Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 13.03.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ 1986 Garðar Júlíusson frá Felli—Minning Fæddur 20. júlí 1901 Dáinn 20. febrúar 1986 Það hafði verið sæmileg síldveiði um sumarið og í bytjun september kom enskt skip að bryggju Síldar- verksmiðjunnar á Dagverðareyri til að lesta þar síldarmjöl. Útskipun þurfti að ganga fljótt og því var fenginn hópur verkamanna úr Gler- árþorpi til aðstoðar við lestun skips- ins. Fyrir okkur strákana sem unnum í sfldarverksmiðjunni sumrin 1946—1950 var lestun á síldarmjöli í skip ánægjuleg tilbreyting frá hinum daglegu störfum í verksmiðj- unni. Önnur störf að vinna og nýir menn að vinna með til viðbótar þeim ágætu og traustu körlum sem við störfuðum með daglega. Það var undir þessum kringumstæðum sem ég sá Garðar Júlíusson frá Felli í fyrsta sinn, en hann var einn í hópi þeirra manna sem komu innan úr „Þorpi“ til þessara starfa. Síst bar meira honum en öðrum sem þarna voru við vinnu. Hann gekk að störfum sínum hljóðlega og umsvifalítið en með þeirri verk- lægni sem þeir hafa sem kunna að vinna. Þarna á þessum stað áttum við Garðar engin samskipti og ræddum ekkert saman, en ein- hverra hluta vegna festist hann mér í minni meir en aðrir þeir sem komu til vinnu á Dagverðareyri þennan dag. Ekki flaug mér þá í hug að dóttir hans ætti eftir að verða örlagavald- ur í mínu lífi og ég ætti eftir að Leiðrétting í minningargrein hér í blaðinu í gær um sr. Jón Thorarensen, féllu niður linur, sem gerðu það að verkum að málsgreinin skilaði sér ekki. Málsgreinin átti að vera svohyóðandi: Ég hlaut að kynnast frú Ingi- björgu, konu hans, þar sem móðir mín og hún störfuðu saman í Kven- félagi Neskirkju og myndaðist ein- læg vinátta sem alltaf hélst. Þessi sæmdarhjón og dætur þeirra hafa verið nágrannar mínir í mörg ár og góðar minningar eru gulli betri. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. eiga samskipti við hann, eiginkonu hans og fjölskyldu um áratuga skeið. Það voru góð samskipti og mér dýrmæt enda var ég oftast þiggjandinn. Gestrisni, hlýja og einlægur áhugi á því að öllum liði sem best var þeirra aðalsmerki. Garðar Júl- íusson fæddist í Glerárholti í Glerár- þorpi 20. júlí 1901 og var því 84 ára þegar hann lést 20. febrúar sl. Hann var sonur hjónanna Júlíusar Kristins Jónssonar og Sigríðar Sigurðardóttur, sem þá voru til heimilis í Glerárholti. Garðar var eitt fjögurra bama þeirra hjóna, en hin voru tvíburasystir hans Lára, sem lést á fyrsta ári, Valdimar sem lést 1963 og Bergsteinn sem lést 16 ára gamall. Garðar var um hríð komið í fóstur til Steinunnar móður- systur sinnar á Sámsstöðum, en ólst síðan upp hjá foreldrum sínum í Glerárholti og síðar í Felli. Garðar byijaði snemma að ganga að allri almennri vinnu. Hann var m.a. sex sumur á Sámsstöðum og tvö ár vinnumaður hjá Davíð Eggertssyni á Möðruvöll- um. Þó átti sjórinn og sjómennskan hug hans allan hvað vinnu snerti og fór hann því fljótt að starfa á bátum og sfldarskipum, en gekk að ýmsum störfum í landi milli vertíða. Um 1940 fór Garðar að vinna að staðaldri í landi við ýmis verka- mannastörf hjá setuliðinu, í Kross- nesi og síðustu árin hjá Skinnaverk- smiðjunni Iðunni, en þar vann hann til 78 ára aldurs. Öll þau störf sem Garðar vann voru unnin af dugnaði og trúmennsku og mikilli ósérhlífni og ávann hann sér traust yfirmanna sinna. Hann var vinsæll meðal starfsmanna, óáreitinn, jákvæður og benti oftar en hitt á björtu hliðar málanna og tók málstað þeirra sem minna máttu sín. Garðar kvæntist Sigurveigu Jónsdóttur frá Krossanesi þann 4. aríl 1925 og bjuggu þau í Felli fram á síðustu ár er þau fluttu í íbúð á Dvalarheimilinu Hlíð. I Felli voru þau fyrst í sambýli með foreldrum Garðars, ásamt Valdimar Júlíussyni og eiginkonu hans, Ingibjörgu Björnsdóttur. Þeir bræður byggðu síðar viðbyggingar Fyrsti aðalfundur Tón- listarbandalags íslands TÓNLISTARBANDALAG ís- lands heldur sinn fyrsta aðalfund laugardaginn 15. mars kl. 2 e.h. i fundarsal veitingahússins Gaukur á Stöng, á 2. hæð. Tónlistarbandalag íslands var stofnað fyrir einu ári, í mars 1985. Meginmarkmið bandalagsins er efl- ing tónlistar á íslandi. Að þessu markmiði vinnur Tónlistarbandalagið m.a. með því að: Efla tónlistarmennt- un í landinu, stuðla að auknum tækifærum íslenskra tónlistarmanna til að semja og flytja íslenska tónlist og til að kynna íslenska tónlist og tónlistarmenn á erlendum vettvangi, beita sér fyrir umfjöllun, ráðstefnum og dreifingu upplýsinga um tónlist og málefni hennar og halda uppi samstarfi við erlenda aðila og samtök sem starfa að svipuðum verkefnum. í TBÍ eru nú 35 félög og samtök sem hafa tónlist á stefnuskrá sinni. Innan vébanda þessara félaga og samtaka eru yfir 10.000 manns. Þessi aðalfundur TBÍ er opinn öll- um sem áhuga hafa á málefnum bandalagsins. (Úr fréttatilkynningu.) t Innilegar þakkir til þeirra sem auðsýndu vinóttu og hlýhug við andlát og útför GUÐBJARTS JÓNSSON AR frá Skógi á Rauðasandi til heimilis að Grenimel 26. Kristfn Guðbjartsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Guðsteinn Bjarnason, Hermann Bjarnason, Jóhanna Jónsdóttir, Halldór Jónsson, Trausti Jónsson, Þorbjörg Jónsdóttir. t Alúðar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, JÚLÍUSAR JÓHANNSSONAR frá Sigiufirði, Þórufelli 12. Bryndfs Jacobsen. báðum megin við Fellshúsið og var samvinna þeirra bræðra alla tíð óvenju sterk og náin og ríkti þarna í Felli með fjölskyldum þeirra bræðra mikil eindrægni og kærleik- ur. Þau Garðar og Sigurveig eignuð- ust §ögur böm, sem öll eru búsett á Akureyri. Þau eru Bergsteinn, kvæntur Júdith Sveinsdóttur, Sum- arrós, gift séra Birgi Snæbjöms- syni, Júlía, gift Lárusi Zophonías- syni safnverði Amtbókasafns og Laufey, gift Sigurði Jóhannessyni aðalfulltrúa. Hjónaband þeirra Garðar og Sigurveigar var hið farsælasta. Þó húsakynni væm þröng fýrstu árin og veraldarlegur auður knappur, voru oft mikil umsvif á bammörgu heimili. Reglusemi og heiðarleiki sátu alls staðar í fyrirrúmi og gest- risni þeirra hjóna og hartahlýja var minnisstæð, enda margir sem áttu viðdvöl á heimili þeirra hjóna. Sigurveig starfaði mikið að fé- lagsmálum, í stúku og kvenfélaginu Baldursbrá og sem orgelleikari í Lögmannshlíðarkirkju og Garðar var sístarfandi að því að draga björg í bú og sinna þeim ýmsu störfum sem ætíð falla til í húsi og á heim- ili. En alltaf í gegnum allt þeirra líf og starf átt'u bömin, tengda- og bamaböm og bamabamaböm stærsta rýmið í hjarta þeirra og hug. Fylgst var með gengi afkom- endanna af einlægum áhuga og tekið þátt í gleði þeirra og sorgum. Það var hughreyst og huggað þegar þess þurfti með, veittar viðurkenn- ingar og hvatt til meiri átaka á stundum. Ég sem þessar línur skrifa vil af einlægni þakka samvem við Garðar og tel það mína hamingju að hafa átt þess kost að kynnast og starfa með slíkum manni. Garðar lést að morgni 20. febrúar, þrotinn heilsu og kröftum í faðmi eftirlif- andi eiginkonu sinnar. Ég bið Guð að blessa ævikvöld hennar. Þrátt fyrir háan aldur og veikindi er hennar styrkur mikill. Hann helgast af einlægri trú á handleiðslu hins hæsta og að hún muni njóta endur- funda við ástvini sína þegar vegferð hennar héma megin tjaldsins lýkur. Jarðarför Garðars fór fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 1. mars sl. Sigurður Jóhannesson FALL STEFANSS0N UMBOÐS & HEILDVERZLUN BLIKAHÓLUM 12, R VlK SlMI (91)-72530 á ný SIEMENS-heimilistæki. Þau eru: • Falleg og sparneytin. • Þægileg í notkun. • Búin fullkomnustu tækni. • Þaulreynd vestur-þýsk gæðavara. Smith og Norland Nóatúni 4, s. 28300. 47 RENOLD kedjur tannhjól og girar w I v -Gt m PevnslA pjÓN' USTA Pekkin0 FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.