Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 59
MORGUNBIAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1986
59
Valur Ingimundarson:
Snerti ekki körfubolta
fyrrená 16. árinu
VALUR Ingimundarson byrjaði
ekki að œfa körfuknattleik fyrr
en hann varð 15 ára. Það var árið
1976, þegar hann flutti til Njarð-
víkur frá Stokkseyri, þar sem
hann ólst upp. Sigurganga hans
hefur verið nœr óslitin síðan.
“Eg hef enga sérstaka skýringu
á því af hverju mér hefur gengið
þetta vel í körfuboltanum," sagði
Valur. “Eg hef alltaf æft mjög vel,
og þegar ég var að byrja í þessu
æfði ég öll sumur — alltaf þegar
ég mögulega gat.“
Það hefur greinilega skilað
árangri, því Valur hefur um árabil
verið einn allra besti leikmaður
Njarðvíkinga, liðsins sem krækt
hefur í fleiri meistaratitla í íslensk-
um körfuknattleik að undanförnu
en nokkurt annað. Valur skorar
sjaldan undir tuttugu stigum í leikj-
um liðsins og oft yfir 30, þrátt fyrir
aö andstæðingarnir leggi jafnan
höfuðáherslu á að stöðva hann.
"Körfuboltinn býður upp á allt
sem ég sækist eftir í íþróttunum,
fjölbreytileika, spennu og mikla
hreyfingu. En ástæðan fyrir því að
ég valdi körfuboltann, en ekki t.d.
handbolta, er eflaust sú að hér í
Njarðvíkunum voru allir í körfu-
bolta. Meistaraflokksliðinu hefur
gengið vel, á meðan handboltinn
og fótboltinn hafa aldrei náð fót-
festu hérna. Eg hef aldrei snert á
handbolta en fótbolta dútlaði ég í
í tvö sumur — spilaði með fjórðu
deildar liði Hafna," sagði Valur.
En hvernig stendur körfuknatt-
leikurinn um þessar mundir að
mati Vals? „Mér líst vel á þetta.
Það koma alltaf einn eða tveir
mjög góðir leikmenn fram á hverju
ári hjá okkur hérna í Njarðvík, og
líka í hinum liðunum. Körfuboltinn
er í greinilegri framför. Það sést
Bikarkeppnin íkörfu:
Úrslitíkvöld
Urslitaleikirnir í bikarkeppn-
inni í körfuknattleik, í karla- og
kvennaflokki, fara fram í Laug-
ardalshöllinni f kvöld. Kl. 19.00
leika IS og KR í kvennaflokki og
kl. 21.00 Haukar og UMFN f
karlafiokki.
Heiðursgestur á
leikjunum verðir Arni Þór Arna-
son, framkvæmdastjóri Austur-
bakka, en það fyrirtæki hefur
stutt Körf uknattleikssambandið
f vetur. Arni Þór mun afhenda
sigurlaunin að leikjunum lokn-
um.
Leikur Hauka og UMFN er
viðureign tveggja bestu körf-
knattleiksliða landsins, og útilok-
að að segja fyrir um úrslitin.
Sennilega verður leikurinn bæði
spennandi og vel leikinn, enda
hafa leikir liðanna verið þannig i
vetur. Dómarar verða Jón Otti
Olafsson og Hörður Túliníus og
er leikurinn sá síðasti sem Hörð-
ur dæmir á 25 ára ferli sínum.
Við vinnum
þrefalt í ár
- segir Ágúst Líndal þjálfari KR
„ÞETTA verður erfiður leikur, það
er ekki nokkur vafi á þvf. Við
KR-ingar munum koma jafn sterk-
ar til þessa ieiks og við höfum
gert f leikjunum í vetur, það er
allar stúlkurnar heilar og við
erum ákveðin f að vinna þrefalt
í ár,“ sagði Ágúst Lfndal þjálfari
KR-inga þegar við ræddum við
hann í gær um bikarúrslitaleik
KR og IS í kvennaflokki en leikur-
inn verður í kvöld klukkan 19 f
Laugardalshöll.
KR og ÍS hafa leikið tvo leiki f
vetur í íslandsmótinu og unnu
KR-ingar báða leikina. Viö spurð-
um Agúst hvort KR-ingar væru
ekki sigurvissir vegna þessa.
„Nei, stúdínur koma mjög sterk-
ar til þessa leiks og við vanmetum
þær alls ekki. Þó svo við höfum
unnið leikina tvo í (slandsmótinu
þá erum við alls ekkert sigurviss
en ætlum okkur auðvitað að
vinna."
Kolbrún Jónsdóttir þjálfari ÍS:
Á hreinu að
við vinnum
„ÞESSI leikur leggst bara vel í
mig, það þýðir ekkert annað“,
sagði Kolbrún Jónsdóttir þjálfari
ÍS er við spurðum hana hvernig
henni litist á úrslitaleikinn við KR
í bikarkeppni KKÍ sem fram fer í
kvöld klukkan 19 f Laugardals-
höll.
„Það er alveg á hreinu aö við
vinnum þennan leik. Við erum bún-
ar að tapa tvívegis fyrir KR í vetur
og það er alveg nóg. Það kemur
ekkert annað til greina en að vinna
þennan leik.“
Stúdínur eru ekki óvanar að vera
í úrslitum bikarkeppninnar því frá
árinu 1978 hefur liðið leikið alla
úrslitaleikina nema árið 1982 er
KR og Njarðvík léku til úrslita. í
fyrra vann ÍS lið ÍR í úrslitaleik og
þar áður tapaði liðið fyrir Haukum
en Kolbrún var einmitt þjálfari hjá
Haukum þá. Stúdínur hafa fjórum
sinnum unnið bikarinn frá því árið
1978 og eru ákveðnar, eins og
KR-ingar reyndar einnig, í að vinna
íkvöld.
best á því að landsliðið er farið
að vinna lið sem við töpuðum fyrir
áður, eins og t.d. Austurríki sem
við unnum í síðustu landsliðsferð,"
sagði Valur.
Valur er margfaldur ísiands-
meistari, landsliðsmaður og hefur
verið valinn besti leikmaður lands-
ins oftar en einu sinni. Er að nokkru
að keppa lengur hér á Islandi fyrir
svona mann? „Mér finnst nú orðið
voðalega lítið eftir," sagði Valur,
„þó ég sé alis ekki að hugsa um
að hætta. Eg hef t.d. aldrei unnið
bikarinn.'"
Valur er 24 ára verslunarmaður.
• Valur: Njarðvfkingar ætla að
ná bikarnum af Haukum.
Pálmar Sigurðsson:
• Pálmar: Haukar ætla sór að
halda bikarnum.
Drengjalandsliðið
kveikti áhugann
PALMAR Sigurðsson byrjaði eins
og flestir ungir Hafnfirðingar með
fþróttaáhuga á þvf að æfa hand-
bolta — og reyndar knattspyrnu
og frjálsar íþróttir einnig. En eftir
að hann var valinn f drengjalands-
liðið í körfuknattleik komst ekkert
annað að en karfan.
“Það er án efa skýringin á því
að ég valdi körfuboltann," sagði
Pálmar. „Þegar maður fær slíka
hvatningu verður áhuginn miklu
meiri. Svo þegar ég náöi smám
saman betri tökum á þessu og
fann að ég fór að ná verulega góð-
um árangri þá varð ekkert aftur
snúið."
Þegar Pálmar var að stíga sín
fyrstu spor í körfuknattleik fullorð-
inna voru Haukar í annarri deild.
„Þessi hópur sem liðið byggist á
núna hefur haldið saman alveg frá
þeim tíma, og hefur fengið að þró-
ast rétt og vel — þökk sé Ingvari
Jónssyni, sem þjálfaði okkur fram-
an af, og Einari Bollasyni sem tók
seinna við iiðinu. Við byjuðum í
annarri deild, fórum upp í fyrstu,
vorum þar í tvö ár áður en úrvals-
deildin tók viö. i fyrra urðum við
svo bikarmeistarar og nú erum við
alveg á toppnum og sættum okkur
helst ekki við minna en sigur á
þeim mótum sem við tökum þátt
*i, sagði Pálmar.
En eru Haukarnir þá blaðra sem
AP/Sínuunynd
• Hans Petor Briegel skorar hór fyrra mark V-þjóðverja f lelknum f
gær gegn Brasilfu.
Kærkominn sigur
VESTUR-Þjóðverjar unnu kær-
kominn sigur á Brasilfumönnum
f Frankfurt f gærkvöldi með
tveimur mörkum gegn engu.
Þjóðverjarnir fengu óskabyrjun
þegar Hans Peter Briegel skoraði
gott skallamark strax á annarri
mínútu leiksins. Þetta eina mark
skildi liðin að í 86 mínútur, eöa
allt þar til tvær mínútur voru til
leiksloka að Klaus Allofs bætti
öðru marki við. Það kom eftir
hörmuleg varnarmistök hins fræga
miðvallarleikmanns Brasilíu, Fal-
cao.
Leikurinn var liöur í undirbúningi
beggja liða fyrir Heimsmeistara-
keppnina í Mexíkó og eftir slakt
gengi Vestur-Þjóðverja að undan-
förnu er sigurinn uppreisn æru
fyrir Franz Beckenbauer, lands-
liðsþjálfara.
springur þegar núverandi leik-
menn heltast úr lestinni? „Nei,
þvert á móti,“ sagði Pálmar. „Það
er mikil uppsveifla í körfuboltanum
hérna í Hafnarfirði, eins og sjálf-
sagt er algengt á stöðum þar sem
meistaraflokksliðinu gengur vel.
Það tók Njarðvíkinga mörg ár að
ná þeim stalli sem þeir eru núna
á, og ég held að það veröi mörg
ár þangað til Haukarnir fara að
dala aftur."
Njarðvíkingarnir létu Haukana
ekki taka frá sér (slandsmeistara-
titilinn um daginn, en láta Hauk-
arnir þá ná af sór bikarnum, sem
þeir unnu í fyrra? „Nei, það er
ekki á stefnuskránni. Þetta verður
mikill hörkuleikur, mikill baráttu-
leikur tveggja jafngóðra liða. En
við ætlum okkur að halda titlinum."
Pálmar er 23 ára bankastarfs-
maður.
Oxford á
Wembley
DRAUMUR Henson um aö koma
búningum sfnum á Wembley
rættist ekki. Aston Viila tapaði f
gærkvöldi fyrir Oxford 2:1 f und-
anúrslitum Mjólkurbikarsins og
leikur viö QPR f úrslitum. Everton
vann Luton 1:0 og Sheffield
Wednesday vann West Ham 2:1
f átta liöa úrslitum bikarsins. Þá
vann Leicester Birmingham 4:2 f
deildinni.
Bogdan
valdi hóp
AÐUR en Bogdan landsliðsþjálf-
ari hélt utan til Póllands í gær-
morgun valdi hann 22 manna
landsliðshóp til aö taka þátt í
æfingum sem fyrirhugaöar eru
snemma í sumar. f þessum leik-
mannahópi eru allir sextán leik-
mennirnir sem tóku þátt í HM f
Sviss, þrátt fyrir yfirlýsingar
sumra þeirra um aö þeir væru
hættir að leika með liðinu.
Auk sextánmenninganna eru í
hópnum: Brynjar Kvaran, Valdimar
Grímsson, Júlíus Jónasson, Karl
Þráinsson, Gylfi Birgisson og Sig-
urður Sveinsson. Að sögn Jóns
Hjaltalíns Magnúsonar er þetta þó
engan veginn endanlegur hópur
fyrir ÓL 1988 og eiga örugglega
fleiri leikmenn eftir að fá tækifæri
til að reyna sig með landsliðinu.