Morgunblaðið - 12.09.1986, Page 12
VÍ2 %
^báTbPAGUR 12. SKPTEMBER WM
„Kennslu- og uppeldis-
aðferð en ekki ein tegund
læknismeðferðar'1
Fyrir stuttu var haldið
námskeið á vegum
Greiningar- og ráðgjafar-
stöðvar ríkisins, fyrir
þroskaþjálfa, kennara,
sjúkraþjálfara og aðra
sem í starfi sínu fást við
hreyfihölmuð börn. Ensk
kona, EsterCotton,
leiddi þátttakendur í allan
_______sannleik um kerfis-
bundna aðferð við
uppeldi og kennslu þess-
ara barna, en aðferðin
sem upprunnin er í Ung-
verjalandi, er að ryðja sér
til rúms í Evrópu.
Það var Ungverjinn
Andras Petö, pró-
fessor í taugafræöi,
sem mótaði „Leið-
andi menntun",
(conductive education), einsog
aðferðin hefur verið kölluð,
skömmu eftir seinni heimsstyrjöld-
ina. í Ungverjalandi byggist
meðferð hreyfihamlaðra barna ein-
göngu á kenningum hans. (
Búdapest er stofnun fyrir slík börn
sem hann kom á fót og getur tek-
ið viö 400 hundruð börnum
samtímis. Eftir dauða Petös hafa
lærisveinar hans haldið starfinu
áfram.
í stofnun Petös koma börn á
aldrinum 3-7 ára og dveljast þar
að meðaltali í 9-12 mánuði. Sum
þurfa þó að vera lengur, þau mest
fötluðu jafnvel 4-6 ár. Markmið
þjálfunarinnar er að gera þau hæf
til þátttöku í venjulegu skólastarfi.
Stofnunin sér einnig um að
mennta fólk til starfans. Námið er
á háskólastigi og tekur fjögur ár.
Að því loknu eiga menn kost á
þriggja ára framhaldsnámi. Námið
er bæði verklegt og bóklegt. í
bland við venjulega þjálfun í barna-
uppeldi er lögð stund á læknis-
fræðileg fög, mest áhersla er lögð
á það sem lýtur að heilanum, eink-
um þær heilaskemmdir sem
hreyfihamlaðir hafa orðið fyrir.
„í stuttu máli má segja að þessi
aðferð steypi saman í eitt kerfi
öllum aðferðum sem hingað til
Rættvið Esther
Cotton sem nýverið
hélt námskeiðfyrir
þjálfara og
uppalendur
hreyfihamlaðra
barna á vegum
Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar
ríkisins.
þroskaferli barna. Til dæmis vitum
við að til þess að geta lært ein-
falda hluti einsog að telja þurfa
menn að fá einhverja líkamlega til-
finningu fyrir talningunni, fingur og
tær eru þar mjög mikilvæg hjálpar-
tæki. Eðlileg börn geta talið á sér
fingurna og tærnar og fundið fyrir
þeim líkamlega. Barn með kreppt-
ar hendur eða einhverja aðra
líkamlega fötlun fær ekki sömu til-
finningu fyrir talningu og á þvi
miklu erfiðara með að gera sér
grein fyrir í hverju hún er fólgin.
Þetta veldur því að þessi börn eru
oftast mun seinni til en önnur og
gengur svo erfiðlega aö tileinka
sér það sem öðrum veitist auðvelt
að menn freistast til þess að telja
þau vangefin.
Petö lagði ríka áherslu á sjálf-
stæði barnanna. Það veröur að
láta þau gera það sem aðrir geta
með einhverjum hætti. Og hann
gerði þannig ráð fyrir að litið yrði
á aðferðina sem kennslu- og upp-
eldisaðferð en ekki eina tegund
af læknismeðferð.
Þessvegna flokka Ungverjar að-
stoð við þessi börn undir menntun
og hún heyrir undir menntamála-
ráðuneyti þar í landi. Hér á íslandi
einsog í öðrum löndum Vestur-
Evrópu tilheyrir þessi málaflokkur
Heilbrigðisráðuneytinu.
Það hefur veriö stefnan hjá okk-
ur aö greina sundur í marga þætti
það sem börnin eru látin læra.
Þannig finnst okkur það allt annaö
mál hvort barn getur skrifaö eða
hvort það getur klætt sig. Petö
lagði þetta allt að jöfnu. Fyrir hon-
um skipti máli að hreyfihömluð
börn stæöu sem næst jafnöldrum
sínum á öllum sviðum. Það er því
mikilvægt að þeir sem fást viö að
þjálfa þessi börn geti kennt þeim
allt sem þau þurfa að læra, allt frá
því að sitja á koppi uppí lestur og
skrift.
Kennari sem aðeins sér um að
kenna börnunum skólafögin getur
ekki vitað hvernig þeim gekk að
klæða sig sama morgun, eða hvort
þeim tókst daginn þar áður að
drekka úr glasi. Sá sem getur klætt
sig, hneppt hnöppum eða rennt
rennilás getur líka haldið á penna.
En það þarf að sýna hreyfihömluð-
hafa verið notaðar við uppeldi og
menntun hreyfihamlaðra barna til
þess að gera þau sæmilega sjálf-
bjarga," segir Esther Cotton.
„Hugmyndin er fyrst og fremst sú
að kenna börnunum þær athafnir
sem fyrir fiest fólk eru eðlilegar
og sjálfsagðar.
Það er mikill misskilningur að
hreyfihömluð börn séu oftast einn-
ig vangefin frá upphafi. Mönnum
sést yfir það að eðlileg hreyfigeta
skiptir ákaflega miklu máli í öllum
Esther Cotton og Stefán Hreið-
arsson í fjörunni fyrir neðan
Kjarvalshús á Seltjarnarnesi þar
sem Greiningar- og ráðgjafarstöð
rikisins hefur aðsetur.
Morgunblaðið/Börkur