Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLADH), FiC)STUPAG.UR,12. SEPTEMBW HVAD ERAÐ GERAST UM hér á landi. Þeir leika á ýmsar gerð- ir tréspila og á gitar og er efnisskráin fjölbreytt; ítalskirog suður-amerískir dansar, „ragtime''-lög og verk eftir J.S. Bach og Franz Scubert, sérstak- lega útsett fyrir þessi hljóðfæri. Laugardaginn 13. september, kl. 17, verða þeir með tónleika í Lang- holtskirkju í Reykjavik og sunnudag- inn 14. september, kl. 17, í Safnaðarheimili Akraneskirkju. Listasafn ASÍ: Píanótónleikar Nú á sunnudaginn, 14. septem- ber, kl. 16, heldurHalldórHaralds- son píanóleikari tónleika á sýningunni „World Press Photo ’86" sem nú stendur yfir í safninu. Á efnisskránni eru fimm verk eftir Franz Liszt, en íáreru liðin 175ár frá fæðingu tónskáldsins og 100 ár frá dauða hans. Af þvi tilefni voru, í Ijósmyndasamkeppninni, veitt sér- stök verðlaun fyrir þá Ijósmynd sem best túlkaði þýðingu tónlistar í menningarsamfélagi og áhrif henn- ará daglegt líf. KJARVALSSTAÐIR: Flensað í Malakoff Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning á gömlum Ijósmyndum og fleiru er tengist sögu Reykjavíkur, í tilefni af 200 ára afmæli borgarinnar. Nú um helgina verða síðustu sýningar á leikþættinum Flensað í Malakoff, sem Brynja Bene- diktsdóttir og Erlingur Gfslason hafa tekið saman fyrir þessa sýningu, í tjaldinu á Kjarvalsstöð- um. Sýnt verður á föstudagskvöldið kl. 9, laugardag og sunnudag kl. 16 og aftur kl. 9 á sunnudagskvöldið. Allra siðasta sýning verður á mánudagskvöldið kl. 9. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. FELAGSLIF Laugardalshöll: Hjólastólarall Nú á sunnudaginn, 14. septem- ber, kl. 14, verður haldið hjólastólar- all i Laugardalshöllinni. Það er Sjálfsbjörg — landssamband fatl- aðra, sem stendurfyrir þessu ralli og vill með því vekja athygli á mál- efnum hreyfihamlaðra. I rallinu taka þátt arkitektar, sveitarstjórnarmenn af höfuðþorgarsvæðinu, skemmti- kraftarog hreyfihamlaðir. Ralliö er í formi firmakeppni og felst í því að komast yfir ýmsar hindranir í hjóla- stój. Ýmis skemmtiatriði verða í hlé- um; hljómsveitin Þokkabót leikur, Diddú syngur, hópurfrá Karatefé- lagi Reykjavíkur sýnir og Bjössi bolla kemur i heimsókn. Einnig verður sérstakur leynigestur. Aðgangur og mótsskrá eru ókeypis. TÓNLIST Skíðaskálinn í Hveradölum: Haukur Mortens og félagar i Skiðaskálanum í Hveradölum munu Haukur Mortens og félagar leika á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum út september- mánuð. Vestmannaeyjar: Eyjakvöld Á haustmánuðum í fyrra byrjaði Hótel Gestgjafinn með hin svoköll- uðu Eyjakvöld, skemmtanir þar sem snæddur var matur frá Vestmanna- eyjum og sungin Eyjalög. í ár verður þessu haldið áfram. Um skemmtiatriði sjá Runólfur Dag- bjartsson leikari, Helgi Hermanns- son söngvari, Jónas Þ. Dagbjarts- son fiðluleikari, Ásta Ólafsdóttir, Ásdís Þórarinsdóttir og Jónas Þórir hljómborðsleikari. Gestir eru beðnir að mæta timan- lega því að borðhald hefst kl. 20:30 og skemmtiatriðin kl. 21:30. „Die Xylophoniker1* Fimm manna hópur hljóöfæra- leikara frá Munchen er nú staddur Islenska óperan: IITrovatore íslenska óperan hefur vetrarstarf- ið meö sýningu á óperunni II T rovatore eftir Verdi, sem frumsýnd var i apríl sl. Voru þá 18 sýningar fyrir fullu húsi og 19. sýningin verð- urá laugardagskvöld kl. 20. í aðalhlutverkum eru: Kristinn Sig- mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, Hrönn Hafliöadóttir, Garöar Cortes, ViðarGunnarsson og Elísa- bet Waage. Ananda Marga: Indversk Ijóð ogdansar Félagar í Ananda Marga standa fyrir kynningu á indverskum Ijóðum og dönsum á sunnudaginn, 14. september, kl. 15. Kynntverða Ijóð úr bálkinum Söngvum dögunar (Prabhat Samgiit) eftir P.R. Sarkar. Leikin verður tónlist við Ijóöin og sýndur dans. Kynningin fer fram í húsnæði Hugræktarskólans í Að- alstæti 16 í Reykjavík. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Léttarveitingarveröa bornar fram að dagskránni lokinni. SÖFN Sjóminjasafnið: Sjóminjasafn íslands veröur opið í sumar, þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18. Safnið er til húsa á Vesturgötu 8 í Hafnarfirði. Árbæjarsafn: Opið um helgina Árbæjarsafn er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13:30 til kl. 18. Listasafn Einars Jónssonar: Safn og garður Listasafn EinarsJónssonarer opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13:30 til 16. Höggmyndagarður- inn er opinn daglega frá kl. 11 til 17. Sædýrasafnið: Dýrin mfn stór ogsmá Sædýrasafnið verður opiö um helgina eins og aðra daga frá kl. 10 til 19. Meðal þess sem er til sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn, apar, kindurog fjöldi annarra dýra, stórra og smárra. Hallgrímur Helgason sýnir á Bókhlöðustíg 2 í Reykjavík. Hallgerður: Hallgrímur sýnir Hallgrímur Helgason sýnir um þessar mundir i sýningarsalnum Hallgerði, Gallerí Langþrók á Bók- hlöðustíg 2 i Reykjavik. Hallgrímurfæddist 1959 en hóf ekki að mála fyrr en á miðju árinu 1983, eftir skamma viðdvöl í skól- um, hér heima og erlendis. Þetta er níunda einkasýning Hallgríms en einnig hefur hann tek- ið þátt í nokkrum samsýningum, m.a. ÍNew York. Síðastliðinn veturdvaldi hann í Bandaríkjunum, en nú í sumar hefur hann stundað list sína hér heima og er afrakstur sumarsins nú til sýnis, um 30 málverk. Sýningin er opin frá kl. 12 til 18 virka daga og 14 til 22 um helgar. Henni lýkur 21. september, en þá heldur Hallgrímur aftur til Banda- ríkjanna. Listasafn ASÍ: „World Press Photo ’86“ í Listasafni ASÍ á Grensásvegi 16, efstu hæð, stendur nú yfir frétta- Ijósmyndasýningin „World Press Photo '86". Á sýningunni eru um 180 Ijósmyndir sem hlutu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni þlaðaljós- myndara. Sýningin eropin frá kl. 16 til 20 virka daga og 14 til 22 um helgar. Kaffiveitingar kl. 14 til 18 um helgar. Carl Nielsen í tali og tónum Á sunnudaginn kl. 16 les danska leikkonan Birte Storup Rafn úr bréf- um tónskáldsins Carls Nielsen og konu hans, Anne Marie Brodersen, sem varmyndhöggvari. Með upp- lestrinum leikur Jorgen Westh á píanó tónlist eftir Carl Nielsen. Dag- skrá þessa nefna þau „Facetter af et kunstnerægteskab" (Fletirá hjónabandi listamanna) og hafa þau flutt hana víða í Danmörku við góð- ar undirtektir. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. „Die Xylophoniker“ leika í Langholtskirkju og í safnaðarheimili Akranesskirkju. «

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.