Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stundin nálgast þegar hendurn-
ar tvær er ráða lífi jarðarbúa
snertast. Guð gefi að það handa-
band innsigli frið á jörðu.
erst að hún Nancy Reagan skuli
ekki sjá sér fært að drepa niður
fæti hér á eykrílinu. í The Times er
þess getið í áberandi grein að...
nútímakonan Raisa Gorbacheva sé
væntanleg til íslands að hitta aðra
nútímakonu frú Hermannsson. Að
mínu mati má sjá hér enn eitt dæmið
um sterka áróðursstöðu Sovétmanna
á Reykjavíkurfundinum. Hvað til
dæmis um hinn glæsilega bílaflota
Sovétmanna er geysist inn í kastljós
alheimsfjölmiðlanna á sama tíma og
fulltrúi höfuðvígis kapítalismans
sjálfur Ronald Reagan kúldrast í
Opel. Og svo má náttúrulega ekki
gleyma því að Gorbachev stakk upp
á fundinum sem Pravda segir að
geti ... ráðið úrslitum um framtíð
mannkyns.
Að mínu mati er Reykjavíkurfund-
urinn afar sterkur refskákarleikur
hjá Sovétmönnum. Þeir mæta þar
með glæsibrag og að því er virðist
með framrétta sáttahönd. Ef Reagan
tekur ekki í þá „sáttahönd" þá geta
þeir sagt eftir fundinn: Ja, við gerð-
um okkar besta stungum upp á
fundarstað mitt á milli Moskvu og
Washington, þú vildir bara ekki
semja. Auðvitað veit heimurinn ekk-
ert hvort Rússar vildu í raun og veru
semja nema sjálfum sér í hag. Hér
er barist með orðum en að baki orð-
anna er óhugnanlegt vald, sem
verður reynt að hylja af sjónarspilinu
mikla enn einum Ieik í áróðursstríð-
inu.
Ég held nú að þeir vilji semja bless-
aðir. Rússar hafa að vísu ræst einn
af kjamakljúfunum í Chemobyl en
samt held ég að það slys hafi hrætt
sovésku þjóðina og þrýst, aldrei
þessu vant, á þarlenda stjómmála-
menn. og þá er það hann Reagan
blessaður. Vill Reagan semja? Ég
held persónulega að hann vilji semja
því nú styttist seinna kjörtímabilið
og þá er eins víst að Reagan sé alvar-
lega tekinn að velta fyrir sér eftir-
mælunum. Verður Ronalds Reagan
minnst sem harðlínumanns er vann
það helst sér til ágætis í utanríkis-
málum að hindra landvinninga Rússa
eða sem friðarboða er leiddi andstæð-
inginn til raunhæfra samninga við
friðarborðið í Reykjavík í húsi skálds-
ins Höfða.
Þannig kemur nú ástandið Qöl-
miðlaiýninum fyrir sjónir en ég nenni
ekki að tína til einstaka dagskrárliði
flölmiðlanna heldur lít yfir sviðið
stórfenglega, þó má ég til með að
minnast á ummæli sovéska frétta-
mannins er rætt var við í fréttaskýr-
ingaþætti ríkissjónvarpsins I
fyrradag. Þessi ágæti maður var
spurður um hvers vegna Reykjavík
hefði orðið fyrir valinu sem fundar-
staður og nefndi hann meðal annars
þá ástæðu að .. . á íslandi eru fleiri
skáld en finnast samanlagt annars-
staðar í henni veröid. Hvemig
stendur á því að skáldjöfursins Ein-
ars Benediktssonar er um tíma átti
Höfða er hvergi getið í fréttum?
Kannski voru hinir máttugu alheims-
legu straumar er Einar Ben. vakti
með skáldskap sínum aflvaki fundar-
ins í Höfða? Segir ekki snillingurínn
í kvæðinu: Þrúguhöfgi.
Hvaðgrseðisthji oss viðþýlundarþögn
í þyrstra höfðingja sölum:
þar kæfð og bæld er hver sannleiks
sögn.
Sagan oss flytur bin óræku gögn,
frá tíndum að dýpstu dölum.
Ólafur M
Jóhannesson
Rokkrásin kveður
I Einn af þáttum
rásar 2, Rokk-
l_ rásin, sem verið
íefur á dagskrá frá upp-
hafi, kveður í kvöld. Stjóm-
endumir, þeir Skúli
Helgason og Snorri Már
Skúlason, hyggjast riíja
stúttlega upp feril þáttar-
ins en aðallega munu þeir
horfa til framtíðar og spila
glæný lög. Þeirra á meðal
verður óútgefið lag með
The Smiths, sem kemur á
markað í Bretlandi 20. okt.
n.k.. Aðrir flytjendur verða
t.d. New Order, Iggy Pop
og The Fall.
Alþingi sett í 109. sinn
■■■■ í dag, föstudag,
1 Q20 verður ríkissjón-
A O varpið með
beina útsendingu frá setn-
ingarathöfn alþingis ís-
lendinga. Að venju setur
forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, þingið. Ut-
sendingin hefst kl. 13.20.
Úr sagnasjóði
Arnastofnunar
■■■ í kvöld verður
QA40 Hallfreður Örn
Eiríksson með
fyrsta þátt sinn Úr sagna-
sjóði Amastofnunar. Það
hefur tíðkast lengi að ís-
lendingar segðu þjóðsögur
á kvöldvökum og því af
nógu að taka fyrir Hall-
freð. Ámastofnun er til
húsa í Háskóla íslands, að
vísu ekki aðalbyggingunni,
heldur Ámagarði.
UTVARP
FOSTUDAGUR
10. október
6.45 Veöurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál. Erlingur
Siguröarson flytur þáttinn.
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Litli prinsinn" eftir
Antoine de Saint Exupéry.
Þórarinn Björnsson þýddi.
Erlingur Halldórsson les (7).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úr forystugreinum
dagblaöanna. Tónleikar.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ljáöu mér eyra. Um-
sjón: Málfríður Sigurðar-
dóttir. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Siguröur Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Frá setningu Alþingis.
a. Guösþjónusta í Dómkirkj-
unni.
b. Þingsetning.
14.30 Nýtt undir nálinni. Elín
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýútkomnum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónlelkar.
16.20 Landpósturinn. Lesið úr
forustugreinum landsmála-
blaöa.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Stjórn-
endur: Kristín Helgadóttir
og Vernharður Linnet.
17.00 Fréttir.
17.03 Síðdegistónleikar
a. „Hans og Gréta", forleik-
ur eftir Engelbert Humper-
dinck. Hallé-hljómsveitin
leikur; Maurice Handford
stjórnar.
b. Atriði úr þriðja þætti óper-
unnar „II Trovadore" eftir
Giuseppe Verdi. Luciano
Pavarotti, Gildis Flossmann
og Peter Baillié syngja með
kór og hljómsveit Ríkisóper-
unnar í Vín; Nicole Resigno
stjórnar.
c. Lokaatriði þriðja þáttar
úr óperunni „Lucia di
Lammermoor" eftir Gaet-
ano Donizetti: Luciano
Pavarotti og Nicolai Ghi-
aurov syngja með kór og
hljómsveit óperunnar í Co-
vent Garden í Lundúnum;
Richard Bonynge stjórnar.
17.40 Torgið. Umsjón: Óöinn
Jónsson. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.36 Daglegt mál. Erlingur
Sigurðsson flytur þáttinn.
19.40 Tónleikar
20.00 Lög unga fólksins
Valtýr Björn Valtýsson kynn-
ir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Rauðamyrkur. Hannes
Pétursson les söguþátt
sinn, annan lestur.
b. Úr sagnasjóöi Árnastofn-
unar. Hallfreður Örn Eiríks-
son tók saman. Fyrsti
þáttur.
c. „Geislabrot á milli élja."
Auðunn Bragi Sveinsson fer
með stökur eftir Hjálmar
Þorsteinsson frá Hofi i ald-
arminningu hans.
21.30 Sígild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Hljómplöturabb. Þor-
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
10. október
13.20 Setning Alþingis
Bein útsending frá setning-
arathöfn og guösþjónustu í
Dómkirkjunni í Reykjavík.
14.50 Hlé
17.55 Fréttaágrip á táknmáli
18.00 Litlu Prúðuleikararnir
(Muppet Babies)
Tólfti þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
18.25 Grettir fer í útilegu —
Endursýning.
Teiknimynd um köttinn
Gretti, hundinn Odd og Jón,
húsbónda þeirra.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
18.50 Auglýsingarogdagskrá
19.00 Spítalalíf (M*A*S*H)
Annar þáttur. ■
Bandariskur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyðar-
sjúkrastöð bandariska
hersins í Kóreustríöinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.30 Fréttir og veöur
20.05 Leiðtogatundur í
Reykjavík — Fréttaþáttur.
20.40 Sá gamli
(Der Alte)
17. Gamlir félagar.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Aðalhlutverk Siegfri-
ed Lowitz.
Þýðandi Veturliöi Guðna-
son.
21.40 Rokkarnir geta ekki
þagnað
Gunnbjörg Óladóttir og fleiri
flytja trúarlög af plötunni
„Þú ert mér nær". Umsjón:
Dóra Mutse Takefusa.
Stjórn upptöku: Gunnlaugur
Jónasson.
22.10 Seinni fréttir
22.25 Joe Kidd
Bandarískur vestri frá 1972.
Leikstjóri John Sturges. Að-
alhlutverk: Clint Eastwood,
Robert Duvall. Bandarikja-
menn og Mexíkómenn deila
um iandamærahéruð í
Nýju-Mexíkó. Stuðningur
bardagamanns eins ræður
úrslitum þegarslæríbrýnu.
Þýðandi Reynir Harðarson.
00.05 Dagskrárlok.
STÖD7VÖ
FOSTUDAGUR
10. október
17.30 Myndrokk.
17.55 Teiknimyndir.
18.25 Myndrokk.
19.00 Michael Gorbasjev
kemur til islands- bein út-
sending frá Keflavík.
19.26 Fréttir.
20.00 Undirheimar Miami
(Miami Vice), bandarískur
framhaldsþáttur.
21.00 Gorbasjev og Vigdís á
Bessastöðum — bein út-
sending.
21.10 Vandræðabörn (North-
beach and Rawhide),
sjónvarpsmynd.
22.40 Blekkingin (Deceptions
I), stuttur bandarískur fram-
haldsþáttur.
00.10 Óþverraverk (Foul Play),
bandarísk kvikmynd.
01.40 Myndrokk.
05.00 Dagskrárlok.
steins Hannessonar.
23.00 Frjálsar hendur. Þáttur
í umsjá llluga Jökulssonar.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturstund í dúr og
moll með Knúti R. Magnús-
syni.
1.00 Dagskráríok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
FOSTUDAGUR
10. október
Um miðjan dag verður út-
varpað frá heimsókn
Reagans til forseta islands,
Vigdisar Finnbogadóttur.
(Ótimasett.)
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur, Kristjáns Sigurjóns-
sonar og Sigurðar Þórs
Salvarssonar.
12.00 Létt tónlist
14.00 Bót í máli
Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynniróska-
lög þeirra.
16.00 Endasprettur
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr ýmsum átt-
' um og kannar hvað er á
seyöi um helgina.
18.00 Hlé.
20.00—21.00 Rokkrásin
Umsjónarmenn Skúli Helga-
son og Snorri Már Skúla-
son.
21.00-23.00 Kvöldvaktin
— Andrea Jónsdóttir.
3.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavik og nágrenni
■— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
Föstudagsrabb
Inga Eydal rabbar við hlust-
endur og leikur létta tónlist,
les kveðjur frá hlustendum
og greinir frá helstu við-
burðum helgarinnar.
989
'UUMsEWI
FÖSTUDAGUR
10. október
6.00—7.00 Tónlist í morg-
unsárið
Fréttir kl. 7.00.
7.00—9.00 Á fætur með Sig-
urði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Siguröur lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
9.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin og
ræðir við hlustendur til há-
degis.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur. Jóhanná leikur létta
tónlist, spjallar við hlustend-
ur og stýrir flóamarkaði kl.
13.20.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar og spjallar við hlustendur
og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00,' 16.00 og
17.00.
17.00-19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson ( Reykjavík
síðdegis. Hallgrímur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00 og 19.00.
19.00—21.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson í kvöld. Þorsteinn
leikur tónlist og kannar hvað
næturlífið hefur upp á að
bjóða.
22.00—4.00 Jón Axel Ólafs-
son. Nátthrafn Bylgjunnar
leikur létta tónlist úr ýmsum
áttum og spjallar við hlust-
endur.
4.00—8.00 Næturtónlist Bylgj-
unnar. Tónlist fyrir þá sem
fara seint í háttinn og hina
sem fara snemma á fætur.