Morgunblaðið - 16.07.1986, Page 37

Morgunblaðið - 16.07.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 37 $öll eru um 65 km frá Gullfossi og frá vegamótunum inn i Ásskarð eru 9 km. Tæpir 100 km eru frá Gullfossi að Hveravöllum, þar eru skálar Ferðafélags íslands, heit laug og mikið hverasvæði. Frá Hveravöllum er slóð að Þjófadölum. Óheimilt er þó vegna náttúruvemdarsjónar- miða að aka inn í dalina. Frá Hveravöllum eru um 65 km í Blöndudal. Stór hluti leiðarinnar hefur verið endumýjaður vegna virkjunarframkvæmda og er nú af sem áður var, að ekið sé um moldar- slóðir. Nú er þvert á móti ekið á upphækkuðum vegum. Kjalvegur liggur að mestu um óaðlaðandi svæði. Þeir ferðamenn sem vilja sjá Kjöl eins og hann er fallegastur skyldu ganga frá Hvítámesi, um Þjófadali og til Hveravalla. Þannig fæst rétt mynd af Kili. Hins vegar er fjallsýnin til- komumikil. Jöklar beggja vegna, Langjökull og Hofsjökull, reisuleg Kerlingarfjöll og Bláfell í suðri. Sprengisandsleið Tæpir 200 km em frá Sigöldu í suðri í Bárðardal í norðri. Stundum er fólksbflum vel fært um Sprengi- sand, en Fjórðungskvislin getur verið þeim farartálmi, jafnvel stór- um og vel búnum bflum. Þó ættu fólksbílar að komast yfir Sprengi- sand síðla í ágúst eftir þurrkatíð. Hér er þó ekki mælt með slíku nema í fylgd með flórhjóladrifsbfl. Á undanfömum ámm hafa vegir frá Sigöldu og upp á hálendið batn- að mjög vegna virkjunarfram- kvæmda og nú er svo komið að góður vegur liggur svo til alla leið að skálum Ferðafélags íslands f Nýjadal. Þangað em um 100 km úr Sigöldu. Við Kistuöldu er hliðarslóð í Ey- vindarkofaver, en þangað sækja ferðamenn nokkuð. Frá Nýjadal í Bárðardal em um 97 km. Sú leið er mjög greiðfær, enda liggur hún um mela. Nyrst við Bárðardalinn getur leiðin þó verið torfarin vegna stórgrýtis. Við Fjórðungsvatn liggur slóð af Sprengisandsvegi vestur að Lauga- felli, en þar er skáli Ferðafélags Akureyrar. Önnur slóð liggur norð- ar af Sprengisandsvegi, við Kiðagil, og vestur að Laugafelli. Frá Lauga- felli er slóð niður í Skagafjörð. Hún er aðeins jeppafær og yfirleitt opin í byijun ágúst. Sama má segja um Sprengi- sandsleið og Kjalveg, þeir liggja ekki um gróðurmikið land. Hins vegar er fjallasýnin í björtu veðri dýrðleg, Hofsjökull í vestri og Vatnajökull með skriðjöklum sínum og Bárðarbungu í austri. Ekki má gleyma Tungnafellsjökli, sem er svo til miðju vegar milli áðumefndra jökla. Ospjölluð auðnin hefur líka sérstök áhrif á ferðamenn, jafnvel þó hvergi sjáist gróðurvottur. Veiðivötn og Jökulheimar Skammt fyrir sunnan Þórisvatn liggur vegur í Veiðivötn og Jökul- heima. f Veiðivötn em um 27 km, en í Jökulheima 54 km. Vegurinnn er fær öllum bflum, nema rétt eftir rigningartíð. Einu farartálmamir á leiðinni í Veiðivötn em Vatnakvíslin og Fossvatnakvíslin, en báðar þess- ar ár em auðveldar yfirferðar. Ekið er um slétta sanda að Tjaldavatni en þar er skáli, sem Ferðafélag ís- lands reisti fyrir um 20 ámm. Um Veiðivatnasvæðið er hring- vegur og margir stuttir vegaspott- ar, sem flestir em færir fólksbflum. Jökulheimavegurinn er nokkuð vel fær fólksbflum. Helsti farar- tálminn heitir þó Þröskuldur, en það er hraunhaft við suðurenda Ljósu- fjalla. í Jökulheimum er sæluhús. Jöklarannsóknafélags íslands. Gæsavatnaleið Af Sprengisandi við norðanverð- an Tómasarhaga liggur Gæsavatnaleið í austur um hálendið norðan Vatnajökuls og í Öskju. Þaðan er svo vel greiðfært í Herðu- breiðalindir og niður á þjóðveg á Mývatnsöræfum. Ekið er norður fyrir Tungnafells- jökul yfír Skjálfandafljót og kvíslar þess. Ein þeirra verður væntanlega brúuð síðla í sumar, þannig að leið- in verður nokkuð auðveldari fyrii' bragðið. Rjúpnabrekkukvísl er oft farartálmi og erfíð yfirferðar. Þá er farið upp á Dyngjuháls og að Gæsavötnum, yfir Urðarháls og af honum niður á Jökulsáraura, en um þá var áður farið í Öskju, en nú er farinn tiltölulega nýr vegur í norður og þannig krækt fyrir aur- ana. Þessi leið er miklu tryggari, því alltaf er hætta á sandbleytu í aumnum. Frá Tómasarahaga í Öskju em um 112 km og niður á Norðurlands- veg em um 208 km. Leiðin er sérstaklega hrikalega erfið og heill- andi enda aðeins fyrir stóra og sterka fjórhjóladrifsbfla. Varhuga- vert er að fara einbfla þessa leið. Gæsavatnaleið er sjaldan fær fyrir miðjan ágúst. Öskjuleið Frá Norðurlandsvegi á Mývatns- öræfum inn í Herðubreiðarlindir em um 60 km og þaðan inn í Öskju em um 35 km. í Herðubreiðarlindir er góður vegur sem yfirleitt er fær öllum bflum, en leiðin inn í Öskju getur verið erfíð vegna foksands sem gjaman vill setjast í slóðina. í Öslq'u er venjulegast fært um miðj- an júní. I ágúst er fyrirhugað að taka í notkun brú yfir Jökulsá á Fjöllum, sem byggð verður í sumar. Styttir brúin leiðina í Kverkfjöll um 190 kflómetra. Kverkfjallaleið Skammt sunnan Möðmdals er ekið suður í Kverkfjöll eftir bmna- söndum og hraunum. Leiðin er tiltölulega greiðfær flestum bflum. Nokkrar minniháttar ár tefja för, en tálma þó ekki. Brú er á Kreppu, sem áður var aðal farartálminn. Sigurðarskáli stendur við Virkisfell í Kverkfjöllum, en hann er í eigu Ferðafélags Egilsstaða. Inn í Kverkfjöll er venjulegast fært um miðjan júní. Kverírijallaleið er löng og þreyt- andi, en Qallasýn er þó fögur og ber mest á Herðubreið og Snæfelli og fjöllunum við norðanverðan Vatnajökul. Lakagigar Slóðin að Lakagígum hefst við bæinn Heiði á Síðu og er ekið norð- ur með Fjarðará, um Hurðabak og að vaði á Geirlandsá skammt norð- an við Fagrafoss. Vaðið er ekki teljandi fyrirstaða en þegar lengra er komið getur slóðin verið varasöm í rigningum vegna bleytu. Leiðin er aðeins ætluð ú'órhjóladrifsbflum. Fjallabaksleið nyrðri Forðum var gamla Landamanna- leiðin farin, en hún liggur af Landveginum, skammt norðan við Heklu, framhjá Landmannahelli og að Jökulgilskvísl við Landmanna- laugar. I Landmannalaugar eru eftir þessari leið um 35 km. Þessi leið er ákaflega falleg og tilkomu- mikil. Hin leiðin er frá Sigöldu og eru um 25 km í Landmannalaugar. Þessi leið er öruggari enda liggur hún um sanda og hraun, en sú fyrri um gróðurþekjur. Þessar leiðir sameinast við FYostastaðavatn og er þá haldið áfram yfir Jökulgilskvísl á traustri brú og um Steinsgil og Illugil, en vötn í þessum giljum geta verið fólksbflum erfið í rigningartíð. Að öðru leyti má telja Fjallabaksleið nyrðri vel færa öllum bflum. Leiðin liggur um Eldgjá og í Skaftár- tungu. Alls er leiðin frá Sigöldu að brúnni yfir Tungufljót um 100 km löng. Fjöldi slóða liggur af fjallabaks- leið nyrðri og eru þeir flestir aðeins ætlaðir fjórhjóladrifsbflum. Nefna má slóð suður á Fjallabak syðra og Hrafntinnusker og slóð að Langa- sjó. Fjallabaksleið syðri Frá Keldum á Rangárvöllum um Fjallabak syðra og í Skaftártungu eru um 90 km. Leiðin er einkum ætluð fyrir fjórhjóladrifsbfla. Leiðin er svo til torfærulaus allt að Mark- arfljóti við Laufafell, en þar er vaðið nokkuð djúpt og grýtt. Við Álfta- yatn eru stórir skálar Ferðafélags Islands og í Hvanngili er gangna- mannakofí. Fyrir austan Hvannagil skiptast leiðir og liggur önnur suður um Emstrur og yfir brú á Markarfljóti og niður í Fljótshlíð. Hin liggur áfram í austur um Mælifellssand um torfærulaust land að Hólmsá. Hún er ætfð varasöm. Þaðan liggur síðan góð leið niður á þjóðveg í Skaftártungu. Fjallabaksleið syðri er ákaflega falleg og tilkomumikil í fjölbreytni sinni. Höfundur starfar sem qjálfstæður blaðamaður oghefur skrifað und- anfarin tvö ár um innlend ferða- mál í Morgunblaðið. Hann er stofnandi ogfyrsti ritstjárí tíma- rítsins Áfangar. ist- og vetrarlistinn kominn VERÐ KR.19 U PONTUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.