Morgunblaðið - 05.09.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
• Hreinsiefni • Pappír • V'élar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaöur • Ráögjöf • O.fl. o.fl.
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
— Starfsmenn sendir í lyfjapróf
Rochester, New York, AP.
HIÐ þekkta stórfyrirtæki East-
man Kodak hefur afráðið að
skylda alla þá sem sækja um
vinnu hjá fyrirtækinu til að gang-
Edinborgarhátíðin:
Betri gagnrýni
en minni aðsókn
Edinborg, AP.
AÐSÓKN að Edinborgarhátiðinni minnkaði að þessu sinni, enda
þótt hún hlyti meira lof gagnrýnenda en oft áður. Þessi listahátið,
sem nú var haldin í 40. sinn, stendur að jafnaði í þtjár vikur og
iauk henni á sunnudaginn var.
Endanlegar tölur um aðsókn
liggja ekki alveg fyrir enn, en talið
er, að 71-72% aðgöngumiða hafí
selzt að meðaltali, sem skiptazt þó
misjafnt á milli einstakra atriða
listahátíðarinnar. í fyrra var aðsókn
að meðaltali 78%. Var þetta haft
eftir blaðafulltrúa hátíðarinnar,
Clive Sandground. Talið er, að að-
sókn þurfí að vera um 70%, til þess
að hátíðin standi undir sér fjár-
hagslega.
Sandground kenndi fækkun
ferðamanna frá Ameríku að nokkru
um minnkandi aðsókn nú. Þá taldi
hann einnig, að Samveldisleikamir
í íþróttum, sem fram fóru skömmu
fyrir listahátíðina, hefðu einnig
dregið úr áhiiga á henni.
Gagnrýnendur voru hins vegar
til muna lofsamlegri í umsögnum
sínum um dagskrá hátíðarinnar en
oftast áður. Þar var lögð meiri
áherzla nú á leiksýningar erlendis
frá en áður. Þannig sagði Miehael
Billington, sem skrifar fyrir blaðið
Guardian, að aðstandendur hátíð-
arinnar ættu mikið lof skilið fyrir
að láta setja upp eigi færri en 20
erlendar leiksýningar á hátíðinni.
Þærtvær leiksýningar, sem hlutu
mest lof gagnrýnenda, vom sýning-
in á leikriti Augusts Strindberg,
„Fröken Julía", þar sem Ingmar
Bergman var leikstjóri og sýning
Toho-leikflokksins frá Japan á
„Medeu“ eftir Euripides.
Haft var eftir Sandground, að
meiri áherzla hefði að þessu sinni
verið lögð á leiksýningar en áður
hefði verið gert í 40 ára sögu lista-
hátíðarinnar, þar sem tónlist og
sönglist hafa oftast verið í öndvegi.
ast undir lyfjapróf. Með prófinu
verður gengið úr skugga um
hvort viðkomandi neyti eitur-
lyfja.
Þeir starfsmenn fyrirtækisins,
sem gmnaðir em um eiturlyfja-
neyslu, verða einnig skikkaðir til
að gangast undir sams konar lyfja-
próf og verða þeir reknir úr starfí
ef þeir þráast við.
Að sögn talsmanna fyrirtækisins
verður lyfjaprófíð eingöngu bundið
við þá starfsmenn fyrirtækisins,
sem starfa í Bandaríkjunum en
þeir em um 85.000.
„Við em ekki undanskildir eitur-
lyfjavandanum og höfum áhyggjur
af öryggi starfsmanna okkar,“
sagði Henry Kaska, talsmaður
Eastman Kodak.
Þeir umsækjendur, sem reynast
neyta eiturlyfja verða ekki ráðnir.
Starfsmenn, sem neyta slíkra lyíja,
verða hugsaniega reknir.
Stórfyrirtækin General Electric,
Dupont og Amoco hafa þegar tekið
upp sams konar lyfjapróf.
Illir andar svældir burt
Ættingjar þessa indverska manns, sem er andlega vanheill,
hlekkjuðu hann og þóttust með þvi geta svælt út „illa anda“.
Slík meðferð á geðsjúklingum mun vera algeng á Indlandi.
Myndin var tekin í þorpi nærri Ahmerdabad og birtist í ind-
versku dagblaði.
Fornleifagröftur í Kína:
Ríkisvald þar 1000 árum
eldra en áður var talið
Peking, AP.
UPPGRÖFTUR kínverskra forn-
leifafræðinga í norðausturhluta
Chernobyl slysið:
27 félagar reknir úr
Kommiinistaflokknnni
Moskvu, AP.
TUTTUGU og sjö manns voru
reknir úr Kommúnistaflokk Sov-
étríkjanna um helgina vegna
framgöngu þeirra þegar slysið í
Chemobyl kjamorkuverinu
varð. Það var flokksdeildin á þvi
svæði sem sá um brottreksturinn.
Þetta kemur fram í málgagni
kommúnistaflokksins, Prövdu á
miðvikudag.
Tveir hinn brottreknu voru
bílstjórar og voru þeir reknir fyrir
hugleysi. Ekki var getið um starf
annarra. í Prövdu segir ennfremur
að yfírvöld gefí ennþá ekki almenn-
ingi fullnægjandi upplýsingar um
hvað beri að varast í heilsufarslegu
tilliti, þó fjórir mánuðir séu nú liðn-
ir frá slysinu. Slík gagnrýni hefur
iðulega komið fram í sovéskum fjöl-
miðlum á undanfömum mánuðum.
Kínaveldis bendir til þess að
menningarsamfélag í Kina megi
rekja fimm þúsund ár aftur í
tímann, en það er þúsund árum
lengra en áður var haldið.
Fomleifafræðingamir hafa fund-
ið steingrafir og musteri í héraðinu
Láaoning. Þær eru taldar sýna að
ríkisvald hafí verið til í Kína þúsund
ámm áður en Xia-keisaraættin
komst til valda sunnar í landinu,
en hún var talin marka upphaf ríkis-
valds í Kína. Hún ríkti frá um 2000
fyrir Krist og í fímm hundmð ár
þar frá.
Þá skýrðu fjölmiðlar í Kína frá
því í vikunni að 50 velvarðveittar
múmíur hefðu fundist í Xinjiano
Vighur-héraðinu í norðvesturhluta
landsins. Þær em taldar þijú þús-
und ára gamlar og fannst með þeim
einnig mikið magn af jaðe gripum.
Flestar múmíumar vom klæddar í
ullarklæðnað, með leðurstígvél á
fótum og skinnhatta á höfði. Höfðu
þær varðveist mjög vel vegna hins
þurra og heita loftlags, sem ríkir á
svæðinu. Andlitsfall þeirra bar ekki
mikinn svip af mongólum, en til
þess kynflokks teljast flestir
kínveijar nútímans. Múmíumar
vom með beint nef og lág kinnbein
og háraliturinn var annaðhvort ljós
eða brúnn. Héraðið á landamæri
að Sovétríkjunum og hefur alltaf
verið tengiliður á milli austurs og
vesturs. Margir íbúanna þar nú em
af tyrkneskum eða persneskum
uppmna.
Nokkrar tæknilegar upplýsingar:
Þyngd: 17.5 kg, straumnotkun: 9.1A,
orkunotkun: 2.0 kW, þrýstingur: 66 kg (bör).
Eittsímtai!.. .og þú færö
ALLT Á SAMA STAÐ
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2,
110 Reyjavík
Símar 31956 & 685554
K.E.W. H0BBY
Háþrýstihreinsitækið, nauðsynlegt hjálpartæki fyrir
nútímaheimili og smærri fyrirtæki
Meö K.E.W. H0BBY ganga öll þrif fyrir sig á mettíma og erfið verk verða leikur
einn. Þú getur sand- ogvatnsblásið - t.d. gamla málningu og ryð, hreinsað klóök
og losaö stíflur, þvegiö bílinn, bátinn, rúðurnar, já sjálft húsið og girðingarnar og
hvaö eina sem þarf að þrífa. Þú getur blandað hreinsiefnum í vatnið
með sérstökum innbyggöum jektor og þú getur ráðiö bæði þrýstingi og dreifingu
vatnsins. Með K.E.W. getur þú gert hlutina
betur, jafnframt því sem þú sparar tíma
og minnkar allt erfiði.
Eastman Kodak-fyrirtækið:
Barist gegii eitur-
lyfjaneyslunni