Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ 1986
57
Jón Páll sterkastur
ÍSLAN DSMÓTIÐ í bekkpressu fór
fram á sunnudaginn. Jón Páll
Sigmarsson sigraði í stigakeppni
mótsins í jafnri og skemmtilegri
keppni. Sigurbjörg Kjartansdóttir
jafnaði íslandsmetið í kvenna-
flokki.
Kári Elísson frá Akureyri, sem
sigraði stigakeppnina í fyrra, varö
annar með einu stigi minna en Jón
Páll. Jón Páll fékk glæsilegan verð-
launagrip fyrir þennan árangur.
íslandsmeistarar í einstökum
þyngdarflokkum í bekkpressu
1986 eru þessir:
Fl. 75 kg.
Kári Elísson, lyfti 160 kg.
Fl. 82,5 kg.
Halldór Eyþórsson, lyfti 145 kg.
Fl. 90 kg.
Alfreð Björnsson, lyfti 147,5 kg.
Fl. 100 kg.
Baldvin Skúlason, lyfti 170 kg.
Fl.110kg.
Hörður Magnússon, lyfti 180 kg.
Fl. 125 kg.
Matthías Eggertsson, lyfti 160 kg.
Fl.yfir 125 kg.
Jón Páll Sigmarsson, lyfti 215 kg.
Kvennaflokkur.
Sigurbjörg Kjartansdóttir lyfti 80
kg sem er jafnt (slandsmetinu.
Aukagrein mótsins var svokall-
að „kurling". þar var lyft 60 kg frá
hnjám og upp að öxlum. Jón Páll
var sterkastur allra í þeirri grein
og tókst að lyfta þessari þyngd
29 sinnum. Hjalti Árnason lyfti 21
sinni og varð annar.
Morgunblaðið/Bjarni
• Þorglls Óttar Mathiesen f Borgarspítalanum f gær þar sem hann gekkst undir uppskurð á þriðjudags-
morguninn.
„Sársaukinn hefur
verið mikill“
- sagði Þorgils Óttar Mathiesen eftir uppskurðinn
ÞROGILS Óttar Mathiesen,
landsliðsmaður f handknattleik,
var skorinn upp við meiðslum sfn-
um á hnó sem svo mjög hafa
hrjáð hann að undanförnu, á
Borgarspftalanum á þriðjudag.
„Þetta er það versta sem óg hef
lent í, sársaukinn hefur verið mik-
ill," sagði Þorgils Óttar við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær.
„Ég fæ að fara heim um helgina,
en þarf að vera í gipsi í þrjár vikur
svo verður tíminn að leiða það í
Ijós hvenær ég get farið að æfa
aftur."
— Ætlar þú að leika með FH
næsta vetur?
„Já, ég er ákveðinn í því. Ég er
í viðskiptafræði í Háskólanum og
reikna með að klára næsta haust.
Annars hefur farið lítið fyrir skólan-
um hjá mér í vetur. Ég ætla mér
þó að mæta eftir helgi. Ég hugsa
að ég verði látinn skrifa nafn mitt
í gestabók er ég læt sjá mig í skól-
anum,“ sagði Þorgils Óttar og
gerði að gamni sínu og var ekki
að sjá á honum að hann hafi verið
að gangast undir erfiða skurðað-
gerð.
Þorgils gat þess ennfremur að
hann fengi alla þá bestu umönnun
sem kostur væri á. Gunnar Þór
Jónsson, læknir, sem einnig er
læknir landsliðsins, skar hann upp.
Andrés Kristjánsson, sjúkraþjálf-
ari, muns síðan sjá um að gera
Þorgils rólfæran aftur. Það er
örugglega einsdæmi að landsliðs-
maður hafi leikið átta landsleiki
fyrir þjóð sína með annað kross-
bandið slitið í hné. En þetta gerði
Þorgils Óttar. Hann meiddist í leik
gegn Pólverjum á Baltic-Cup í
janúar. Hann lék síðan átta leiki í
undirbúningnum fyrir HM og í
heimsmeistarakeppninni.
Sund:
Evrópulágmörk
Sundsamband íslands hefur ákveðið lágmörk fyrir heimsmeist- aramótið í Madrfd 1986.
Kariar Konur
lOOmskriö 0:52.20 0:58.70
200 m skriö 1:54.00 2:05.90
400 m skrið 4:02.50 4:25.00
800 m/1500 m skriö 16:02.00 9:05.00
100 m bak 0:59.50 1:06.00
200 m bak 2:08.00 2:23.00
100 m bringa 1:06.00 1:14.50
200 m bringa 2:26.00 2:41.00
100 m flug 0:56.40 1:04.00
200 m flug 2:06.00 2:21.00
200 m fjór 2:10.00 2:24.00
400 m fjór 4:39.50 5:03.00
Sundsambandið hefur einnig ákveðið lágmörkin fyrir Evrópu- meistaramót unglinga.
Stúlkur Pittar
100 m skrið 1:01.50 (27) 0:55.70 (26)
200 m skrifi 2:09.00(27) 2:00.50(26)
1500/800 m skrið 9:28.00(19) 16:58.00(24)
100 m bak 1:08.60(24) 1:02.80(19)
200 m bak 2:27.00(24) 2:17.00(20) ,
100mbringa 1:17.00 (25) 1:11.50(24)
200 m bringa 2:46.50(22) 2:33.50 (24)
lOOmflug 1:07.00(24) 1:00.50(23)
200 m flug 1:07.00(18) 2:16.50(18)
200 m fjór 2:28.50(29) 2:18.50(22)
400 m fjór 5:21.00(20) 5:00.00(17)
Velkomin
íhiðeinasanna
Heilsustúdíó
Skeifunni 3C, s. 39123
Aerobic
FYRIR ALLA
Skeifunni 3, Reykjavík,
simi 39123.
Morgun- hádegis-
og kvöldtímar alla
daga vikunnar.
Frúartímar og fram-
haldstímar hjá Fríðu,
íþróttakennara. Byrj-
endatímar hjá Jórunni.
Milli-stig hjá Mörtu. Púl-
tímar hjá Magga,
íþróttakennara.
Hópafsláttur
Hjónaafsláttur
Skólaafsláttur
Afslátturfyrir
íþróttahópa
Verð aðeins 1750 kr. fyrir einn mán.
Aðgangur í fulkominn tækjasal innifalinn.
Alltaf færir þjálfarar til staðar.
Verð í tækjasal kr. 1500 einn mán.
íþrótta- og afslöppunamudd hjá Brynjari
og Svönu.
Heitt
ákönnunni
og ígufunni
Frábær
World-Class
íþrótta- og
aerobicfatnaður
Hinir heimsþekktu
Recbok-skór