Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.05.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986 B 21 aðferðir barokk-meistaranna, stundum jafnvel enn eldri aðferðir, með þeim hætti að auðvelt er að fylgjast með því sem á seyði er. Hann er einnig ófeiminn við endur- tekningar, jafnt smáatriða sem stærri þátta, og skapar þannig mjög auðgreinanleg form, þótt ekki geti þau talist hefðbundin. í öllu þessu ber mikið á milli „Pólsku sálumess- unnar" og þeirrar hugvitssamlegu pappírstónlistar sem margir jafn- aldrar og fyrrum samheijar tón- skáldsins hafa lagt mesta rækt við. Það ber ekki svo að skilja að Penderecki hafi lagt fyrir róða tón- smíðatækni tuttugustu aldar að fullu og öllu. Hann virðist engu hafa gleymt, aðeins ákveðið að nota sér litróf tónanna allt, án tillits til þess hvort einstök fyrirbæri hafi verið í tísku, eða „í stflnum“, fyrr eða síðar. Hér kemur allt fyrir: einradda línur sem minna á foman kirkjusöng, tónaklassar í hljómsveit og kór sem eru algert 20. aldar fyrirbæri og allt þar á milli, t.d. langur kórkafli án undirleiks (Agn- us Dei) unninn með aðferðum sem minna helst á flæmska meistara frá 15. eða 16. öld. Víst er þetta stundum nokkuð furðuleg blanda, en hún er áhrifamikil og verkið í heild svo dramatískt að helst jafnast á við Sálumessu Verdis. Hið eina sem snart þennan áheyranda óþægilega var að einsöngvurunum (einkum sópraninum) voru stundum lagðar í munn laglínur sem voru svo langt sóttar og kröfðust slíkrar raddfimi að þær virtust beinlínis spaugilegar í þessu samhengi. Einsöngvaramir vom frábærir: Pólsku söngkonumar Jadwiga Gadulanka (sópran) og Jadwiga Rappé (alt), pólskur tenor, Wieslaw Ochman, og enski bassinn Stafford Dean. Einkum þótti mér altröddin einhver hins stórfenglegasta sem ég hef nokkru sinni heyrt. Kór og hljómsveit Konunglegu óperunnar skiluðu sínum erfíðu hlutverkum með mikilli prýði. Á stjómandapallinum stóð svo höfundurinn sjálfur, Krzysztof Penderecki, glæsilegur og mikilúð- legur maður, og stýrði flutningnum með fumlausum myndugleika og án allrar tilgerðar. I I Amsterdam: Japani hand- tekinn með eitt kíló af TNT-sprengiefni Kom með flugvél frá Júgóslavíu Amsterdam. AP. JAPANI var handtekinn á Schip- hol-flugvelli í Amsterdam á fimmtudagskvöld með eitt kíló af TNT-sprengiefni og sex raf- eindahvellhettur i fórum sfnum. Hann kom með flugi frá Belgrað, höfuðborg Júgóslavíu, að sögn lögreglunnar. Talsmaður lögreglunnar, Rik Hirs, sagði, að Japaninn, sem aðeins var tilgreindur með upphafsstöfum sínum, Y.U., samkvæmt venju hjá hoilensku lögreglunni, hefði haft í höndunum miða sem gilti báðar leiðir milli Belgrað og Júgóslavíu. „Hann tók flugvél frá júgóslavn- eska ríkisflugfélaginu í Belgrað á fímmtudagsmorgun," sagði Hirs og bætti við, að flugið til baka hefði ekki verið dagsett á farseðlinum. „Við höfum enga hugmynd um, hvemig maðurinn gat komist með sprengiefnið um borð í flugvélina," sagði Hirs í viðtali við AP-frétta- stofuna. Ekki hefur enn verið upplýst, hvert ferðinni var heitið með sprengiefnið eða hvort Holland var lokaákvörðunarstaðurinn. „Maðurinn hefur borið við yfír- heyrslur, að hann hafí ekki vitað um sprengiefnið og annað hefur ekki fengist upp úr honum," sagði Hirs. Tónleikar í Norræna húsinu á morgrin DÓRA Reyndal sópransöngkona og Vilhelmina Ólafsdóttiri píanó- leikari halda tónleika í Norræna húsinu næstkomandi mánudags- kvöld, 5. maí, klukkan 20.30. Á efnisskránni verða: Liederkreis opus 39 eftir Robert Schuman, La Courte Paille eftir Francis Poulenc og Quatre Chansons de Jeunesse eftir Claude Debussy. Dóra hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og var um þriggja ára skeið við söngnám erlendis. Hún lauk kennaraprófi við Söngskólann í Reykjavík 1980 og hefur síðan starfað sem söngkennari við Söngskólann og Kennaraháskóla isianus. uóra hefur tekið þátt í mörgum óperu- og Ijóða- námskeiðum, aðallega í Vín og síðast- liðin þijú sumur hjá Lore Fisher í Weimar. Hún hefur komið fram á mörgum tónleikum hérlendis og er- lendis. Vilhelmína Ólafsdóttir lauk einleik- ara- og píanókennaraprófi frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík árið 1975. Að loknu námi hefur Vilhelmína sótt einkatíma við tónlistarháskólann í Hamborg og hjá Ama Kristjánssyni, auk þess að sækja hin ýmsu námskeið í einleik og undirleik. Vilhelmína starf- ar nú sem píanóleikari og undirleikari við Nýja tónlistarskólann. Dóra Reyndal, sópransöngkona. Vilhelmína Ólafsdóttir, pianóleikari. -STEINAR Góð lausn í garðinn þinn U-steinum má raða saman á óteljandi vegu og nota í nánast hvað sem er: blómaker og hleðslur, borð og stóla og útigrill, svo nokkur dæmi séu nefnd. Með U-steinum má t.d. leysa hæðamismun á smekklegan hátt, afmarka leiksvæði fyrir börnin og útbúa tröppur í ýmsum stærðum og gerðum - allt á skemmtilegan og stílhreinan hátt. Við söluskrifstofu okkar að Breiðhöfða 3 höfum við komið upp sýningaraðstöðu fyrir framleiðslu okkar. Þar getur þú séð U-steina í notkun svo og flestar aðrar gerðir af hellum og skrautsteinum sem við framleiðum. Söluskrifstofan er opin virka daga frá kl. 9-18, og á laugardögum frá kl. 9-15, þar getur þú einnig fengið litprentaðan bækling með ýmsum hugmyndum um notkun skrautsteina og hellna. BJHLVAIiAf ~ir STEIN AVERKSMIÐ) A Söluskrífstola . Sýningarsvæði i e» \ Breiðhöfóa 3 J § Sími (91) 68 50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.