Morgunblaðið - 04.05.1986, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986
B 25
Bændur verða gjarnan
fyrir mengun af
þurrheyi, sem getur leitt
til lungnasjúkdóma. I
samvinnu við
Bændaskólann á
Hvanneyri er
Vinnueftirlitið að mæla
mengun við heygjöf. Þá
er bóndi látinn bera
mælitæki við vit sér
meðan hann er að gefa,
eins og sést hér á
myndinni sem tekin var
nýlega í Borgarfirðinum.
hvcrs konar mengun fólk verður
fyrir og hjá bændum verður þá
fyrst fyrir ryk í heyi. Þekktar eru
rannsóknir Olafs heitins Björns-
sonar læknis á Hellu á heymæði
meðal íslenskra bænda, sem alltaf
er vísað til í erlendum vísindaritum.
Það er dálítið skemmtilegt að þar
er jafnan gefin skýring á orðinu
heymæði, sem þýtt var á ensku
sem Hayshortness-of-Breath.
Þetta þykir mörgum Englending-
um skrýtið því þeir eru vanir að
kalla þennan sjúkdóm „bænda-
lungu". En þetta sýnir hve okkar
mál er skýrt og gott. Þarna felst
í heitinu bæði orsök kvillans, hey,
og sjúkdómslýsingin, mæði. Við
athuganir á þessu er mælt í bænd-
um mótefni gegn myglugró, sem
er í þurrheyinu. Það sýnir hvort
þeir hafa orðið fyrir þessari meng-
un. En samstarfshópur undir for-
ustu Ólafs Ólafssonar landlæknis
hefur verið að rannsaka heymæði
og asma hjá bændum og um þann
þátt er auðvitað samvinna við þá.
Vegna þessarar mengunar eiga
bændur á hættu að fá lungnasjúk-
dóma af ýmsu tagi. Og þá vill
maður athuga hvort þess sjáist
merki í dánarmeinum þeirra."
En bændur geta orðið fyrir
ýmissri annarri mengun en hey-
ryki, og þá mismikið eftir búskap-
argreinum. Bændur t.d. nota til-
búinn áburð og ýmiskonar skor-
dýraeitur, nota sterk efni við að
baða fé og fá það á sig, þeir nota
mikið vélar og verða fyrir útblæstri
frá þeim og fá á sig smurningsefni,
nota hreinsiefni til að þvo mjalta-
vélamar o.fl. Það er ekki svo fátt
sem getur haft áhrif á þá, enda
eru þeir þúsundþjalasmiðir. Þá er
spurning hvaða áhrif titrandi hand-
verkfæri hafa, mishitun þegar allt-
af er verið að fara úr útikulda inn
í mikinn hita o.s.frv. „Yfir öllu
þessu velta menn vöngum," segir
Vilhjálmur. „En til að geta fundið
einhvern heilsufarsvanda, sem ef
til vill má koma í veg fyrir, þá
verður að skoða mjög stóran hóp
úr stéttinni.“
Nú er því haldið fram að heilsu-
samlegt sé að vera mikið úti og
hreyfa sig mikið. Er það ekki ein-
mitt þetta sem bændur gera yfir-
leitt? „Jú, bændur lifa öðruvísi lífi
en borgarbúar. Þeir ráða sínum
tíma og lifa streituminna lífi,
“svarar Vilhjálmur. „Lífsstíllinn er
annar og heilbrigðari. Þeir nota
minna áfengi og reykja minna og
fá líkamlega áreynslu. Enda býst
maður við að sjá í þessari könnun
að bændur lifi vel og lengi miðað
við aðrar stéttir. Sú ágiskun bygg-
ist á erlendum rannsóknum, sem
sýna að bændur lifa allra stétta
lengst. Þetta er mjög almennt er-
lendis og ég á von á því að svo
verði einnig hér.“
„Hitt er annað mál að þótt þeir
ráði betur við aðra sjúkdóma en
fólk almennt, þá getur komið fram
að lungnasjúkdómar séu tíðari
meðal íslenskra bænda en annars
fólks, sem þá þarf að bregðast við.
Einn og einn sjúkdómur getur verið
ríkjandi í annars heilbrigðum hópi.
Ákveðin krabbamein hafa til
dæmis tengst bændum í erlendum
rannsóknum, t.d. blóðsjúkdómar
og magakrabbamein. Um það
verður ekkert sagt hér og alltaf
verður að fara varlega í að draga
ályktanir frá útlöndum. Maður
lærir aðferðirnar erlendis og þarf
svo að kunna að nýta þær við aðrar
aðstæður heima. Okkur er því
nauðsynlegt að gera þessa könnun,
sem við erum að byrja á, til þess
að vita t.d. hvort lungnasjúkdómar
er svo alvarlegt vandamál hér
meðal bænda að það leiði til
dauða.“
Sérstök örveruflóra í
íslensku heyi
Og hvernig verður framhaldið?
„Samhliða könnuninni á banamein-
um bænda, þarf að skoða aðstæður
þeirra sem eru á lífi. í samvinnu
við Bændaskólann á Hvanneyri og
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
erum við að mæla mengun þar sem
gefið er hey. Þetta er mælt við vit
bóndans meðan hann er að gefa.
Hann ber sýnitökutækið á sér.
Ætlunin er að telja örverurnar í
andrúmsloftinu meðan hann er að
gefa heyið. Þai-f að telja bæði lif-
andi og dauðar örverur. Talið að
þessi örveruflóra, micropolyspora
faeni, sé sérstaklega mikil á ís-
landi. Það sem við viljum fá út úr
þessari rannsókn er að geta gefið
bændum ráð um hvers konar hey-
verkun framleiðir hey sem veldur
minnstum skaða og það verður að
gera í samvinnu við bændur.“
Ermeiraálagá
f iskvinnsluf ólki?
Að lokum leiðum við talið að
atvinnusjúkdómum fískvinnslu-
fólks, sem mikið hefur verið rætt
um að undanförnu og Vilhjálmur
Rafnsson segir: „Við erum einmitt
að ráðast í mikla rannsókn á fisk-
vinnslufólki. Og þá sérstaklega til
að skoða álagsþáttinn í þeim til-
gangi að bæta aðstöðuna við vinn-
una. Til þess þarf að kanna með
úrtaki hvort fískvinnslufólk fær
meira álag af einhveiju tagi en
þjóðin almennt. Þegar um er að
ræða helstu stétt þjóðarinnar
dugar ekki að hafa uppi barlóm án
þess að vita hvert þetta ákveðna
álag er. Við verðum að vita hvort
til er einhver tækni sem getur hlíft
þessu fólki við ákveðnum álags-
þáttum. Bæði stjórnendur og
starfsfólk vilja komast að þessu.
Og við erum byijaðir að kynna
þessa fyrirhuguðu rannsókn hjá
hagsmunaaðilum. Verið er að taka
úrtak úr þjóðskránni og verða lík-
lega í því 500-1000 manns."
„Hugmyndin er að fara svo í
verstöðvarnar sjálfar og skoða
aðstæður, birtu, hitastig, borðin
sem unnið er við o.s.frv. Þetta er
mjög mismunandi eftir stöðum.
Eftir að gögnin liggja fyrir er
ætlunin að gera tillögur um úr-
bætur. Þá þarf að skoða eftir
nokkurn tíma hvort við höfum þar
haft erindi sem erfiði. Engum er
hollt að of hratt verði farið í breyt-
ingarnar. En það sem mestu máli
skiptir er að gott samstarf fáist
við fólkið sjálft, við hönnuði, stjórn-
endur og starfsfólk allt. Þetta
hefur verið kynnt bréflega, en við
viljum líka ræða málið við þá sem
það varðar. Svona kannanir eru
dýrar og hagsmunaraðilar þurfa
líka að taka þátt í þeim.“
Allt miðar þetta að samhæfíngu
mannsins við vinnuna. Það kallast
á erlendum málum ergonomia og
Vilhjálmur Rafnsson yfirlæknir vill
kalla það á íslensku iðjufræði. En
áður en samhæfing getur farið
fram, verður að liggja fyrir af
hveiju fólki líður illa. Og þá er ein
aðferðin að athuga kvillana eftir
stéttum og vita hvað og hvernig
fólk í ákveðnum stéttum hefur fyrir
stafni. Áþreifanlegasti endirinn á
sjúkdómum er dauðinn og því er
bytjað á að kanna banameinin. En
þegar svo langt er komið hefur
ýmislegt venjulega á undan geng-
ið. Og ef til vill stafar það af því
hvað viðkomandi maður hefur gert
og hvernig hann hefur hegðað sínu
lífí. Því er gripið til þeirrar gamal-
reyndu aðferðar að reyna að rekja
óþægindin til uppruna síns. Það
er kjarninn í þeim könnunum sem
nú er verið að vinna hjá Vinnueftir-
liti ríkisins undir stjóm Vilhjálms
Rafnssonar, yfírlæknis. Og verður
fróðlegt að sjá hvort t.d. bændur
reynast allra Islendinga elstir, eins
og víða er raunin annars staðar
og þrátt fyrir vissa áhættuþætti,
sem e.t.v. má fjarlægja.
Texti: Elín Páimadóttir
LYFTARAR
TIL SÖLU
CATERPILLAR
V 80
Brettalyftari
árg. 1978
Lyftigeta:
4.000 kg/ 60 cm
CATERPILLAR
AM 30
Gámalyftari
árg. 1974
Lyftigeta:
14.000 kg/120 cm
Lyftararnir eru staðsettir í
vöruafgreiðslu
EIMSKIP
ÍSAFIRÐI
Nánari upplýsingar
veittar í síma 94 - 4555
HAD ER EKKERT
MÁL AÐ HLEYPA
BIRTUNMINN
Áratuga reynsla hefur kennt okkur að
bregðast skjótt við séróskum og
óvenjulegum hugmyndum með
hagkvæmni í huga. Margvísleg form,
kringlótt, ferköntuð, kúpt eða
píramídalaga af mismunandi stærðum
gefa kost á óteljandi lausnum.
Hafðu samband við okkur með
ÞÍNAR hugmyndir.
E4GMEKNÍ
Lágmúla 7, 108 Reykjavík S 688595