Morgunblaðið - 16.07.1986, Síða 1

Morgunblaðið - 16.07.1986, Síða 1
48 SIÐUR 156. tbl. 72. árg. Israel: Saksókn- ari skipar lögreglu- rannsókn Tel Aviv, AP. YOSEF Harish, ríkissaksóknari, sagði hæstarétti í ísrael í gær að hann hefði skipað lögreglunni að hefja rannsókn á meintri til- raun leyniþjónustunnar og Ytzaks Shamir, utanrfkisráð- herra, til að hylma yfir morð á tveimur aröbum 1984. Shamir var forsætisráðherra þá. Shimon Peres, forsætisráðherra, gaf í skyn í ræðu, sem hann hélt fyrir menntaskólanema í samyrkju- búi í gær, að Shamir myndi ekki njóta þinghelgi í rannsókn á mál- inu. Orðrétt sagði Peres: „Þess eru dæmi að ráðherrar hafi verið yfir- heyrðir og jafnvel dregnir fyrir rétt." Hermaður mundar byssu sína á leið framhjá bænahúsi múham- eðstrúarmanna í Ahmedabad. Indland: Mannskæð átök milli trúflokka Ahmedabad/Amritsar, Indlandi, AP. ÁTÖK hindúa og múhameðstrúar- manna í borginni Ahmedabad á Indlandi hafa kostað 66 manns lífið undanfarna sex daga. Fólkið hefur ýmist verið brennt, barið eða stungið til bana, að sögn yfir- valda. Rúmlega 5.200 hermenn hafa verið sendir inn í borgina en þeim hefur ekki tekist að bæla niður átökin. Átökin í Ahmedabad hófust í síðustu viku þegar múhameðstrúar- menn grýttu skrúðgöngu hindúa. Ákveðið hefur verið að sérstök nefnd rannsaki þann atburð en að sögn var árásin á göngumenn þaulskipulögð. í Kapurthala, um 60 kílómetra suður af Amritsar, hinni helgu borg síka, tókst sex hryðjuverkamönnum síka að frelsa tvo félaga sína úr fang- elsi. Tveir verðir féllu í árásinni en mennimir komust undan. Að sögn lögreglu er annar fang- anna talinn vera einn hættulegasti hryðjuverkamaður síka. STOFNAÐ 1913 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 Prentemiðja Morgunblaðflins Fjölskyldur þjóðvarðliðanna níu, sem myrtir voru í Madrid á mánudag, voru viðstaddar athöfn, er haldin var i minningu þeirra. AP/Simamynd Sorg í Madrid við minningar- athöfn um þjóðvarðliðana níu ETA lýsir yfir ábyrgð á sprengjutilræðinu Madrid, AP. ÖLL starfsemi stöðvaðist í höfuð- borg Spánar á hádegi í gær og ríkti þar grafarþögn í þrjár mínútur í minningu þjóðvarðlið- anna níu, sem létust í sprengjutil- ræði hryðjuverkamanna úr röðum baska á mánudag. Öll umferð lagðist niður í Madrid, verkamenn og starfsmenn í verslun- um hættu störfum og gangandi vegfarendur nájnu staðar. Utsend- ingar hættu bæði í útvarpi og sjónvarpi. Minningarathöfnin um hina ungu þjóðvarðliða fór fram í höfuðstöðv- um þjóðvarðliða í borginni. „Enginn málstaður getur réttlætt slíkar blóðsúthellingar, morð og ofbeldi," sagði Jose Manuel Estepa, herprest- ur, sem stjómaði minningarathöfn- inni. Nokkrir hinna myrtu voru bomir til grafar í fæðingarbæjum sínum í gær og útför hinna fer fram í dag. Aðskilnaðarsamtök baska (ETA) lýstu í gær yfir ábyrgð sinni á sprengingunni á mánudag. Sprengju hafði verið komið fyrir í mannlausri fólksbifreið i miðborg Madrid og sprakk hún þegar bifreiðum þjóð- varðliða var ekið framhjá. Tuttugu og átta manns, flestir þeirra þjóðvarðliðar, liggja nú í sjúkrahúsi af völdum sprengingar- innar. Tveir þeirra liggja fyrir dauðanum. Felipe Gonzales, forsætisráðherra Spánar, sagði harmi sleginn við blaðamenn í gær að hann myndi aldrei gleyma árásinni og lofaði að nú yrði gripið til aðgerða „til að stöðva hryðjuverkastarfsemi í eitt skipti fyrir öll“. S^óm Gonzales var harðlega gagnrýnd í spænskum dagblöðum í gær fyrir að vera þess ekki umkom- in að leysa upp sveitir ETA í Madrid. Þær bera ábyrgð á dauða nítján MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, sagði í gær að það ylti á afstöðu Bandaríkjamanna til afvopnunarmála hvort bann Sovét- manna við kjarnorkuvopnatilraun- manna í höfuðborginni á þessu ári. Gagnrýnin beindist fyrst og fremst að Jose Barrionuevo, innanríkisráð- herra, og er talið að hann missi sæti sitt í ríkisstjóminni þegar Gonzales tilkynnir nýja stjóm til næstu fjögurra ára. um yrði haldið Iengur en til 6. ágúst. Gennady I. Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, lýsti yfir ánægju Sovétmanna yfir því að Bandaríkjamenn og Sovétmenn ætl- uðu í næstu viku að ræða Salt-2- samninginn. En hann lagði á það áherslu að stjómvöld í Moskvu teldu mikilvægara að Ronald Reagan, Bandarílqaforseti, svaraði tillögum Sovétmanna um að fækka langdræg- um og meðaldrægum eldflaugum. Gorbachev ræddi í gær við tals- menn 150 vísindamanna frá 34 löndum, sem komu saman í Moskvu í síðustu viku til að krefjast alþjóð- legs banns við kjamorkuvopnatil- raunum. Þeir hvöttu Gorbachev til að framlengja bann Sovétmanna við kjamorkutilraunum og Bandaríkja- menn til að hætta slíkum tilraunum. Bann Sovétmanna hefur þegar verið framlengt þrisvar og rennur nú út 6. ágúst. Bandaríkjamenn ætla að gera kjamorkutilraun á fimmtudag. Til- raunin verður gerð í holu um 640 m neðan yfirborðs jarðar. Þetta er fjórt- ánda tilraun Bandaríkjamanna síðan Sovétmenn lýstu yfir banni. Sprengj- an verður um tólf sinnum öflugri en sú, sem varpað var á Hiroshima. Paul Watson i viðtali við Morgunblaðið: Snýr brynvarinn aftur til Færeyja Röðin kemur að Islandi næsta sumar „FÆREYSKA lögreglan skaut með vélbyssum að Sea Shepherd og átti sök á átökunum við Færeyjar,“ segir skipstjóri Sea Shepherd, Paul Watson, m.a. í viðtali við Morgunblaðið í dag. Þar segir hann ennfremur að hingað til lands í sumar. Watson segir að mótmælin séu einungis einn liður í baráttunni gegn hvalveiðum, og nú standi yfir herferð í Bandaríkjunum og Ástr- alíu og fleiri löndum til að fá almenning til að hætta að kaupa færeyska vöru. Færeysk yfirvöld hafa staðhæft að skipverjar á Sea Shepherd hafi hann hyggist snúa brynvarinn til Færeyja á ný eins fljótt og kostur er til að mótmæla hvalveiðum Færeyinga. Ekki væri þó í ráði að fara til íslands í þeim tilgangi fyrr en næsta sumar. Hins vegar hafi hann haft spumir af því að um- hverfisvemdarsamtök, eins og Greenpeace, ætli að senda skip hellt bensíni í sjó og reynt að kveikja í gúmbátum með því að skjóta neyðarblysum að þeim, en Watson segir að þetta eigi ekki við nein rök að styðjast. Sjá viðtal við Paul Watson á bls. 20. Gorbachev á þingi um kjarnorkutilraunir: „Framlengt bann veltur á Reagan“ Moskvu/Las Vegas, AP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.