Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
v pu crt c&> ók'ipta- um fö’fc i ó^ninCjCXr-
gtugganum otcKor."
Hafðu ekki hátt um það. En
nýju nágrannarnir þínir eru
óguðlega forvitnir!
Með
morgiinkaffinu
Þessir hringdu . . .
Ristan í
Rjúpnahæðum
Ragnar Kjartansson, mynd-
höggvari hringdi:
Mér sýnist handbragð Magnús-
ar A. Amasonar vera á þeirri ristu
í Rjúpnahæðum, sem nýlega er
birt mynd af í Velvakanda. Hann
gerði minnisvarða um Sigurbjöm
Sveinsson, sem er í kirkjugarðin-
um í Vestmannaeyjum og hand-
bragðið er ekki ósvipað. Annar
mögulegur höfundur verksins
gæti verið Jónas Jakobsson á
Akureyri. Það er greinilegt að
fagmaður hefur unnið þetta verk,
það sér maður á hlutföllunum og
gaman væri að varðveita verkið,
ef þess væri kostur.
Minnkið fótbolt-
ann í sjónvarpinu
Halldór Hjartarson, hringdi:
Fótboltafyllirí hefur tröllriðið
sjónvarpi og útvarpi að undan-
fömu og valdið breytingum á áður
auglýstri dagskrá. Þetta hefur
orðið ijölskyldu minni og vinum
til sárra vonbrigða. Nýjasta dæm-
ið er frá því á miðvikudagskvöldið,
þegar þessi fræga fuglamynd vék
fyrir leik Vals og Juventus, en
vinafólk mitt, sem ekki er með
sjónvarp, hafði komið í heimsókn
til þess að sjá myndina. Það er
furðulegt að íþróttir skuli aftur
og aftur ryðja út áður auglýstri
dagskrá. Ef það liggur svona mik-
ið á því að sýna þessa leiki, má
þá ekki sýna þá eftir miðnætti
og þá geta þeir sem eru sólgnir
í þetta vakað lengur.
BMX-hjól hvarf
Sólveig hringdi:
Nýlegt BMX reiðhjól hvarf frá
Víðistaðaskóla í Hafnarfírði,
þriðjudaginn 30.09. Það er svart
og gult að lit og ekki með brett-
um. Þeir sem hafa orðið varir við
hjólið eru beðnir um að hafa sam-
band í síma 91-54134.
Lambakjöt upp-
selt í Kaupstað
Gunnar Haraldsson, hringdi:
Kaupstaður, hin nýja verslun
KRON, þar sem Víðir var áður,
auglýsti lambakjöt af nýslátruðu
á 198 krónur kflóið í tilefni af
eigendaskiptunum. Þegar ég kom
rétt eftir hádegið var kjötið upp-
selt, auk þess sem mér var tjáð
að auglýst verð hefði verið rangt,
rétt verð hefði verið 298 krónur
kflóið. Ég vil lýsa yfír óánægju
minni með þessa þjónustu og að
verslunin skuli ekki standa við
tilboð sitt.
Hjóltekið
ófrjálsri hendi
Sigríður Kristjánsdóttir,
hringdi:
Blátt og silfurlitað BMX-hjól
var tekið úr hjólageymslunni að
Stelkshólum 12 á þriðjudagskvöld
eða miðvikudagsmorgun. eg beini
þeim tilmælum til foreldra og for-
ráðamanna bama að þau athugi
hvort hjólið kunni að vera í hjóla-
geymslum í þeirra umsjá. eg heiti
góðum fundarlaunum fyrir hjólið.
Upplýsingar í síma 91-72468.
Kvartað yfir
fréttatíma
3213-9728, hringdi:
Mig langar til þess að kvarta
yfír fréttatíma sjónvarpsins.
Hvemig á fólk sem vinnur til kl
sex eða sjö á kvöldin að geta
hugsað um kvöldverð, borðað og
gengið frá áður en fréttimar hefj-
ast. Það var svo þægilegt að geta
sest fyrir framan sjónvarpið, eftir
að vera búinn að elda og vaska
upp. Ég skora á forráðamenn
sjónvarps að setja fréttimar á
sama tíma og áður var.
Kettlingur í
óskilum
Helga, hringdi:
Mig langaði til þess að láta vita
um kettling, sem er í óskilum um
það bil fímm mánaða gamall.
Hann fannst á föstudaginn. Þetta
er grábröndótt læða með hvítan
maga og hún er á dýraspítalanum
skyldi eigandinn vilja vitja hennar.
Rallkeppni ljót
íþrótt
Kona í Reykjavík hringdi:
Biskupinn yfír íslandi sendi
prestum landsins orðsendingu og
bað þá um að biðja fyrir árang-
ursríkum fundi Gorbachevs og
Reagans. Ég myndi vilja skora á
alla bænheita landsmenn að gera
slíkt hið sama og biðja fyrir
árangursríkum fundi þjóðarleið-
toganna.
Þá vil ég taka undir orð hennar
Maríu úr Kópavogi um rallkeppn-
ir í þessum dálki. Bflaröll flokkast
að mínu mati með hnefaleikum.
Þetta er ljót íþrótt og skaðlegt
fyrir ungt fólk, að þeir menn skuli
vera gerðir að hetjum, sem sitja
undir stýri og misþyrma farar-
tækjum og gróðri með þessum
hætti. Ég vil hvetja fréttamenn
útvarps og sjónvarps til þess að
láta þessarar íþróttar ógetið í
sínum fjölmiðlum. Röll ýta áreið-
anlega undir hraðakstur ungs
fólks, meðal annars vegna þess
hvemig þau eru kynnt í fjölmiðl-
um.
Fánar í
röngum litum
Reykvíkingur hringdi
Ég vil að gerð verði gangskör
að því að losa bæinn við íslenska
fána, sem eru í röngum litum.
Blái liturinn í íslenska fánanum á
að vera heiðblár en ekki dimm-
blár, eins og blái liturinn í norska
eða breska fánanum. Ég held að
þessa sé getið í lögum um íslenska
fánann. Þrátt fyrir það er flaggað
í bakarabrekkunni fána í röngum
Iit og sama gildir um fána sem
seldir eru í búðum. Nú þegar von
er á fjölda fólks hingað til lands
er mál að gera gangskör að þvi
að bæta þetta ástand.
Borvél
tapaðist
Kona hringdi:
Borvél tapaðist nýlega ein-
hvers staðar á svæðinu í
kringum Njarðargötu og Ei-
ríksgötu. Vélin er af gerðinni
Black og Decker. Þeir sem ein-
hveijar upplýsingar geta gefið
eru beðnir um að hringja í síma
91-54551 eða 91-34680.
HÖGNI HREKKVlSI
Víkverji skrifar
Fólk talar varla um annað þessa
dagana en leiðtogafundinn,
sem haldinn verður hér um næstu
helgi. Yfírleitt er umtalið allt á einn
veg. Þjóðin er ákaflega stolt yfir
því, að ísland hefur orðið fyrir val-
inu, sem fundarstaður forystu-
manna þessara tveggja stórvelda.
Landsmenn munu leggja metnað
sinn í að sýna, að þessi fámenna
þjóð geti tekið á móti tveimur gest-
um og u.þ.b. 3000 manns sem fylgja
þeim eftir (!) með þeirri t-eisn og
myndarskap, sem hæfír. Áhuginn,
sem þetta staðarval hefur vakið á
íslandi erlendis er ótrúlegur. Þeir,
sem eru í aðstöðu til að fylgjast
með þeim þætti málsins muna ekki
annað eins. Þessi mikli áhugi mun
skila sér á skömmum tíma í bein-
hörðum peningum. Hitt er svo
annað mál, að margir hugsa sitt í
sambandi við þetta fundarhald og
sums staðar skjóta upp kollinum
efasemdir um, að það sé landi og
þjóð til gæfu, að athyglin beinist
svo mjög að þessari litlu eyju í norð-
urhöfúm.
Fyrstu viðbrögðin af þessu tagi,
sem Víkveiji heyrði á fömum
vegi voru þau er ung stúlka sagði,
þegar hún heyrði fréttimar: Hvað
vilja þessir tveir gömlu karlar hing-
að? Áf hverju geta þeir ekki látið
okkur í friði? Skömmu síðar hafði
annar viðmælandi Víkveija á orði,
að þessum fundi gætu fylgt hættur
fyrir þjóðina. í kjölfar leiðtoganna
tveggja mundu hryðjuverkamenn
reyna að gera strandhögg á íslandi.
Svipaðar áhyggjur heyrði
Víkveija skömmu síðar hjá þriðja
aðila, sem velti því fyrir sér, hvort
fundarhald þetta hér gæti á nokk-
um hátt orðið til góðs fyrir okkar
litlu þjóð. Röksemdafærslan var
eitthvað á þessa leið: Við höfum
lifað hér í sæmilegum friði um ald-
ir. Fáir taka eftir okkur. Þess vegna
höfum við losnað við margvísleg
óþægindi eins og t.d. hryðjuverka-
menn. Nú væri svo komið, að í
París þyrði fólk ekki lengur að sitja
á kaffihúsum og ræða saman af
ótta við sprengingar. Mundi leið-
togafundurinn flytja þennan nútíma
til okkar?
Sami aðili varpaði hins vegar
fram þeirri spumingu, hvort ríkis-
stjóm ísland hefði getað.neitað að
taka á móti leiðtogafundinum. Nið-
urstaðan var sú, að ef ríkisstjórnin
hefði gert það, hefði ísland vakið
athygli um heim allan fyrir það eitt
að vilja ekki leggja sinn skerf af
mörkum til þess að stuðla að friði
í heiminum.
XXX
Umhugsun af þessu tagi er eðli-
leg. Hún auðveldar lands-
mönnum að gera sér grein fyrir
stöðu íslands í stómm heimi. Næstu
daga verður land okkur í miðdepli
heimsfrétta. Um riæstu helgi verður
það miðdepill heimsatburða.