Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 55

Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 55
MORGUNBLAÐH), FTMMTUDAGUR13. MARZ 1986 ........U9 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15: FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Ýta undir fordóma 14 ára skrifar: Kæri Velvakandi. Eins og svo margir aðrir á mínum aldri horfði ég á þáttinn „Popp- kom“, sem var á dagskrá sjón- varpsins 24. febrúar sl. í byijun þáttarins var annar umsjónarmann- anna sýndur þar sem hann „stjóm- aði“ alheimshljómsveitinni, sem stofnuð var á síðastliðnu ári. Hinn háttvirti umsjónarmaður sagði „bíð- ið þið, ekki fara“ og meinti að okkur unglingunum eigi að þykja sinfón- íur leiðinlegar og að sinfóníur séu nokkuð, sem verður að slökkva á eða flýja. Mér fannst þetta mjög illa gert, sérstaklega í garð þeirra fjölmörgu unglinga, sem stunda hljóðfæranám og hafa nokkurt vit á sinfóníunum alræmdu. Þetta ýtir undir þá fordóma, að öllum ungling- um og þeim eldri eigi að þykja þær leiðinlegar. Að síðustu langar mig til að varpa fram þeirri spumingu, hvort sjónvarpið hafði leyfí til að sýna brot úr sinfóníuþættinum með al- heimshljómsveitinni. Tillitslaus- ir ökumenn Kristinn Guðmundsson skrifar. Ég skammast mín fyrir að vera íslendingur. í rigningunni um dag- inn bilaði bíllinn minn á mótum Lönguhlíðar og Bólstaðahlíðar. Ég gat ekki komi honum út af veginum og í heila klukkustund sat ég í bfln- um án þess að nokkur sem framþjá fór rétti mér hjálparhönd. í stað þess flautuðu bflstjóramir miskunn- arlaust og ætluðust til þess að ég fjarlægði bifreiðina. Loksins tókst mér að hlaupa niður á Kjarvalsstaði og hringja á bfl mér til aðstoðar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta kemur fyrir og alltaf eru ökumenn jafn tillitslausir. Losnar hann úr burðaliðnum? Ég sendi þessa vísu vegna þess hversu Steingrímur Hermannsson virðist „sannfærður" um að þetta eða hitt takist og einnig vegna þess að flest hans mál erú í „burðarliðn- um“. Sannfærður hangir Hermannsson heima í móður kviðnum. Löngu mér fínnst það liðin von hann losni úr burðarliðnum. Asta Sigurðardóttir Kveikjari tapaðist Cartier-kveikjari tapaðist 20. febrúar sl. Ekki er Velvakanda kunnugt um hvar en fínnandi er beðinn að hringja í síma 22807 eða 23912. Fundarlaunum er heitið. 10m> fjmr Þessir hringdu Löng bið eftir áríðandi bréf i Breiðholtsbúi hringdi „28. febrúar var áríðandi bréf góstsett á Laugaveginum. Áfangastaður þess var í Breið- holtinu en 11. mars, ellefu dögum síðar hafði það enn ekki dottið inn um bréfalúguna hjá viðtakanda." Öryggiá íslenskum flugvöllum vel viðrar, ef marka má reykja- bólstrana sem stíga frá Öskjuhlíð- inni á góðviðrisdögum. En slysin verða þegar veður er verst. Hvem- ig stendur á því að slökkviliðið hafði ekki sérstaka vakt þegar flugskilryði vom jafn slæm og síðastliðinn mánudag. Ólagá bj örgunar málum Sigurður hringdi. „Mig langar að ræða ástand björgunarmála hér, eftir leitina um síðastliðna helgi. Það er ótækt að senda 140 menn, 7 snjóbfla og 37 vélsleða eftir tveimur full- frískum mönnum. Er enginn greinarmunur gerður á því hvort um er að ræða börn sem hafa Þórir B. Guðjónsson hringdi: Mér fínnst ástæða til að vekja athygli á öryggismálum á íslensk- um flugvöllum eftir óhappið sl. mánudag. Þegar slys á borð við þetta gerast í Reykjavík þar sem öryggið á að vera best, hvemig er þá öryggi háttað á flugvöllum úti á landi. Af fréttum að dæma kom slökkviliðið seint á vettvang. Ég hefði haldið að þegar rigning og vatnselgur væri á flugvöllum væri ástæða til að hafa sérstaka vakt á vellinum sem kannaði aðstæður áður en flugvélum væri veitt heimild til flugtaks. Þessari gæslu hefur augsýnilega verið ábóta- vant. Það virðist einkenna bmna- gæslu hér í borginni að bmnaæf- ingar em aðeins haldnar þegar villst eða vel útbúna fjallamenn? Leitunum fylgir óheyrilegur kostnaður og oft er lífí leitar- manna stofnað í hættu, samanber snjóflóðahættuna á Ieitarsvæðinu um síðastliðna helgi. Hingað til hef ég talið það skyldu mína að styrkja björgunar- sveitimar á þá lund sem mér er unnt; með því að kaupa merki, happdrættismiða o.fl. En nú end- urskoða ég afstöðu mína, því ég vil ekki sóa fé í þann leikaraskap, sem farinn er að einkenna leitar- mál hér á landi. Einnig fínnst mér ummæli annars mannsins sem týndist óaf- sakanleg. Hann þakkaði sérstak- lega einni björgunarsveitinni. Þær vom a.m.k. 3 sem stóðu að leit- inni. Frá leitinni i Botnssúlum um síðastliðna helgi. Dónaskapur við íslenzkar konur Kona skrifar: Rétt einu sinni varð ég alveg undrandi á þeim dónaskap sem blaðamenn sýndu konu, sem þeir þó birtu mynd af. í DV sl. mánudag birtist mynd af komu handknatt- leiksliðsins og þar með ein með undirskriftinni: „Þeir Sveinn Bjömsson forseti íþróttasambands íslands og Jón H. Karlsson frá HSÍ taka hér á móti eiginkonu Matthíasar Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra við komuna til Keflavík- ur.“ Konan, Sigrún Þorgilsdóttir Mathiesen er ekki nefnd á nafn eins og það taki þvf ekki. Þó virðist það hún sem verið er að heilsa. Matthías Á. Mathiesen sem nefndur er f textanum er hvergi nærri og vand- lega er gerð grein fyrir hinum tveimur á myndinni og hvaða hlut- verki þeir gegna. Kannski hefur blaðamanninum fundist að blessuð konan hefði ekkert að gera á hand- knattleikinn, en því þá að vera að birta mynd af henni. Þetta er ekki í eina skiptið sem konum er sýndur slíkur dónaskapur í blöðunum, allir karlar taldir upp með nafni, en þær bara nafnlausar eins og þær skipti engu máli. Prægt er dæmið af forsíðu Morgunblaðsins sem ég heyrði f ræðu sem dæmi um þessa svívirðu. „Forseti íslands, Kristján Eldjám og forsetafrú, ásamt hundinum Snata á tröppun- um á Bessastöðum." Snata og Kristjáns er getið með nafni, en sú eina sem ekki þótti vert að nefna var Halldóra Eldjám. Blessaðir hættið þið nú þessu. Út af fyrir sig er mynd ekki nógu merkileg til að birta hana ef enginn veit hver á henni er, hvort sem það er karl eða kona. ABA disklingageymslur fyrir 8", 5Va" og 31/2" disklinga. Þœr fdst bœöi meö og ón lœs- ingar. Fást í öllum helstu bóka- verslunum landsins og einnig hjá tölvusölum. Grensásvegi 7, Reykjavík, Símar 681665 og 686064 í Það er ekki bara leðrið sem við leggjum áherslu á. Satt að segja er hvergi hægt að finna á einum stað stærra úrval af sófa- settum og sófahornum í áklæðum. Þessi fallegu vönduðu sófasett bjóð- um við á besta verði sem þekkist og svo góðum greiðslukjörum að jafnvel strangasta fjárhagsáætlun heimilisins ræður við að kaupa sett. paHas 3+1+1 Hvernig *** Þér á? Aðeins 4.580 Aðeins 13.000 á mánuði. útborgun. Við tökum að sjálfsögðu greiðslukortin bæði sem útborg- un á kaupsamninga og sem stað- greiðslur með 5% afslætti. BDS6A6NAB0LLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK ! 91-6811 99 og 681410 /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.