Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986
7
Besti vinur ljóðsins:
Skáldakvöld í
Norræna húsinu
„Besti vinur ljóðsins" stendur
fyrir skáldakvöldi i Norræna
húsinu í kvöld kl. 21.00. Þar
verður boðið upp á vandaða
dagskrá með ljóðum og tónlist.
Eftirtalin skáld lesa úr verkum
sínum: Nina Björk Árnadóttir,
Gyrðir Elíasson, Wilhelm Em-
ilsson, Vigdís Grímsdóttir,
Kristján Kristjánsson, Sjón,
Atli Ingólfsson, Jón úr Vör,
Hrafn Jökulsson og Margrét
Lóa Jónsdóttir.
Einnig verða stuttar kynningar
Gyrðir Elíasson
á ljóðum Sveins Jónssonar, fram-
tíðarskálds (1892—1942) og
Jóhanns Jónssonar (1896—1932).
Sveinn Jónsson var á sfnum jmgri
árum af mörgum talinn eitt efni-
legasta skáld þjóðarinnar. Hann
hætti að yrkja rúmlega tvítugur
og sneri sér að viðskiptum i Dan-
mörku.
Flestir ljóðaunnendur þekkja
„Söknuð" Jóhanns Jónssonar en
kveðskapur hans umfram það er
ekki á allra vörum. Það er Hrafn
Jón úr Vör
Jökulsson sem tekur þessar kjmn-
ingar saman en ljóð Sveins og
Jóhanns les Viðar Eggertsson,
leikari.
Þá flytur Guðpón G. Guðmunds-
son fáein lög við eigin texta og
texta Kristjáns Þ. Hrafnssonar,
sem verður kynnir á skáldakvöld-
inu.
Kaffístofa Norræna hússins
verður opin í kvöld og í hléi gefst
gestum kostur á að kaupa bækur
eftir sum þeirra skálda, sem fram
koma, en þeir Gyrðir, Kristján og
Sjón hafa allir nýlega sent frá sér
ljóðabækur.
Miðaverð á skáldakvöld „Besta
vinar ljóðsins" er aðeins 250 krón-
ur.
(Fréttatilkynning)
Vigdís Grímsdóttir
Nýr bæklingur
um Reykja-
nesfólkvang
- með korti af Reykja-
nes- og Bláfjallafólkvangi
STJÓRN Reykjanesfólkvangs
hefur gefið út nýjan bækling
um fólkvanginn.
I honum er kort af Reykjanes-
og Bláfjallafólkvöngum, sem liggja
saman sem kunnugt er og þar
merktar inn nokkrar gönguleiðir. í
texta eru ýmsar upplýsingar og
fróðleikur um fólkvanginn. Fjallað
er um jarðsögu svæðisins, veðurfar,
dýralíf, gróður, sögu, samgöngur
og stungið upp á nokkrum góðum
gönguleiðum þar. Þá er lýst því sem
felst i friðlýsingu og náttúruvemd
á svæðinu og hvatning til þeirra
sem þar koma um góða umgengni.
Kortið hefur Guðmundur O. Ing-
varsson teiknað, en umsjón með
bæklingnum hafði Elín Pálmadóttir,
formaður stjómar fólkvangsins.
Myndir tók Grétar Eiríksson og
bæklingurinn er prentaður í Svans-
prenti. Hann er í þannig broti að
auðvelt er að hafa hann í vasa.
Bæklingurinn mun liggja frammi
hjá sveitarfélögum, svo og hjá
ferðafélögum og náttúmvemdar-
ráði, eftir þvi sem þau óska.
Upplagið er hjá Bimi Höskuldssyni
REYKJANES
FÓLKVANGUR
á skrifstofu borgarverkfræðings i
Skúlatúni 2 í Reykjavík og er hægt
að nálgast hann þar, bæði fyrir
hópa og aðra aðila.
Ungmennaféiagið
Vaka 50 ára:
Boðið til
afmælishófs
í Þjórsár-
veri 19. júlí
Selfossi.
Ungmennafélagið Vaka í Vill-
ingaholtshreppi verður hálfrar
aldar gamalt þann 19. júlí nk.
Eins og önnur ungmennafélög í
dreifbýli gegnir Vaka mikilvægu
félagslegu hlutverki í hreppnum.
Félagið var stofnað 1936 að
fmmkvæði Jóns Konráðssonar sem
þá var kennari í hreppnum. Alla tíð
síðan hefur félagið haldið uppi
öflugri félagsstarfsemi. A fímmta
áratugnum var félagið þekkt fyrir
mikla glímukappa sem unnu stór
afrek á sínum vettvangi. Félagið
hefur alltaf átt góðan hóp íþrótta-
fólks sem keppir fyrir hönd félags-
ins. Félagsstarfið er nú með miklum
blóma, skemmtanir haldnar í
hreppnum, námskeið og íþróttir
stundaðar.
Félagið hefúr ákveðið að halda
upp á fímmtugsafmælið með því
að bjóða hreppsbúum og öllum
gömlum félögum og vandamönnum
til afmælishófs í Þjórsárveri kl. 21
að kvöldi afmælisdagsins. Þar verð-
ur boðið upp á næringu, kaffí og
kökur, og síðan verður andlega
þættinum sinnt með ræðum og
skemmtiatriðum. Að lokum verður
dansað við harmonikkuleik fram
eftir nóttu.
Fólk er hvatt til að rifja upp
gömul tengsl við ungmennafélagið
og óska afmælisbaminu um leið til
hamingju með afmælið.
— Sig Jóns.
Leiðrétting
NAFN eins þriggja umsjónar-
manna með efni um landsmót skáta
í Viðey féll niður í Morgunblaðinu
í gær. Hann heitir Guðmundur F.
Siguijónsson.
PHiLIPS
wmmm
i A ' í's.a siiii''S'SqV-;
PHIUK
Reynslá og þekking er undirstaða
framleiðslu Philips-myndbandstækja.
Philips-myndbönd eru sérhönnuð til
að standast öll gæðapróf og bjóða
aðeins það besta eins og Philips er
þekkt fyrir.
PHILIPS myndbandstæki
fullkomnun á mynd-
og hljódgæðum.
Nokkrar upplýsingar
um VR-6462-tækið:
★ Sjálfvirk bakspólun þegar bandið er á
enda
★ Tölvustýrð mundstilling
★ 30daga minnifyrirtværupptökur
★ Hraðgeng myndskoðun fram og til
baka
★ Hæggeng myndskoðun fram og til
baka
★ Hæggeng myndskoðun? Skoða má
hverja einstaka kyrrmynd á bandinu
★ Þráðlaus fjarstýring
5M6\6J^
fBSSSi
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
I—