Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SÉPTEMBER 1986
A fe
Fimmti
99
FISTFUL OF DYN-
AMITE — DUCK
YOU SUCKER
★ ★ ★
Leikstjórn og handrit:
Sergio Leone. Tónlist:
Ennio Morricone. Fram-
leiðandi: Fulvio Morsella.
Aðalhlutverk: Rod Steiger,
James Coburn, Romolo
Valli, Maria Monti. ftölsk.
Rafran Cinematografica
SpA/United Artists 1972.
132 mín.
Hór er hún komin myndin
sem með róttu er oft vísað
til sem fimmta (og síðasta)
„dollaravestra“ Leones.
(Þeir fyrri A Fistful of Doll-
ars, For a Few Dollars
More, The Good, the Bad
and the Ugly og Once Upon
a Time in the West.
Þegar hér var komið sögu
var Eastwood búinn að
ávinna sér þá geysihylli sem
hann nýtur enn í dag og
upptekinn við að leikstýra
sinni fyrstu mynd, Play
Misty for Me, vestur í Kali-
forníu. Var hann því
víðsfjarri sínum gamla
meistara, sem heldur naut
dollaravestrinn“
ekki þess stjörnufans og tók
þátt í OUTITW. Því hefur
þessi bráðhressi vestri orð-
ið hálfpartinn útundan í
sinni líflegu fjölskyldu, jafn-
vel þó hafi verið gripið til
slíkra örþrifaráða að skíra
afkvæmið upp. En allt kem-
ur fyrir ekki, frægðarljóminn
umlykur ekki örverpið. Því
fer þó víðsfjarri að myndin
sem aðalleikararnir standi
ekki fyrir sínu, þeir Steiger
og Coburn eru traustir sem
endranær.
Á ofanverðum dögum
uppreisnar Pancho Villa
hittast tveir ólíkir utan-
garðsmenn. Hinn ruddalegi
og fáfróði „bandido", Rod
Steiger og gáfnaljósið,
hryðjuverkamaðurinn úr
IRA, James Coburn. Steiger
kemst að því á óblíðan hátt
að sá írski er snillingur í að
meðhöndla sprengiefni og
eygir nú möguleika á því að
láta sinn æðsta bófadraum
rætast; sprengja sig inn í
fjárhirslur bankans í Mesa
Verde. Coburn lætur tilleið-
ast en þegar rykskýið sest
reynist fátt um fó í banka-
hólfunum, hins vegar er
peningastofnunin notuð
sem fangageymsla fyrir
uppreisnarmenn.
Nú skipast snögglega
veður í lofti. Reyfararnir
orðnir hetjur byltingarinnar
— og þar af leiðandi efstir
á útrýmingarlista stjórnar-
hermanna, en Villa karlinn á
síðasta snúning ...
Eins og fyrri „spaghetti"-
vestrar leikstjórar er Fistful
of Dynamite hvort tveggja
hröð og fyndin og hér er
líklega best unniö úr sein-
heppninni sem löngum
einkennir þá. Þeir Coburn
og Steiger upp á sitt besta
og tónlist Morricone á sinn
ómissandi þátt í að hjálpa
Leone að framkalla hið
hráa, viðsjárverða og heill-
andi andrúmsloft sem
sórkennir þennan frísklega
kapítula kvikmyndasögunn-
ar. Ómissandi mynd fyrir
vestra — og þá sór í lagi
Leone-aðdáendur. Gefiö
olnbogabarninu auga!
AÆTLANA-
GERÐAR-
MULTIPLAN
Multiplan er áætlanageröarkerfi (töflureiknir), sem
öll fyrirtæki geta notfært sér við útreikninga. Viö
áætlanagerð getur Multiplan sýnt ótal valkosti,
eftirlíkingar og gert tölulega úrvinnslu.
Markmið námskeiðsins er að veita þeim, er starfa
við áætlanagerð og flókna útreikninga, innsýn í
hvernig nýta megi Multiplan-áætlanagerðarkerfið í
starfi.
Efni: Uppbygging Multiplan-(tölvureikna) • Helstu
skipanir • Uppbygging líkana • Meðferð búnaðar.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað starfsmönnum
fyrirtækja sem nota eða ætla að nota Multiplan
(töflureikna).
Tími og staður:
22.-24. september,
kl. 13.30—17.30,
Ánanaustum 15.
Leiðbeinandi:
Björn Guðmundsson,
kerfisfræðingur
Stiórnunarfélaa Islands
LÁnanaustum 15 Sími: 6210 66
m
a JS Gódan daginn!
sláandi að einungis 27% þeirra
sem hingað leita eru í vinnu og
11 % í skóla. Þó eru mörg ennþá
á skólaskyldualdri, til dæmis er
yngsti gesturinn sem hingað hefur
komið einungis þrettán ára. Þetta
segir mikið um félagslega stöðu
þessara krakka. Þá má spyrja sig
hvað þegar hefur gerst innan
veggja skólanna þegar svona er
komiö. Hvaö er búið að reyna?
Skólinn er jafnan kvöl og pína fyrir
þá unglinga sem líður illa vegna
erfiðra heimiiisaðstæðna eða af
persónulegum ástæðum. Þeir hafa
lítið sjálfstraust og lenda oft á villi-
götum og ef illa fer detta þeir
hreinlega út úr námi.“
Félagsmálastofnun
komin í stað stórfjöl-
skyldunnar
„ísland er að mjög mörgu leyti
Hjálparstöðin er opin allan sólar-
hringinn og reynslan hefur sýnt
að flestir koma á kvöldin og um
helgar.
MorgunblaöiA/Júlíus
„Skór geta sagt manni ótrúlega mikið um fólk, ekki sfst unglinga," seg-
ir Ólafur.
sérkennilegt samfélag og það má
segja að til dæmis hafi stórfjöl-
skyldan lengi vel komið í staðinn
fyrir fólagsmálastofnun eða aðrar
stofnanir innan kerfisins. Þegar
eitthvað bjátaði á innan fjölskyld-
unnar voru börn sett í fóstur til
einhvers nákomins og þótti ekkert
tiltökumál. Þetta er eflaust að ein-
hverju leyti til í dag, en þjóðfélagið
er tvímælalaust að breytast. Það
tók mig tíma eftir að ég lauk námi
mínu að átta mig á þvi að vegna
smæðar íslensks þjóðfélags er það
erfiðara hér en víða erlendis að
vera skjólstæöingur kerfisins. Það
er meira áberandi og niðurlægj-
andi en í stærri samfélögum. Það
er í rauninni feikilegt átak að sækja
inn í kerfiö og fólk sem hefur orðið
fyrir miklu mótlæti og hefur lítiö
sjálfsöryggi gerir það svo sannar-
lega ekki að gamni sínu.“
EJ
WM