Morgunblaðið - 05.09.1986, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGÚR 5. SEPTEMBER 1986
39
Kevin Bacon var ekki
eins hrifinn af boðskap
kvikmyndarinnar minna
sig á árásina á Líbýu.
Hér er hann ásamt vin-
konu sinni, Tracy Pollan.
Paul Newman
„Ég vil þroskaða konu, sem þarf
ekki á hjálp fegurðarsmyrsla að
halda eða tískuvara. Hún má ekki
vera of frek eða ýtin og svo skipt-
ir lífsviðhorf hennar miklu máli.
Ég vil að konan geti séð um sig
sjálf."
Heiðursgestur kvöidsins, Tom Cruise, sem fer
aðalhlutverkið í Top Gun. Hér er hann í viiltum dansi
við systur sína, Marian.
Stöllurnar Jennifer Beals og Jody Foster voru
mættar í frumsýningarveisluna. Þær eru góðar
vinkonur, enda stunda þær báðar nám við sama
háskólann, Yale.
Fjör í
frumsýn-
ingarpartýi
Framleiðendur kvikmyndarinnar Top Gun, sem nú er sýnd
í Háskólabíói, eru í sjöunda himni yfir velgengni myndarinn-
ar, sem hefur verið sýnd við mikla aðsókn í Bandaríkjunum frá
því í júní. Myndin var frumsýnd þar fyrr í vor og að sjálfsögðu
var haldin mikil veisla eftir að leikarar og boðsgestir höfðu
augum barið ræmuna í fyrsta sinn.
Mörgum þekktum leikurum var boðið til hófsins og virtust flestir
yfír sig hrifnir af myndinni. Söng- og leikkonan Cher spáði því rétti-
lega að Top Gun myndi njóta mikilla vinsælda á meðal Bandaríkja-
manna, enda væri myndin „mjög amerísk — eins amerísk og gömlu
John Wayne-myndimar," eins og hún orðaði það.
Þó voru nokkrir sem ekki voru eins hrifnir af boðskapnum, t.d.
Kevin Bacon (lék m.a. í Footloosé), sem sagði að myndin minnti sig
á árás Bandaríkjamanna inn í Líbýu. „Þessi mynd hjálpar a.m.k.
ekki mikið til við að bæta samskipti okkar við önnur lönd," sagði
Bacon.
Aðrir huguðu lítt að innihaldi myndarinnar og sagðist Jody Foster
mjög hrifin af glæsileika karlleikaranna:
„Það var mikið um dásamlega, fallega menn í þessari mynd. Mér
fannst blaksenan best, þar sem þeir voru allir berir að ofan,“ sagði
Foster.
Tom Cruise, aðalleikarinn í Top Gun varð að sjálfsögðu mættur
á svæðið og bauð hann allri fjölskyldunni með. Ömmu hans var
tíðrætt um hve mikið og gott mannsefni Cruise væri. „Hann er in-
dæll,“ sagði sú gamla, „hann sendir mér blóm í hveijum mánuði."
Cruise dansaði af sér skóna í veislunni og sýndi mikla takta þegar
hann dansaði við Jennifer Beals og Cher. Kærastan, Mimi Rogers,
var Qarri góðu gamni, hún var upptekin við að leika í nýrri kvikmynd.
Burt Reynolds
„Ég vil hafa konuna mína kven-
lega, einhveija sem ég get boðið
út að borða á fínan veitingastað.
Daman á að hlusta jafnt á sígilda
tónlist og kántrí og verður að
kunna sig alls staðar."
COSPER
— Ég veit ekki hvers vegna, en mér er illa við að vera með
þessari skeggjuðu í búningsherbergi.
Ættargripur
Gamalt reiðhjól, Phillips, blátt, lakkið veðrað, 3ja
gíra með lugt, bögglabera og nýjum hnakki hvarf
frá nýbyggingunni í Suðurgötu, Miðbæ Reykjavík-
ur, á miðvikudag. Þeir sem vita um örlög gamla
hjólsins, sem er ættargripur, láti vita í síma 17184.
HRAÐLESTRAR
NÁMSKEŒ)
Vilt þú auðvelda þér námið og vinnuna?
Vilt þú margfalda lestrarhraðann?
Vilt þú eiga meiri frítíma frá náminu og vinnunni?
Vilt þú læra árangursríkar aðferðir í námstækni?
Svarir þú þessum spurningum játandi skaltu ekki hika
lengur, heldur drífa þig á næsta hraðlestrarnámskeið
sem hefst þriðjudaginn 9. september nk.
Skráning öll kvöld kl. 20.00—22.00 í síma 611096.
Skráning öll kvöld kl. 20.00—22.00 í síma
611096.
Hraðlestrarskólinn
skómir vinsælu. Að öllu leyti úr vönd-
uðu skinni og leðri.
Stærðir 2'/i—9. Utur: Svart.
Verndið fæturna
andið skóvalið
TOFtjfe
s—sKOem
VELTUSUNDI 1
21212
Opið laugardaga
9.30-12.30
Póstsendum
samdægurs.
Bladburöarfólk
óskast!
VESTURBÆR
Nesvegur 40-82
Skeljagrandi
Sörlaskjól 28-94
AUSTURBÆR
Bjarnastígur o.fl.
Stórholt
Langholtsvegur 110-150
KÓPAVOGUR
Grenigrund