Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ 1986
45
Lausn kjör-
dæmamálsins
eftirÞorvald
Gunnlaugsson
í stjórnarskrá íslands er tekið
fram að kosið skuli í kjördæmum,
þar er hins vegar ekkert sem bindur
kjörgengi eða kosningarétt í ein-
stökum kjördæmum við þá sem þar
eiga lögheimili.
í kosningalögunum eru ákvæði
um kjörskrá og kosningar sem virð-
ast útiloka að maður noti kosninga-
rétt sinn í öðru kjördæmi en því
þar sem hann er settur á kjörskrá
sem virðist almennt ekki geta gerst
annar staðar, en þar sem maðurinn
á lögheimili. Þessu þyrfti að breyta
þannig að menn geti beitt atkvæði
sínu, þar sem þeir telja sig eiga
mestra hagsmuna að gæta. Við það
mundi tvennt vinnast.
í fyrsta lagi aukið frelsi. Maður
sem byggi t.d. utan Reykjavíkur en
starfaði eða ræki atvinnurekstur
þar gæti greitt þar sitt atkvæði. í
öðru lagi gætu Reykvíkingar og
fleiri ekki lengur kvartað undan
misvægi atkvæða. Þeim sem þætti
atkvæði sitt léttvægt í Reykjavík
væri gefínn kostur á að segja sig
í kjördæmi á Vestfjörðum og fara
svo þangað og kjósa eða kjósa utan
kjörstaðar, en það hefur lengi tíðk-
ast að Reykvíkingar væru í kjöri í
öðrum kjördæmum.
Ég vona að menn íhugi þetta í
fullri alvöru, þar sem hér er einung-
is um lagabreytingu að ræða. Sú
stjómarskrárbreyting sem liggur
nú fyrir felur í sér fjölgun þing-
manna, sem komið hefur skýrt fram
að meirihluti þjóðarinnar er andvíg-
ur. Það er erfitt að trúa því að
Þorvaldur Gunnlaugsson
Alþingi haldi slíku til streitu. Auk
þess er sú breyting svo flókin að
tölva verður nauðsynleg til að út-
hluta þingsætum og með einu at-
kvæði geta orðið stökkbreytingar á
því hveijir ná kjöri í mörgum kjör-
dæmum. Stjórnarskrárbreytingin
er ófullnægjandi og ófullkomin
lausn sem stefnir í sömu stöðu og
í dag með áframhaldandi búsetu-
breytingum.
Höfundur er stærðfræðingur og
sérfræðingur við Reikniatofnun
Háskóla ísiands.
« Gódan daginn!
HAFA Rornl
Sænskar baðinnréttingar í sérflokki og verðid
er lægra en þú heldur. Einnig hreinlætistæki
og baðáhöld í úrvali.
VALD. POULSEN!
Suðurlandsbrauf 10. Sími 686499.
Innréttingadeild 2. hæð.
TSítiMdnm
I IÖP / Li rJi ~ I /B
Bm ÚJti ImUSS JP mm L SP
m. mmM(M
Meðan mamma og pabbi flatmaga í sólinni tekur
pjakkaklúbburinn á Mallorca til starfa. Barnafarar-
stjórinn leiðir pjakkana á krabbaveiðar, í dýragarðinn og
reistir verða glæsilegustu sandkastalar strandarinnar.
Það er margt brallað í pjakkaklúbbnum enda eru hótel-
garðarnir á Mallorca hrein paradís fyrir börn sem full-
orðna. Hótelaðstaðan á Mallorca er einhver sú besta
sem hægt er að hugsa sér á sólarlöndum og kjörin
fyrir barnafjölskyldur.
Heiðurspjakkaferðirnar eru þrjár og brottfaradagarnir
?ru 21/6, 8/7 og 9/9. 25 fyrstu fjölskyldurnar, 4ra
nanna eða stærri fá frítt fyrir einn pjakk á aldrinum
2—11 ára, í tveim fyrri ferðunum. I pjakkaferðinni
9. sept. fá 25 fyrstu fjölskyldurnar, 3ja manna eða
<stærri, frítt fyrir einn pjakk á aldrinum 2—7 ára.
Heiðurspjakkurinn getur lækkað fargjaidið fyrir\
4ra manna fjölskyldu niður í 20.837.- pr. mann.
FERÐASKRiFSTOFAN
I