Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1986
B 39
Hverleikur James Bond?
Enn eru menn að velta því
fyrír sér hver komi til með að
leika hinn eina og sanna James
Bond, en áður en yfirlýsingin
kemur frá framleiðandanum
skulum við athuga hverjlr koma
til greina.
Bráðum veröur þurrausiö allt
það efni sem lan heitinn Fleming
skildi eftir sig, allar skáldsögurn-
ar eru þegar komnar á sellulósa,
svo framleiðandinn Broccoli vílar
ekki fyrir sér að búa til heila
mynd eftir hugmyndum sem
Fleming rissaði niður á blað.
Naesta mynd mun heita The
Living Daylights, og verður sýnd
sumarið 1987.
Aðeins eitt er víst: Sean Conn-
ery, George Lazenby og Roger
Moore leika ekki James Bond.
Heyrst hefur að leikarinn verði
algerlega óþekktur, en meðal
þeirra sem nefndir hafa verið
eru: Bryan Brown, Ástralinn sem
lék m.a. í Þyrnifuglunum og Viða
liggja vegamót, Ástralinn
Andrew Clarke sem enginn kann-
ast við, Lewis Collins sem er
Af hverju ekkl Woody Allen?
Christopher Lambert og Bryan Brown koma til greina sem James
Bond, því Roger Moore er orðinn of gamall.
þekktur hasarnagli og banda-
rísku sjónvarpsleikarnir Pierce
Brosnan (Remington Steele) og
Simon MacCorkingdal (Falcon
Crest). En stærsta nafnið er svo
Christopher Lambert, sem (s-
lendingar þekkja sem Tarzan
apabróður.
„Ég er of vinsæll
— segir Spielberg
„Málið er einfalt, ég er of vinsæll," sagði Steven Spielberg blaða-
mönnum þegar hann var krafinn skýringar á því hvers vegna mynd
hans, The Color Purple, fékk engin Óskarsverðlaun. Leikstjórinn var
staddur i ísrael, ásamt nokkurra mánaða gömlum syni og konu sinni,
Amy Irving, sem var að leika í ísraelskri mynd.
„Hollywood fyrirgefur vinsældir
mynda minna ef til vill þegar ég
nálgast sextugsaldurinn," sagði
Spielberg enn fremur. Hann dreif
sig strax til Bandaríkjanna eftir
loftárásina á Líbýu og ætlar að
halda sig þar, enda hefur hann í
mörgu að snúast, með um það bil
fimmtán myndir á prjónunum.
Nánasti samstarfsmaður Spiel-
bergs, Kathleen Kennedy, hefur
tilkynnt að Spielberg sé með sjö
myndir í vinnslu, og sex aðrar sem
séu á frumstigi, en Spielberg sjálf-
ur mun leikstýra einni eða tveimur,
hinar verða unnar eins og Greml-
ins og Aftur til framtíðar. Þessar
myndireru:
Ævintýri um Pétur Pan, sem
tekin verður i Englandi á þessu ári,
handritið er eftir þá sem sömdu
Stríðsleiki, Michael Jackson mun
ekki leika í henni!
Poltergeist Sl verður tilbúin á
þessu ári.
Endurgerð á fjörutíu ára gamalli
mynd, A Guy Named Joe með
SpencerTracy, sem heitir Always,
hún hefur veriö svo lengi i bígerö
að gárungarnir nefna hana Never.
Indiana Jones ill, sem Spiel-
berg gerir sjálfur, tökur hefjast í
janúar 1987.
Gremlins II verður gerð í sumar,
Terry Jones úr Monty Python-
hópnum samdi handritið og Joe
Dante leikstýrir.
Spielberg samdi við Hergé um
að gera mynd eftir bókunum um
Tinna, en nú er Hergé látinn, en
ætli Spielberg spjari sig ekki án
hans.
Batteries Not Included er
möguleg hugmynd, sem upphaf-
lega átti að gera fyrir sjónvarp, en
Spielberg vill fá Matthew Robbins
(sem hjálpaöi Spielberg við að
gera Sugarland Express) sem leik-
stjóra.
Svo eru sex stykki sem bíða
ákvörðunar leikstjórans vinsæla:
The Talisman (Verndargripurinn),
byggð á bók Stephen King;
Schindler’s List eftir bók Thomas
Kennelly (Karl Luedtke, sem samdi
Jörð í Afríku, vinnur að handritinu);
Car Pool og Back to the Future
II, sem Robert Zemeckis vinnur
að; og farsinn Noises Off eftir
Michael Frayn en hann hefur verið
sýndur í Þjóðleikhúsinu.
Steven Spielberg or með mörg jám i oldinum, að vanda. Hér sést
liann ásamt Whoopi Goldberg, sem leikur í „The Color Purple“.
Jennifer Jason Leigh og Rutger Hauer leika aðalhlutverk í nýjustu mynd Paul Verhoevens.
PauB Verhoeven uppgötvar nyja Beikkonu:
Paul Verhoeven er afkastamik-
ill kvikmyndagerðarmaður, hann
gerir nánast eina mynd á ári, en
íslenskir kvikmyndahúsaeigend-
ur hafa ekki séð ástæðu til að
sýna myndir hans, sem sætir
furðu því þær þykja góðar og
njóta allar vinsælda, að minnsta
kosti heima hjá honum í Hollandi.
Verhoeven vinnur um þessar
mundir að nýrri mynd sem heitir
Af holdi og blóði (enskur titill Flesh
and Blood) og hefur hann fengið
fjóra ágæta leikara til liðs við sig.
Þeir eru Rutger Hauer, Jack
Thompson (Ástrali), Tom Burling-
son og unga og efnilega leikkona
að nafni Jennifer Jason Leigh.
Verhoeven og Ruger IHauer þekkj-
ast frá fornu fari því þeir byrjuuöu
nð vinna saman upp úr 1970 er
þeir gerðu myndirnar Turkish Del-
ight og Soldier of Orange. Hauer
hefur síðan komið víöa við, lék
rneðal annars í Blade Runner og
Ladyhawke.
Nýja myndin var tekin á Spáni.
Verhoeven leitaði vel og lengi að
leikkonu í aðalhlutverkið, sem að
hans sögn átti að vera eins konar
Vivien Leigh miðaldanna. Hann
valdi fyrrnefnda Jennifer Jason
Leigh, sem er dóttir Vic heitins
Morrows, leikarans sem fórst við
gerð Spielbergmyndarinnar The
Twilight Zone. Jennifer breytti
nafni sínu svo að fólk bendlaði
henni ekki við föður sinn!
Verhoven samdi við Orion-fyrir-
tækið, en Af holdi og blóði er fyrsta
myndin sem hann gerir á vegum
bandarísks fyrirtækis. Hann ferð-
aðist til Júgóslaviu, Rúmeníu,
Ungverjalands og Tékkóslóvaíku í
leit að hentugum tökustöðum, en
það var ekki fyrr en hann fór til
Spánar að nógu góður staður
fannst. Spánn er rómað fyrir hita-
svækju og sól, en Verhoeven og I sem þau dvöldu þar. Af holdi og
leikarar hans hittu á vondan tima, blóði verðurtekin til sýninga á allra
þvi nístingskuldi herjaði þann tíma | næstu vikum.
Verhoeven gerði , Spettersu fyrír r.okkrum árum, og var hollenska
feikkonan Renne Soutendijk f aðalhlutverki.
Vivien Leigh midaldanna