Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 „Þetta hús er byggt fyrir kött- inn og hann á að njóta þess“ VESTUR Svona á húsið að lita út þegar það verður tilbúið. Hús Kattavinafélagsins eins og það lítur út í dag séð úr vestri. Rætt við Svanlaugu Löve formann Katta- vinafélagsins, sem er að reisa 651 fermetra kattahótel ÞE'ITA byrjaði eiginlega allt með því að það birtist viðtal við mig undir fyrirsögninni „Illa far- ið með kettina". Þá var mikið af flækingsköttum i bænum og hafði verið rnikil umræða um þá. Nokkrum dögum seinna hringdi kona í mig og sagðist vera algjör- lega sammála mér og spurði hvort við ættum ekki að stofna kattavinafélag. Ég var til í það og við héldum undirbúningsfund sem endaði síðan með því að við ákváðum að halda stofnfund á Hallveigarstöðum 28. febrúar 1976. Stofnfélagar voru 142, en nú telur Kattavinafélagið um 900 manns, það eru alltaf að bætast við nýir félagar. Það halda margir að það séu bara kvenmenn í félaginu en karlmennimir láta ekki sitt eftir liggja. Það er mikið af karlmönnum sem eru kattavinir. A þessum ámm vom sem sé margir flækingskettir í bænum. Mikið var um að fólk auglýsti kettl- inga gefins og svo tóku fullorðnir við þeim til að leyfa bömunum að leika sér að í nokkra daga en los- uðu sig svo við þá. Það ætti enginn maður að gefa kettlinga. Ég læt mínar læður aldrei eiga kettlinga bara til þess að þeim verði síðan lógað eða þeir gefnir. Ég hef eignast mína ketti smám saman í gegnum árin, nú em hér á heimilinu tveir kettlingar og fjór- ir fullvaxnir kettir. Þann elsta eignaðist ég fyrir tíu ámm. Það var komið með hann glorsoltinn úr hita- veitustokk þar sem kettir höfðust oft við. Hann Runólf minn var ég aftur á móti beðin að geyma í tvo til þrjá mánuði en hann var aldrei sóttur. Kettir virðast einhvem veg- inn ílendast hjá mér. Ég tók að mér að geyma ketti frá árinu 1977 og þangað til ég forfallaðist fyrir ári. Nú tekur dýra- spítaiinn við köttum sem hafa ekkert athvarf. Það hafa dvalið héma á heimilinu á þriðja þúsund kettir í gegnum árin. Ég hugsa aldrei um hvað það kostar að gefa köttunum að borða. Ég gef þeim fisk, kjöt, kattamat og einstaka sinnum dósamat. Þeim finnst þurrmaturinn sérstaklega góður. Þetta kattahald mitt hefur aldrei orðið til þess að nágrannamir hafi kvartað, það hefur enginn amast við köttunum mínum. Eg held að fólk geri sér ekki ljóst hvað það gerir lítið úr sér þegar það amast við dýmnum. Maðurinn kom síðast- ur á jörðina, það vita allir. Síðan settist hann ofan á það sem dýrin hafa byggt upp og amast svo við þeim. Ég er alin upp í sveit, í Ames- sýslu, og ólst þar upp með fjölda dýra. Ég hef mætur á þeim öllum en köttinn tala ég við eins og mað- ur við mann. Það er alveg hægt að tala við ketti ef maður gerir sér ljóst að þeir hafa sjálfstæða skap- gerð og vilja. Síðan ég fluttist til Reykjavíkur árið 1934 hef ég alltaf haft ketti á heimilinu. Þeir hafa fylgt mér allt mitt líf og fylgja mér vonandi áfram, bæði í þessum heimi og öðr- um. Það em nokkur ár síðan við fór- um að ræða um að það þyrfti að byggja yfir kettina. Við sóttum um lóð 1978 en það gekk treglega að fá hana. Það var skortur á lóðum á þessum ámm. Við fengum hana þó að lokum árið 1982. Yndislega lóð uppi á Ártúnshöfða á framúrskarandi góð- um stað. Við bytjuðum að steypa árið 1983. í fyrra var sjálft kattahúsið steypt. Það er nú fokhelt og verið er að byggja framhúsið þar sem dýralæknirinn verður ásamt fleira. Eftir er efri hæðin og að ganga frá neðri hæðinni. Við höfum haft allar dyr á húsinu þannig að fólk í hjóla- stólum geti farið um allt, bæði starfað þama, t.d. á skrifstofunni, eða bara skoðað dýrin sér til ánægju. Með Guðs og góðra manna hjálp hefur tekist að afla fjár. Við höfum bæði fengið fijáls framlög og ann- að. Það var mikil viðurkenning fyrir okkur þegar við fengum 1.000 doll- ara styrk frá bandaríska fyrirtæk- inu Ralston Purina en það var í fyrsta skipti sem fyrirtækið styrkir Morgu nblaðið/Bj ami Svanlaug ásamt kettlingunum Kúlu og Bröndu. aðila utan Bandaríkjanna. Við höfum haldið basara, vomm með tjald niðri í miðbæ á 17. júní og svo höfum við haldið kattasýn- ingu. Kettirnir tóku sýningunni bara vel. Þeir em með fastmótaða og dula skapgerð en hugsa þeim mun meira. Það er mjög gott að lynda við flækingskettina, þeir em mjög þakklátir þegar þeim er boðið inn í hlýjuna og gefið að borða. Villtu kettimir em verri viður- eignar, þeir tryllast bara af hræðslu. Villt kattamóðir getur bara sagt sínum kettlingum það sem móðir hennar sagði henni; að maðurinn sé hættulegur. Það fer ekki á milli mála að Kattholt mun standa undir sér. Við vonumst til að geta tekið sjálft kattahúsið í notkun á næsta ári og áætlum að því verði endanlega lok- ið eftir þijú ár en það fer auðvitað eftir ýmsu. Þama verður aðstaða fyrir ekki minna en 200 ketti, húsið verður geysilega stórt. Auk þess verða tvær íbúðir í húsinu og aðstaða fyrir dýralækni. Það er mikið um það að kettir fari til dýralæknis, þeir fá alveg samskonar sjúkdóma og við. Það er ætlunin að ef smádýr þurfi á læknisaðstoð að halda verði hún veitt og þau fái að dvelja á staðnum á meðan þau em í gjör- gæslu en alls ekki lengur. Það er einfaldlega ekki hægt fyrir okkur að taka við öllum dýr- um. Það gengur til dæmis ekki að hafa hunda og ketti saman. Kettir em logandi hræddir við hunda. Þetta hús er byggt fyrir köttinn og hann á að njóta þess. „Reyni að fá rétta mynd af fólkinu o g lífi þess“ — segir Percy Pihl sem vinmir að kennslukvikmynd um ísland Selfoiwi. HÉR Á landi er nú staddur sænskur kvikmyndagerðarmað- ur, Percy Pihl, sem vinnur að gerð kennslukvikmyndar um ís- land. í myndinni ieggur Percy áherslu á að ná fram réttri mynd af lífi fólksins f Iandinu og hefur þann háttinn á að dvelja hér í tvo mánuði og ferðast milli staða. Percy Pihl er sjálfur framleiðandi myndarinnar og gerir allt sjálfur, annast myndatökur, klippingu, hljóðsetningu og allt sem að fram- leiðslu myndarinnar lýtur. Hann kom til landsins í byijun júní og þegar tal náðist af honum á Sel- fossi hafði hann farið víða um landið og kvikmyndað landsmenn við störf og leik. Percy sagði að um væri að ræða kennslukvikmynd fyrir 10 til 15 ára böm, til sýninga í skólum, en auk þess yrði myndin sýnd hjá félögum og klúbbum í Svíþjóð, bæði á mynd- bandi og á 16 mm filmu. Myndin kemur til með að verða seld til Englands og Bandaríkjanna sem hluti af myndaröð um Norðurlöndin. Hann sagði og að Norðurlandaráð hefði lagt drög að því að fá mynd um ísland inn í myndaröð um öll Norðurlöndin en mynd af íslandi vantaði þar. Myndin sem Percy gerir heitir „ísland, Nordens yngsta stat“. „Ég legg áherslu á það í myndinni hvað íslendingar em duglegir í þessu litla landi," sagði Percy. „Ég hef þann háttinn á þegar ég geri svona mynd- ir að ég fer til viðkomandi lands og dvel þar til þess að fá rétta mynd af fólkinu og lífi þess. Þann- ig fær maður mun betri mynd af hlutunum en ef maður skipuleggur vandlega fyrirfram ákveðna staði til að heimsækja og mynda á. Það er margt sem ber fyrir augun á hveijum stað og gefur myndunum sérstakt líf,“ sagði Percy. Hann sagðist hafa tekið eftir því að ungl- ingar vom við vinnu á Selfossi og þegar hann fékk að vita að um væri að ræða sérstaklega skipu- lagða unglingavinnu þá tók hann myndir af krökkunum við vinnu sína. Ennfremur kvaðst hann hafa komist í feitt á Hellu á Landsmóti hestamanna og fengið þar góða mynd af útiskemmtun fólks og nefndi sérstaklega hvað allir hefðu verið þar ánægðir og glaðlegir. Á Akranesi hefði hann verið á ferð um fallegt íbúðahverfí þar sem hann náði mynd af bömum að leika sér fyrir utan hús. „Allt eins eðli- legt og óþvingað og hugsast gat,“ sagði Percy. Sonur Percy og sonarsonur, Bjöm og Erik, komu hingað til að aðstoða hann við kvikmyndatökum- ar og til að hafa ánægju af dvölinni á íslandi. Þeir félagar rómuðu allar móttökur og sögðust hvarvetna vera boðnir velkomnir og allt gert til þess að þeir gætu tekið sem Percy Pihl kvikmyndatökumaður, sonarsonur hans Erik og Björn sonur hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.