Morgunblaðið - 16.07.1986, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.07.1986, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 ♦ atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Afgreiðslustarf Viljum ráða konu á aldrinum 30-50 ára til afgreiðslustarfa. Starfsreynsla æskileg, en þó ekki skilyðri. Um er að ræða vinnu allan daginn. Lítið til okkar milli kl. 9.00-14.00 næstu daga. húsgagitfrhöllín BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -68Í199 og 681410 Tónlistarskóii Hafnarfjarðar Skólaritarf ! Hálf staða skólaritara við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er laus til umsóknar. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. Starfstími hefst um mánaðamótin ágúst/september. Umsóknareyðublöð og upplýsingar veittar á fræðsluskrifstofunni Strandgötu 4, sími 53444. Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar. Laus staða Hálf staða bókasafnsfræðings til skráningar- starfa í þjóðdeild Landsbókasafns íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamála- ráðuneytinu fyrir 25. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 9.júlí 1986. jyyyj Grunnskoh ^ Ólafsvíkur Kennara vantar í eftirtaldar stöður: Almenna kennslu, sérkennslu, tónmennt og íþróttir. Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma 93-6293 og yfirkennari í síma 93-6251. Leikskóli Ólafsvíkur Forstöðumann vantar við leikskóla Ólafsvík- ur. Fóstrumenntun æskileg. Nánari upplýsingar á Bæjarskrifstofu í síma 93-6153. Bæjarstjóri. Starfsfólk óskast Oskum eftir starfsfólki í uppvask og sal. Vaktavinna. Upplýsingar á staðnum og í símum 36737 og 37737. Múlakaffi. Afgreiðslustúlka óskast nú þegar. Upplýsingar á skrifstofunni milli kl. 16.00 og 18.00 í dag og á morgun, ekki í síma. Egill lacobsen Austurstræti 9 Fjölbreytt, erilsamt og krefjandi starf á auglýsingastofu Við leitum að starfsmanni í stjórnstöð AUK hf. í starfinu felst m.a.: * Símavarsla. * Ritvinnsla/telexvinnsla. * Sendingarumsjón. * Móttaka gesta. * Umsjón með fundarherbergjum. * Almenn skrifstofustörf. * ... og margt fleira. Flestir starfsmenn stofunnar koma til með að treysta á einn veg eða annan á þennan starfsmann og eftirfarandi eiginleikar honum því nauðsynlegir: * Gott skap. * Lipurð. * Þægileg framkoma. * Stundvísi. * Samviskusemi og nákvæmni. Góð almenn menntun er skilyðri t.d. verslun- arskólapróf eða sambærileg menntun. Einnig er skilyrði að viðkomandi reyki ekki. Starfið er laust strax og æskilegt að væntan- legur starfsmaður geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. ágúst. Umsóknir sendist til augldeildar Morgun- blaðsins fyrir kl. 17.00 16. júlí merktar: „AUK hf. - 8284. Vinsamlegast athugið að AUK hf. hefur nú flutt í nýtt húsnæði í Skipholti 50c, Reykjavík, sími 688600. AÍTKhf AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR SUÐUREYRARHREPPUR Embætti sveitarstjóra á Suðureyri er hér með laust til umsóknar. Umsóknir er tilgreini nafn, menntun og fyrri störf skulu berast skrifstofu Suðureyrar fyrir 24. júlí nk. Frekari upplýsingar veita: Halldór Bernódus- son oddviti í símum 94-6105 og 94-6160 og Viðar M. Aðalsteins sveitarstjóri í símum 94-6122 og 94-6137. Sveitarstjóri. Raunvísindastofnun vill ráða skrifstofumann í fullt starf næstu 5 mánuði. Um framtíðar- starf getur verið að ræða. Aðalstarfssviðið er símavarsla, auk léttra almennra skrifstofu- starfa. Nokkur kunnátta í ensku talmáli er nauðsynleg vegna símtala við útlönd. Nánari upplýsingar um starfið eru veittar eftir hádegi í síma 21340 og að Dunhaga 3 í dag og næstu daga. Umsóknir með upplýs- ingum um menntun og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra fyrir 23. þ.m. Hjúkrunarfræðingur Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki á sviði lyfja vill ráða sölufulltrúa til starfa 1. okt. nk. Leitað er að hjúkrunarfræðingi (B.S.), lífefna- fræðingi eða lyfjafræðingi. Þjálfun erlendis í upphafi starfs. Tungumálakunnátta nauðsyn- leg. Nú er tækifæri m.a. fyrir hjúkrunarfræðinga að snúa sér að nýju starfi. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu okkar, fyrir 23. júlí nk. Guðnt Tónsson RÁÐCJÖF &RÁÐN1NCARÞJÓNUSTA TÚNGÖTU 5, ÍOI REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Útboð Byggingarnefnd Flugstöðvar á Keflavíkur- flugvelli óskar eftir tilboðum í flugupplýsinga- kerfi fyrir nýju flugstöðina í Keflavík og nefnist verkið Flugstöð á Keflavíkurfiugvelli, flugupplýsingakerfi, FK —14 Verkið nær til: a) Flugupplýsingakerfis, b) Hönnunar og smíði, uppsetningar, prófunar og viðhalds í flugstöðvar- byggingunni í samræmi við útboðs- gögn. Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. mars I987. Útboðsgögn verða afhent hjá Rafhönnun hf., Ármúla 42, Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu frá og með 15. júlí 1986. Tilboðum skal skilaö til: Varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins, Skúlagötu 63, 105 Reykjavík eigi síðar en 2. september I986, kl. 14. Reykjavík, 9. júlí 1986, Byggingarnefnd Flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. UMFÍ — Framkvæmdastjóri Ungmennafélag íslands óskar að ráða fram- kvæmdastjóra fyrir samtökin. Starfið felst m.a. í fjármálastjórn, umsjón með erlendum samskiptum svo og kynningar- og útbreiðslu- starfsemi. Umsækjandi þarf að hafa áhuga fyrir starfi og stefnu ungmennafélagshreyfingarinnar og gjarnan að þekkja eitthvað til almennrar félagsmálastárfsemi úti á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar hjá stjórnarmönnum UMFÍ og á skrifstofunni að Mjölnisholti 14, en þar fá umsækjendur umsóknareyðublöð. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1986. Ungmennafélag íslands. Framtíðarstarf Raunvísindastofnun Háskólans. Enskukennarar Við Iðnskólann í Hafnarfirði vantar kennara til kennslu í ensku. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 51490 og 40692. Þrítuga konu vantar starf við afgreiðslu frá miðjum ágúst. Vaktarvinna kemur vel til greina. „Er vön“. Meðmæli ef óskað er eftir. Upplýsingar í síma 75943. Garðyrkjustörf Óskum að ráða nokkra menn vana garðyrkju- störfum strax. Mikil vinna. Upplýsingar í síma 45315. B.G. verktakar sf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.