Morgunblaðið - 05.09.1986, Side 39

Morgunblaðið - 05.09.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGÚR 5. SEPTEMBER 1986 39 Kevin Bacon var ekki eins hrifinn af boðskap kvikmyndarinnar minna sig á árásina á Líbýu. Hér er hann ásamt vin- konu sinni, Tracy Pollan. Paul Newman „Ég vil þroskaða konu, sem þarf ekki á hjálp fegurðarsmyrsla að halda eða tískuvara. Hún má ekki vera of frek eða ýtin og svo skipt- ir lífsviðhorf hennar miklu máli. Ég vil að konan geti séð um sig sjálf." Heiðursgestur kvöidsins, Tom Cruise, sem fer aðalhlutverkið í Top Gun. Hér er hann í viiltum dansi við systur sína, Marian. Stöllurnar Jennifer Beals og Jody Foster voru mættar í frumsýningarveisluna. Þær eru góðar vinkonur, enda stunda þær báðar nám við sama háskólann, Yale. Fjör í frumsýn- ingarpartýi Framleiðendur kvikmyndarinnar Top Gun, sem nú er sýnd í Háskólabíói, eru í sjöunda himni yfir velgengni myndarinn- ar, sem hefur verið sýnd við mikla aðsókn í Bandaríkjunum frá því í júní. Myndin var frumsýnd þar fyrr í vor og að sjálfsögðu var haldin mikil veisla eftir að leikarar og boðsgestir höfðu augum barið ræmuna í fyrsta sinn. Mörgum þekktum leikurum var boðið til hófsins og virtust flestir yfír sig hrifnir af myndinni. Söng- og leikkonan Cher spáði því rétti- lega að Top Gun myndi njóta mikilla vinsælda á meðal Bandaríkja- manna, enda væri myndin „mjög amerísk — eins amerísk og gömlu John Wayne-myndimar," eins og hún orðaði það. Þó voru nokkrir sem ekki voru eins hrifnir af boðskapnum, t.d. Kevin Bacon (lék m.a. í Footloosé), sem sagði að myndin minnti sig á árás Bandaríkjamanna inn í Líbýu. „Þessi mynd hjálpar a.m.k. ekki mikið til við að bæta samskipti okkar við önnur lönd," sagði Bacon. Aðrir huguðu lítt að innihaldi myndarinnar og sagðist Jody Foster mjög hrifin af glæsileika karlleikaranna: „Það var mikið um dásamlega, fallega menn í þessari mynd. Mér fannst blaksenan best, þar sem þeir voru allir berir að ofan,“ sagði Foster. Tom Cruise, aðalleikarinn í Top Gun varð að sjálfsögðu mættur á svæðið og bauð hann allri fjölskyldunni með. Ömmu hans var tíðrætt um hve mikið og gott mannsefni Cruise væri. „Hann er in- dæll,“ sagði sú gamla, „hann sendir mér blóm í hveijum mánuði." Cruise dansaði af sér skóna í veislunni og sýndi mikla takta þegar hann dansaði við Jennifer Beals og Cher. Kærastan, Mimi Rogers, var Qarri góðu gamni, hún var upptekin við að leika í nýrri kvikmynd. Burt Reynolds „Ég vil hafa konuna mína kven- lega, einhveija sem ég get boðið út að borða á fínan veitingastað. Daman á að hlusta jafnt á sígilda tónlist og kántrí og verður að kunna sig alls staðar." COSPER — Ég veit ekki hvers vegna, en mér er illa við að vera með þessari skeggjuðu í búningsherbergi. Ættargripur Gamalt reiðhjól, Phillips, blátt, lakkið veðrað, 3ja gíra með lugt, bögglabera og nýjum hnakki hvarf frá nýbyggingunni í Suðurgötu, Miðbæ Reykjavík- ur, á miðvikudag. Þeir sem vita um örlög gamla hjólsins, sem er ættargripur, láti vita í síma 17184. HRAÐLESTRAR NÁMSKEŒ) Vilt þú auðvelda þér námið og vinnuna? Vilt þú margfalda lestrarhraðann? Vilt þú eiga meiri frítíma frá náminu og vinnunni? Vilt þú læra árangursríkar aðferðir í námstækni? Svarir þú þessum spurningum játandi skaltu ekki hika lengur, heldur drífa þig á næsta hraðlestrarnámskeið sem hefst þriðjudaginn 9. september nk. Skráning öll kvöld kl. 20.00—22.00 í síma 611096. Skráning öll kvöld kl. 20.00—22.00 í síma 611096. Hraðlestrarskólinn skómir vinsælu. Að öllu leyti úr vönd- uðu skinni og leðri. Stærðir 2'/i—9. Utur: Svart. Verndið fæturna andið skóvalið TOFtjfe s—sKOem VELTUSUNDI 1 21212 Opið laugardaga 9.30-12.30 Póstsendum samdægurs. Bladburöarfólk óskast! VESTURBÆR Nesvegur 40-82 Skeljagrandi Sörlaskjól 28-94 AUSTURBÆR Bjarnastígur o.fl. Stórholt Langholtsvegur 110-150 KÓPAVOGUR Grenigrund

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.