Morgunblaðið - 10.10.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
Sandgerði:
Eldsvoðií
íbúðarhúsi
Morgunblaðið/Einar Falur
Tæknimenn hjá Stöð 2 unnu að því i gærkvöldi að finna hvað olli biluninni í tækjabúnaði stöðvarinnar.
Stöð 2:
Fréttaútsending féll niður
vegna bilunar í tækjabúnaði
FRÉTTAÚTSENDING féU
niður á fyrsta útsendingardegi
nýju sjónvarpsstöðvarinnar,
Stöðvar 2, í gær. Að sögn Jóns
Óttars Ragnarssonar, sjón-
varpsstjóra, stafaði það af
bUun í tækjabúnaði, sem upp
kom á síðustu stundu.
„Við tókum áhættu og því
miður kom upp bilun sem olli því
að við náðum ekki sambandi inn
í upptökuherbergið. Þar af leið-
andi tókst okkur ekki að senda
út fréttimar", sagði Jón Óttar.
Ekki var ljóst hvað olli biluninni
þegar Morgunblaðið ræddi við
Jón Óttar í gærkvöldi. „Það greip
auðvitað um sig taugatitringur
hjá okkur þegar þetta kom upp,
en við þessu var ekkert að gera
og við vonum það besta í fram-
haldinu", sagði hann.
Það vakti athygli að Jón Óttar
flutti ávarp sitt á sama tíma og
ríkissjónvarpið var með beina
útsendingu frá komu Reagans
Bandaríkjaforseta á Keflavíkur-
flugvelli. Jón Óttar var spurður
hvað hefði valdið þeirri tímasetn-
ingu og hvort ekki væri líklegt
að færri en ella hefðu hlustað á
ávarp hans af þessum sökum:
„í sjálfu sér skiptir ekki höfuð-
máli hvort fleiri eða færri hlust-
uðu á þetta ávarp. Hitt var verra
að geta ekki sent út fréttir á
þessari stundu. Skömmu áður en
ég flutti ávarpið töldum við að
tækin væru komin í lag og því
var ákveðið að láta slag standa
og ætlunin var að senda fréttim-
ar út strax á eftir. En því miður
tókst það ekki“, sagði Jón Óttar.
Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, ávarpaði áhorfendur
stöðvarinnar að loknum umræðu-
þætti á tíunda tímanum í
gærkvöldi. Páil sagði þá meðal
annars: „Við telfdum á tæpasta
vað, en töpuðum. Við sátum hér
heldur niðurlút þar til símhring-
ingum fór að rigna yfir okkur,
með ámaðaróskum og þeirri
hvatningu að fall væri farar-
heill". Páll þakkaði stuðninginn
og sagði að lögð yrði áhersla á
að útsendingar frá stöðinni sjálfri
gætu hafíst sem allra fyrst.
Sjá frásögn á bls. 25.
ELDUR kom upp í íbúðarhúsi
í Sandgerði um kvöldmatar-
leytið í gærkvöldi. Engan
sakaði í eldinum en talsverðar
skemmdir urðu á húsinu af
völdum eldsins, reyks og hita.
Eldurinn kom upp í þvottahúsi
íbúðarhússins, þar sem verið var
að sjóða feiti í potti. Lögreglunni
í Keflavík var þegar gert aðvart
og var slökkviliðið í Sandgerði
kvatt út. Tókst fljótlega að ráða
niðurlögum eldsins en húsið, sem
er einlyft timburhús, hafði þá
orðið fyrir tlasverðum skemmd-
um.
Lýsing h.f
Nýtt hlutafélag um
fjármögnunarleigu
Auglýsingar á
erlendum málum
í Morgunblaðinu í gær birtist
auglýsing frá Verksmiðjunni
Vífilfelli hf., sem var aðallega
á ensku, þótt hinn enski texti
birtist jafnframt á íslenzku. í
blaðinu í dag eru auglýsingar,
sem eru bæði á ensku og rússn-
esku, en einhver íslenzkur texti
að auki og hugsanlegt að fleiri
slíkar birtist um helgina. Aug-
lýsingar þessar birtast í tengsl-
um við leiðtogafundinn, sem
haldinn er hér á landi um þessa
helgi.
Af þessu tilefni vill Morgun-
blaðið ítreka þá meginstefnu
blaðsins, að allur texti, hvort sem
er ritstjómartexti eða auglýsinga-
texti skuli vera á íslenzku. Um
þetta var fjallað í forystugrein
Morgunblaðsins fyrir allmörgum
mánuðum og þar var afstöðu
blaðsins lýst á þennan veg:
“Það hefur jafnan verið grund-
vallarregla í útgáfu Morgunblaðs-
ins að birta ekkert, hvorki
ritstjómartexta eða auglýsingar,
á öðm tungumáli en íslenzku. í
einu eða tveimur tilfellum hefur
undantekning verið gerð, þegar
birtur hefur verið texti í blaðinu
á færeysku.í örfáum tilfellum
hefur vegna sérstakra aðstæðna
verið fallizt á að birta auglýsingu
bæði á íslenzku og öðru tungu-
máli. En það er meginregla, sem
haldið hefur verið fast við, að birta
auglýsingar ekki á öðru tungu-
máli en íslenzku. Þrátt fyrir
ákveðnar reglur og skýr svör held-
ur þrýstingur á blaðið áfram frá
ýmsum aðilum um að birta aug-
lýsingar á erlendum málum.
Stundum hefur þetta gerzt vegna
mistaka."
Þótt undantekning hafi verið
gerð með birtingu þeirra auglýs-
inga, sem fyrr voru nefndar,
vegna þess sérstaka fundar, sem
hér verður haldinn og er einstæð-
ur viðburður á Islandi, mun
Morgunblaðið halda fast við þá
meginreglu, sem hér hefur verið
lýst.
STOFNAÐ hefur verið í
Reykjavík nýtt hlutafélag til að
annast fjármögnunarleigu, en
slík starfsemi færist nú mjög í
vöxt og miðar að því að auðvelda
rekstraraðilum útvegun véla,
tækja og tæknibúnaðar.
Hlutafélagið nefnist Lýsing h.f.
Stofnendur eru Landsbanki íslands
og Búnaðarbanki íslands, sem eiga
40% hvor, Brunabótafélag íslands
sem á 10% og Sjóvátryggingarfélag
íslands og Líftryggingarfélag Sjóvá
h.f. sem eiga 10%. Þessir aðilar,
sem annars standa í innbyrðis sam-
keppni sín á milli, hafa hér tekið
höndum saman til að mynda alís-
lenskt fyrirtæki á sviði fjármögnun-
arleigu, sem er nægilega öflugt til
að tryggja að forystan á þessu mik-
ilvæga sviði viðskiptalífsins sé í
íslenskum höndum.
Nýja félagið er stofnað með 50
milljón króna hlutafé og heimild til
aukningar þess í 100 milljónir
króna. Stjóm félagsins skipa Helgi
Bergs bankastjóri formaður, Jón
Adolf Guðjónsson bankastjóri vara-
formaður, Ingi R. Helgason forstjóri
ritari, Einar Sveinsson fram-
kvæmdastjóri, Sólon Sigurðsson
aðstoðarbankastjóri og Brynjólfur
Helgason framkvæmdastjóri.
Framkvæmdastjóri félagsins verður
ráðinn innan skamms og að því
búnu verður aðsetur félagsins aug-
lýst.
Talsmenn So vétslj órnarinnar:
Útiloka ekki
lengri fundarhöld
TALSMENN Sovétstjórnarinnar
útilokuðu ekki þann möguleika á
blaðamannafundi á Hótel Sögu í
gær, að fundur þeirra Reagans
og Gorbachevs í Reykjavík um
helgina kynni að verða lengri,
en gert er ráð fyrir í núverandi
dagskrá.
Talsmennimir sögðust ekki geta
sagt, hvenær Gorbachev færi af
landi brott, en á þessari stundu
væri stefnt að því að það yrði á
sunnudaginn.
Sirius væntanlegur á laugardagsmorgun:
Engar óskir um afskipti
Landhelgisgæslunnar
- „Höfnin lokuð fyrir óviðkomandi
umferð,“ segir hafnarstjóri
SIRIUS, skip Grænfriðunga, er
væntanlegt til Reykjavíkur um
klukkan hálf níu á laugardags-
morgun. Að sögn Þrastar Sig-
tryggssonar, skipherra í
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar,
hafa engar óskir borist frá yfir-
völdum um afskipti Landhelgis-
gæslunnar vegna komu skipsins.
Grænfriðungar höfðu sótt um
leyfí fyrir skipið til að leggjast við
bryggju í Reykjavík á laugardag.
Gunnar B. Guðmundsson, hafnar-
stjóri, sendi beiðni skipsins áfram
til utanríkisráðuneytisins. Hann
sagði í samtali við Mogunblaðið að
máiið væri f athugun í dómsmála-
ráðuneytinu, en engin formleg
ákvörðun hefði borist þaðan. Hir
vegar væri Reykjavíkurhöfn loki
fyrir óviðkomandi umferð um helj
ina og því Ijóst að Sirius fengi ek
leyfí til að leggjast við bryggju
Reykjavík. Gunnar sagði hugsai
legt að Sirius myndi leggjast v
ankeri á ytri höfnina eða þá fai
til Hafnarfjarðar. Eins og fra
hefur komið í fréttum mun þí
vera ætlun Grænfriðunga að hak
hér uppi mótmælum gegn kjar
orkuvígbúnaði á meðan á leiðtog
fundinum stendur.
Reykj aví kurhöf n:
Eldur í g*ræn-
lenskum bát
ELDUR kom upp í litlum
grænlenskum fiskibát i
Reykjavíkurhöfn laust fyrir
miðnætti í gærkvöldi. Tveir
menn eru á bátnum og voru
þeir báðir i landi er eldurinn
kom upp.
Slökkviliðið í Reykjavík var
kvatt á vettvang og var enn við
slökkvistörf er Morgunblaðið
fregnaði síðast, laust eftir mið-
nætti í nótt. Ekki var vitað um
eldsupptök, en báturinn mun
hafa skemmst nokkuð í eldinum.