Morgunblaðið - 12.07.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986
*>
;
Guðmundur J. Guðmundsson:
Rannsóknin hefur hreins-
að mig af öllum áburði
„ÉG ER ákaflega hreint ánægður með þessa
ákvörðun ríkissaksóknara, og í mínum augum er
þessu máli lokið. Hins vegar býst ég við því að
þau tvö sorpblöð sem heita Þjóðviljinn og Helgar-
póstur haldi áfram sínum árásum, brigslyrðum
og níði, eins og þau hafa gert þennan tíma, ein
blaða,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar og Verkamannasambands
íslands, þegar niðurstaða ríkissaksóknara lá fyr-
ir, þess efnis að að engin ástæða væri til málsókn-
ar gegn honum og að hann tengdist Hafskipsmál-
inu ekki með neinum öðrum hætti. Morgunblaðið
ræddi niðurstöður ríkissaksóknara, svo og bréfa-
skipti hans og Alberts Guðmundssonar við
Guðmund í gær, en í bréfi Alberts til Guðmundar
staðhæfir hann m.a. að Guðmundi hafi frá upp-
hafi verið kunnugt um að sameiginlegur vinur
þeirra beggja ætlaði fyrir orð Alberts að safna
farareyri handa Guðmundi. Bréf þeirra Guð-
mundar og Alberts eru birt í heild hér á opnunni.
Guðmundur sagðist vilja rekja
í örstuttu máli hvemig þetta mál
hefði borið að. Hann sagði þá
m.a.: „Ég er staddur í Genf þegar
ég fæ um það lauslegar fréttir að
ég sé flæktur í þetta Hafskips-
mál. Mér var ekki nokkur leið að
koma því heim og saman hvemig
ég gæti komið þar við sögu. Síðan
fékk ég um það afdráttarlausar
og afgerandi fréttir, þar sem mér
var sagt að í sjónvarpinu hefði
verið frétt, sem upphaflega hefði
komið frá Ritzau-fréttastofunni,
og hún hefði verið send um ölí
Norðurlönd. Þessi frétt var í meg-
inatriðum höfð eftir manni, sem
var búinn að sitja í gæsluvarðhaldi
svo vikum skipti.
í þessari frétt var það borið að
þessir fjármunir til mín hafi verið
ein besta fjárfesting Hafskips.
Þetta er birt athugasemdalaust í
sjónvarpinu, undir því yfírskyni
að þetta sé orðin Evrópufrétt, ef
ekki alheimsfrétt. Nú, þegar sak-
sóknari byijar að framkvæma sína
rannsókn kemur það snarlega í
ljós, að þetta em allt saman raka-
laus ósannindi. Framkvæmdastjóri
Hafskips hefur aldrei látið þessi
orð falla við yfírheyrslur."
Guðmundur sagði að þegar
þetta hefði komið í ljós hefði hann
spurt sjálfan sig hvort allir sæju
ekki af hveiju þessu hefði verið
komið á kreik: „Þetta er gert til
þess að rýja mig mannorðinu, en
ekkert hirt um staðreyndir. Hvem-
ig í ósköpunum geta þeir haft
orðrétt eftir manni, sem er búinn
að vera lengi í gæsluvarðhaldi?"
Guðmundur sagðist fyrst og
fremst hafa farið fram á rannsókn
málsins vegna þeirra manna sem
hann stæði næst, verkafólksins.
Þessi rannsókn hefði staðið í þijár
vikur og verið mjög ítarleg. „Hver
er svo niðurstaðan," spurði Guð-
mundur, „hún er sú að það er
ekki minnsti fótur fyrir fréttinni í
einu eða neinu. Ég er á engan
hátt tengdur Hafskipsmálinu, seg-
ir ríkissaksóknari. Ég hef skrifað
Albert Guðmundssyni og endur-
sent honum þessa peninga með
vöxtum. Þessi peningaupphæð,
100 þúsund krónur, er frá ein-
hveijum þriðja aðila, einhveijum
fyrrverandi starfsinanni Hafskips
og tilkomin með ólöglegum hætti,
að því er mér skilst. Ég bað Al-
bert að koma þessum peningum
til skila.
Öðru fremur vil ég halda mann-
orði mínu og trausti minna félags-
manna,“ sagði Guðmundur, og
hann sagðist ekki minnast þess
að menn hefðu krafíst rannsóknar
á rógi og óþverra um sig og sagt
af sér öllum trúnaðarstörfum á
meðan á rannsókn stóð. „Nú tek
ég aftur við þeim trúnaðarstörfum
öllum, sem mér hafa verið falin,“
sagði Guðmundur.
„Þriggja vikna rannsókn ríkis-
saksóknara hefur hreinsað mig af
öllum áburði. Ákveðin sorpblöð
eins og Þjóðviljinn og Helgarpóst-
urinn, sem ég legg að jöfnu,
virðast geta borið hvers konar lyg-
ar og óhróður á hvem þann sem
þeim dettur í hug og síðan þurfa
viðkomandi menn að geta afsann-
að upplognar ásakanir," sagði
Guðmundur.
Guðmundur ítrekaði það sem
hann hefur áður sagt, að viðskipti
hans og Alberts hefðu ekki mark-
ast af því að annar var verkalýðs-
foringi og hinn fjármálaráðherra,
heldur hefði þetta byggst á yfir
20 ára vináttu — náinni, persónu-
legri vináttu, sem væri yfír alla
pólitík hafín. „Hjálpsemi ogtryggð
milli vina hafa aldrei í mínum
augum verið pólitískar rnútur,"
sagði Guðmundur, „ef ég hefði
Reykjavík, 10. júlí 1986
Kæri Albert.
í tilefni af bréfí ríkissaksóknara
til mín í dag, verð ég að skrifa
þetta bréf og jafnframt að birta það
opinberlega vegna þeirrar viða-
miklu umQöllunar í fjölmiðlum, sem
samskipti okkar hafa fengið.
Ekki er þó ástæða til að hafa
um þetta mjög mörg orð.
í nóvember 1983 bauðst þú í
mikilli vinsemd og af þinni alkunnu
hjálpsemi að taka þátt í kostnaði í
heilsubótarferð minni til Banda-
ríkjanna, þegar heilsa mín var á
þann veg að læknar kröfðust þess,
að ég léti verða af því að taka hvíld
erlendis, ef ekki ætti illa að fara.
Fyrir nokkrum vikum, er ég var
staddur erlendis, fékk ég þær frétt-
ir, að ég væri tengdur svokölluðu
Hafskipsmáli. Mér var þetta í fyrstu
hulin ráðgáta. Síðar var mér sagt
farið að þeim reglum, sem stjórn-
málafræðingar og félagsfræðing-
ar, öðru fremur Þjóðviljans, hafa
verið að predika að undanfömu,
hefði ég aldrei talað við föður
minn, sem hafði mjög harðar
pólitískar skoðanir, algjörlega
andstæðar mínum. Þrátt fyrir það
var alla tíð ákaflega kært milli
okkar feðga. Mín siðfræði er sú
að halda tryggð við félaga mína
og vini, hvar sem þeir eru í pólitík,
þannig að ég mun ekki taka upp
siðfræði Þjóðviljans, enda tel ég
þá lítt aflögufæra hvað siðfræði-
kennslu varðar."
Guðmundur kvaðst ekki telja
að niðurstaða ríkissaksóknara í
máli hans myndi breyta neinu um
afstöðu andófsliðsins innan Al-
þýðubandalagsins gegn honum.
„Mér hefur nú skilist af Þjóðviljan-
um, það sem ég hef nennt að lesa
af honum, að rannsóknin skipti
engu máli. Það er einhver æðri
siðfræði sem ræður ríkjum á Þjóð-
viljanum."
— Nú staðhæfír Albert í bréfi
sínu til þín í dag, að þér hafí frá
upphafí verið kunnugt um að aldrei
stóð til að fjárstuðningurinn við þig
rynni eingöngu úr hans vasa, svo
og hafí þér verið kunnugt um að
hann fékk sameiginlegan vin ykkar
beggja, Björgólf Guðmundsson, til
þess að safna þessu fé. Hvað segir
þú um þessar staðhæfíngar, Guð-
mundur?
„Báðar þessar fullyrðingar eru
gjörsamlega rangar, enda væri al-
gjörlega útilokað að ég samþykkti
að einhver atvinnurekandi stæði
fyrir einhverri fjársöfnun til mín.
Það hefur reyndar komið fram í
máli Harðar Sigurgestssonar for-
stjóra Eimskips, að það hafí verið
skilyrði að ég kæmist aldrei að því
hvaðan peningarnir væru. Ég fékk
fyrst vitneskju mjög nýlega að
Björgólfur hafði staðið fyrir þessari
söfnun. Það var eftir að ég kom
heim, og fór að ganga á Albert.
Hann sagði mér þá að hann hefði
beðið Björgólf um að ganga í mál-
ið,“ svarar Guðmundur.
— Albert segir jafnframt í bréfí
sínu til þín að hann skilji ekki vax-
taútreikningana á bak við ávísunina
sem þú sendir honum sem endur-
greiðslu og hann hefur nú endur-
sent þér. Ber ekki einhveija upphæð
í milli hjá ykkur?
umbúðalaust, að peningarnir sem
okkur fóru i milli, hafí ekki komið
frá þér, heldur hafi þeir verið tekn-
ir úr sjóðum Hafskips hf.
Mál þetta var biásið upp af ríkis-
fjölmiðlunum, og fjallað var um það
á þann veg, að ég væri sakamaður
aldarinnar. Sótt var að mér víða
og mér ekki vandaðar kveðjumar.
Helgarpósturinn og Þjóðviljinn
snéru bökum saman (eða voru það
sömu mennirnir?) til að níða af mér
æruna og sérstaklega var þeim
umhugað að rýja mig því trausti,
sem ég hafði áunnið mér hjá um-
bjóðendum mínurn í Dagsbrún og
Verkamannasambandinu.
Það sem ég taldi vera vinargreiða
af þinni hálfu hefur snúist upp í
andhverfu sína og hefur orðið að
mesta bjamargreiða lífs míns.
Ég hlaut að biðja um opinbera
rannsókn málsins. Hvað sem öðm
„Það sem ber á milli í þessu er
að Albert Guðmundsson telur að
þetta hafí verið 120 þúsund krónur
en ég segi að þetta hafí verið 100
þúsund krónur. Hvers vegna ætti
ég að vera skrökva því? Þegar ég
taldi þessa peninga eftir að ég fékk
þá, vom þetta 100 þúsund krónur.
Það sem ég vantreysti í þessu er
ekki það að Albert hafi tekið þessa
peninga, heldur að fjármálaóreiðan
hjá Hafskip hafí verið slík að þess-
ar 20 þúsund krónur hafi misfarist
hjá þeim. Ég treysti engum upplýs-
ingum þaðan."
— Hafíð þið Albert eitthvað ijall-
að um þessa upphæð ykkar á milli
nú nýverið?
„Já, hann hefur lýst áhyggjum
sínum yfír því að okkur skuli ekki
bera saman um þessa upphæð og
að hann líti út eins og þjófur. Ég
hef sagt við hann að það hafí aldr-
ei flökrað að mér að hann hafí tekið
þessi 20 þúsund, en eins og ég sagði
áðan, þá tortryggi ég þá sem að
baki stóðu og yfírleitt öll fjármál
hjá Hafskip, eins og þau hafa kom-
ið í ljós."
„Frá minni hálfu er hér
um vinslit að ræða“
— Er hægt að líta á bréfaskipti
ykkar í dag á annan hátt en að hér
sé um vinslit að ræða?
„Frá minni hálfu er hér um vin-
slit að ræða.“
— Leggur þú ekki sama skilning
í bréf Alberts, þ.e. að hann sé að
slíta vinskap við þig?
„Þetta bréf Alberts fínnst mér
hreint óþokkabragð, en hitt er ann-
að mál, að ég held að hann fari
verst út úr þessum bréfaskrifum
sínum sjálfur. Efni bréfsins gengur
þvert á við hans fyrri framburð.
Ég hefði óskað honum betra hlut-
skiptis í þessu máli öllu."
— Vináttan sem þú vitnar til hér
að framan, hafín yfir pólitík, á sér
yfír 20 ára sögu, tryggð og hjálp-
semi. Er þessi siðfræði sem þú
boðar sem andstæðu siðfræði Þjóð-
viljans, þegar þú talar um vináttu
þína við Albert, ekki fallin, fyrst
nú er um vinslit að ræða hjá ykk-
ur, eftir öll þessi ár?
„Ég hef aldrei reynt svona af
Albert, en eftir svona yfírlýsingar
sem ganga þvert á hans fyrri yfír-
lýsingar og eftir að hann lætur
skapsmuni sína stjómast af hefni-
gimi á vini sína, af því að honum
gengur ekki eitthvað í haginn, þá
hlýtur að koma til vinslita. Ég er
fyrst og fremst hryggur yfir því —
leið varð ég að fá úr því skorið af
bærum yfirvöldum, hvort ég hefði
gerst sekur um refsivert og/eða
ólögmætt athæfí að taka við pen-
ingum úr þinni hendi í góðri trú
síðra árs 1983.
Nú liggur sú niðurstaða saksókn-
ara fyrir, að ég hef í engu brotið
gagnvart lögum.
En það er ekki allt málið, það
vissi ég fyrir. Hitt er sínu verra:
Hin opinbera rannsókn staðfestir,
að peningarnir komu alls ekki frá
þér — þeir komu með ólögmætum
hætti frá þriðja aðila.
Við það get ég ekki unað og því
sendi ég þér meðfylgjandi banka-
ávísun að upphæð kr. 152.250,- sem
er höfuðstóllinn, ásamt vöxtum frá
1983 og bið þig að koma þessum
peningum til skila.
Guðmundur J. Guðmundsson.
Guðmundur J. Guðmundsson
ákaflega leiður og hryggur — og
hefur mér þótt þetta sárast í öllu
þessu máli. Ég held að ég hafí ekki
sýnt Albert í einu eða neinu óheiðar-
ieik eða ódrenglyndi og ég er
ákaflega hryggur yfír því að okkar
vinskap skuli ljúka svona. Ég vil
trúa því að þetta sé gert í fljót-
fæmi og reiði."
Bréf sak-
sóknara
vegna máls
Guðmundar
Til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Með bréfí Rannsóknarlögreglu
ríkisins, dagsettu 7. þ.m., hefur
borist rannsókn, sem fram hefur
farið að tilhlutan þessa embættis
vegna óskar Guðmundar J. Guð-
mundssonar, alþingismanns, um
það hvort tiltekinn ijárstuðningur,
sem hann veitti viðtöku í nóvember
1983 úr hendi Alberts Guðmunds-
sonar, þáverandi flármálaráðherra,
tengdi hann rannsókn svonefnds
Hafskipsmál og hvort greiðsla þessi
hafi verið þess eðlis að honum hafí
hvorki verið rétt eða heimilt að taka
við henni á sínum tíma.
Fyrir liggur af greiðslugögnum,
að um var að ræða fjármuni Haf-
skips hf., sem greiddir höfðu verið
samkvæmt ákvörðunum forráða-
manna félagsins, út af sérstökum
hlaupareikningi, er skráður var á
nafn og var í umsjón og vörslum
eins af fyrrverandi starfsmönnum
þess félags.
Ágreiningur er með aðilum um
fjárhæð, því viðtakandi segir
greiðsluna hafa verið kr. 100.000,
en í greiðslugögnum Hafskips hf.
og skýrslum milligöngumanna að
afhendingu Ijármunanna, sem Guð-
mundi voru afhentir í reiðufé, er
umrædd greiðsla tilgreind og sögð
hafa verið kr. 120.000.
Af hálfu ákæruvalds var mælt
fyrir um rannsókn þessa með bréfí,
dagsettu 19. f.m., og skyldi hún
fara fram í tengslum við rannsókn
á ætluðum brotum forráðamanna
Hafskips hf. vegrta notkunar þeirra
á sérstökum hlaupareikningum, svo
sem áður er vikið að. Guðmundur
J. Guðmundsson hefur því rettilega
verið yfírheyrður sem vitni í máli
þessu.
Af rannsókn þeirri, sem fyrir
liggur um það afmarkaða efni er
varðar viðtöku Guðmundur J. Guð-
mundssonar á fyrrgreindum pen-
ingum, er ljóst, að Guðmundur .1.
Guðmundsson hefur í þessu máli
réttarstöðu vitnis og er því þegar
af þeirri ástæðu unnt að taka fram,
að á grundvelli þessarar rannsóknar
verður eigi um neina málssókn gegn
honum að ræða. Ekki er heldur vit-
að til þess að Guðmundur J.
Guðmundsson tengist með neinum
öðrum hætti rannsókn svonefnds
Hafskipsmáls.
F.h.r.
Bragi Steinarsson.
Bréf Guðmundar til Alberts
i