Morgunblaðið - 16.07.1986, Síða 28

Morgunblaðið - 16.07.1986, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 Akureyri Skorað á ráðherra að beita sér fyrir stofnun úti- bús Húsnæðisstofnunar Akureyn. ALEXANDER Stefánsson, félagsmálaráðherra, fól Húsnæðisstofnun ríkisins í bréfí dagsettu 6. maí síðastliðinn að aðstoða „svo sem kost- ur er“ við að koma á fót ráðgjafarþjónustu við íbúðarbyggjendur á Akureyri. Þetta kom fram í máli Heimis Ingimarssonar, fram- kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Iðju á Akureyri, á fundi með Grétari Guðmundssyni, forstöðumanni ráðgjafaþjónustu Húsnæðisstofnunar rikisins hér á Akureyri í gær. Forsaga málsins er sú að 28. apríl sendi Heimir Jóhanni Ein- varðssyni, aðstoðarmanni félags- málaráðherra, bréf þar sem hann fór formlega fram á að slíkri þjón- ustu, „í líkingu við ráðgjafarétöð Húsnæðisstofnunar ríkisins" verði komið upp á Akureyri. Ráðherra segir í bréfí sínu að ráðuneytið mæli eindregið með að orðið verði við þessari beiðni. Útibú á Akureyri hiðfyrsta Á fúndinum í gær, sem Hús- næðisstofnun boðaði til með for- stöðumðnnum sveitarfélaga, stéttarfélaga og lánastofnana, kom fram eindreginn vilji Norðlendinga að koma á fót útibúi frá Húsnæðis- stofnun. Ráðgjafarþjónustan væri góðra gjalda verð en það þyrfti meira: útibú. Svohljóðandi tillaga samþykkt samhljóða í lok fundar- ins: „Fundur á vegum Húsnæðis- stofnunar ríkisins um ráðgjafar- þjónustu á Norðurlandi, haldinn i Alþýðuhúsinu á Akureyri 15. júlí 1986, fagnar þeirri afstöðu félags- málaráðherra að stuðla að aukinni ráðgjafarþjónustu á Norðurlandi. Jafnframt bendir fundurinn á þörf fyrir víðtækari þjónustu Húsnæðis- stofnunar úti á landsbyggðinni. Skorar fundurinn á félagsmálaráð- herra og stjóm Húsnæðisstofnunar ríkisins að beita sér fyrir því að stofnað verði útibú frá Húsnæðis- stofnun á Akureyri hið fyrsta.“ Mikið var um það rætt á fundin- úm hvemig hugsanlegt útibú myndi starfa og hver ætti að bera kostnað af starfseminni. Það sjónarmið kom fram að ef til að mynda einn maður yrði staðsettur á Akureyri myndi hann þjóna öllu Norðurlandi og ferðast á milli staða með jöfnu milli- bili. Yrði þetta ekki nægjanlegt yrði starfsemin endurskoðuð — sett á fót útibú víðar. Húsnæðisstofnun standi undir kostnaði I Keflavík hefur nú starfað í eitt ár ráðgjafarþjónusta — sjálfstæð stofnun sem tengist Húsnæðis- stofnun ekki — og kom fram á fundinum í gær að bankastofnanir á Suðumesjum standi alveg undir kostnaði við ráðgjöf þar. Það sjón- armið kom fram í gær að eðlilegast væri að Húsnæðisstofnun bæri kostnað af starfsemi útibús á Norð- urlandi — menn töldu það sanngim- ismál. „Ef Húsnæðisstofnun borgar ráðgjafarþjónustu í Reykjavík eig- um við að sjálfsögðu að fá slíka þjónustu hér líka,“ sagði Jón Helga- son, fyrrum formaður verkalýðs- félagsins Einingar og fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Sameiningar, m.a. í gær. Jón sagði í gær að hann hefði athugað hvem- ig neyðarhjálpin, sem samið var um í síðustu kjarasamningum, hefði skipst og hélt því fram að lands- byggðarfólk hefði ekki fengið nema lítinn hluta hennar. „Þeir sem eru næstir hafa forgang," sagði Jón. Grétar Guðmundsson sagði þetta hins vegar ekki rétt — lán frá Hús- næðisstofnun hefðu skipst svipað og höfðatala íbúa í hveijum fjórð- ungi. Vom ýmsir fundarmenn raunar alls ekki sáttir við þennan mælikvarða. Jón Helgason sagði: „Það á að vera krafa okkar að Húsnæðisstofn- un og ríkisvaldið komi upp ráðgjaf- arþjónustu — hér á Akureyri og Morgunblaðið/Skapti Frá fundinum um málefni Húsnæðisstofnunar á Akureyri i gær. annars staðar úti á landi. Fólk verð- ur að sitja við sama borð hvar sem það býr á landinu." Jón sagði enn- fremur að besta ráðgjafarþjónustan væri að sínu mati fyrirbyggjandi ráðgjöf. Það væri hreinn glæpur að veita verkafólki 2 milljóna króna lán, kaupmáttur þeirra væri þannig að það gæti ekki staðið undir slíku. Hann tók dæmi um 3 milljónir króna sem Lífeyrisjóðurinn Samein- ing veitt árið 1981. Það voru 3 milljónir gamalla króna — eða 30.000 krónur. Þetta var lán til 20 ára og við síðustu áramót, þegar greitt hafði verið 5 sinnum af lán- inu, voru eftirstöðvamar 191.812 krónur. Það hafði hækkað um 640%. Jón Geir Ágústsson, byggingar- fulltrúi á Akureyri, sagðist fagna því ef sett yrði upp útibú frá Hús- næðisstofnun hér í bænum. „Það eru mörg herrans ár síðan ég stakk upp á þessu við stofnunina," sagði hann. Hann sagðist hafa fengið þau svör að byggingafulltrúar ættu að vera einhvers konar sendiherrar stofnunarínnar. Jón kvartaði undan sambandsleysi við stofnunina. „Ég hef aldrei fengið upplýsingar frá Húsnæðisstofnun að fýrra bragði og ég held ég megi fúllyrða að þaðan hefúr aldrei verið hringt í mig. Það er jafnvel erfítt að fá þaðan umsóknareyðublöð — þá þarf að hríngja oft eftir þeim og svo koma kannski fímm eintök!" Halla Björk Reynisdóttir flugnemi: „Rosalega gaman“ Akureyri. „MIG langaði bara að prófa þetta. Þess vegna dreif ég mig í að læra og þetta er rosalega gaman,“ sagði Halla Bjðrk Reynisdóttir, 19 ára ísfirðingur — einn nemenda Flugskól- ans — í samtali við Morgunblaðið. Halla sagðist eiga 20 flugtíma að baki. „Þetta er hobbý eins og er — ég veit ekki hvort ég kem til með að hafa þetta fyrir at- vinnu. Það fer eftir efnum og ástæðum en það yrði gaman að geta lagt flugið fyrir sig.“ Halla er nú komin með solo- próf og sagðist stefna á einka- flugmannspróf. Hún sagðist alls ekkert hrædd við flugið — en svolítið spennt. Halla stundar nám við Menntaskólann á Akureyri og sagðist staðráðin í að ljúka því. Morgunblaðið/Sveinn Ándri Kennararnir fjórir i skólanum: Sigurbjörn Arngrimsson, Baldvin Birgisson, Jóhann Skírnisson og Ármann Sigurðsson. Flugskólinn 10 ára UM ÞESSAR mundir eru 10 ár liðin frá því, að stöðug kennsla hófst við Flugskóla Akureyrar. Flugskólinn er í eigu Flugfélags Norðurlands. Flugskólinn hefur með höndum alla verklega flugkennslu; frá 0 upp í atvinnu-, blindflugs- og kennsluréttindi — og eru Q'órir kennarar starfandi við skólann. Baldvin Birgisson er yfírkennari, hinir eru Sigurbjöm Amgrímsson, Jóhann Skímisson og Ármann Sigurðsson. „Flugskólinn á tvær sérsmíð- aðar kennsluvélar af gerðinni Tommahawk, hannaðar sam- kvæmt kröfum flugkennara, og einnig höfum við yfír fjögurra sæta Warrior-vél, með öll blind- flugstæki og lóran C, að ráða og er hún notuð við blindflugs- kennslu," sagði Sigurbjöm í samtali við Morgunblaðið. Einnig hefur skólinn aðgang að tveggja hreyfla Piper Astec-vél. I vetur er fyrirhugað bóklegt einkafíugmannsnámskeið, bæði á Akureyri og ísafírði. Einnig eru fyrirhuguð blindflugs- og upprifj- unamámskeið fyrir einkaflug- menn í vetur. Núna eru námskeið yfírstandandi bæði á Akureyri og Isafírði og em 15 þátttakendur á fyrri staðnum og 30 á þeim síðari. Á síðasta ári luku 20 nemendur sólóflugmannsprófí, 15 einkaflug- mannsprófí, 2 atvinnuflugmanns- prófí, einn nemandi lauk blindflugsprófi og einn nemandi hlaut kennararéttindi. Tildrög kennslu skólans á ísafirði voru þau, að ísfírðingur hóf nám við skólann á Akureyri, þar eð engin flugkennsla var þá á ísafirði. Hins vegar reyndist áhugi á flugnámi þar svo mikill, að kennsla var þar hafín. Flugskóli Akureyrar er rekin sem sjálfstæð eining, en kaupir sína þjónustu frá FN og sjá kenn- aramir fjórir um reksturinn. Einn flugtími hjá flugskóla Akureyrar kostar frá 2.182 krón- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.