Morgunblaðið - 12.07.1986, Side 23

Morgunblaðið - 12.07.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986 23 Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra: Afskaplega ánægður með niðurstöðu saksóknara „ÞAÐ ER LJÓST af þessari af- greiðslu ríkissaksóknara að þeir hjá embættinu treysta sér ekki til þess að sakfella mig á einn eða annan hátt og ég er afskap- lega ánægður með þá niður- stöðu,“ sagði Albert Guðmunds- son iðnaðarráðherra i samtali við Morgunblaðið er hann var spurð- ur álits á þeirri afgreiðslu ríkis- saksóknara að vísa gögnum vegna meintrar aðildar hans að Hafskipsmálinu til Rannsóknar- lögreglu ríkisins á nýjan leik, á þeirri forsendu að þau standi í slíkum tenglsum við rannsókn þá sem stendur yfir hjá RLR að sameina beri þau aftur rannsókn aðalmáls. Albert var spurður hvað hann vildi segja um bréf það sem Guð- mundur J. Guðmundsson sendi honum í gær ásamt ávísun upp á 152.250 krónur, sem hann biður Albert um að koma til skila: „Þrátt fyrir það að þessi vinargreiði, eins og Guðmundur orðar það sjálfur, þegar hann samkvæmt læknisráði þurfti að leita sér hvíldar erlendis, hafi snúist í bjarnargreiða, biður hann mig í þessu bréfi að gera sér annan vinargreiða. Eg treysti mér ekki til að verða við þeim vinar- greiða, af ótta við að sá vinargreiði snúist einnig í bjarnargreiða fyrir hann og hugsanlega fyrir mig. Ég hef því endursent Guðmundi þessa ávísun. Auk þess hef ég ekki hug- mynd um það hvaða upphæð hann telur sig vera að endurgreiða." Albert var spurður hvað hann ætti við með þeim orðum að hann vissi ekki hvaða upphæð Guðmund- ur væri að endurgreiða: „Guðmund- ur tók við 120 þúsund krónum. Ég opnaði lokað umslag, að honum við- stöddum, og taldi búntin í umslag- inu, 120 þúsund krónur, og afhenti Albert Guðmundsson honum. Guðmundur man þetta greinilega og staðfesti í nýlegu samtali okkar á milli.“ Bréf saksóknara um þátt Alberts Til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Með bréfi Rannsóknarlögreglu ríkisins, dagsettu 7. þ.m., hafa þessu embætti verið' sendar til ákvörðunar skýrslur, sem teknar voru af Albert Guðmundssyni, iðn- aðarráðherra, Laufásvegi 68, Reykjavík, miðvikudaginn 25. júní sl. um þrjá afmarkaða þætti í tengslum við yfirstandandi lögreglurannsókn, sem fram fer að kröfu ákæruvalds á grundvelli skýrslu skiptaráðenda í gjaldþrota- máli Hafskips hf. Þessir afmörkuðu rannsóknar- þættir eru: 1. Viðtaka Alberts Guðmundssonar í maí 1983 á gjaldeyri, $ 5.000 í ferðatékkum, skráðum á nöfn hans sjálfs og eiginkonu, að andvirði ísl. kr. 123.452. 2. Viðtaka Alberts Guðmundssonar og framsal á tékka þann 1. febr- úar 1984, kr. 117.034, sem af Ljósrit af ávísuninni, sem Guðmundur J. Guðmundsson sendi Albert í gær og hann endursendi i gærkvöldi. Svar Alberts til Guðmundar Hr. alþingismaður Guðmundur J. Guðmundsson Fremristekk 2, 109 Reykjavík. 11. júlf 1986 Mér er ljúft að viðurkenna mót- töku á bréfi þínu frá 10. þ.m., þar sem þú tilneyddur skrifar mér, og tilkynnir mér jafnframt að þú verð- ir að birta bréfið opinberlega. Þú talar um hjálpsemi mína við þig í nóvember 1983, þegar ég bauðst til að hjálpa þér til að komast til Bandaríkjanna til hvíldar, að lækn- isráði, svo ekki færi illa fyrir þér, cins og þú orðar það sjálfur. Eftir að þú komst frá útlöndum, nýlega, fréttir þú fyrst, að umrædd aðstoð við þig hafi komið frá Haf- skip hf., en samtímis fréttir þú líka, að peningamir komu að hálfu úr sjóðum Eimskipafélags íslands hf., þótt þú getir þess ekki í skrifum þínum til mín. Frá því við töluðum um að ég reyndi að hjálpa þér til hvíldardval- ar erlendis skv. læknisráði, vissir þú að ég bað Björgúlf Guðmunds- son, sem vin okkar beggja, um að standa fyrir söfnun til ferðarinnar, en aldrei var það svo skilið að ég einn léti úr eigin vasa þær kr. 120 þús. sem þú tókst við úr minni hendi. Ef vinargreiði af minni hálfu hefur snúist upp i bjamargreiða við þig, þarf ég ekki að lýsa hvemig vinabönd okkar hafa snortið mig og mitt fólk, sem allt myndi rétta þér hjálparhönd ef á þyrfti að halda. Vænt þykir mér um að rannsókn- inni er lokið, og með henni staðfest, að sá sem þiggur hjálp frá öðmm er í engu sekur. Samhjálp hefur löngum verið aðalsmerki Islendinga, og veit ég að báðir munum við halda áfram að hjálpa öðrum, þrátt fyrir aug- ljósa áhættu. Ég er nú einu sinni þannig gerður að mér er erfitt að neita fólki í vanda um aðstoð, geti ég veitt hana. Ég fagna niðurstöðu saksóknara, hún var sú sem búist var við, að þú hefur í engu brotið gagnvart lögum. Það þurfti ekki opinbera rann- sókn til að segja mér að umrædd peningaaðstoð, sem þú fékkst, kom ekki úr mínum vasa, þú vissir það allan tímann, en ekki skil ég þá fullyrðingu þína, að þeir hafi komið með ólögmætum hætti frá þriðja aðila (Hafskip/Eimskip). Þú sendir mér, með bréfi þínu ávísun, sem þú biður mig að koma til skila. Þú biður mig, þrátt fyrir allt, um nýjan vinargreiða, en af ótta við að hann snúist líka í bjamargreiða, treysti ég mér ekki til að verða við ósk þeirri og endursendi sömu ávísun, sem er að íjárhaíð kr. 152.250,-. Mér er með öllu óljóst hvemig sú tala er fundin. Af gefnu tilefni sendi ég afrit af bréfi þessu til fjölmiðla. Aibert Guðmundsson. hálfu forráðamanna Hafskips hf. og viðtakanda tékkans er skýrð sem greiðsla afsláttar á flutn- ingsgjöldum vegna Alberts Guðmundssonar, heildverslunar, Gmndarstíg 12, Reykjavík. 3. Sérstök rannsókn á milligöngu Alberts Guðmundssonar um af- hendingu fjárstuðnings, kr. 120.000, til Guðmundar J. Guð- mundssonar, alþingismanns, í nóvember 1983. Samkvæmt fyrirliggjandi greiðslu- gögnum em allar þessar greiðslur greiddar samkvæmt ákvörðunum forráðamanna félagsins og út af sérstökum hlaupareikningi, er skráður var á nafn og var í umsjá eins af fyrrverandi starfsmönnum Hafskips hf. Þá er þess að geta, að í niður- lagi síðustu skýrslu sinnar kveðst Albert Guðmundsson vilja taka fram, að síðar, um það leyti sem hann hafi orðið sextugur, hafi hann fengið sem afmælisgjöf frá Hafskip hf. ferð til Frakklands fyrir sig og eiginkonu. í rannsóknargögnum þeim, sem embættinu vom send, er ekki að sjá að þessi liður hafi verið frekar rannsakaður. Hin afmörkuðu rannsóknarvið- fangsefni, sem að framan em tilgreind, þykja standa í slíkum tengslum við rannsókn þá sem yfir stendur, að sameina beri þau aftur rannsókn aðalmáls og em rann- sóknargögnin því hér með öll endursend Rannsóknarlögreglu ríkisins. Af ákæmvaldsins hálfu þykir ekki, á þessu stigi rannsóknar, vera unnt, hvorki að taka til sjálfstæðrar afgreiðslu einstaka rannsóknar- þætti né kveða á um, svo bindandi sé fyrir ákæmvald, hvort á hendur einstökum aðilum, sem með einum eða öðmm hætti tengjast rannsókn aðalmáls, muni verða höfðað refsi- mál eða ekki. Af hálfu ákæruvalds verður því eigi nú um að ræða efnislega af- greiðslu á einstökum rannsóknar- efnum eða hugsanlegum þáttum Alberts Guðmundssonar eða ann- arra, sem tengst hafa eða tengjast kunna einstökum greiðslum frá Hafskip hf. eða fjármálaskiptum Hafskips hf. og Útvegsbanka ís- lands í þeirri heildarrannsókn er yfir stendur. Ástæða þykir til í þessu sam- bandi að árétta niðurlag bréfs ríkissaksóknara, dagsett 13. des- ember sl., til Alberts Guðmundsson- an „Ef reynt yrði áð skilja þátt yðar (Alberts) frá þáttum annarra, sem hér eiga hlut að máli, í því skyni að flýta málalokum, væri það ekki aðeins ógerlegt að málefnaástæðum heldur einnig skýlaust. brot gegn jafnréttisreglunni, sem er einn af hyrningarsteinum íslenskrar réttar- skipunar." F.h.r. Bragi Steinarsson. Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra: Mál Alberts stendur efnis- lega óbreytt „MÉR sýnist að þessi ákvörðun sak- sóknara skilji málið eftir i sömu stöðu og áður. Því hefur verið synj- að að taka þessa afmörkuðu þætti sérstaklega út úr heildarrannsókn Hafskipsmálsins," sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins, er hann var spurður álits á ákvörðun rikissaksóknara að senda gögn í máli Alberts Guð- mundssonar á nýjan leik til Rann- sóknarlögreglu ríkisins. Þorsteinn sagði að þessir þættir væru því áfram til rannsóknar og málið því enn óskýrt að þessu leyti. Þorsteinn var spurður hvort þessi ákvörðun ríkissaksóknara breytti ein- hveiju um afstöðu Sjálfstæðisflokks- ins til setu Alberts Guðmundssonar í ríkisstjóm: „Ég geri ráð fyrir því að þetta verði rætt á fundi þingflokksins á fostudaginn kemur. Sá fundur hafði fyrir löngu verið boðaður um önnur efni, en efnislega stendur málið óbreytt, hvað okkur varðar," sagði Þorsteinn. Svavar Gestsson: „Mistök Guðmundar að taka við fénu“ „ÉG LEYNI þvi ekki að skoðun mín er að það hafi verið mistök Guð- mundar J. Guðmundssonar að taka við fénu,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins. „En í ljósi fjögurra áratuga starfs Guð- mundar í verkalýðsmálum vil ég ekki nú fordæma þann feril vegna þessa einstaka atburðar. Það eina sem er athyglisvert við bréf Al- berts Guðmundssonar er að fullyrð- ingar hans stangast á við yfirlýs- ingu hans í Þjóðviljanum fyrir þremur vikum sem hann leiðrétti aldrei fyrr en nú. Menn geta spurt sig hvernig standi á þeim sinna- skiptum.“ Svavar sagði að töluvert hefði verið fjallað um mál Guðmundar innan flokksins að undanfömu. Guðmundur hefði með viðbrögðum sínum sýnt Ijós- lega að hann vildi hreinsa sig af málinu. „Ef við skoðum hvað gerst hefur þá sést að Guðmundur brást snarpt við, kom heim frá útlöndum þegar fréttin barst honum og bað um tafarlausa rannsókn. Hann sagði af sér trúnaðarstörfum í verkalýðshreyf- ingunni meðan hún fór fram og baðst leyfis frá þingmennsku um ótiltekinn tíma meðan málin væm að skýrast. Guðmundur hefur nú skilað fénu aftur og telur sjálfur að það hafi verið rangt af sér að taka við því. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að Guðmundur hafl ekki gert neitt sem telst sak- næmt.“ Svavar sagði að Alþýðubanda- lagið hefði ekki tekið formlega afstöðu til máls Guðmundar. Um helgina hefði þó farið af stað undirskriftasöfnun meðal aðal- og varamanna í miðstjóm, til að mótmæla þvi að hann þægi fé af pólitískum andstæðingum. Af því tilefni m.a. hefði miðstjómarfundur verið boðaður á mánudag. „Þar verður fjallað um ýmis mál, m.a. þetta mál Guðmundar J. Guðmundssonar. Þrjú félög innan flokksins hafa gert sam- þykktir og verða þær að sjálfsögðu einnig til umræðu í miðstjóminni á mánudaginn." Karl Steinar Guðnason: Guðmundur brást rétt við „NIÐURSTAÐA rannsóknarinnar breytir engu um mína afstöðu," sagði Karl Steinar Guðnason, vara- formaður Verkamannasambands íslands. „Guðmundur brást rétt við. Mér datt aldrei annað i hug en að hann væri alsaklaus.“ Karl vildi ekki hafa fleiri orð um mál Guðmundar. Aðspurður bjóst hann við að Guðmundur tæki við for- mennsku í Verkamannasambandinu umsvifalaust. Stjómarfundur hefur ekki verið boðaður á næstunni. Steingrímur Hermannsson f orsætisráðherra: Skil þá ákvörð- un að ekki sé hægt að taka þátt Albertsútúr „ÉG SKIL út af fyrir sig þessa ákvörðun ríkissaksóknara, þar sem Albert er á miklu víðtækari hátt flæktur inn í þetta mál en viðkemur þessum þremur atriðum, sem þama vom til rannsóknar," sagði Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra er hann var spurður álits á þeirri ákvörðun ríkissak- sóknara að senda gögn í rannsókn vegna meintrar aðildar Alberts Guðmundssonar að Hafskipsmálinu á nýjan leik til Rannsóknarlögreglu rikisins. „Albert var formaður stjómar Haf- skips, formaður bankaráðs Utvegs- bankans og svo framvegis, þannig að hans aðild er víðtækari en svo, að hægt sé, að mínu mati, að skilja rann- sókn á hans máli frá aðalrannsókn- inni,“ sagði forsætisráðherra. „Ég lít alls ekki á þessa niðurstöðu rikissak- sóknara sem vísbendingu um að það eigi að ákæra Albert, heldur að það sé ekki hægt að taka þennan þátt út úr öðrum þáttum Hafskipsmálsins."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.