Morgunblaðið - 13.03.1986, Síða 48

Morgunblaðið - 13.03.1986, Síða 48
ffclk í fréttum STEMN THORARF.NSEM e<*"pv T4Mb«rtlv. T*r.'p»*t4 tatflMtfdft. Hirvs-niu*- H*rpir»*4« ~ ‘ ' ‘^iV MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 a»r „Hef alltaf haft gaman af því að halda gömlum eða sjaldséðum hlutum til haga“ - segir Óiafur Jónsson húsasmiður Af ýmsum toga er yndi manna, það sem gefur fyllingu í marga stund og frið í sáiina. Ólafur Jónsson er einn þeirra sem á sér „friðarkrók" á heimili sínu, þar sem hann handfjatlar og býr um „bömin" sín mörgu, sem hann hefur eignast um árin. Ólafur er safnari, á flölbreytilegustu hluti er hann geymir af fágætri vandvirkni og hirðusemi og tíðum í hirslum, sem hann hefur sjálfur smiðað af miklum hagleik. „Það er svona eitt og annað sem ég held til haga, og ber mig eftir," segir Ólafur. „Ég á nokkuð af ís- lenskum pijónmerkjum og einkenn- ismerkjum, eggjum, skeljum, og kuðungum. Það sem ég fór síðast að halda saman og hafa áhuga á eru lyfseðlaumslög sem eru frá ár- unum 1920 og áfram. Fýrir utan þetta hef ég svo afskaplega gaman af grasafræði og iðulega þegar mér gefst færi, fer ég út í náttúruna með myndavélina mína og tek myndir af blómum og fleiru. Ég á orðið dágott safn mynda úr íslenskri náttúru." — Þegar blaðamaður fer að skoða sig um kemur í ljós að það er ýmislegt fleira sem Ólafur á í pokahominu. Hann hefur þurrkað ýmsar jurtir og komið J)eim snyrti- lega fyrir í bókum. Ólafur tekur mikið af myndum ogtil dæmis hefur hann komið sér upp vöntunarlista, það er að segja hann hefur tekið myndir af þeim pijónmerkjum sem hann vantar í safn sitt. Allt ber þetta vott um mikla vinnu og fyrir- höfn. „Mestur frítími minn fer í þetta. En ég hef gaman að þessu og sér- staklega að ganga vel frá þeim hlutum sem ég safna. Ég sæki reglulega safnarafundi og hef kynnst §ölda fólks í gegnum þessa áráttu mína. Þetta er afskaplega tímafrekt ef vel á að vera, en ég uni mér svo vel í þessu og nýt þess að vera að dunda í hominu mínu.“ Safnið er mjög snyrtilegt og ber vott um mikla vinnu og fyrirhöfn. Moi-gunblaðið/Árni Sæbcrg Kassana undir einkennismerkin hefur Ólafur sjálfur smidað og hann fékk hann vin sinn til að grafa utan á hann myndir. „Það síðasta sem ég fór að halda til haga eru gömul lyfseðlaum- slög sem eru frá árunum 1920 ogáfram. Ólafur Jónsson húsasmiður við skáp sem hann smíðaði sérstaklega undir söfnunargripi sína. Skápurinn er mjög fallegur, alsettur litlum hólfum, skúffum og skápum. Ein ungog efnileg atsy Kensit sem er sautján ára gömul, syngur og dansar í mynd Davids Bowie, „Absolute Beginners". Patsy er engin nýgræðingur. Hún hefur komið fram ótal sinnum í þáttum hjá BBC, og hefur leikið meðal annars með Robert Redford i „The Great Gatsby". Þá hefur hún líka unnið með Elizabeth Taylor í myndunum „Another Street" og „Blue Bird“. Leikkonunni er spáð frægð og frama og Patsy er sögð svipa til Brigitte Bardot en hafa kraft og dugnað Madonnu. Þegar Ólafur er spurður hvað sé nú merkilegast í safninu hans segir hann að líklega sé íslenska pijón- merkjasafnið hans forvitnilegast, þar kenni ýmislegs sem ekki sé hægt að finna á hveiju strái. Hann kveðst eiga um 1400 íslensk pijón- merki og einkennismerkin séu um 200. Hann segir fólk vera iðið að gauka að sér hlutum í safnið þó auðvitað kaupi hann líka, reyndar telur hann ástæðuna fyrir því að fólk sé svona iðið við að gefa honum hluti vera þá að hann gengur snyrti- lega frá öllu sem í hendur hans kemur. En af hveiju skyldi hann safna og hveiju skyldi hann hafa byijað að halda til haga. „Ég byijaði nú sem drengur að safna súkkulaðibréfum að mig minnir og fór svo að fara út í frí- merkin. Frímerkin eru það dýr að ég hef minnkað það við mig að bera mig eftir þeim. Ég veit enga sérstaka ástæðu fyrir því að ég byija á þessu. Alveg frá bamsaldri hef ég haft ánægju af því að halda gömlum og/eða sjaldséðum hlutum til haga. Fólk hefur líka gaman af því að skoða þetta hjá mér þegar það kemur í heimsókn og kannski get ég með þessu móti bjargað ein- hveiju se(h annars færi forgörðum." Tenmstilþrif -ZSS* áhuga á tenms WQg hefur Þ"fengfe íþróttarinnar a Eng„. kin> stevens og » seinni árum • • • Hann safnar íslenskum prjónmerkjum, einkennismerkjum, eggjum ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.