Morgunblaðið - 16.07.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986
47
Handknattleikur:
Sigur gegn Pólverjum
ÍSLENSKA landsliðið i handknatt-
leik sigraði Pólverja, 22:21, á
Friðarleikunum í Moskvu f gœr.
Staðan í hálfteik var 11:11. Sig-
urður Sveinsson sýndi frábœran
leik og skoraði 8 mörk auk þess
að eiga margar línusendingar
sem gáfu mörk.
Leikurinn var mjög jafn allan
tímann og var munurinn aldrei
meiri en tvö mörk. íslendingar
höfðu tvö mörk yfir, 22:20, er ein
mínúta var til leiksloka og skoruðu
Pólverjar sitt 21. mark er 15 sek-
úndur voru eftir. íslendingar héldu
síðan boltanum og tryggðu sér sig-
urinn.
Eins og áður var Sigurður
Sveinsson í miklum ham og réðu
pólsku leikmennirnir ekkert við
þrumuskot hans. Aðrir sem skor-
uðu voru: Valdimar Grímsson 3,
Geir Sveinsson 3, Þorbergur Aðal-
steinsson 3, Hilmar Sigurgíslason
2, Júlíus Jónasson 2 og Jakob Sig-
urðsson 1.
Ungu leikmennirnir í liðinu stóðu
sig allir mjög vel í vörninni og
Guðmundur Hrafnkelsson, mark-
vörður, varði mjög vel, sérstaklega
í síðari hálfleik er hann varði 10-12
skot. Brynjar byrjaði í markinu en
hann hefur verið slæmur í magan-
um og fann sig ekki.
Leiknum var að hluta til sjón-
varpað til Póllands og töluðu
pólsku sjónvarpsmennirnir við
Bogdan, þjálfara, eftir leikinn.
Bogdan var mjög ánægður með
frammistöðu íslensku strákanna
og hældi þeim eftir leikinn.
„Við leggjum nú áherslu á að
vinna Tékka á laugardaginn og ná
þriðja sætinu í keppninni. Leikur-
inn gegn B-liði Sovétmanna á
fimmtudag skiptir ekki máli í
keppninni, því þeir eru með aðeins
sem aukalið í stað Spánverja, sem
ekki gátu komið, og gilda leikir
gegn þeim ekki í keppninni. Við
ætlum því að gefa þeim yngri tæki-
færi á fimmtudaginn," sagði Jón
Hjaitalín Magnússon, formaður
HSÍ, sem einnig er fararstjóri
íslenska liðsins. Hann bað fyrir
kveðjur heim og sagði að öllum liði
vel.
Önnur úrslit í gær voru þau að
Sovétmenn unnu Bandaríkjamenn,
23:19.
Ólafur
þjálfar KR
— Sverrir Sverrisson og
Gísli Felix Bjarnason í KR
• Sigurður Sveinsson hefur staðið sig vel með íslenska landsliðinu
í Moskvu. Hann var besti leikmaður liðsins í leiknum f gærkvöldi og
skoraði 8 mörk.
ÓLAFUR Jónsson, fyrrverandi
leikmaður Vfkings og landsliðsins
f handknattleik, var í gærkvöldi
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs KR.
„Við erum mjög ánægðir með
að hafa gengið frá þessu," sagði
Kristján Örn Ingibergsson, for-
maður Handknattleiksdeildar KR,
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærkvöldi. „Ólafur tekur
við ungum strákum, sem miklar
vonir eru bundnar við og liðið kem-
ur til með að byggjast á, en innan
um eru reyndir leikmenn. Sverrir
Sverrisson, sem lék með Tý, Vest-
mannaeyjum, og áður Þrótti, hefur
skipt yfir í KR og Gísli Felix Bjarna-
son er kominn aftur frá Ribe í
Danmörku," sagði Kristján.
2. deild:
i — i . .i_
KA-menn aftur
í efsta sætið
- enn skorar Tryggvi
KA endurheimti sæti sitt á toppi
2. deildar er þeir sigruðu Ein-
herja á Vopnafirði, 2:0, f gær-
kvöldi. Bæði mörkin voru gerð f
seinni hálfleik.
KA-menn áttu svo til allan fyrri
hálfleik en tókst ekki að skora.
Sköpuðu sér þó oft góð marktæki-
færi en Hreggviður Ágústsson,
markvörður Einherja, stóð sig vel
og bjargaði oft meistaralega.
Fyrra mark KA kom á 65.
mínútu. Það var enginn annar en
Tryggvi Gunnarsson sem það
gerði, og var þetta 14. mark hans
í deildinni. Hann fékk knöttinn inn
í vítateiginn, snéri á tvo varnar-
menn og skoraði af stuttu færi upp
undir þaknetið. Fimm mínútum
síðar bættu KA-menn við öðru
marki. Hinrik Þórhallsson skoraði
af stuttu færi eftir að Hreggviður,
markvörður, hafði misst boltann
fyrir fætur hans eftir aukaspyrnu.
Það sem eftir var leiksins sóttu
heimamenn meira en án árangurs.
Staðan f
2. deild
STAÐAN í 2. deíld karla eftir 10
umferölr er þessi:
KA 10 6 4 0 28:8 22
Selfoss 10 6 3 1 18:6 21
Vfkingur 10 6 1 3 27:9 19
Völsungur 10 6 2 3 16:10 17
Elnherji 10 5 3 2 13:15 17
ísafjörður 10 3 5 2 19:14 14
Njarövfk 10 3 2 5 15:21 11
Siglufjörður 10 2 3 5 14:16 9
Þróttur 10 2 2 6 15:21 8
Skallagrímur 10 0 0 10 4:52 0
Fengu þó mjög gott marktækifæri
er Baldur Kjartansson átti hörku-
skalla sem Torfi Halldórsson,
markvörður KA, varði vel. Aðal-
björn Björnsson, kom inná sem
varamaður í seinni hálfleik og
breyttist þá leikur Einherja til hins
betra.
Erlingur Kristjánsson var besti
leikmaður KA og Tryggvi var
hættulegur í framlínunni.
p.r.
Staðan í
1. deild
STAÐAN í 1. deild eftir 11 um-
ferðir er þessi:
Fram 11 8 2 1 25:6 26
Valur 11 7 2 2 18:4 23
ÍBK 11 7 0 4 14:14 21
ÍA 11 5 2 4 17:10 17
KR 11 3 5 3 13:9 14
Þór 11 4 2 5 14:20 14
FH 11 4 1 6 17:20 13
Víðir 11 3 2 6 7:14 11
UBK 11 3 2 5 9:19 11
ÍBV 11 1 2 8 9:25 5
Markahæstir f 1. deild eftir 11
umfeðir eru þessir:
GuðmundurTorfason, Fram 11
Ingi Björn Albertsson, FH 6
Guðmundur Steinsson, Fram 6
Valgeir Barðason, ÍA 6
Kristján Kristjánsson, Þór 5
Jón ÞórirJónsson, UBK 5
Sigurjón Kristjánsson, ÍA 5
Fyrsti leikur 12. umferðar verð-
ur á fimmtudagskvöld, þá mætast
Valur og ÍBK á Valsvelli.
Sanngjarnt á Skaganum “
- Valgeir skoraði sigurmarkið á 88. mlnútu
AKRANESVÖLLUR 1. deild:
lA-lBV: 1:0 (0:0)
Mark ÍA: Valgeir Barðason á 88. mín.
Áhorfendur: 610
Gult spjald: Sigurður Lárusson, ÍA
Dómari: Porvaröur Bjömsson og stóð sig vel.
EINKUNNAGIÖFIN:
ÍA: Birkir Kristinsson 3, Hafliði Guðjónsson
2, Heimir Guðmundsson 3, Siguröur Lárusson
2, Siguröur B. Jónsson 2, Alexander Högnason
3, Júlíus P. Ingólfsson 2, Aöalsteinn Víglunds-
son vm., lék of stutt, Ólafur Þóröarson 2,
Höröur Jóhannesson vm., lók of stutt, Ámi
Sveinsson 2, Guöbjöm Tryggvason 2, Valgeir
Baröason 2.
Samtals: 25.
ÍBV: Þorsteinn Gunnarsson 3, Þóröur Hall-
grímsson 2, ViÖar Elíasson 3, Elías FríÖríksson
2, Jón Bragi Ármannsson 3, Sighvatur Bjarna-
son 2, Ingi Sigurösson 2, Jóhann Georgsson
2, Bergur Ágústsson 1, Ómar Jóhannsson 1,
Jón Atli Gunnarsson 1, Póll Hallgrímsson
vm., lék of stutt.
Samtals: 22.
Leikurinn fór frekar hægt af stað
og lítið um marktækifæri. Eyja-
menn fengu tvö þokkaleg mark-
tækifæri á 17. og 24. mínútu. Fyrst
átti Ómar Jóhannsson fast skot
sem Birkir varði vei og síðan átti
Viðar Eiíasson gott skot rétt yfir,
eftir að hafa einleikið upp völlinn.
Tvö næstu færi voru Skaga-
manna. Alexander Högnason átti
fyrst skot rétt framhjá og nokkrum
mínútum síðar átti Guðbjörn
hörkuskot rétt yfir, eftir fyrirgjöf frá
Ólafi Þórðarsyni. Besta færi hálf-
leiksins fengu Skagamenn á 41.
mínútu. Guðbjörn komst þá inn-
fyrir vörn Eyjamanna, eftir laglegt
samspil við Árna Sveinsson, en
Þorsteinn Gunnarsson varði
meistaralega fast skot Guöbjörns
af stuttu færi.
Síðari hálfleikur byrjaði eins og
sá fyrri, frekar rólega. Fyrsta mark-
tækifærið kom á 60. mínútu.
Valgeir Barðason komst þá upp
að endamörkum hægra megin og
skaut föstu skoti á nærstöngina
en Þorsteinn varði mjög vel.
Skömmu síðar áttu Eyjamenn
þokkalegt færi er Jóhann Georgs-
son skaut rétt yfir beint úr auka-
spyrnu. Á 67. mínútu átti Ólafur
Þórðarson hörkuskot aö marki,
sem fór framhjá Þorsteini mark-
veröi, en fór síðan í Eyjamann sem
varði skot Ólafs á síðustu stundu.
Upp úr þessu þyngdu Skaga-
menn mjög sókn sína og Eyjamenn
reyndu að verjast og halda hreinu.
Á 75. mínútu átti Hörður Jóhann-
esson góðan skalla en enn er
Þorsteinn vel á verði og náði að
slá boltann yfir. Árni Sveinsson var
í góðu færi skömmu síðar eftir
sendingu frá Hafliða en skaut rétt
framhjá. Guðbjörn komst í gegn á
83. mín. eftir stungusendingu frá
Árna en þegar hann var að kom-
ast í dauðafæri steig hann á
boltann og færið rann út í sandinn.
Sigurmarkið kom síðan á 88.
mínútu. Hafliði Guðjónsson átti
háa sendingu fyrir mark Eyja-
manna og þar stökk Valgeir
Barðason hæst allra og skaliaði
boltann yfir Þorstein og í netið.
Eyjamenn fengu svo mjög gott
færi á síðustu mínútu leiksins til
að jafna. Ingi Sigurðsson átti þá
lúmskt skot frá hægri sem kom
hátt að marki Skagamanna og var
við það að detta í markiö en Birki
tókst á síðustu stundu að slá bolt-
ann yfir.
„Gleymi ekki að
spila fótbolta11
„ÞAÐ ERU sjálfsagt ekki margir
erlendir leikmenn, sem hafa
verið fyrirliðar I Bundesiigunni,
og óg er sjálfsagt sá fyrsti hjá
Stuttgart," sagöi Ásgeir Sigur-
vinsson f samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkvöidi,
rótt nýkominn úr 10 daga æf-
ingabúðum með liðinu heim til
konu sinnar og tveggja barna,
en þeim hjónum fæddist sonur,
Ásgeir Aron, fyrir skömmu.
„Ég var viðbúinn þessu og því
kom mér það ekki á óvart, þegar
þjálfarinn fór þess á leit við mig
að ég tæki að mér fyrirliðastöð-
una. Ég hafði lítinn áhuga, því
um er að ræða mikla aukavinnu
utan vallar. Velja mark í upphafi
leiks er aðeins lítið brot af starf-
inu. Það þarf að standa i alls
konar samningum, tala við blaða-
menn og fleira. En ég komst að
góðu samkomulagi við þjálfarann
um aö ég tæki aöeins að mér
það sem sneri beint að knatt-
spyrnunni og hann yrði mér
innan handar um annað. Auk
þess fæ ég tvo menn mór til
aöstoðar, svo ég gleymi ekki að
spila fótbolta," sagði Ásgeir.
Varðandi iiðið sagði Ásgeir að
það ætti að geta gert betur en
í fyrra. Þeir hefðu æft tvisvar á
dag í æfingabúðum uppi í fjöllum
og leikiö nokkra æfingaleiki á
þessum 10 dögum. Það væri
mikið af nýjum mönnum í liðinu
og það tæki alltaf tíma að aðlag-
ast nýjum aðstæöum. „í augna-
blikinu lítur þetta vel út hjá okkur,
en það var slæmt aö lenda á
móti Bundesliguliði úti í bikarn-
um. Uerdingen er mjög sterkt
• Asgeir Sigurvinsson, fyriríiði
Stuttgart.
núna og þetta verður tvísýnn leik-
ur, en annað liðið fellur út og við
því er ekkert að gera."