Morgunblaðið - 16.07.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986
Ráfaði villt-
urumí
hálfan sól-
arhring
LÖGREGLUNNI á Húsavík barst
tilkynning um kl. 20 á mánudags-
kvöld þess efnis, að björgunar-
sveitin Stefán í Mývatnssveit
væri að hefja leit að frönskum
manni, sem hefði villst frá lang-
ferðabifreið við Öskju. Leituðu
þeir björgunarsveitarmenn
ásamt tveimur lögreglumönnum
frá Húsavík alla nóttina og
fannst maðurinn loks í gærmorg-
un, heill á húfi.
Frakkinn hafði farið ásamt fé-
laga sínum í áætlunarferð með
bifreið úr Mývatnssveit. Þegar
stöðvað var inn við Öskju gekk
maðurinn frá, en tókst ekki að finna
rétta leið til baka. Ráfaði hann því
víða um svæðið, en um nóttina gaf
hann sig á tal við tjaldbúa við
Herðubreið. Ekki lét hann þá í Ijósi
að hann væri villtur og þáði ekkert
annað en leiðbeiningar um það
hvemig hann kæmist til Herðu-
breiðarlinda. Á því svæði fannst
hann síðan í gærmorgun.
Tveir Svisslendingar slösuðust
Morgunblaðið/Júlíus.
TVEIR Svisslendingar slösuðust talsvert þegar bUl þeirra fór út
af veginum og valt skammt frá ReynivöUum i Kjós um kvöld-
matarleytið í gær. Tveir aðrir landar þeirra voru og í bilnum en
þeir sluppu ómeiddir. Hinir tveir voru fluttir á SlysadeUd Borg-
arspítalans og áttu að vera þar í nótt.
Ekki var ljóst í gærkvöld hver voru tildrög slyssins en helst var
talið að ökumaðurinn hefði misst stjóm á bílnum í lausamöl.
Vinstra megin á myndinni eru tveir Svisslendinganna, þeir sem
ekki meiddust í slysinu. Bíllinn er mikið skemmdur, ef ekki ónýtur,
eins og myndin ber með sér.
Léstí
dráttar-
vélarslysi
MAÐURINN sem lést í slysi við
Isafjörð á sunnudag hét Guð-
mundur Óskar Guðmundsson,
bóndi á Seljalandsbúinu. Guð-
mundur heitinn fæddist 30. júli
árið 1906 og hefði þvi orðið 80
ára í lok þessa mánaðar.
Tildrög slyssins voru með þeim
hætti að Guðmundur var að dytta
að dráttarvél á hlöðulofti, sem er
ofan við fjós bæjarins. Að dyrum
loftsins er hallandi aðkeyrsla og
virðist sem Guðmundur hafi ætlað
að bakka niður aðkeyrsluna, en
fengið aðsvif og misst sijóm á
dráttarvélinni. Því valt dráttarvélin
og varð Guðmundur undir henni.
Engin öryggisgrind var á vélinni
og var Guðmundur látinn er að var
komið.
Guðmundur Óskar Guðmundsson
lætur eftir sig konu og uppkominn
stjúpson.
Kíló af þurrk-
uðu heyi hækk-
ar um 90 aura
Búreikningastofa land-
búnaðarins hefur áætlað
framleiðslukostnað á heyi
sumarið 1986.
Miðað er við kostnað undan-
farin ár að viðbættum hækkun-
um. Kostnaður er þannig
áætlaður kr. 6,40 við að koma
einu kg af heyi fullþurru í hlöðu
en var kr. 5,50 í fyrra. Verð á
teignum er áætlað 10 til 15%
lægra.
Svæðabúmark ’86—’87:
Fullvirðisréttur
minnkar um 2
NÝ REGLUGERÐ um svæðabúmark næsta verðlagsárs verð-
ur væntanlega gefin út um eða eftir næstu helgi. Samkvæmt
henni er gert ráð fyrir að verðábyrgð á kindakjöti á næsta
verðlagsári verði um 3% minni en á síðasta verðlagsári,
1985—’86, eða 11.800 tonn í stað 12.150 tonna. Þá er og gert
ráð fyrir um 2,2% samdrætti í verðábyrgð fyrir mjólk á
næsta verðlagsári.
Verðábyrgð fyrir mjólk á síðasta
verðlagsári varð alls 108,5 milljón-
ir lítra en samkvæmt væntanlegri
reglugerð er gert ráð fyrir að full-
virðisréttur næsta verðlagsárs
verði 106 milljón lítrar. Samdrátt-
urinn verður jafn milli allra svæða,
2,2%. „Fullvirðisréttur einstakra
framleiðenda í sauðQárframleiðslu
verður ekki reiknaður út að sinni
heldur er verið að búa til skerðing-
arreglur og þeim verður beitt þegar
séð er hve mikil framleiðslan verð-
ur. Það ætti að geta orðið í
nóvember," sagði Guðmundur
Stefánsson, búnaðarhagfræðingur
hjá Stéttarsambandi bænda, í sam-
tali við blm. Morgunblaðsins í gær.
Við úthlutun fullvirðisréttar er
landinu skipt í 26 svæði og síðan
er framleiðslu skipt milli einstakra
bænda. Þegar hefur verið ákveðið
hvemig skiptingin verður milli
svæða en endanleg úthlutun full-
virðisréttar til framleiðenda verður
ekki ákveðin fyrr en f næsta og
þamæsta mánuði. Þær breytingar
verða nú gerðar á svæðaskipting-
unni að Gullbringu- og Kjósarsýsla
verða eitt svæði í stað tveggja
áður, Eyjafjörður verður eitt svæði
í stað tveggja en Austurlandi (að
A-Skaftafellssýslu undanskilinni)
verður skipt í §ögur svæði: Norð-
fjörður verður eitt svæði, Vopna-
flörður annað, Suðurfírðimir það
þriðja og Héraðið og næstu fírðir
það íjórða.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins um Guðmund J.
Flestir telja málinu lokið
MEÐ ályktun þeirri sem birtist hér á síðunni frá Iiðlega 9 tima
miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins í fyrrakvöld og fyrrinótt,
telja velflestir miðstjómarmenn að umfjöllun Alþýðubandalagsins
um málefni Guðmundar J. Guðmundssonar sé. lokið, og staðfesti
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins það í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum Morg- Um hádegisbilið í gær gekk svo
unblaðsins var þetta mikill nefndin á fund Guðmundar og
átakafundur, þar sem tókust á
ólíkar fylkingar Alþýðubanda-
lagsins. Aður en fundinum lauk
seint á sjötta tímanum í gærmorg-
un voru ræðumar orðnar fleiri en
40 talsins. Svavar Gestsson hóf
fundinn með framsöguræðu, þar
sem hann lagðist eindregið gegn
þvf að fundurinn ályktaði um mál
Guðmundar. Kjartan Ólafsson bar
upp tillögu um beina kröfu um
afsögn Guðmundar, en eftir að
málamiðlunartillaga Steingríms
Sigfússonar og Önnu Hildar Hildi-
brandsdóttur, sem gerði ráð fyrir
að kosin yrði 5 manna nefnd til
þess að fara á fund Guðmundar
og greina honum frá umræðum á
fundinum og niðurstöðum hans,
var samþykkt með 44 atkvæðum
gegn 20, var litið á þá samþykkt
sem frávísun á tillögu Kjartans.
Ólafur Ragnar Grímsson var með
tillögu í sömu veru og Kjartans
tillaga var, en henni var einnig
vísað frá á fundinum.
greindi honum frá niðurstöðum
fundarins. Nefndina skipuðu
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, Ragnar Am-
alds, formaður þingflokksins,
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur framkvæmdastjómar, Guðni
Jóhannesson, formaður Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík, og
Anna Hildur Hildibrandsdóttir, en
þau tvö síðastnefndu voru tilnefnd
af miðstjómarfundinum.
Guðmundur J. Guðmundsson
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkveldi: „Ég
held mínu striki og sinni mínum
trúnaðarstörfum og þing-
mennsku. Hef raunar aldrei verið
ákveðnari í því en eftir þennan
fund í dag, sem ég reyndar skil
ekki enn. Ég hafði hugleitt það
alvarlega að hætta þingmennsku
eftir þetta kjörtímabil, en nú tek
ég þær hugleiðingar alvarlega til
endurskoðunar, jafnvel þótt starf-
ið sé illa launað. Starfíð er svo
eftirsótt, sér í lagi mitt sæti.“
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins sagði um
fundinn með Guðmundi: „Við
gerðum Guðmundi grein fyrir
málinu, eins og okkur var falið.
Málinu er lokið hvað varðar Al-
þýðubandalagið."
„Ekki ástæða til að álykta frekar“
„Eftirfarandi tillaga var samþykkt á fundi mið-
stjómar Alþýðubandalagsins að morgni 15. júlí
1986:
Miðstjöm Alþýðubandalagsins minnir á að höfuð-
hlutverk flokksins er að beita sér gegn auðhyggjunni
og afleiðingum hennar hvar sem þær birtast, ekki
síst þeirri spillingu sem afhjúpast nú í Hafskipsmál-
inu og málum fleiri stórfyrirtækja.
Hafskipsmálið hefur varpað skýru ljósi á eðli
auðvaldsþjóðfélagsins og afleiðingar þeirrar efria-
hagsstefnu sem er kjami fijálshyggjunnar. Það hefur
einnig leitt í ljós þær hættur sem geta fylgt því að
trúnaðarmenn launafólks og sósíalískrar hreyfíngar
tengist hagsmunaböndum við forráðamenn auðfyrir-
tækja og áhrifamikla einstaklinga f forystusveit
íhaldsaflanna.
Miðstjómin telur brýnt að allar stofnanir og trún-
aðarmenn Alþýðubandalagsins helgi sig baráttunni
gegn þeirri eftiahagslegu og stjómmálalegu spillingu
sem Hafskipsmálið hefur afhjúpað. Hvað varðar
mál Guðmundar J. Guðmundssonar ályktar mið-
stjómin að fela formanni flokksins, formanni
þingflokksins og formanni framkvæmdastjómar auk
tveggja miðstjómarmanna sem fundurinn tilnefnir
að ganga á fund Guðmundar og greina honum frá
þeim umræðum sem farið hafa fram um mál hans
á fundi miðstjómar og einnig eftir atvikum þeim
umræðum sem urðu af sama tileftii á sameiginlegum
fundi framkvæmdastjómar og þingflokks sl. mið-
vikudag. Að öðm leyti sér miðstjóm ekki ástæðu
til að álykta frekar í máli þessu."
Togarinn Sturlaugur
H. Böðvarsson:
Vélarskipti
í september
STEFNT er að vélarskiptum
I togaranum Sturlaugi H.
Böðvarssyni frá Akranesi um
miðjan september. Gengið
hefur verið frá kaupum á
nýrri vél og niðursetning
hennar verður boðin út í
fyrrihluta ágústmánaðar.
Vélin kostar um 13 milljónir.
Sturlaugur H. Böðvarsson hét
áður Sigurfari II og var gerður út
frá Gmndarfírði. Fiskveiðasjóður
keypti skipið á uppboði og seldi
síðan Akumesingum. í fyrstu
veiðiferð þess fyrir Akumesinga
kom í ljós spmnga í blokk aðalvél-
arinnar, sem ekki reyndist unnt
að gera fyllilega við. Bráðabirgða-
viðgerð hefur þó dugað enn sem
komið er, en óhjákvæmilegt var
talið að skipta um vél.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri H. Böðvarssonar og
Co. á Akranesi, eiganda togarans,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að vélarskiptin yrðu boðin út bæði
innanlands og utan og því ekki
vitað enn, hvar þau yrðu unnin.
Vélin væri frá Hollandi af gerðinni
Stork-Werkspoor og kostaði ein
og sér um 13 milljónir króna. Hann
sagði kostnað því mikinn, en ekki
hefði endanlega verið gengið frá
bótakröfum á hendur Fiskveiða-
sjóðs vegna vélargallans. Ljóst
væri þó, að einhveijar bætur kæmu
til, en þar sem um nýja vél væri
að rasða í stað 5 ára gamallar,
yrði fyrirtæki hans að taka á sig
stóran hluta kostnaðar.