Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBtAfllP, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986 Myndbönd Sæbjörn Valdimarsson North Dallas Forty ★ ★★ Leikstjóri: Ted Kotcheff. Handrit: Kotcheff, Frank Yablans, Peter Gent. Kvikmyndataka: Paul Loh- man. Tónlist: John Scott. Aðalhlutverk: Nick Nolte, Mac Davis, Charles Durn- ing, Bo Svenson, Dayle Haddon, G.D. Spradlin. Bandarísk. Paramount 1979. 119 mín. Þegar mikill handagangur er á myndbandaleigunum, veðrið fúlt og sjónvarpið kannske enn fúlla, á maður oft ekki annarra kosta völ en að litast um í hillunum með gömlu spólunum. Og þar kennir víða margra grasa og ólíklegustu afurðir kvikmyndaiðnaðarins blasa við sjónum. Oft er sá kostur mikið betri að rifja up gömul kynni við góða kvikmynd en að einskorða sig við nýtt efni eða að sætta sig við óþekkta titla sem ekki lofa neinu sérstöku og geta brugðist til beggja vona. Ef menn vilja efnismikla, einkar raunsæja, spennandi og vel leikna mynd þar sem íþróttir eru í bakgrunninum — í þessu tilfelli amerískur fótbolti, (football) þá ætti North Dallas Forty að vera ofarlega á blaði. Hún fjallar frekar um bakhliðina á þess- ari hörkuiþrótt, gerir grín að glansmyndinni, prjálinu og yfirborðsglansinum. Sýnir að bak við grímurnar og skrautlega, karlmannlega búningana eru lurkum lamd- ir kjötskrokkar sem keyra sig áfram, langt umfram getu, á hinum fjölbreytileg- ustu lyfjagjöfum. Úrvalsleikarar skaða ekki raunveruleikablæinn sem hvílir yfir myndinni. Hér er Nick Nolte í sínum besta ham sem hálfútbrunninn atvinnumaður sem gengur meira fyrir töflum og spraut- um (og brennivíni) en eigin viljaþreki. Svona líkt og bílgarmur sem rétt skjöktir á milli verkstæða. Aðrir góð- ir menn koma við sögu eins og atvinnuleikmaðurinn Kohn Matuzak sem gefur þeim sviðsvönu lítið eftir; Charles During, G.D. Spald- in og Steve Forrest falla að hlutverkum sínum eins og flís við rass, en það eru Bo Svenson og kántrísöngvar- inn Mac Davis (hér í sínu fyrsta hlutverki), sem bera af leikurum í aukahlutverk- um. Bestur allra er þó leik- stjórinn, Ted Kotcheff (First Blood, o.fl. o.fl.), sem keyrir myndina áfram frá upphafi til enda og lífgar hana með meinfýsnum húmor. Fyrsta flokks afþreying. P.S. (svona til bragð- Nick Nolte í sínu erf- iðasta hlutverki, að eigin sögn, hlutverki atvinnufótbolta- mannsins Riddelis í North Dallas Forthy. bætis). Miklar sögur fóru af gengdarlausu svalli kvik- myndargerðarmanna í kringum gerð N.D.F., og þá einkum af lygilegu úthaldi Kotcheffs í sukkinu. Jafnvel hinir þrælsjóuðu atvinnu- leikmenn í fótboltanum höfðu ekki látið sig dreyma um annað eins. Nolte þótti liðtækur líka. Þegar líða tók á kvik- myndatökuna voru forráða- menn Paramount jafnan á svæðinu, í e.k. barnapíu- hlutverki. CRY FOR THE STRANGERS ★ V2 Leikstjóri: Peter Medak. Handrit: John D. Feigeison, byggt á samnefndri skáld- sögu Johns Saul. Framleið- andi: Jay Daniel. Aðalhlut- verk: Patrick Duffy, Cindy Pickett, Brian Keith. Bandarísk. MGM/UA 1982, 92 min. Heldur blóðlítill sálfræði- þriller með draugasöguívafi. Sálfræðingurinn Patrick Duffy flytur ásamt konu sinni í afskekkt sjávarpláss í Oregon-fylki. Þar er ekki allt sem sýnist, aðkomu- menn illa séðir, aukinheldur hrynja þeir niður einn af öðrum á hinn sviplegasta hátt. Duffy hyggst komast að hinu sanna í málinu og kemst að því að á þessum slóðum var blótstaður indí- ána til forna og mannfórnir tíðar. Duffy er starfi sínu vaxinn og telur vitaskuld að hér sé frekar morðingi að verki en löngu dauðir rauð- skinnar! Þessi kunnuglegi rammi utan um efnið er illa nýttur og ófrumlega. Handritið bragðlaust og óspennandi og einkennist af ráðaleysi. T.a.m. verða áhorfendur í ein tuttugu skipti að horfa upp á nákvæmlega sama skotið af skýjafari og elding- um. Þessi andlausu vinnu- brögð telja höfundar því bersýnilega klár og krass- andi (varla hefur auraleysið verið svona nístandi), og annað er eftir því. Furðulegt að það er Peter Medak sem á svona slæman dag i leik- stjórninni, en hann á að baki þann ágæta þriller, Tho Cangeling með George C. Scott. Ekki hjálpar leikurinn upp á sakirnar. Duffy er að venju eins og illa gerður, góðlát- legur hlutur og kemur ekki á óvart að eina rullan sem honum býðst þessa daga er að leika sjálfan sig aftur- genginn í Dallas. Hún ætti að passa honum vel. Svekkj- andi að sjá gamla, góða Brian Keith í hraksmánar- legu hlutverki. Ætli hann hafi ekki bara lent í ógöngum með kreditkortið? Fundið fé — Easy Money ★ ★ Leikstjóri James Signorelli. Framleiðandi John Nincol- ella. Handrit Rodney Dangerfield, Michael Endl- er, P:J. O'Rourke, Dennis Blair. Titillag Billy Joel. Tónlist Laurence Rosent- hal. Aðalleikendur Rodney Dangerfield, Joe Pesci, Geraldine Fitzgerald, Candy Azzara, Jennifer Ja- son Leigh. Bandarísk. Orion 1983. 90 mfn. Flestum til forundrunar sló nýjasta mynd háðfugls- ins og brandarakarlsins Rodneys Dangerfield heldur betur í gegn vestan hafs í sumar og verður greinilega ein vinsælasta mynd ársins í henni Ameríku. Out of School nefnist þetta af- kvæmi karls númer tvö á hvíta tjaldinu, en að baki á þessi eftirsótti nætur- klúbbaskemmtikraftur aðeins Easy Money/Fundið fó, sem hér er til umfjöllunn- ar. í Fundnu fé leikur Dan- gerfield þann karakter sem öldurhúsagestir í Vesturálfu kannast dável við; feitan. kærulausan trassa sem allt lætur dankast svo hann geti svalað áhugamálum sínum sem skyldi, sem eru brenni- vínsþamb, ofát, veðmál og fleiri fyrirmyndarvenjur. í augum sinnar heitt höt- uðu tengdamóður er hann því hið argasta skítseyöi. Svo þegar kerling hrekkur uppaf kemur í Ijós aö hún hefur ánafnað honum fjöl- skylduauðnum — ef hann er maður til að taka upp hollari lífshætti og leggja af alla ósiði. Kvaðirnar reynast hirðuleysingjanum óbæri- legar og hver dagur líður í þjáningum uns hjálp berst úr óvæntri átt. . . Dangefield er sjálfsagt heldur amerískur til að hljóta þá lýðhylli hér sem hann nýtur í heimalandinu. Þetta er draslaralegur ná- ungi og með eindæmum lúðalegur „utanumsig", einsog sagt er. Karl lætur allt flakka og aðal hans eru tvíræðir brandarar sem margir hverjir höfða fyrst og fremst til landa hans, og kauðsk, brútal framkoma sem óneitanlega er oft bros- leg. Þeim sem gaman hafa af slíkum húmor er Easy Money sannarlega fundið fé. ur. Krakkar fara mikið í bíó enda er skemmtiiönaðurinn orðinn mjög samfléttaður, til dæmis eru mörg laganna á vinsældalistunum úr kvikmyndum og flest sýnd með myndböndum. Krakkarnir koma seinna heim og þetta getur skapaö vökunætur hjá foreldrum og pirr- ing, en sjálfur held ég að tíma- skortur foreldra sé jafnstór þáttur vandamálsins og vímuefnaneysla unglinganna. Það fer tvímælalaust fjölgandi þeim unglingum sem búa yið ófullkomin skilyrði heima fyrir. Ég held að vímuefnavandinn hafi verið blásinn upp í fjölmiðlum og það hafi skapað meira stress hjá fólki, og þá sérstaklega foreldrum, heldur en umfjöllun um úrræði og raunhæfar vangaveltur um að- gerðir til lausnar vandanum. Líkamleg vanræksla er líka al- geng sjón hér. Þá á ég við að ekki er sinnt þörfum krakkanna varð- andi fatnað og mat. Þeir ganga í lörfum og eru jafnvel svangir. Nokk- ur ungmenni hafa einnig komið hingaö vegna kynferðislegrar áreitni. Þetta eru hlutir sem erfitt er að ræða um og þeir koma seint eða ekki upp á yfirboröið. Við höf- um orðið vör við óhugnanleg dæmi. Þetta er hræðilegur hlutur Morgunblaðiö/Július Frá því Rauða kross húsið var opnað f desember á síðastliðnu ári hafa rúmlega 70 unglingar leitað þar aðstoðar og gist, en auk þess er stór hópur sem hefur leitað þangað eftir aðstoð án þess að gista. Fastir starfsmenn stöðvarinnar eru fimm. Þeir starfa á vöktum og aldrei er nema einn á vakt í einu. Húsið er í eigu borgarinnar, sem tekur þátt f rekstrinum á óbeinan hátt með þvf að sjá um við- hald utan húss og halda leigunni í hófi, að sögn Ólafs. Morgunblaöiö/Júlíus Það hafa aldrei fleiri unglingar leitað til Hjálpar- stöðvarinnar en síðustu vikurnar í sumar. Alls er þar pláss fyrir sjö tit tfu unglinga í einu. Meðan þeir dveljast f húsinu og lausn er ekki fundin á vanda þeirra, er ýmislegt sem þeir geta gert sér til dægra- styttingar, svo sem hlustað á tónlist, horft á myndbönd, spilað eða farið f borðtennis. Gestirnir taka svo þátt í heimilishaldi, matargerð og tiltekt. Hér sést inn f eitt herbergi. sem hefur alvarleg áhrif á einstakl- inginn alla ævi.“ Samstarf við foreldra Hvernig er samstarfi ykkar við foreldra og fjölskyldur háttað? „Við reynum að halda góðu sambandi við foreldra bg teljum að það þjóni oftast hagsmunum krakkanna best. Því miður er það hins vegar oft þannig í þeim tilfell- um sem við sjáuns að á þeim er ekki mikið að byggja. Hins vegar höfum við verið með í bígerð að koma á fót stuðningshópi fyrir for- eldra. Það verður vart nægilega vel undirstrikað að foreldrar þess- ara unglinga eru með samviskubit vegna þess að þeim finnst þeir ekki sinna börnum sínum nógu vel. Þeim líður ekki vel og kemur það jafnvel í veg fyrir að þeir geti gefið börnum sínum stuðning, að- hald og öryggi. Þess vegna er það mikið atriði að vera í sambandi við þá, í þeim tilfellum sem það er hægt og talið þjóna hagsmunum unglingsins. Þegar við förum að skoða töl- urnar eftir þessa fyrstu mánuði er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.