Morgunblaðið - 12.07.1986, Page 11

Morgunblaðið - 12.07.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986 11 Jón L. Árnason Ke7, 25. f3 - Eina úrræði hvíts áður en svart- ur tvöfaldar á h-línunni. - hxg3, 26. fxg4 - Bf4, 27. Df3 27. - Hhl+! Annars fær hvítur tíma til að leika 28. Rxg3 — 28. Kxhl - Dh4+, 29. Kgl - Hh8, 30. Rh2! - Eina vörnin sem eitthvert hald var í. Eftir 30. Rxg3 — Bxg3, 31. Kf 1 — Hh6 getur hvítur gefist upp. Bd6! Eftir 30. - Bg5, 31. Kfl - gxh2, 32. Ke2 - e5, 33. g3 á hvítur raunhæfa vamarmöguleika. Það lá heldur ekkert á að hirða riddarann. 31. g5 - Bf4, 32. Kfl - Missir þolinmæðina, en það var heldur enginn góður biðleikur í stöðunni. — gxh2, 33. Ke2 - e5, 34. g3 - Dxg3 — 34. — Bxg3 var ekki síðra, en þegar tímahrakið er á næsta leiti er freistandi að skipta upp í unnið endatafl. 35. Dxg3 — Bxg3, 36. Hhl — e4, 37. Bc2 - Bg4+, 38. Kd2 - Bf4+, 39. Kel - Bf3, 40. Kf2 - Ke6, 41. Bdl - Bxhl, 42. Bg4+ — f5, 43. exf6+ (framhjáhlaup) — Kxf6, 44. Hxhl — Hg8, 45. Bh3 - Hgl, 46. Bg2 - e3+ og hvítur gafst upp. 121.474. Þótt fólkinu hafi fjölgað mikið hefur j)ó bílunum fjölgað miklu meira. Arið 1985 áttu lands- menn 431 fólksbíl og 52,5 vörubíla á hverja þúsund íbúa. Aukningin var mjög ör fram á síðustu ár. 1950 voru fólksbílar 43,9 á þúsund íbúa, 1960 voru þeir 88,5, 1970 vom þeir 202,1, og 1980 hafði þeim fjölgað í 379,9. Síðan þá hægði á aukninguhni fram til 1985 þegar bílamir vom 431,8 á þúsundið sem fyrr segir. Eftir er að sjá hver út- koman er í ár, en eftir verðlækkun- ina í vor tóku bílaviðskipti mikinn fjörkipp sem kunnugt er. Fleiri nýir fyrir sunnan Athygli vekur að nýir bílar virð- ast meira keyptir á suðvestur- hominu. 70,5% nýskráðra bíla voru skráðir þar, þ.e. fengu RGYÖ eða J-númer, en á þessu svæði búa 60,6% landsmanna. Flestir em bílamir samt á Suðurlandi miðað við þúsund íbúa, eða 553, en fæstir í Vestmannaeyjum, 340. Þá er greinilegt að mikið er verslað með bíla hér á landi. Um 40 þúsund bílar vom annaðhvort umskráðir við eigendaskipti hjá bifreiðaeftirlitinu eða skiptu um eigendur án um- Græn hryðjuverk A eftir „Greenpeace“ gæti komið „Redpeace“ eftir Kristin Pétursson Greenpeace-samtökin beijast fyrir vemdun náttúmnnar. For- svarsmönnum samtakanna gekk gott eitt til í byijun og þökk hafí þeir fyrir baráttu fyrir banni við losun eitraðra úrgangsefna í sjó og aðra málefnalega baráttu. Þar með talin hvalvemd, að því marki að hæfíleg nýting hvalastofna getur talist. Ofvernd nytjastofna Ofvemd nytjastofna er fásinna. Gildir þar einu um hvali og aðra nytjastofna sem menn hafa nýtt til manneldis í árhundmð. Barátta fyr- ir slíkri ofvemd er ekki lengur málefnaleg heldur öfgasjónarmið. Hvalir gefa af sér góð matvæli, verðmæti og vinnu handa fjölda manns sem ella verður atvinnuiaus og víst er nóg af slíku böli í heimin- um. Þvert á móti má færa fyrir því gild rök að ofvemd hvalastofna muni ieiða af sér stórfellda röskun í lífkeðju sjávarins. Ört stækkandi hvalastofn þarf óhemju fæðu og minna verður til matar fyrir nytja- físka og smáfisk sem nytjafískur lifir á. Afleiðingamar em augljósar: Hækkun á kjötverði þar sem hval- kjöt hverfur svo til af markaðnum. Einnig hækkun á fískverði þar sem fiskistofnar munu minnka vegna þess að hvalastofnar éta þá út á gaddinn og hvalir éta líka físk. Minni matur handa nytjafiskum — minna fiskframboð, — hækkandi verð. Þetta er augljóst. Sömu sögu er að segja af selnum. Fjölgun í selastofnum leiðir af sér: Dýrari físk í vinnslu sökum selorms og — minnkandi framboð af físki vegna þess hve selurinn étur mikið af físki. Bara selastofninn við ísland étur 120 til 130 þúsund tonn af nytjafíski á ári! Utflutningsverð- mæti fyrir um 125 milljónir dollara! Manni hefur skilist að helsta ástæða selfriðunar sé hve hann hafi fagurt augnaráð. Nú flest dýr hafa eitt- hvað fagurt við sig. Ekki er nú ógáfulegt augnaráð blessaðra naut- gripanna. Samt háma þeir nautin í sig í Ameríku. Varla verður fólk þó svona nautheimskt af því áti, eða hvað? Nei. Það á að stórauka nýtingu selastofnsins af margföldum ástæð- um. Samkvæmt ofantöldu er ofvemd þessara nytjastofna ekki bara öfg- ar, heldur beinlínis stórskaðlegt fyrirtækjum, þjóðarbúinu og neyt- endum, hvar sem er í heiminum. Það fínnst hreinlega ekkért mál- efnalegt sem styður þessa ofvemd. Um samskipti siðaðra manna Greenpeace-samtökin hefðu get- að unnið sér virðingarsess með málefnalegri baráttu fyrir náttúru- vemd. Samtökin hafa nú sett stórlega niður vegna þessarar öfga- baráttu fyrir ofvemd nytjastofna. Á Vesturlöndum hefur hingað til verið talið að frelsi borgarans og sjálf- stæði þjóðanna væm grundvallar- mannréttindi og einn af homstein- um lýðræðisskipulagsins. Svo koma allt í einu samtök sem heita „Green- peace" og hefur orðið þó nokkuð ágengt í að skerða þau grundvallar- mannréttindi að stjómvöld sjálf- stæðra þjóða ráði málefnum sínum sjálfar varðandi nýtingu nytja- stofna. Boðskapur Greenpeace er þessi til hvalveiðiþjóða: „Ef þið stöðvið ekki hvaiveiðar nú þegar munum við vinna skemmdarverk á fiskmörkuðum ykkar." Þessi skilaboð um skemmdarverk og skerðingu gmndvallarmannrétt- inda berast okkur Vesturlandabú- um í hverri viku gegn um fijálsa og opinbera Qölmiðla í formi „frétta". Síðan hvenær em hótanir um hryðjuverk „frétt“? Hótanir um efnahagslega hryðjuverkastarfsemi em glæpsamlegt athæfí að mínu áliti og það er hart að þurfa að kyngja því að fíjálsir fjölmiðlar séu misnotaðir af hryðjuverkasamtök- um á þennan hátt. Hverskonar múgsefjun er þetta? Em fréttamenn gjörsamlega orðnir blindir? Greina þeir ekki orðið sorann frá í frétta- mennskunni? Þetta málefni snýst ekki lengur um nytjastofna eins og hvali og seli. Þetta snýst um gmndvallarat- riði lýðræðisskipulagsins — sjálf- stæði þjóðanna. Saklaust fólk hefur verið blekkt og dregið á asnaeymn- um til stuðnings því að grafa undan lýðræðisskipulaginu. Hér er alvar- legt mál á ferðinni. Fijálsir úö'miðlar Vesturlanda misnotaðir af öfgahóp til þess að framkvæma kúgun. Einmitt það sem síst skyldi. Nóg er af kúgun í einræðisríkjunum þó hún verði ekki framkvæmd fyrir framan nefíð á okkur Vesturlandabúum þegjandi og hljóðalaust. Framferði Green- peace-samtakanna er orðið smánar- blettur á lýðræðissögu Vesturlanda Kristinn Pétursson „Þetta málefni snýst ekki lengnr um nytja- stofna eins og hvali og seli. Þetta snýst um grundvallaratriði lýð- ræðisskipulagsins — sjálfstæði þjóðanna.“ og ég geri þær kröfur að stjómvöld hér á landi svari þessu nú með við- eigandi hætti á vettvangi Samein- uðu þjóðanna. Þáttur norskra stjórnvalda ný- verið er skammarlegur. Laumast burt frá baráttu um eigið sjálfstæði með skottið milli fótanna! Hvílík reisn! Bandarísk stjómvöld eru flækt í þetta mál. Þau geta bannað hvalveiðar í eigin lögsögu. En þau hafa engan rétt til þess að vera að skipta sér af eðlilegri nýtingu nytja- stofna annarra strandríkja eins og Greenpeace-samtökin em að reyna að fá þau til þess að gera með lævísum áróðri. Græn hryðjuverk af þessu tagi skulu ekki framin svona fyrirhafnarlítið hér í þessum hluta heimsins í skjóli „náttúm- vemdar" og misnotkunar fíjálsrar íjölmiðlunar. Eg verð að ljúka máli mínu með því að hvetja allt heiðarlegt fólk til þess að gera skyldu sína. Beijumst fyrir réttum málstað og látum ekki kúga okkur til þess að taka upp ranga stefnu. Blásum burtu þessum óvirðingarskýjum sem nú skyggja á sól frelsisins á 100 ára afmæli frelsisstyttunnar. Á eftir „Green- peace" gæti komið „Redpeace“. Höfundur er framkvæmdnstjóri útgerðarfyrirtækis á Bakkafirði. íslenskir laganemar: I þriðja sæti í málflutn- ingskeppni íslenskir laganemar náðu þriðja sæti í norrænni keppni sem haldin er ár hvert í Stokkhólmi í Svíþjóð. Er þetta í fyrsta skipti sem þeir taka þátt í keppninni. Keppnin felst í málflutningi útfrá mannréttindasáttmála Evrópu. Það er gert til að allir aðilar standi jafnt að vígi. Þátt í keppninni taka klúbbar sem samanstanda af alltað 30 lengra komnum laganemum, sem kenna sig við starfandi lögmann. Is- lenski hópurinn kallaðist Lögmannsklúbbur Garðars Garðarssonar og fór hann með þeim til Stokkhólms. Fjórir laga- nemar mynduðu liðið. Einnig mega klúbbamir hafa fræðileg- an ráðgjafa sem kallast „caust- us“. Magnús Thoroddssen, sem hafði unnið hjá mannréttinda- nefnd Evrópu, var ráðgjafí íslendinganna, og var þeim ómetanlegum styrkur af honum og Garðari, að sögn Valborgar Snævarr, eins laganemanna. Keppnin var haldin 14. og 15. júní, en í janúar var undan- keppni sem íslendingamir sluppu við þar sem þeir voru að taka þátt í fyrsta sinn. Átta lið tóku þátt í keppninni, fímm sænsk og tvö dönsk auk íslenska liðsins. Ekkert norskt komst áfram í janúar, og Finnar taka ekki þátt vegna þess að þeir við- urkenna ekki mannréttindasátt- málann. Keppnin fór þannig fram að fyrst var riðlakeppni. Keppt var í þremur riðlum og var íslenska liðið í tveggja liða riðli og vann hann. Sigurvegaramir þrír kepptu svo innbyrðis. Vörðu þeir og sóttu sama málið á víxl í sýndar-réttarhöldum. Varð íslenska liðið í þriðja sæti. Fyrstu verðlaun voru 10 þús. krónur sænskar, önnur verðlaun 5 þús. sænskar krónur en engin þriðju verðlaun vom veitt. Keppni af þessu tagi er upp- mnnin í Bandaríkjunum, en sænskur prófessor, Jakob Sund- borg, hafði forystu um að innleiða þetta á Norðurlöndum. Einnig er keppt í þessu í ensku- og frönskumælandi löndum. Bílum fjölgar stöðugt skráningar. Auk þess vom um 6.000 umskráningar án þess að um eigendaskipti væri að ræða. Árið 1984 vom eigendaskipti á bílum u.þ.b. 5.000 færri. Bílarnir eru í misjöfnu ástandi Ástand bílaflotans kemur fram í bifreiðaskoðunum. Skoðanir em þrennskonar; aðalskoðanir, endur- skoðun þeirra bíla sem ekki fengu skoðun í aðalskoðuninni og auka- skoðanir, sem em kvöldskoðanir (rassíur) o.þ.h. Skoðanir vom alls 130.227 á árinu 1985. Aðalskoðan- ir vom 79,3% af þeim, endurskoðan- ir 13,9% og aukaskoðanir vom 6,8 %. Tölur liggja fyrir um niðurstöður skoðananna í Reykjavík, Hafnar: fírði, Keflavík og á Akureyri. í 81,6% tilvika reyndist allt vera í lagi, í 15,9% tilvika var notkun leyfð (grænn miði), í 1,8% tilvika var notkun bönnuð, og númer vom klippt af í 0,9% tilvika. Ljósastilling var 10,0% aðfinnslu- atriða bifreiðaeftirlitsins, stöðu- hemill (handbremsa á venjulegu máli) kom þar skammt á eftir með 9,9% aðfínnsla, 6,7% vom vegna aurhlífa, og jafnmargar aðfinnslur vom vegna aksturshemla, þar á eftir komu stýrisliðir með 5,6% og hjólbarðar með 5.3% aðfinnslanna. í 83,2% tilvikanna var fundið að lélegu ástandi en í 16,8% tilvika var hluturinn talinn ónýtur. Flestir standast prófin Um ástand ökumannanna er svipað að segja. Af 5.329 tílraunum við bílprófið stóðust 4.453 eða 83, 6% en 876 (16,4%) stóðust ekki bóklega hlutann. Öllu færri hnutu um síðari hindmnina, verklega prófið. 95,2% stóðust en 4,8% féllu. Alls stóðust 4.774 ökuprófíð, þaraf 4.382 í fyrstu tilraun. Af þeim vora 80.6% 17 ára og 7,9% 18 ára. Tíu ámm áður, 1975, vom aðeins 69,6% 17 ára. Lélegust var niðurstaðan í fræðilega hlutanum í prófum á létt bifhjól. Það stóðust aðeins 53,7% þeirra sem reyndu við það. Einnig vekur athygli hve lítið er orðið um próf á dráttarvélar. Aðeins 18 þreyttu það í fyrra. Þá vom aftur haldin próf fyrir verðandi ökukenn- ara, en þau féllu niður 1984. 23 af 31 stóðust það próf. Þá náðu 580 bílstjórar meiraprófinu á 19 námskeiðum. 205 tóku rútupróf, og var það nokkru færra en árið á undan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.