Morgunblaðið - 10.10.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJAVÍK
Eg býð yður
velkominn
til Islands
- sagði Vigdís Finnbogadóttir for-
seti Islands er hún tók á móti Ronald
Reagan forseta Bandaríkjanna
„ÉG BÝÐ yður velkominn til Íslands,“ var það fyrsta sem
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands sagði við Ronald
Reagan forseta Bandaríkjanna þegar hún tók á móti
honum á Keflavíkurflugvelli í gær.
Ronald Reagan veifar til fólksins um leið og hann ekur inn á Laufásveg.
MorgunblaÆð/Þorkell
Forsetamir heilsuðust þama
við landgang forsetavélarinnar
og skiptust á nokkmm orðum.
Forseti íslands minntist
ánægjulegrar opinberrar heim-
sóknar til Bandaríkjanna árið
1982, en hún fór þá til Wash-
ington í tilefni af norrænu
menningarkynningunni Scand-
inavia Today sem haldin var í
Bandarílqunum það ár. Þá hitti
hún forseta Bandaríkjanna í
hádegisverðarboði í Hvíta hús-
inu. Vigdís kynnti Reagan fyrir
öðram úr móttökunefndinni og
síðan gengu þau að bfl hans.
Þau ræddu um veðrið og rign-
inguna sem helltist yfír þau
þá stuttu stund sem móttöku-
athöfnin stóð. Aður en þau
kvöddust við bílinn færði Reag-
an Vigdísi þakkir fyrir það að
íslendingar hefðu tekið að sér
að vera gestgjafar á þessum
fundi leiðtoga stórveldanna.
Klappað fyrir Reagan er
hann ók inn á Laufásveg
ríska sendiráðinu. Áhorfendur
við gatnamót Laufásvegar og
Skothúsvegar sáu forsetann þó
brosa í bíl sínum og veifa og var
þá klappað fyrir honum. Frétta-
mönnum var haldið í um 100
metra fjarlægð við gatnamótin
beggja vegna, en íbúar við göt-
una fengu að fylgjast með af
tröppum húsa sinna og út um
lokaða glugga. íbúarnir, sem
Morgunblaðið ræddi við í gær-
kvöldi, töldu sig ekki hafa séð
forseia Bandarikjanna við kom-
una og töldu sumir að hann hefði
ekki f.irið inn um aðaldyr húss-
ins, en aðrir að öryggisverðir og
fleira fólk hafi skyggt á forset-
ann og hann hafi farið rakleiðis
inn um aðalinnganginn.
Laufásvegurinn var lokaður allri
umferð á milli Skothúsvegar og
Skálholtsstígs og engum hleypt þar
inn í gærkvöldi nema íbúum og
gestum þeirra. Blaðamönnum var
ætlaður staður við gatnamótin
beggja vegna en vegna þess hve
skuggsýnt var orðið gekk mönnum
illa að greina það, sem fram fór.
Auk blaðamanna var nokkur fjöldi
fólks við gatnamótin beggja vegna
og fjöldi lögregluþjóna. Rétt fyrir
klukkan átta komu tvær þyrlur
fljúgandi yfír svæðið og sveimuðu
þar um stund. Um klukkan átta
kom bflalestin upp Skothúsveginn,
um 25 bflar, og fór forsetabflinn
yfír á rauðu ljósi á gatnamótum
Skothúsvegar og Sóleyjargötu.
Reagan brosti út um gluggann og
veifaði til fólksins er safnazt hafði
saman á homi Laufásvegar og
Skothúsvegar um leið og bfll hans
sveigði inn Laufásveginn að sendi-
ráðinu. Fólkið klappaði og öryggis-
verðir þustu út úr bflum sínum og
gættu þess að fólkið héldi sig í
hæfílegri fjarlægð.
„Eigum eftir að
sjá Reagan“
Steinunn Guðmundsdóttir er einn
íbúa við Laufásveg 19, hússins við
norðurhlið bandaríska sendiráðsins.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hún, ásamt fleiri íbúum
hússins, hefði staðið úti á tröppum
og séð bflinn koma að. Hins vegar
hefði allt gengið svo hratt fyrir sig,
að þau hefðu ekki séð Reagan, en
hún væri þess fullviss að hann hefði
farið inn um aðaldymar. Hún sagð-
ist halda að bannað hefði verið að
taka myndir í götunni og þeim hefði
ennfremur verið bannað að hafa
glugga á suðurhlið hússins opna.
Hún sagðist vera tiltölulega vön
svona umstangi, það hefði verið
svipað, þegar Nixon kom til lands-
ins og sagðist ekkert hafa á móti
þessu. „Ég tók í hendina á Nixon
og tvö bama minna, þegar hann
kom og ég er viss um að við eigum
eftir að sjá Reagan," sagði Stein-
unn. „Það var fíöldi fólks hér, en
enginn sá neitt,“ sagði hún.
„Við horfðum á þetta út um
gluggann hjá okkur, en sáum ekki
neitt," sagði Jóhanna Hannesdóttir,
íbúi við Laufásveg 18a, í samtali
við Morgunblaðið. „Hann hefur
líklega farið inn í portið, að minnsta
kosti fór einn bflanna þangað. Við
vorum búin að koma fyrir mynda-
tökuvél í einum glugganum og
höfðum á honum hæfílega rifu, en
síðan var okkur bannað að hafa
gluggan opinn svo myndatakan
varð engin. Þetta umstang allt hef-
ur lítil áhrif á okkur og við höfum
engin teljandi óþægindi af því. Ég
vona bara að þeim takist að semja
um varanlegan frið,“ sagðí Jóhanna
Hannesdóttir.
LÍTIÐ sást til Ronalds Reagan,
forseta Bandaríkjanna, er hann
kom að dvalarstað sínum á ís-
landi meðan á fundarhöldum
stendur, Laufásvegi 21, Banda-
Morgunblaftið/Einar Falur
Annríki
hjá fjöl-
miðlafólki
ÞEIR starfsmenn fjölmiðla sem
daglega fjalla um fréttir úr Hvita
húsinu hafa undanfama daga
fjölmennt til íslands.
Eins og aðrir blaðamenn höfðu
þeir í nógu að snúast í gær eftir
að Reagan forseti kom til landsins.
Myndin er tekin í miðstöð þeirra á
Loftleiðahótelinu.
Sjúkraþyrla
til taks frá
bandaríska
hernum
Sérstök sjúkraþyrla frá
bandaríska hernum er kom-
ín til landsins vegna leið-
togafundarins. Verður hún
til taks ef einhver hinna
tignu bandarísku gesta veik-
ist skyndilega.