Morgunblaðið - 16.07.1986, Side 27

Morgunblaðið - 16.07.1986, Side 27
17. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði í London: MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 27 Morgunblaðið/Guðmundur Pétursson Séð yfir nýju flugfstöðvarbyggingnna á Keflavíkurflugvelli. Ofan við bygginguna, til hægri, er unnið að flughlöðum. Séð úr vestri yfir bygginguna. Á myndinni sést vel afstaða Flug- stöðvarinnaræ til flugbrautanna á Keflavíkurflugvelli. Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli: Tilboð í lóðafrá- gang opnuð næst- komandi mánudag FRAMKVÆMDUM við nýju flugstöðvarbygginguna á Keflavík- urflugvelli hefur miðað vel að undanförnu og í samræmi við þær áætlanir sem gerðar hafa verið, að þvi er Jón E. Böðvars- son, framkvæmdastjóri byggingarnefndar, sagði f samtali við Morgunblaðið. Tilboð f frágang lóðar umhverfis bygginguna verða opnuð næstkomandi mánudag. Utanhúss er nú unnið að upps- eldhúsi Flugleiða. Meðfylgjandi lætti á flughlöðum og vestan við myndir af flugstöðvarbygging- aðalbygginguna er nú verið að Unni tók Guðmundur Pétursson grafa grunn að 3.800 fermetra nu fyrir skömmu. Góðar heimtur hjá flest- um hafbeitarstöðvunum Vantaði meiri stærð- fræðiund- irbúning — sögðu íslensku kepp- endurnir eftir að hafa setið í fimm tíma yfir dæmi um sveiflur agna í hringtengdri gormkeðju London, frá Viðari Ágústssyni, fréttarit- ara Morgunblaðsins. FYRRI hluta 17. Ólympíuleik- anna í eðlisfræði er lokið með því að keppendur hafa leyst þijú fræðileg verkefni, hvert í fimm liðum. Keppendumir fengu fimm klukkustundir til að leysa verkefnin og mátti sá timi ekki vera skemmri. 101 drengur og ein stúlka í St. Dominic’s-menntaskólanum í Harrow í London, þar sem keppnin fer fram, anda nú léttar eftir að hafa gengið í gegnum erfiðasta eðlisfræðipróf lífs síns. Flest voru þau valin til keppninnar með svip- uðum hætti og íslensku keppend- umir §órir: með forkeppni og úrslitakeppni í heimalandi sínu. Síðan nutu þau þjálfunar um lengri eða skemmri tíma. Óvenju mikill styrr stóð um fræðilegu verkefnin þegar þau voru lögð fram í Ólympíuráðinu í gær, en þar eiga sæti fararstjórar allra keppnisþjóðanna. Lyktaði ágreiningnum með því, að Bretar, höfundar dæmanna og gestgjafar leikanna, styttu verkefnin um 25%. Var vélritun, ljósritun og þýðingu þeirra lokið á sjötta tímanum í morgun en sjálf keppnin hófst klukkan hálf níu. Verkefnin gerðu að þessu sinni óvenju miklar kröfur til stærð- fræðilegra vangaveltna og em að því leyti sambærileg við þyngstu dæmi á fyrsta ári í háskólanámi. Fjölluðu dæmin um bylgjuvíxl í raufagleri, ferðamáta jarðskjálfta- bylgna og sveiflur agna í hring- tengdri gormkeðju. Islensku keppendumir fjórir komu að vonum örþreyttir út úr prófsal St. Dominic’s-menntaskól- ans eftir hádegið í dag. „Það er ótrúlegt hve lítið er hægt að gera á fimm klukkutímum," sagði Eirík- ur Karlsson, 18 ára stúdent úr MH. Þeir vom sammála um að lausnimar hefðu byggt meira á stærðfræðiþekkingu en þeir hefðu átt von á. „Meiri stærðfræðiundir- búningur hefði komið sér betur og ef tilraunaverkefnin á fímmtudag em í stíl við þetta getum við eins sleppt þeim,“ sögðu þeir. DAGANA 22. júlí til 7. ágúst munu 47 breskir og írskir skátar á aldrinum 16—20 ára dvelja á Islandi. Tilgangur _ ferðarinnar er að fræðast um ísland, íslendinga og íslenska lifnaðarhætti. Skátamir verða að ferðast gangandi um Suð- austurland og ekki ganga skemmri vegalengd en 200 kílómetra. Á leið- inni eiga þeir að ljúka 12 verkefnum upp á eigin spýtur. HAFBEITARSTOÐVAR lands- ins eru nú flestar hveijar byrjaðar að fá inn laxa og eru heimtur allgóðar. Næstu vikur eru þó þær sem eiga eftir að Þessi leiðangur er skipulagður af skátahreyfíngum írlands og Bretlands í samvinnu við Bandalag íslenskra skáta. Þetta er í fyrsta skipti sem leiðangur af þessu tagi kemur til íslands og er það von Bandalags íslenskra skáta að íbúar þess svæðis sem leiðangursmenn- imir ferðast um, svæðið á milli Reykjavíkur og Þórsmerkur, taki vel á móti þessum erlendu gestum í viðleitni þeirra til að kynnast landi og þjóð. ráða úrslitum um heimtur sum- arsins. í Laxeldisstöð ríkisins í Kolla- firði em flestir laxar komnir á land eða um 4.300 að sögn Áma ísaks- sonar veiðimálastjóra. Þetta er meira en heildarmagnið í fyrra enda mun meiru sleppt. Ami sagði ennfremur að vonir stæðu til að heimta inn um 5-10% af sleppi- magni en það ættu að vera ca. 10-12.000 laxar. Hjá Pólarlaxi í Straumsvík feng- ust þær upplýsingar að fyrsti laxinn hefði komið þann 23. júní og væru þeir nú alls orðnir um 1.300. Þetta væri mjög stór lax og algeng stærð 14—20 pund. Frá og með 5. júlí hefði þó ekkert geng- ið, einungis fengist 21 fískur. Það væri allt morandi í sei fyrir utan sem klippti laxinn í sundur. Stór- laxinn sem fengist væri líka mjög illa farinn eftir net. Menn væm þó ekkert famir að daprast, enda þýddi það lítið í laxeldi annað en að vera bjartsýnn. Vonir stæðu til að fá um 9.000 laxa í sumar en það væri rétt innan við 7% heimtur af sleppimagni. I fyrra fengust þama um 7.000 laxar og var þá sleppt sama magni. Um 600 laxar vom komnir inn hjá Vogalaxi í Vogum á Reykja- nesi. Sagði Sveinbjöm Oddson stöðvarstjóri allt ganga mjög vel og væri þetta um 100 löxum meira en á sama tíma í fyrra. Þó væri áberandi meira af eins árs laxi en þá. Nú væri að ganga í hönd mesti annatíminn og næstu tvær vikur þær sem myndu ráða úrslitum um heimtur sumarsins. Hjá Fljótalaxi á Reykjarhóli vom menn rétt að byija að sjá í fisk, að sögn Guðmundar H. Jónssonar stjómarformanns Fljótalax. Sagði hann talsvert af laxi vera niður undir ósnum en hann væri tregur að fara upp í gildrumar. Þetta væri þó bara smátilraun sem þeir væm með þama og ekki von á miklum árangri. Jón Sveinsson, forstöðumaður hafbeitistöðvarinnar Lárós á Snæ- fellsnesi og formaður landssam- taka fiskeldis og hafbeitarstöðva, sagðist vera kominn með um 17— 1.800 laxa, og væri það mjög góð- ur árangur. Raunar meira en hann hefði vonast til að fá í byrjun sum- ars. Það hefði komið mjög á óvart bæði hversu snemma laxinn væri á ferðinni og hversu góðar heimt- umar væm, eða u.þ.b. 13% af sleppimagni. Nú væri besti tíminn að ganga í hönd miðað við fyrri ár og því ástæða til bjartsýni. Jón taldi þó best að spá engu um það hversu miklu mætti búast við í viðbót. Tíbrá á Norðurlandi HIJÓMSVEITIN Tíbrá heldur tónleika á Norðurlandi um næstu helgi. Föstudaginn 18. júlí nk. mun hún leika á dansleik á Hótel Höfn á Siglufírði og síðan í Húnaveri laug- ardagskvöldið 19. júlí. Um Verslunarmannahelgina mun svo Tíbrá leika í Logalandi í Borgarfírði. (Úr fréttatilkynniiigu) Breskir og írskir skátar: Ætla að ganga um Suðausturland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.