Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 30
30 B MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986 ffclk í fréttum L Lið Pjölbrautaskólans var mætt við afhendingu gjafarinnar, f.v. Guðmundur Hannesson, deildarstjóri IBM, Sigurður Eyþórsson, Sveinn Heigason, Lýður Pálsson og Þór Vigfússon skólameistari. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Myndaflokkurinn um „Kjarnakonu“ Steinar hf. gefa út fram- haldsþætti á myndböndum S teinar hf. hafa tryggt sér út- gáfuréttinn á framhaldi sjónvarps- myndaflokksins „Kjamakonu" (A woman of substance) sem sýndur var í sjónvarpinu fyrir stuttu. Hold the Dream (Haldið í drauminn) kallast framhaldið og tökur fara nú fram í Yorkshire, London, New York, Connecticut, Texas, Irlandi og á Barbados, en þættimir gerast á öllum þessum stöðum. Þættimir um „Kjamakonu" end- Jenny Seagrove fór með hlutverk Emmu Harte ungrar í þáttunum um „Kjarnakonu“. uðu í mars 1968, eftir að Emma Harte hefur tilkynnt ættingjum sín- um að hún ætli að skipta fyrirtækj- um sínum milli bamabama sinna að sér látinni. Það er hins vegar Paula McGill sem stjóma mun sjálfu Harte-McGill veldinu. Debora Kerr leikur hlutverk Emmu Harte á eldri ámm, en Jenny Seagrove leikur dótturdóttur hennar, Paulu McGill. Það var einmitt Jenny Seagrove sem lék hlutverk Emmu Harte á yngri árum í sjónvarpsþáttunum um Kjamakonu og í þessari mynd held- ur hún áfram sem Paula McGill. Framhald „Kjamakonu" fjallar um áframhaldandi fjölskyldueijur, baráttu Paulu við að halda Harte- McGill-veldinu gangandi, forboðnar ástir, valdatafl, hefndir, sorgir og gleði. Sagan spannar þijú viðburða- rík ár frá 1969 til 1971 og lýsir því hvemig Paula McGill glímir við aðsteðjandi vanda af sömu festunni og amma hennar, Emma Harte, á ámm áður. Vinnslu við mynda- flokkinn „Hold the Dream" verður lokið í október og munu Steinar hf. þá gefa hann út á myndböndum hér heima. Þættirnir „Hold the Dream" verða ekki seldir til sjón- varpssýninga á næstunni, enda verða þeir ekki sýndir í bresku sjón- varpi fyrr en eftir mitt ár 1987. SKÓLAKÓR SELTJARNARNESS Safna og1 safna fyrir tónleikaferð til Ítalíu Skólakór Seltjamamess mun leggja upp í tónleikaferð til Ítalíu hinn 16. júní í sumar og em kórfélagar nú að safna fyrir ferðinni. A Italíu mun kórinn koma fram ásamt kór Landa- kirkju í Vestmannaeyjum, fjór- um einsöngvurum og strengja- hljómsveit undir stjóm Guðnýjar Guðmundsdóttur konsertmeist- ara, og flytja m.a. G-dúr messu eftir F. Schubert. Skólakór Seltjamamess mun einnig standa fyrir tveimur tón- leikum hér heima. Af þessu til- Fjölbrautaskóla Suðurlands afhent tölva frá IBM á íslandi — í tilefni af sigrinum í spurningakeppni f ramhaldsskóla Selfossi. IBM á íslandi afhenti Fjöl- brautaskóla Suðurlands að gjöf tölvu ásamt fylgibúnaði að verð- mæti 200 þúsund, miðvikudaginn 30. apríl. Tilefni gjafarinnar var sigur skólans í spumingakeppni framhaldsskólanna. „Það má segja að strákamir séu jafnvirði þyngdar sinnar í gulli," sagði Þór Vigfússon skóla- meistari við móttöku gjafarinnar og lét þess getið að eftir því sem á leið spumingakeppnina hefðu verið að berast inn til stjómar skólans staðfestingar sveitarfé- Áhugasamir nemendur reyndu tölvuna strax eftir afhending- una, Guðmundur Hannesson fylgist með og útskýrir eigin- Ieika tækisins. laga og sýslumanna á skuldabréf- um vegna nýbyggingar skólans og þegar spumingakeppninni lauk hefði mátt segja að tvöfaldur sigur væri í höfn. Guðmundur Hannesson, deild- arstjóri í PC-deild IBM, afhenti Þór skólameistara gjafabréf fyrir tölvunni og sagði að eina skilyrðið sem fylgdi tölvunni væri að hún yrði notuð í þágu nemenda skól- ans. Tölvan sem afhent var er af gerðinni IBM PC XT einmenn- ingstölva með litaskjá. Henni fylg- ir innskriftarborð, tvö diskettudrif og prentari. Vinnsluminni tölv- unnar er 256 k. Tölvunni fylgir forritasafn, stoð, ritvinnsluforrit, gagnagmnnsforrit, skýrslugerð- arforrit, teikniforrit og grafískt forrit. Ennfremur fylgja hand- efni verður gefinn út bæklingur sem ásamt efnisskrá inniheldur kveðju frá bæjarstjóra, borgar- stjóra og forseta íslands, og verður bæklingnum dreift á þeim tónleikum sem haldnir verða hér heima og á Ítalíu. En það er að sjálfsögðu ekki auð- hlaupið að því að fjármagna för sem þessa fyrir lítinn stúlkna- kór. Því hefur sú leið verið valin að leita til stærri fyrirtækja á Stór-Reykjavíkursvæðinu í von um ijárhagsaðstoð. Skólakór Seltjarnarness ásamt kórstjóranum, Margréti Pálmadóttur. Aftari röð f.v. Heiðrún, Sonja, Fanney, Soffía, Margrét Pálma kórstjóri, Reg- ína, Líney, Þorgerður og Eygló. Fremri röð f.v. Kristbjörg, Dalla, Þórunn, Diljá, Kristín, Ólöf, Andrea og Harpa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.