Morgunblaðið - 12.07.1986, Blaðsíða 40
Albert Guðmundsson í bréfi:
Guðmundur vissi um
söfnun Björgólfs Rangt
segir Guðmundur J
Hallargarðurinn við Fríkirkju-
veg 11 er staður sem margir
minnast sem eins fallegasta
garðsins í borginni. Þótt ekki sé
hann sem fallegastur eins og er
er ötullega unnið að þvi að koma
honum í fyrra horf. Garðurinn
var orðinn nokkuð biautur og
ekki vanþörf á að endurnýja
hellulögðu stéttirnar. Skurður-
inn á myndinni er fyrir steyptan
vegg sem á að koma í veg fyrir
að jarðvegurinn skríði fram.
Ekki er langt í að verkinu verði
lokið að sinni og fólk geti tekið
að sleikja sólina á þessum fallega
stað við Tjörnina.
RÍKISSAKSÓKNARI ritaði Rannsóknarlögreglu ríkisins tvö
bréf í gær, þar sem annars vegar kemur fram að ekki sé
talin nein ástæða tii málsóknar á hendur Guðmundi J. Guð-
mundssyni vegna þess fjárstuðnings sem hann þáði frá
Hafskip og Eimskip fyrir milligöngu Alberts Guðmundssonar
og að hann tengist Hafskipsmálinu ekki með öðrum hætti,
og hins vegar bréf vegna rannsóknar á þætti Alberts Guð-
mundssonar, þar sem kemur fram að ríkissaksóknari telji
útilokað að aðgreina rannsókn á hans þætti frá aðalrannsókn
málsins. Hann endursendi því gögn er varða Albert til RLR.
I kjölfar þessarar niðurstöðu
hófust bréfaskriftir á milli þeirra
Guðmundar og Alberts. Guð-
mundur ritar Albert fyrst bréf
þar sem hann segir m.a.: „Nú
liggur niðurstaða saksóknara
fyrir, að ég hef í engu brotið
gagnvart lögum. En það er ekki
allt málið, það vissi ég fyrir.
Hitt er sínu verra: Hin opinbera
rannsókn staðfestir, að pening-
amir komu alls ekki frá þér —
þeir komu með ólögmætum
hætti frá þriðja aðila.“ Að þeim
orðum rituðum segist Guðmund-
ur því senda honum bankaávísun
að upphæð 152.250 krónur, sem
sé höfuðstóllinn ásamt vöxtum
Kona brennd-
ist illa í gas-
sprengingu
KONA brenndist illa er gas-
sprenging varð í eldhúsbifreið í
Atlavík í gærmorgun. Var hún
flutt með hraði á Landspítalann
í Reykjavík.
Tildrög slyssins voru með þeim
hætti að konan hugðist kveikja á
gaseldavél í eldhúsbifreið frá Úlfari
Jacobsen, en ferðamenn á hans
snærum voru í Atlavík. Þegar kon-
an kveikti upp varð mikil sprenging,
svo kröftug að rúða í bifreiðinni
brotnaði. Brenndist konan illa, en
læknanemi, sem var staddur á
svæðinu, gat veitt henni fyrstu
hjálp.
og biður Albert að koma þessum
peningum til skila.
Síðar um daginn svarar Al-
bert Guðmundi með bréfi þar
sem hann segir m.a.: „Frá því
að við töluðum um að ég reyndi
að hjálpa þér til hvíldardvalar
erlendis skv. læknisráði, vissir
þú að ég bað Björgólf Guð-
mundsson, sem vin okkar
beggja, um að standa fyrir söfn-
un til ferðarinnar, en aldrei var
það svo skilið að ég einn léti úr
eigin vasa þær 120 þúsund krón-
ur, sem þú tókst við úr minni
hendi.“ Albert segist jafnframt
ekki treysta sér til þess að verða
við ósk Guðmundar um vinar-
greiða, þ.e. að koma ávísuninni
til skila, þar sem hann óttist að
hann gæti einnig snúist í bjam-
argreiða og endursendir þar með
ávísunina.
í samtali við Morgunblaðið í
dag segir Guðmundur að þessi
bréfaskipti þeirra Alberts hafí
orðið til þess að um vinslit sé
að ræða á milli þeirra. Hann
segist líta á bréf Alberts „sem
hreint óþokkabragð" og séu það
gjörsamlega rangar fullyrðing-
ar, að hann hafi vitað, að
peningamir kæmu ekki frá Al-
bert sjálfum og að Björgólfur
Guðmundsson safnaði þeim.
Sjá bls. 22 og 23 m.a. samt-
öl við Albert Guðmundsson
og Guðmund J. Guðmunds-
son, bréfaskipti þeirra og
bréf ákæruvaldsins.
Hallargarðurinn
gerður upp
Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi:
Þrefalt meiri fisk-
sala nú en í fyrra
FISKSALA dótturfyrirtækja
Sambandsins í Bandaríkjun-
um og Bretlandi er talsvert
meiri fyrri helming þessa árs
Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja:
Tekur Smyril á leigu
vegna þjóðhátíðarinnar
FERÐASKRIFSTOFA Vestmannaeyja hefur gert samning um leigu
á Smyrli, farþegaskipi sem er í eigu Strandfaraskipa landsins i
Færeyjum, vegna komandi þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum, sem hald-
in verður dagana 1.—3. ágúst.
Smyrill var, sem kunnugt er, í
isiglingum fyrir nokkrum árum á
milli Seyðisfjarðar og Færeyja.
Skipið er nú notað í hinar ýmsu
strandferðir og leiguferðir. Engil-
bert Gíslason, framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar, sagði að af-
hending skipsins yrði 30. júlí og
verður því skilað aftur að kvöldi
6. ágúst. „Við fáum skipið afhent
í Færeyjum og hyggjumst þar selja
miða til íslands, á þjóðhátíðina.
Lagt verður af stað kl. 20.00 um
kvöldið og komið 17 tímum síðar
til Seyðisfjarðar. Þar verður selt í
skipið og eigum við von á að fylla
skipið þar af Austfirðingum þar sem
engin Atlavíkurhátfð er í ár. Frá
Seyðisfírði verður farið beint til
Eyja. Síðan er ætlunin að skipið
verði í stanslausum ferðum á milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar á
meðan á þjóðhátíðinni stendur. Á
sunnudeginum er síðan ætlunin að
bjóða gestum upp á a.m.k. tvær
áhugaverðar skemmtisiglingar
kringum Surtsey."
Engilbert sagði að Smyrill tæki
800 farþega í einu og yrði tvo tíma
að fara á milli lands og Eyja. Ekki
er ennþá búið að fullmóta tímatöflu
fyrir Smyril, en Engilbert bjóst við
að farþegar með Smyrli yrðu allt
að 6.000 manns.
en þess síðasta. í verðmætum
talið tæplega þrefaldaðist sal-
an í Bretlandi og í Banda-
ríkjunum var selt fyrir 20%
meira en á sama tíma á
síðasta ári. Aukning í magni
er talsvert minni. Samanlagt
seldu bæði fyrirtækin fyrir
um milljarði meira þennan
tíma en í fyrra.
Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi
seldi fyrstu 6 mánuði ársins 8.142
lestir að verðmæti 13,3 milljónir
punda, 829 milljónir króna. Eftir
sama tíma í fyrra höfðu 4.406 lest-
ir að verðmæti 5,2 milljónir punda,
323.9 milljónir króna verið seldar.
Aukning í verðmætum er tæplega
þreföld og í magni 84,8%. í júní-
mánuði nú voru seldar 1.695 lestir
að verðmæti 2,9 milljónir punda,
180.9 milljónir króna. Er þar um
að ræða tvöföldun bæði í magni
og verðmætum miðað við sama
mánuð síðasta árs, en þá voru seld-
ar 848 lestir að verðmæti 1,2
milljónir punda, 75,9 milljónir
króna. Er þá miðað við meðalgengi
pundsins 62,54 krónur.
Iceland Seafood Corp. í Banda-
ríkjunum seldi fyrstu 6 mánuði
ársins 24.720 lestir fyrir 74,7 millj-
ónir dala, rúma 3 milljarða króna.
Aukning miðað við sama tíma í
fyrra er 20% í verðmætum talið
og 8,9% í magni, en þá voru seldar
22.690 lestir að verðmæti 62,2
milljónir dala, 2,6 milljarðar króna.
í júní voru seldar fískafurðir fyrir
9,9 milljónir dala, 410 milljónir,
sem er 2,1% minna en í sama
mánuði í fyrra.
Veiðibann
ásmábáta
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
nú ákveðið að allar veiðar smá-
báta aðrar en grásleppuveiðar
skuli bannaðar frá fyrsta ágúst
næstkomandi til og með 10. sama
mánaðar.
Bann þetta er samkvæmt lögum
um stjórnun fiskveiða, þar sem
kveðið er á um veiðitakmarkanir
báta undir 10 brúttólestum að
stærð.