Morgunblaðið - 12.07.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986
5
ú
Þorsteinn A. Jónsson sagði í
framsöguræðu sinni að það væri
hrein og klár „lygi“, sem haldið
væri fram í forsendum dóma Kjara-
dóms, að Launamálaráðið hefði
ætlað að taka þátt í „þjóðarsáttinni
frá í febrúar“. „Kjaradómur hefur
lýst sig vanhæfan til að Qalla um
okkar mál og því hlýtur niðurstaðan
að vera sú, að þetta hafi verið okk-
ar síðasta tilraun til vitsmunalegrar
kjarabaráttu," sagði hann.
Gunnar G. Schram, formaður
BHM, sagði að aldrei fyrr í sögu
bandalagsins hefði verið unnið jafn
vel að undirbúningi málsóknar og
kjarabaráttu sem nú. Niðurstaða
Kjaradóms nú sýndi svart á hvítu,
að háskólamenn gætu ekki lengur
unað við gildandi lög um kjaramál
sín, Kjaradómur hefði runnið sitt
skeið á enda og frjálsir samningar
hlytu að taka við. Þegar í stað
bæri að heíj'a undirbúning nýrrar
lagasetningar í því skyni.
Tveir aðrir forystumenn úr aðild-
arfélögum BHMR fluttu stutt ávörp
á fundinum en aðeins örfáir fundar-
menn aðrir tóku til máls að loknum
framsöguræðum. Greinilegt var þó
af undirtektum fundarmanna og
máli þeirra, sem stigu í pontu, að
þungt var í þeim og mikið ergelsi
jrfír niðurstöðum Kjaradóms.
I fundarlok gat Þorsteinn A.
Jónsson um næstu skref í kjarabar-
áttu aðildarfélaga ráðsins. „Við
munum strax eftir helgina krefjast
viðræðna um fullan samningsrétt,"
sagði hann. „Við munum segja upp
gildandi samningum og kreflast við-
ræðna um nýjan samning og loks
verða stjómir hvers aðildarfélags
fyrir sig að ganga á fund fjármála-
ráðherra og krefjast þess, að hann
standi við gefín loforð um leiðrétt-
ingu launa okkar. Við verðum að
sanna fyrir fjármálaráðherra, að
þolinmæði okkar er þrotin. Við
munum sækja fulla leiðréttingu á
kjörum okkar, svo ekki muni lengur
að meðaltali 23-24 þúsund krónum
á launum okkar og launum fólks í
sambærilegum störfum á almenn-
um vinnumarkaði. Til að vinna sigur
í þeirri baráttu þurfum við að sýna
samtakamátt okkar,“ sagði Þor-
steinn A. Jónsson.
Landspítalinn:
Neyðarástandi lýst yfir vegna
veikinda hjúkrunarfræðinga
LÝST var yfir neyðarástandi
á fimm handlæknisdeUdum
og einni lyflæknisdeild
Landspítalans í gærdag, þeg-
ar ljóst var að ekki tækist að
sinna lágmarksþjónustu á
kvöld- og næturvakt vegna
veikindaforfalla hjúkrunar-
Seyðisfjörður:
900 manns
og250
bílar með
Norrönu
UM 900 manns og 250 farartæki
komu með færeyska farþega-
skipinu Norrönu til Seyðisfjarð-
ar á fimmtudag. Þar af voru 25
bílar á sóldekki skipsins. Jónas
Hallgrimsson, umboðsmaður
skipafélagsins, segir að gamla
sagan sé að endurtaka sig. Far-
þegarnir og flutningarnir séu að
sprengja skipið utan af sér eins
og gerðist með gamla SmyriIT-
Jónas Hallgrímsson sagði enn-
fremur í samtali við Morgunblaðið,
að útlit væri fyrir svipaðan fjölda
farþega og farartækja í næstu
tveimur ferðum. Ferðir skipsins
hefðu gengið mjög vel í sumar og
nú væri farþegaijöldinn orðinn svip-
aður og á sama tíma í fyrra, þrátt
fyrir að skipið hefði farið einni ferð
minna. Því væri útlit fyrir góða
nýtingu á skipinu og góða afkomu.
Jón Kr. Hafstein tannlæknir kom
til Húsavíkur í vikunni færandi
hendi. í nafni Havsteens-systkin-
anna afhenti hann Safnahúsinu á
Húsavík myndir af sýslumanns-
hjónunum Þórunni og Júlíusi, en
áður hafði Safnahúsinu borist um
100 ljósmyndir til varðveislu, teknar
af byggingu hafnarmannvirkja á
Húsavík, en Júlíus sýslumaður var
á sínum tíma mikill hvatamaður og
forgöngumaður þess. Myndimar
eru flestar teknar af syni sýslu-
mannsins, Jóhanni fv. forsætisráð-
herra, sem á þessum árum vann
fræðinga í BHMR. Neyðar-
ástandinu var aflétt síðar um
daginn, eftir að nokkrir
hjúkrunarfræðingar innan
BHMR urðu við þeirri beiðni
að koma aftur til vinnu.
25 hjúkrunarfræðingar í BHMR
á Landspítalanum tilkynntu áfram
veikindi í gærmorgun, en þeir veikt-
ust skyndilega eftir að úrskurður
Kjaradóms lá fyrir og mættu ekki
til vinnu á fimmtudaginn heldur.
Af þeim sökum varð að fresta að-
gerðum á Landspítalanum, draga
úr innlögnum og flýta útskriftum.
Hjúkrunarframkvæmdastjórar
lýstu svo yfír neyðarástandi í gær,
þegar fyrirsjáanlegt var að öryggi
sjúklinga yrði stefnt í voða í gær-
kvöldi og nótt vegna manneklu.
Birna Flygenring, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri lyflæknisdeilda,
sagði að þá hefði verið gripið til
þess ráðs að hringja í þá hjúkr-
unarfræðinga sem voru frá vinnu
vegna veikinda og biðja þá að koma
á kvöld- og næturvakt. „Hjúkrunar-
fræðingar brugðust vel við og
féllust á að manna deildimar svo
hægt væri að aflétta neyðar-
ástandi," sagði Bima.
Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítalanna, sagði að spítalinn
hefði getað sinnt öilum lífsnauðsyn-
legum hlutum, en vitanlega færi
margt úrskeiðis þegar svo margir
væm frá vinnu. Hann kvaðst ekki
vita hvort áframhald yrði á þessum
forföllum hjúkrunarfræðinga, en
Bima Flygenring sagði í gær að
engin veikindaforföll hefðu verið
tilkynnt í dag.
Árni Reynisson framkvæmdastj óri
Félags stórkaupmanna:
„Enginn ágreiningur
við Verðlagsstofnun“
FRAMKVÆMDASTJÓRI Félags íslenskra stórkaupmanna, Árni
Reynisson, óskaði eftir því að koma á framfæri athugasemdum vegna
ummæla Georgs Ólafssonar, verðlagsstjóra, í blaðinu í gær. „Fyrir-
sögn fréttarinnar gaf það til kynna að enn væri einhver ágreiningur
milli félagsins og Verðlagsstofnunar um samanburð hennar á verði
í Reykjavík og Glasgow. Á fundi okkar á miðvikudag komum við á
framfæri gagnrýni okkar og er ekki lengur um ágreining að ræða.“
Ámi sagði að túlkun manna á fyrir vömr sínar en smásöluverð er
niðurstöðum könnunarinnar hlyti í Glasgow. „Mér fínnst hinsvegar
alltaf að verða smekksatriði. Georg ánægjulegast að í 78% tilvika er
hefði talið það markverðast að í 22% innkaupsverð okkar gott,“ sagði
tilfella borga heildsalar hærra verð Árni.
Sýslumannshj óna
minnst á Húsavík
Húsavík.
100 ÁR ERU á sunnudaginn 13. júií liðin frá fæðingu Júlíusar Hav-
steen fyrrverandi sýslumanns Þingeyinga á Húsavík. í tilefni þess
munu börn hans og aðrir ættingjar minnast þeirra tímamóta á ýms-
an hátt.
við hafnarframkvæmdirnar.
Við lát konu sinnar, frú Þómnn-
ar Havsteen, stofnaði Júlíus sýslu-
maður minningarsjóð til styrktar
börnum og unglingum á Húsavík
og er sjóðurinn í vörslu Kvenfélags
Húsavíkur. í tilefni nefndra tíma-
móta hefur Hafsteins-fjölskyldan
gefið veglegar gjafir til styrktar
sjóðnum. Húsvíkingar minnast
Havsteens-ijölskyldunnar á þessum
tímamótum með vinsemd, hlýhug
og þökk fyrir vel unnin störf.
Fréttaritari
igSAMSUMG
TI/V1AJ\II\IA
TAKN
ÖRBYLGJUOFN
meö snúningsdiski
A VERÐI
SEM SLÆR ALLT ÚT!
Kr. 10.900
stgr.
3.000 út — eftirstöðvar á sex mánuöum!
íslenskur leidarvísir
Námskeið innifalið í verði
L
•f
Laugavegl 63 - Síml 62 20 25