Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 Iðnaðarmannafélagshúsið: Stefna að endur- byggingu baðstof- unnar með útskurði STJÓRN Iðnaðarmannafé- lags Reykjavíkur, sem átti baðstofuna á efstu hæð Iðn- aðarmannafélagfshússins við Vonarstræti, er skenundist mikið í eldi í lok síðasta mánaðar, íhugar nú mögu- leika á að láta endurbyggja baðstofuna með öllum þeim útskurði Ríkharðar Jónsson- ar, sem þar var. „Við vitum um að minnsta kosti tvo gamla nemendur Ríkharðs, sem gætu tekið að sér útskurðinn,“ sagði Siguroddur Magnússon, ritari stjómar Iðn- aðarmannafélagsins, í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Það eru til góðar myndir af öllum útskurðinum — ljósastæð- um, stólum, öndvegissúlum, glugga- og hurðagereftum, rúna- og höfðaletursútskurði og fleiru — þannig að vitað er ná- kvæmlega hvemig þetta ætti að líta út.“ Siguroddur ítrekaði, að ekki hefði verið tekin endanleg ákvörðun um endursmíðina en sagði að á síðasta stjómarfundi í félaginu — og þeim fyrsta í áratugi, sem ekki var haldinn í baðstofunni — hefði komið fram greinilegur vilji manna til að ráðast í verkið. Viðgerð á sjálfu húsinu, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, miðar vel áfram. A laugardaginn var haldið upp á það, að nýjum sperrum hafði verið komið á sinn stað, og var starfsmönnum ís- taks, stjóm Iðnaðarmannafé- lagsins og fleirum boðið í kaffi og ijómatertur í tileftii dagsins. Boðið var upp á rjómatertur og kaffi að dönskum sið þegar starfs- menn ístaks höfðu reist nýjar sperrur í Iðnaðarmannafélagshúsinu við Vonarstræti á laugardaginn. eðlilegastar myndir. Á Akranesi tóku þeir myndir í Sementsverk- smiðjunni og í hraðfrystihúsi, af fólki við vinnu. Áburðarverksmiðjan var einnig vettvangur myndatöku, fyrirtæki KEA á Akureyri, Mjólkur- bú Flóamanna, kartöfluakrar í Þykkvabæ og bóndabær í Biskups- tungum. Þeir feðgar rómuðu sér- stakiega móttökur í Bræðratungu, hjá Sveini Skúlasyni og hans fólki, þar sem þeir tóku myndir af rún- ingi sauðfjár. „Og pönnukökumar voru sérstaklega góðar,“ sagði Erik litli sem verður 10 ára 20. júlí og heldur upp á afmælið á íslandi. Perey sagði að þessi mynd yrði öðruvísi en aðrar myndir um ísland, ekki væri eingöngu um að ræða myndir af fallegu landslagi heldur væri líf fólksins meginmálið. Hann kvaðst byggja myndina þannig upp að það sæist hvernig vinna fólksins væri upp byggð. í því efni nefndi hann rúning kindanna og síðan meðferð ullarinnar í Álafossi og loks hinar fínu flíkur sem gerðar væru úr ullinni. Ekki mætti heldur gleyma orkulindunum og í því efni minntist hann sérstaklega á ofur- kraftinn á Nesjavöllum. Percy Pihl hefur gert margar kennslumyndir um líf fólks víða um heim og er eftirsóttur sem slíkur. Hann kvaðst hafa haft í hyggju að hætta þegar hann nálgaðist eftir- Morgunblaðið/Sig. Jóns. Percy Píhl mundar kvikmynda- vélina. launaaldur en hætt við og farið að lesa um nýjungar í kvikmyndagerð. „Og þá var svo margt spennandi 'sem heillaði mig,“ sagði þessi glað- beitti Svíi. „Svona ferð er mér jafnt skemmtiferð og sem ferð í atvinnu- skyni. Það er alltaf sérstakt að koma til Islands." Sig. Jóns. Morgunblaðið/Einar Falur REISUGILDI f KRINGL UNNI Reisugildi var haldið í nýja Hagkaupshúsinu í Kringlunni sl. laugardag að viðstöddum iðnaðarmönnum hússins og fulltrúum þeirra 80 fyrirtækja og verslana sem þarna verða til húsa auk Hagkaupa. Áætlað er að húsið verði opnað og tilbúið til notkunar 13. ágúst 1987. Samkeppní um gerð listaverks á lóð nýja útvarpshússins ÁKVEÐIÐ hefur verið, að tilstuðlan Listskreytingasjóðs ríkisins, að efna til samkeppni um gerð listaverks er sett verði upp á lóð nýs húss Ríkisútvarpsins. Öllum íslenskum myndlistarmönnum er heimil þátttaka í samkeppninni. Til- lögfum ber að skila í síðasta lagi 17. nóvember nk. Veitt verða verðlaun að fjárhæð allt að 400.000 krónum, þar af nema fyrstu verðlaun 250.000 krónum. Listaverkið skal staðsett framan við aðalinngang hússins við Efstaleiti í Reykjavík. Stærð samkeppnissvæðis er 5x8 m, eða 40 fermetrar. Að því er stefnt að listaverkið verði upplýst. Kalt vatn og frárennsli er á staðnum. Útboð á frágangi lóðar hefur farið fram og verður því verki lokið nú í haust. Formaður dóm- nefndar er Markús Öm Antons- son útvarpsstjóri, og aðrir í dómnefnd eru Vilhjálmur Hjáim- arsson arkitekt og Kristján Davíðsson myndlistarmaður, til- nefndur af Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Dómnefnd hyggst ljúka störfum í lok þessa árs og þegar úrslit liggja fyrir verður haldin sýning á tillögun- um. Trúnaðarmaður dómnefndar er Þórhallur Þórhallsson, skrif- stofustjóri SÍM, Ásmundarsal, Freyjugötu 41 í Reykjavík. Gögn skulu afhent trúnaðarmanni gegn skilatryggingu að fjárhæð 1.000 krónum. Keppnisgögn skulu innihalda keppnislýsingu, afstöðumyndir í mkv. 1:200 og 1:100, útlitsmyndir hússins í mkv. 1:200 og sneiðingar í mkv. 1:100. Fyrirspumir skulu berast trúnaðarmanni dómnefndar skriflega fyrir 11. ágúst nk. og mun hann síðan senda þátttak- endum skriflegt yfirlit yfir þær spumingai-, sem berast, ásamt svörum dómnefndar. Afhenda skal einfalt líkan af Iistaverkinu í mkv. 1:20. Það skal standa á plötu, sem er 25x40 cm. Einnig skal afhenda stutta greinargerð um hugmynd verksins, uppbyggingu, efnisval, festingar og annan frágang. Greinargerðin og annar texti skal vera vélritaður. Auðkenna skal líkan og önnur tillögugögn með fimm stafa ein- kennistölu í reit í hægra homi að neðan. Ógagnsætt umslag, merkt sömu einkennistölu, fyigi tillögunni, en í því sé nafn og heimilisfang tillöguhöfundar eða höfunda. Umbúðir skulu merkt- ar á sama hátt. Keppandi skal með símskeyti tilkynna trúnað- armanni að tillagan hafi verið send og fær hann þá til baka kvittun merkta einkennistölu til- lögunnar. Sérhver tillaga verður bmnatryggð á 150.000 krónur meðan hún er í vörslu dómnefnd- ar. Dómnefndinni er áskilinn réttur til innkaupa á tillögum fyrir allt að 100.000 krónur. Framkvæmdum við hið nýja hús Ríkisútvarpsins miðar vel áfram, að sögn útvarpsstjóra, og er gert ráð fyrir að starfsemi útvarps flytji af Skúlagötu 4 snemma á næsta ári en húsnæði sjónvarpsins verði fullbúið tveimur ámm síðar. Morgunblaðið/Börkur Tillögum að listaverki, sem setja á upp við aðalinngang nýja útvarps- hússins, skal skilað i síðasta lagi 17. nóvember nk. í'.>V ' ^ ! Viö bjóðum ævintýra- þyrstum (slendingum á öllum aldri, stúdentum jafnt sem öðrum, í ótrú- lega ódýrt ferðalag til Zurich í Sviss NÚNA Á LAUGARDAGINN! (19/7). Verð frá kr. fyrirflug-f gistingu í 1 nótt. FlugvallarsKattur ekkl innifalinn. Svona tilboð kemur ekki aftur á næst- unni, - það máttu bóka! Hafið samband! SKRIFSTOFA STUDENTA Hringbraut, sími 25822 og 16850

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.