Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
Hanna Schygulla í vondra manna höndum í myndinni Lulu að eilífu.
Hanna Schygulla ígamanmynd
Hanna Schygulla er ein
þekktasta kvikmyndaleikkona
Evrópu. Hún hefur unnið með
leikstjórum eins og Fassbinder
(18 myndir), Jean-Luc Godd-
ard, Ettore Scola, Andrei
Wajda, Volker Schlöndorff og
Wim Wenders. Hún hefur nú
kosið að leika í sinni fyrstu bíó-
mynd í Bandaríkjunum með
óþekktum ísraelskum leik-
stjóra, sem aðeins hefur gert
tvær myndir áður. Með Schy-
gulla leika tvær rokkstjörnur,
önnur hefur verið kölluð
„Garbo pönksins" en hin er
söngvari hljómsveitar sem kall-
ast Skyrturnar.
Myndin var tekin sl. sumar,
heitir Forever Lulu (Lulu að
eilífu) og er leikstýrt af Amos
Kollek, syni borgarstjóra Jerús-
alem, Teddy Kollek. Schygulla
er bókstaflega í hverjum einasta
ramma myndarinnar en áður-
nefndir meðleikarar hennar eru
Deborah Harry úr hljómsveitinni
Blondie, sem leikur titilhlutverk-
ið, og Annie Golden sem leikur
besta vin Schygulla.
Söguþráðurinn er eitthvað á
þessa leiö: Elaine Hines (Sch'y-
gulla) er rithöfundur sem á
heldur erfitt uppdráttur. Hún
dýrkar Virginíu Woolf, býr í íbúð
á stærð við fataskáp í nið-
urníddu hverfi og á leið sinni til
að fremja sjálfsmorð með byssu
hræðir hún tvo vegfarendur;
annar missir frakkann sinn sem
í er dagsetning, tími og heimilis-
fang og nafnið Lulu. Elaine
heldur stefnumótið, lendir í
byssubardaga og verður fræg
fyrir. Hún fer um á milli hinna
ríku og glæsilegu en leitar í
sífellu að Lulu, lyklinum að ráð-
gátunni. Schygulla er ánægð
með hlutverk sitt í myndinni,
það er rétt eins og hún vill hafa
það, órökrétt, ruglingslegt,
tvírætt."
Schygulla var auðvitað spurð
að því hvernig á því stæði að
vinsæl og eftirsótt leikkona eins
og hún léti hafa sig í lítið og
ómei'kilegt fyrirtæki eins og
Forever Lulu. „Hvers vegna?"
hváði hún. „Ég vildi leika í gam-
anmynd." Og svo sagði hún:
„Amos kom til mín og spurði
hvort ég vildi leika í þessari
mynd þegar það var að renna
upp fyrir mér að ég hafði aðeins
leikið í þungum og alvarlegum
myndum og mér var farið að
leiðast það . . . Núna vil ég
minnka við mig álagið, ég vil
fást við auðveldari hluti, léttari
og meira leikandi en áður."
Nýja myndin hans
David Lynch
David Lynch, leikstjóri Eras-
erhead, Fílamannsins og Dune,
hefur sent frá sór nýja mynd
sem hann nefnir Blue Velvet.
Hún var frumsýnd fyrir nokkru í
Bandaríkjunum og fékk mjög
góða dóma gagnrýnenda. Með-
al leikara í myndinni eru Kyle
MacLachlan, sem lék aðalhlut-
verkið í Dune, Isabella Rossell-
ini, Dennis Hopper og Dean
Stockwell. Þetta ku vera undar-
leg mynd, vægast sagt, og
sérlega áhrifarík enda öfug-
uggahátturinn og afhrigðileg-
heitin í henni ótrúleg að sögn.
Myndin hefst á því að aðal-
söguhetjan Jeffrey Beaumont
(MacLachlan) finnur eyra í skóg-
inum við smábæinn Lumberton,
Eyrað, sem iðar af maurum, til-
heyrir manni er rænt var ásamt
syni sínum af Frank (Hopper),
sem er uppdópaður geðsjúkling-
ur.
Frank hafði kúgað Dorothy
(Rossellini), eiginkonu mannsins,
og falið sig í fataskápnum henn-
ar. Aumingja Jeffrey, sárasaklaus
og Ijúfur, fékk að fylgjast með því
þegar Frank svalaði viðbjóðsleg-
um fýsnum sínum á henni og
þegar Dorothy varð hans vör
sagði hún: Meiddu mig. Jeffrey,
heldur undrandi sagði: Nei, ég
kom til að hjálpa þér. En svo féll
hann fyrir löngunum hennar. Þá
tók Frank Jeffrey í kennslustund.
Hann smurði varalit á andlit sitt,
kyssti Jeffrey á munninn og barði
hann til óbóta.
íbúar Lumberton veifa í
myndavélina og Frank öskrar
blótsyrði og hverfur. Allt virðist
geta gerst, allir eru fórnarlömb
allra og Tobe Hopper þykir ein-
hver afbrigðilegasta og viðbjóðs-
legasta persóna kvikmyndasög-
unnar í hlutverki Franks.
MacLachlan og Rossellini í Blue Velvet.
UC I Í IMI IWirMTND/iNNA
Aparmr gera árás.
<*
Laugarásbíó:
Bandóðir
bavíanar
Timothy Bottoms.
Laugarásbíó mun á næstunni
frumsýna bandarísku spennu-
myndina In the Shadow of
Kilimanjaro eða í skugga Kili-
manjaro með Timothy Bottoms
í aðalhlutverki. Leikstjóri er Raju
Patel en myndin gerist í Kenýa
í mikilli þurrkatíð og segir frá
því þegar stórir hópar bavíana
taka upp á því að ráðast á fólk
og drepa.
Bottoms leikur þjóðgarðsvörð-
inn Jack Ringtree. Hann fréttir af
síendurteknum árásum hungr-
aðra og eirðarlausra bavíana á
fólk og reynir að vara menn við
þeim en honum er tekið fálega.
Árásir apanna aukast stöðugt,
fjöldi þeirra er gríöarlegur og ekk-
ert virðist geta stöðvað þá. Menn
reyna hvað þeir geta að berjast
á móti en aparnir eru 500 sinnum
fleiri en íbúar héraðsins og gagn-
árásir hafa lítið að segja. Apana
hungrar í æti og enginn er óhult-
ur. Ringtree og aðrir koma sér
fyrir á hóteli í bænum Namanga
og búa sig undir komu þeirra..
Leikstjórinn Patel fékk fyrst
áhuga á að gera þessa mynd
þegar hann var á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes árið 1980 og
Jeffrey Sneller sýndi honum hand-
rit sitt um óða bavíana í Kenýa.
Eftir dágóðan undirbúning hófust
tökur fjórum árum seinna. „Það
kom margt skringilegt fyrir í
Kenýa," sagði Patel í viðtali.
„Myndin inniheldur nokkur atriði
sem sýna bavianana ráðast á
fólk og drepa en þau byggðu
mjög á tæknibrellum sem líktu
eftirblóðsúthellingum. Þorpsbúar
í grenndinni af ætt Maasaia
gerðu sér ekki grein fyrir gerfinu
og héldu að við værum í raun
og veru að drepa fólk og fréttir
af þessari slátrun okkar bárust
alla leið til yfirvalda í Nairobi áður
en okkur tókst að leiðrétta mis-
skilninginn."
Patel segir einnig frá því að
kvikmyndaliöið hafi verið dauð-
hrætt við snáka og þegar einn
virkilega baneitraður náðist fyrir
utan búðir þess áttu þorpsbúar
auðvelt með að fullvissa liðið um
að það þyrfti lífsnauðsynlega á
löngum stöfum að halda til að
vera sig. „Og þeir seldu okkur
stafi á óheyrilega háu verði," seg-
ir Patel. Hann hefur aöeins eitt
gott ráö handa hverjum þeim sem
hyggst leggja kvikmyndaleik-
stjórn fyrir sig eftir þetta æfintýri.
„Gerðu ekki, undir neinum kring-
umstæðum, þína fyrstu bíómynd
með fleiri bavíönum en fólki."