Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986
Sýning 1 Lauga-
lækjarskóla
SYNING verður í Laugalækjar-
skóla við Sundlaug'aveg' um helg-
ina í tilefni 200 ára afmælis
kaupstaðaréttinda Reykjavíkur
og 25 ára afmælis skólans.
Skólinn verður opinn á laugardag
og sunnudag klukkan 13 til 17.
Sýndir verða munir og myndverk
nemenda og kynnt sjóvinna og
heimilisfræði.
Akureyri:
Gunnar aftur
á Hótel KEA
Akureyri.
GUNNAR Karlsson hefur verið
ráðinn hótelstjóri Hótels KEA á
Akureyri frá og með 15. maí nk.
Gunnar er nú framkvæmdastjóri
Kaffibrennslu Akureyrar en
starfaði áður m.a. sem hótelstjóri
á Hótel KEA.
Kristján E. Jónasson, sem venð
hefur hótelstjóri undanfarið, tekur
við starfi yfirmatreiðslumanns.
Veitingastjóri verður Haukur
Tryggvason og yfirþjónn verður
sem áður Þórhallur Amórsson. Olöf
Matthíasdóttir, sem verið hefur
aðstoðarhótelstjóri, mun annast
umsjón gistiherbergja og fleira.
Mývatnssveit:
Vorskemmtun
Skútustaðaskóla
Mývatnssveit.
Vorskemmtun Skútustaða-
skóla i Mývatnssveit var haldin
í Skjólbrekku sl. fimmtudag, 1.
maí.
Þar sýndu nemendur skólans
leikritið „Þrír skálkar" sem gerist
á Sjálandi um miðja 19. öld. Enn-
fremur sýndu nemendur leikritið
„Fjársjóðinn í Árbakkakastala",
sem gerist á írlandi fyrir nokkrum
áratugum. Síðan var danssýning
sem sex stúlkur tóku þátt í. Þá var
einnig leikfimisýning og bænda-
glíma. Góður rómur var gerður af
öllum þessum skemmtiatriðum. Síð-
an gafst viðstöddum kostur á að
skoða teikningar og handavinnu
nemenda í bamaskólanum. Þar fór
jafnframt fram kaffisala. Mikið
Qölmenni sótti þessa vorskemmtun.
Skólastjóri er Þráinn Þórisson.
Kristján
Samræmda prófið
í dönsku:
Síðasti hluti
hlustunarþátt-
ar felldur út
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fella út
síðasta hluta hlustunarþáttar í
samræmda prófinu í dönsku, sem
haldið var 22. april síðastliðinn.
Er þetta gert í samráði við próf-
dómara, þar sem upplestur á
hljómböndunum, sem send voru
út með prófunum, var talinn
óeðlilega hraður.
Talið er að bilun hafi orðið í vél
við upptöku eða fjölföldun band-
anna. Dönskuprófið er alls 100 stig
og skiptist þannig að skilningur á
mæltu máli er 30 stig, skilningur á
rituðu máli 45 stig og málnotkun
25 stig. Vægi fyrri hlustunarþátt-
anna verður aukið þannig að hlust-
unarþátturinn verður eftir sem áður
30 stig. Skólastjórum og kennurum
í 9. bekk hefur verið gerð grein
fyrir þessari ákvörðun og þess ósk-
að að nemendum verði gerð grein
fyrir þessari niðurstöðu við fyrsta
tækifæri.
(Úr fréttatilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu.)
~TJ—y
[70*-
ööO
mTO
'Z-1”
! *— ~/r
4-—
lOO
Oi
Matharn meira
en konungdóminn
1953 lét franska stjórnin þeim í té
hús í Bois de Boulogne í útjaðri
Parísar og þar kölluðu þjónar og
gestir hertogafrúna alltaf „hennar
konunglegu hátign".
Windsor-hjónin voru stundum
sögð stunda samkvæmislífið of
mikið og lifa tilgangslausu lífi, en
hertoginn svaraði því til að upp-
gjafakóngum stæði fátt til boða á
vinnumarkaðnum og hann lét alltaf
lítið yfír sér. Aldrei var að sjá að
hann iðraðist nokkurs og þau hjónin
ákváðu að tala aldrei um það sem
hefði getað orðið. Hjónaband þeirra
var hamingjusamt, þótt því væri
ekki spáð langlífi í fyrstu.
Elísabet drottning II bauð her-
togahjónunum til London 1967 til
að vera við afhjúpun veggtöflu til
minningar um Maríu drottningu og
þar með hlaut hertogafrúin nokkurs
konar konunglega viðurkenningu.
Þegar hertoginn lá banaleguna
heimsóttu drottningin, Filippus
prins og Karl prins hann og konu
hans í París.
Hertoginn af Windsor lézt í maí
1972, 77 ára að aldri. Lík hans
hvíldi á viðhafnarbörum í St.
Georgs-kapellu í Windsor í tvo daga
og um 70.000 manns gengu fram
hjá þeim til að heiðra manninn, sem
lagði niður völd vegna „konunnar
sem ég elska“. Hann var lagður til
hinztu hvíldar í Frogmore-kirkju-
garði á lóð Windsor-kastala, bak
við grafhýsi Viktoríu drottningar.
0 Hertogahjóain ogHitler 1937.
Hann vildi heldur hvíla þar en í St.
Georgs-kapellu, þar sem konungar
Englands eru grafnir, svo að ótigin
kona hans gæti hvílt við hlið hans.
Útlegð hans var lokið.
Hertogafrúin kom til útfararinn-
ar í flugvél Elísabetar drottnmgar
og var gestur hennar í Bucking-
ham-höll, en fór síðan aftur til
Frakklands. Hún lifði flesta ætt-
ingja sína og vini og eignaðist aldrei
börn með þremur eiginmönnum.
Hún var oft veik síðustu æviárin
og sögð óhamingjusöm. Nú fær hún
hinztu hvíld við hlið eiginmanns síns
í enskri mold. Útskúfun hennar er
lokið.
GH
?o
F "H
>>
c/3 m
m«r*
D
_
m a c
m O
0 33
> 0
£5
> z
33 2
C/)C
7C
-<
O
>
33
>
T1
0
m
0
>
-<
33
33
£
7<
C
V
33
I
C
03
r~
c
33
Z
>
33
33 -n
0 c/3 m
O'
>
33
0
m
J2JJCZ
32
33
jj <
m 5
j2o
o.z
u
m
O
>
33
O
O
0
0
m
33
>
0
to
33
>
33
o>
=1
O:
C
33
33
m
Zl
>
m m
A
— 7?
m
O
>
33
0
C
>
33
00
°0
g'2
CZ
o
33
0
C
33
■5
o 3
03 “
35 o> «>
Q> <-*•
3 o
» tv
Í ro<o
co tu