinu,
en þó síðast en ekki síst, að við
höfum étið okkur útá gaddinn, rétt
svona einu sinni í viðbót, sem svo
fyrir var, með kaupum og eyðslu á
þeim skelfílegasta óþarfa sem flest-
um þykir þó í raun og veru skömm
að þegar upp er staðið, og upp er
gerður reikningurinn fyrir árið í
heild.
En hinu skal þó ekki gleymt, að
árferðið til lands og sjávar var með
því allra besta sem munað verður.
Metuppskera í heyskap og matvæl-
um öllum, sem engan veginn er þó
nýtt sem vera skyldi, en ekki síður
hitt, að fiskigengd hefur svo borið
af, að með afbrigðum má telja, en
öll sú guðsblessun svo í ljötra
saman reyrð í miðstýringarkerfi
fáviskunnar, að hörmung er um að
þola í allri þeirri siðgæðifijáls-
hyggju, sem nú hæst trónir yfír
huga öllum og höfðum þeirra hug-
sjóna sem færa nær hamingjunni á
okkur með sætabrauðssköttum og
flugmálatollum.
Eg óska svo landsmönnum öllum
gleði og gæfu á byijuðu ári nítján
hundruð áttatíu og sex.
Jens í Kaldalóni
öölnoðöLue
AFMÆLISFAGNAÐUR
ALÞÝÐUFLOKKURmN 70 ÁRA
sunnudaginn 16. marz
Alþýðuflokksfólk og aðrir jafnaðarmenn.
Njótum samveru eina dagstund
og fylkjum liði um kröfuna um
frelsi, jafnrétti og brœðralag
Það verða notalegar samkomur með
góðu fólki síðdegis á
sunnudag og sunnudagskvöld.
Góða skemmtun.
Hátíðarfundur
Kl.: Dagskráratriði:
13:30 Lúðrasveit verkalýðsins leikur.
14:00 Hátíðarfundur settur: Jóhanna
Sigurðardóttir varaformaður Al-
þýðuflokksins.
14:10 Kristinn Sigmundsson syngur við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
14:30 Avörp erlendra gesta.
14:45 „Úr 70 ára sögu Alþýðuflokksins44.
Leikarar flytja samfellda dagskrá.
15:05 Félagar úr íslensku hljómsveitinni
leika.
15:25 Bergþóra Arnadóttir syngur.
15:45 Ávarp: Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins.
16:00 Átta Fóstbræður syngja og stjórna
fjöldasöng.
Kynnir: Gunnar Eyjólfsson.
Verð kaffiveitinga er krónur 200.
Miðasala í anddyri Súlnasalar alla daga kl. 14—17. Sími 20221
Kvöldsamkoma kl. 19:30
Sameiginlegur kvöldverður.
Haukur Mortens skemmtir
matargestum.
Laddi flytur sina vinsælu dagskrá.
Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur fyrir dansi.
Veisiustjóri: Birna Eyjólfsdóttir.
Á matseðlinum verður skelfisksúpa,
marinerað lambalæri og afmælisréttur.
Verð aðgöngumiða á kvöldsamkomu er
1.650.