Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 7
5()V
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
Börnin í borginni 1930 . . .
. . . og núna.
Afmælisbók um Reykjavík
ÚT er komin ný bók um
Reykjavík, í tilefni 200 ára af-
mælis borgarinnar, „Reykjavík
200 ára, Saga höfuðborgarinnar
í myndum og máli“. Texti bókar-
innar er eftir Pál Líndal. Útgef-
Jóhann Friðrik Margeir Guðmundur
íslenskir stórmeistarar um einvígið í Moskvu:
Sá sterkari vann í
skemmtilegu einvígi
EINVÍGI Anatoli Karpovs og Gary Kasparovs um heimsmeistaratitil-
inn í skák lauk í Moskvu í gær. Þeir íslensku stórmeistaranna sem
blaðamaður Morgunblaðsins leitaði til, voru ekki undrandi á þessum
úrslitum. „Þetta var skemmtilegt einvígi, og Kasparov verðskuldar
sigurinn" sagði Margeir Pétursson, en í grein i Morgunblaðinu 27.
júlí spáði Margeir einmitt, að Kasparov hlyti 12 ‘Avinning en Karpov
11 '/í, eins og raunin varð á.
Guðmundur Siguijónsson taldi
þann sterkari hafa sigrað í þessu
einvígi. „Ég vonaði að Kasparov
ynni, en verð ^ð viðurkenna að mér
leist ekki á blikuna þegar hann tap-
aði þremur skákum í röð undir lok
einvígisins" sagði Guðmundur.
Friðrik Ólafsson taldi að Kasparov
hefði falli í gildru í 17. einvígsis-
skákinni, og undir það tók Jóhann
Hjartarsson.
„í 17. skákinni tókst Karpov að
finna mjög öflugt svar við þeirri
byijun sem Kasparov hafði notað í
nærri öllum skákunum. í skákinni
sem þar fór á eftir var hann mjög
heppinn og þegar hann vann þriðju
skákina í röð náði Kasparov ekki
að bæta fyrir hin fræðilegu mistök.
Hann var þá augsýnilega kominn
úr jafnvægi" sagði JÓhann. „Karpov
sýndi það undir lokin hvílíkur snill-
ingur hann er á taflborðinu" sagði
Friðrik. „Ég held að Kasparov hafi
verið orðin of öruggur, en eftir að
hann hafði beðið ósigur í skákunum
þremur tók hann sig saman í andlit-
inu.“
ÍS-SPOR hefur framleitt minnis-
pening í tilefni af Reykjavíkur-
fundi Reagans og Gorbachevs og
var Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra afhent fyrsta
eintakið í gær.
Minnispeningurinn er sleginn í
takmörkuðu upplagi, hámark 1.000
peningar, og verður til sölu hjá
frímerkja- og myntsölum, Ramma-
gerðinni og fleiri stöðum eftir
ástæðum. Söluverð Reagans-Gorb-
achevs-minnispeningsins er 1.200
krónur með söluskatti.
andi er Bókaútgáfan Hagall,
Reykjavík.
í ávarpi Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra sem birtist í bókinni segir
hann m.a. að borgin muni tímana
tvenna í sinni 200 ára gömlu sögu.
Á þeim tíma hafi orðið stórkostleg-
ar breytingar á umhverfi hennar
og aðbúnaði borgaranna. Jafnvel
þeir sem eru á miðjum aldri eiga í
hugskoti sínu tvær myndir af borg-
inni, önnur úr æsku og hina úr
nútímanum. Síðar segir hann: „En
tímamót eins og þau, sem borgarbú-
ar eru að fagna, vekja upp áhuga
á sögunni. Hvemig breyttist þessi
staður, og hver var drifkrafturinn
á bak við þær breytingar allar ?
Segir það okkur eitthvað um, hvað
framtíðin ber í skauti sér ? Ekki
endilega næstu 200 árin, en t.d.
þau næstu 20 ?“
Fremst í bókinn rekur Páll Líndal
sögu höfuðborgarinnar í grófum
dráttum með tilvísun í þær fjöl-
mörgu myndir sem prýða bókina. Á
hverri myndopnu er mynd úr lífi
borgarinnar fyrr ognú og er gjam-
an stillt saman myndum frá svipuð-
um slóðum og við samskonar
aðstæður, til samanburðar. Fremst
em tvær elstu myndir af Reykjavík,
sem fundist hafa og em frá ámnum
1847 til 1848. Ljósmyndarar sem
eiga myndir í bókinni em: Des Clo-
izeaux, Hjálmar R. Bárðarson,
Jóhannes Long, Jón Freyr Þórarins-
son, Karl Nielsen, Kristján Ingi
Einarsson, Magnús Ólafsson, Ólaf-
ur Magnússon, Ólafur K. Magnús-
son, Páll Stefánsson, Peter J. Sörá,
Pétur Brynjólfsson, Pétur Eyvinds-
son, Rafn Hafnfjörð, Ragnar
Axelsson, Sigfús Eymundsson, Sig-
urður Guðmundson og Tempest
Ar’erson.
Samband rofnaði
við ferjuflugvél
LÍTIL tveggja sæta Piper Cup
flugvél, sem var í feijuflugi frá
Bandaríkjunum, lenti í erfiðleik-
um skammt suður af íslandi í
gærkvöldi.
Mun vélin hafa misst afl og raf-
magn og rofnaði sambandið við
hana. Flugumsjónarmönnum á
Keflavíkurflugvelli tókst að ná vél-
inni inn á ratsjá og leiðbeina henni
til lendingar á Keflavíkurflugvelli
þar sem hún lenti heilu á höldnu
laust eftir kvöldmat.
Friðrik sagði að hann hefði orðið
var við þetta sjálfstraust Kasparovs
í fyrsta einvígi þeirra Karpovs.
Hefði það þá verið meira en efni
stóðu til. „Kasparov hefur tvímæla-
laust meira úthald," sagði Jóhann,
„og þessi úrslit sýna að hann er
einfaldlega aðeins betri."
Stórmeistaramir vom sammála
um að Karpov myndi sennilega
vinna Sokolov, áskoranda, í einvígi
þeirra á næsta ári. Því myndu þeir
Kasparov leiða saman hesta sína
aftur. „Þetta er auðvitað komið út
í algjöra vitleysu" sagði Guðmund-
ur. „Eitthvað er að þessu kerfi
þegar tveir menn tefla 100 ein-
vígisskákir á 1 ári. Aðspurður hvort
hér væri um mistök FIDE, alþjóð-
lega skáksambandsins, að ræða
sagði Friðrik: „Auðvitað er þetta
FIDE að kenna. Ákvarðanir þeirra
hafa verið teknar án nægilegrar
forsjálni. Það er undarlegt að svona
skuli hafa gerst - ég tel mig vita
að þeir Karpov og Kasparov óski
ekki eftir því að vera slfellt að tefla
hvor við annan.“
Að mati Jóhanns felast möguleik-
ar Sokolovs á vinningi í einvíginu
á næsta ári fyrst og fremst í óhefð-
bundnum skákstíl hans. „Karpov
etur þama kappi við erfiðan and-
stæðing. Maður getur aldrei reiknað
Sokolov út, hann er „grísari" sem
bjargar sér oft með óvæntum brell-
um. Það hefði orðið auðveldara fyrir
Karpov að vinna Jusupov, því þar
fer skilgetið afkvæmi rússneska
skákskólans."
Heimsmeistaraeinvígi það sem
nú er að baki var að mati Friðriks
skemmtilegt. „En það tekur ekki
fram einvígi Fischers og Spasskys
sem hlýtur að vera það merkileg-
asta um þennan titil frá upphafi"
bætti hann við. Hann nefndi 11.
einvígsskákina að þessu sinni sem
þá tilþrifamestú, en henni lyktaði
með jafntefli. Guðmundur taldi 16.
skákina, sem Kasparov vann, eftir-
minnilegasta. „Maður á örugglega
eftir að kíkja yfir hana nokkmm
sinnum í viðbót. í henni var mikill
darraðadans" sagði Guðmundur.
Penninn er vopnið
í pólitík
Ásgeir Hannes Eiríksson er einn af okkur.
En þegar hann beitir pennanum er hann engum líkur.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf á þannig manni að halda á þingi.
Kosningaskrifstofan
eríTemplarasundi 3, 3. hæð.
Símar 28575 og 28644.